Morgunblaðið - 20.09.2010, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 20.09.2010, Blaðsíða 30
Sérstök Winona Ryder var mætt til að kynna Black Swan. Harvey Keitel Við frumsýningu A Beginners Guide To Endings. Aðdáun Sam Worthington og aðdáandi. Kvikmyndahátíðinni í Toronto lauk nú um helgina. Á tíu dögum voru sýnd hundruð mynda og ýmislegt forvitnilegt á boðstólum. Mynd Darrens Aronofskys, Black Swan, með þeim Natalie Portman og Winonu Ryder í aðalhlutverkum, hlaut mikla athygli og er spáð í óskarsbaráttuna en myndin fjallar um uppsetningu danshóps á Svanavatninu og baráttu tveggja ballerína um aðalhlutverkið. Þeir Casey Affleck og Joaquin Phoenix mættu með „heimildamyndina“ I’m Still Here en viðurkenndu svo rétt undir lok hátíðarinnar að myndin, sem fjallar um tón- listarbrölt Phoenix, væri leikin. Kevin Spacey og Werner Herzog mættu einnig til leiks með nýjar myndir og eitt er víst að margar þeirra mynda sem sýndar voru á TIFF munu verða áberandi þegar verðlaunavertíðin nálgast. Stjörnurnar í Toronto Ballett Kynning á dramanu Black Swan. Ofurtöffari Bruce Springsteen lét sig ekki vanta og tók spúsu sína með sér. Ólétt Kelly Preston mætti kasólétt á frumsýn- ingu myndarinnar Casino Jack. Spilavíti Kevin Spacey mætti til Toronto til að kynna nýjustu mynd sína, Casino Jack. Eldri Bandaríski leikarinn Aidan Quinn hefur ekki verið mikið í sviðsljósinu undanfarið. Blómarós Breska leikkonan Kristin Scott Thomas mætir á frumsýningu Sarah’s Key. Haha Vera Farmiga og Keanu Reeves. Tvö Aaron Eckhart og Nicole Kidman. Íðilfögur Eva Mendes á rauða dreglinum. Hress Ed Harris. Reuters 30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2010

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.