Morgunblaðið - 20.09.2010, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Sultarólin hert á Suðurnesjum
Meirihluti bæjarstjórnar stefnir að 450 milljón króna niðurskurði í útgjöldum
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar,
segir að stefnt sé að 450 milljón króna niður-
skurði í útgjöldum bæjarins. Stjórnendur
Reykjanesbæjar undirbúa nú niðurskurðinn og
er meðal annars rætt við starfsfólk um lækkun
starfshlutfalls og styttingu afgreiðslutíma þjón-
ustustofnana.
Gert var ráð fyrir tekjum af aukinni atvinnu-
starfsemi í fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar. Árni
Sigfússon segir stór verkefni hafa stöðvast og því
sé stefnt að niðurskurði. Í fyrra var samið við
flesta embættismenn, framkvæmdastjóra og þá
starfsmenn sem höfðu yfir fjögur hundruð þús-
und krónur í mánaðarlaun um að minnka starfs-
hlutfall sitt um tíu prósent. Það samkomulag
rennur út á næstunni en Árni kveðst nú ræða við
starfsfólk um framlengingu á samkomulaginu og í
sumum tilvikum aukna skerðingu. Árni segir að
ekki verði ráðist í hópuppsagnir en útilokar ekki
að starfsfólki verði fækkað.
Friðjón Einarsson, oddviti Samfylkingarinnar í
bæjarstjórn Reykjanesbæjar, segist ekki hafa
heyrt tillögur meirihlutans en kveðst hafa óskað
eftir því að meirihlutinn, í samstarfi við minni-
hlutann, færi yfir rekstur bæjarins í heild sinni.
„Ég hef ekki séð þessar niðurskurðartillögur. Það
hefur ekkert verið kynnt með formlegum hætti
fyrir okkur, sem er mjög sérstakt,“ segir Friðjón
sem kveðst samt hafa átt von á niðurskurðartil-
lögum.
„Mér finnst þetta forkastanleg vinnubrögð að
bæjarfulltrúar lesi um þetta í fréttum án þess að
það sé búið að kynna málið fyrir þeim. Ég veit að
það var farið af stað með þessa vinnu hjá meiri-
hlutanum í síðustu viku, við heyrðum það í frétt-
um. Þrátt fyrir að það væri fundur í bæjarráði í
síðustu viku þá var ekkert kynnt þar. Vinnu-
brögðin eru forkastanleg,“ segir Friðjón
Mér finnst þetta forkast-
anleg vinnubrögð að
bæjarfulltrúar lesi um
þetta í fréttum.
Friðjón Einarsson
Um helgina gafst
þingmönnum
kostur á því að
skoða þau gögn
sem þingmanna-
nefnd sem fjallaði
um skýrslu rann-
sóknarnefndar
Alþingis, þar á
meðal um ábyrgð
ráðherra, aflaði.
Tekin voru af-
rit af skjölunum og þeim komið fyrir
í möppum í þremur herbergjum í
skála Alþingis. Þingmennirnir fá að-
eins aðgang að skjölunum á staðn-
um, í trúnaði, og geta ekki fengið af-
rit af neinum gögnum.
Þá voru ýmis gögn í annarri
möppu sem nefndin aflaði þótt þau
séu ekki talin skipta máli við umfjöll-
un um ráðherraábyrgð.
Helgi Bernódusson, skrif-
stofustjóri Alþingis, segir þingmenn
hafa kynnt sér skjölin en samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins stóðu
þeir þó ekki í röðum fullir eftirvænt-
ingar að komast í þau.
„Þetta er búið að vera opið allan
sólarhringinn alla helgina. Ég get
staðfest það að þingmenn hafa kom-
ið. Þingmenn hafa notfært sér
þetta,“ segir Helgi.
Í dag mun Alþingi fjalla áfram um
þingsályktunartillögu um máls-
höfðun gegn ráðherrum.
jonasmargeir@mbl.is
Þingmenn
kynntu sér
málsgögn
Helgi
Bernódusson
Alþingi ræðir ráð-
herraábyrgð í dag
Kærleikur og hlýja voru allsráðandi í miðborg Reykjavíkur á laugardag-
inn. Þúsundir manna gengu sem leið lá frá Hallgrímskirkju niður á Ingólfs-
torg, þar sem hlýtt var á fagra tóna og uppbyggjandi ræðuhöld.
Besti flokkurinn hvatti til kærleiksgöngu gegn kynþáttafordómum, en
tilefni hennar eru ofsóknir sem kúbverskir feðgar hafa orðið fyrir. Göngu-
fólk var hvatt til að koma með þjóðfána ýmissa landa til að sýna fram á að
allir eru velkomnir í samfélag okkar, hvert svo sem þjóðerni þeirra kann
að vera. Þessi unga stúlka lét sitt ekki eftir liggja í þeim efnum og mætti
galvösk til göngunnar með fána í hendi. Gangan fór afar vel fram og veðrið
var upp á sitt besta og lék við göngufólk.
Kærleikurinn sigrar allt
Morgunblaðið/Kristinn
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Ísland er eina landið í Vestur-Evrópu þar sem
ekki eru reglur um merkingar erfðabreyttra
matvæla. Það stendur til bóta, en nýverið
samdi Jón Bjarnason sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra drög að reglugerð þess efnis.
Reglugerðin styðst við reglur ESB. „Við göng-
um aðeins lengra en önnur Evrópulönd,“ segir
Jón.
Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna, fagnar þessari reglugerð. „Aðal-
málið er að neytendur hafi raunverulegt val-
frelsi. Það hafa þeir ekki sé matvara ekki
merkt á þennan hátt.“ En hvers vegna hafa
slíkar reglur ekki verið settar fyrr? Jón segir
nokkrar tilraunir hafa verið gerðar til þess. Áð-
ur var málaflokkurinn á ábyrgð umhverfis-
ráðuneytisins og reglugerð þessa efnis sett þar
árið 2007. Lítið varð þá úr framkvæmdum.
Hann segir að þetta sé hluti af samstarfssamn-
ingi ríkisstjórnarinnar.
„Það skiptir miklu máli fyrir okkur sem land
og þjóð sem vill geta státað af heilnæmri fram-
leiðslu að geta markaðssett matvörur okkar
sem heilsusamlegar.“
Frestur til átta mánaða
Jón telur ólíklegt að reglugerðin hafi áhrif á
matvælaverð, kostnaður fyrir framleiðendur
sé óverulegur. Hún öðlast þegar gildi, en mat-
vælafyrirtæki hafa frest í átta mánuði frá gild-
istöku hennar, frestur til þess að merkja afurð-
ir dýra sem fóðruð eru á erfðabreyttu fóðri
er átján mánuðir og fóðurfyrirtæki hafa
þriggja mánaða frest. Á næstunni verður
farið yfir sjónarmið umsagnaraðila, sem
eru meðal annars Samtök verslunar og
þjónustu, SA, SI, Bændasamtökin og
Neytendasamtökin.
Landbúnaðarráðherra telur ólíklegt að reglugerð hafi áhrif á matvælaverð
Neytendasamtökin fagna og segja neytendur loksins fá raunverulegt val
Matvælum breytt
» Erfðabreytt kallast matvæli sem eru
framleidd úr lífverum sem breytt hefur
verið lítillega með utanaðkomandi erfða-
efni.
» Tilgangurinn hefur einkum beinst að
því að auka framleiðslu, til dæmis með
því að gera plönturnar ónæmar fyrir ill-
gresiseyðandi efnum.
Neytendasamtökin hafa lengi krafist þess
að settar verði reglur hér á landi um merk-
ingu erfðabreyttra matvæla og hafa bent
á að Ísland er eina ríkið í Evrópu þar sem
engar slíkar reglur eru í gildi. Jóhannes
Gunnarsson, formaður Neytendasamtak-
anna, segir að ómögulegt sé að gera sér
grein fyrir hversu hátt hlutfall af matvöru
sé erfðabreytt. Hann segir bandarísk
stjórnvöld halda því fram að erfða-
breytt matvæli séu í engu frá-
brugðin öðrum matvælum og
merkja þau því ekki sér-
staklega. Íslendingar flytja
allra Evrópuþjóða mest inn af
matvælum frá Bandaríkjunum.
Fagna reglugerð
NEYTENDASAMTÖKIN
Ásdís Óskarsdóttir, formaður
starfsmannafélags Suðurnesja,
segir stjórnendur Reykjanes-
bæjar ekki fara réttu leiðirnar
við hagræðingu í rekstri bæj-
arfélagsins. „Það má ekki ráð-
ast á launafólkið strax,“ segir
Ásdís.
„Það kemur mjög ítarlega
fram í Morgunblaðinu hvað
hann ætlar að gera en það á eft-
ir að útfæra þetta. Hann gerir
sér ekki alveg grein fyrir því að
það eru kjarasamningar sem
þarf að fylgja.“
Ráðist á
launafólkið
STFS
Erfðabreytt matvæli verða merkt