Morgunblaðið - 20.09.2010, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 20.09.2010, Blaðsíða 36
MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 263. DAGUR ÁRSINS 2010 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2218 1. Þrenna Berbatovs sökkti ... 2. Blikar í toppsætinu 3. Ótrúlegt afrek fatlaðs manns 4. Með skammbyssu á slysadeild »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM Reuters Kvikmyndahátíðinni í Toronto lokið  Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto, eða TIFF, lauk nú um helgina. Hundruð mynda voru sýnd á tíu dögum og stórstjörnur Hollywood létu sig ekki vanta enda margar með myndir í farteskinu. »30  Enn berast fréttir af tónlist- arhátíðinni Ice- land Airwaves en nú hefur verið til- kynnt að FM Bel- fast og Dan Dea- con muni stíga þar á svið. Dag- skráin verður gerð opinber á miðvikudaginn en 230 atriði hafa verið staðfest. FM Belfast og Dan Deacon á Airwaves  Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason er að hasla sér völl í London en hann er nýfluttur í stórborgina. Það virðist vera nóg að gera hjá Snorra. Hann spilaði meðal annars á svokölluðu Airwaves Warm-up Night á Hoxton Square Bar & Grill og á The Re- gal Room í síðastliðinni viku. Snorri kemur heim til að spila á Airwaves en heldur síð- an til Kanada til að spila með félaga sínum. Fluttur til London og á fullu í tónlistinni Á þriðjudag Fremur hæg norðaustlæg átt og víða dálítil rigning, en slydda inn til lands- ins NA-til. Á miðvikudag og fimmtudag Hægviðri og skýjað með köflum, en sums staðar súld úti við sjóinn. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Dálítil væta í flestum landshlutum. Hiti 3 til 11 stig að deginum, hlýjast syðst, en víða næturfrost inn til landsins. VEÐUR Breiðablik er aðeins einum sigri frá því að innbyrða sinn fyrsta Íslandsmeist- aratitil í karlaflokki í fót- bolta. Blikar sendu Selfyss- inga niður í 1. deild í gær með 3:0 sigri og takist þeim að vinna Stjörnuna í loka- umferðinni á laugardaginn er titillinn þeirra. ÍBV og FH unnu sína leiki og geta því náð efsta sætinu ef Blikum verður fótaskortur í loka- umferðinni. »1-7 Blikar einum sigri frá Íslandsbikar Þóra Björg Helgadóttir og Dóra Stef- ánsdóttir landsliðskonur í knatt- spyrnu urðu um helgina sænskir meistarar, fyrstar Íslendinga, í einni bestu deild í heimi. Lið þeirra, Malmö, gerði þá 1:1 jafntefli í upp- gjöri efstu liðanna. „Þetta er topp- urinn á ferl- inum,“ sagði Þóra við Morg- unblaðið. »1 Þóra og Dóra sænskir meistarar í fótbolta Akureyringar eiga lið í efstu deild karla í fótbolta á næsta ári eftir átta ára hlé. Þórsarar hrepptu annað sæt- ið í 1. deild eftir æsispennandi loka- umferð á laugardaginn. „Við settum okkur það markmið fyrir fimm árum að innan þess tíma skyldi liðið fara upp,“ sagði Þorsteinn Ingason fyr- irliði Þórsara, sem er fluttur til Reykjavíkur. »9 Þórsarar náðu fimm ára takmarki sínu ÍÞRÓTTIR| 12 SÍÐUR Í DAG Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Hafsteinn Jökull Þorgeirsson, fimm ára íbúi á Neskaupstað, tók virkan þátt í hinni árlegu Gönguviku Fjarðabyggðar, þar sem hann kleif þrjú fjöll. Faðir Hafsteins, Þorgeir Jónsson, segir að fjallaferðir Hafsteins hafi byrjað fyrir einskæra tilviljun, en stráksi hafi fljótlega fyllst metnaði og farið að taka gönguna alvar- lega. Fjöllin sem Hafsteinn Jökull Þorgeirsson gekk á í sumar eru Svartafjall, sem er 1.021 metra hátt, Hólmatindur, sem er 985 m og hið 809 m háa Hádegisfjall. „Hann vildi endilega klára þrjú fjöll, honum fannst þetta svo skemmtilegt.“ Í sama streng tekur móðir fjalla- mannsins unga, Bjarney Kolbrún Þorsteins- dóttir, sem segir hann hafa verið harðákveðinn í að komast á sem flest fjöll. Víða var góð krækiberjaspretta upp til fjalla. Naut ferða- langurinn góðs af því og saddi þar munn sinn og maga á heilnæman hátt. „Hann mátti stund- um varla vera að því að ganga, hann var svo upptekinn af berjunum,“ segir Bjarney og bæt- ir við að fá ber hafi komist niður af fjallinu, flest hafi þau ratað beint í maga Hafsteins. Fyrst og fremst góðir skór Þorgeir segir að hyggi fólk á fjallgöngur með ung börn þurfi fyrst og fremst að huga að góð- um gönguskóm, auk þægilegra og hlýrra fata. Ekki sé þörf á neinum sérstökum útbúnaði. Einnig skipti máli að ganga í mildu veðri, sé þess kostur. Foreldrarnir eru að vonum stoltir af árangri drengsins. Þau höfðu vissar efasemdir í upp- hafi, en þær hurfu fljótt. Hafsteinn Jökull er þegar farinn að huga að næsta sumri og hyggst þá ganga á ein fimm fjöll. Ferðafélag Fjarðamanna stendur að göngu- vikunni. Hún var haldin þriðja árið í röð í júní og var viðamikil dagskrá, þar sem boðið var upp á lengri og skemmri göngur. Fimm ára fjallagarpur  Kleif þrjú fjöll í sumar og stefnir hátt í framtíðinni  Fylltist fljótlega metnaði og ætlar á sem flest fjöll Á toppnum Hafsteinn Jökull Þorgeirsson var hæstánægður þegar hann komst á topp Hádegisfjalls. „Ég mun gera mitt allra besta í hverri einustu grein og sjá hvað það dugar langt,“ segir Stefán Sölvi Pétursson afl- raunamaður um markmið sín í úrslit- um keppninnar Sterkasti maður heims í Sun City í Suður-Afríku. Stefán Sölvi sem er Sterkasti maður Ís- lands tekur í þriðja skipti þátt í keppninni en hefur ekki áður komist í úrslit. Ellefu ár eru síðan Íslend- ingur náði svo góðum árangri. Hörð keppni var í riðli Stefáns Sölva en tveir keppendur af sex kom- ust áfram. Stefán náði öðru sætinu, varð á eftir Bandaríkjamanninum Brian Shaw sem talinn er sigurstranglegur í keppninni. Stefán tryggði ann- að sætið með því að sigra í hleðslugrein í lokin. Þá þurftu keppendur að hlaupa með 110 kílóa bjór- kúta í sandi upp brekku og hlaða á pall. „Þetta var erfitt, en það hafðist,“ segir Stefán. Úrslitin verða á þriðjudag og miðvikudag og þá verður keppt í sex greinum, líkt og í riðlakeppn- inni. Engin þjóð gert betur frá upphafi Stefán Sölvi hefur verið í aflraunum frá því hann var nítján ára og keppt á alþjóðavettvangi í fjögur ár. Hann er ennþá ungur og setur markið hátt. Jón Páll Sigmarsson og Magnús Ver Magnús- son hafa sigrað fjórum sinnum hvor í keppninni Sterkasti maður heims og því hafa Íslendingar sigrað átta sinnum alls. Engin þjóð hefur gert bet- ur, Bandaríkjamenn koma næstir með sjö titla. „Gaman væri að komast í topp fimm,“ segir Stefán um markmiðið en tekur fram að keppn- ismaðurinn í honum stefni alltaf að sigri. Viðlíka ár- angur ekki náðst í 11 ár  Stefán Sölvi er á meðal tíu sterkustu manna heims Sterkur Stefán Sölvi er í úrslitum ásamt níu öðrum kraftajötnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.