Morgunblaðið - 20.09.2010, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.09.2010, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2010 ✝ Ólöf Helgadóttirfæddist 30. janúar 1918 að Neðra-Núpi en ólst upp í Hnausa- koti í Austurárdal, Húnavatnssýslu. Hún lést á dvalarheimilinu Lundi, Hellu, 12. sept- ember 2010. Móðir Ólafar var Ólöf Jónsdóttir, f. 15. febrúar 1880 á Hömr- um í Þverárhlíð, d. 11. október 1969, og faðir Ólafar var Helgi Jónsson, f. 14. júlí 1884 í Huppahlíð í Miðfirði, d. 2. september 1965. Systkini Ólafar voru: Ólafur, f. 1909, Jón, f. 1910, Guðrún, f. 1911, Marinó, f. 1913, Jó- hann, f. 1914, Björn, f. 1921, og Að- alsteinn, f. 1925. Þau eru öll látin. Ólöf giftist þann 14. júlí 1944 Benedikt Sveinbjarnarsyni frá Bjargarstöðum í Miðfirði, f. 4. mars 1915, d. 29. desember 1989. Ólöf eignaðist fimm syni þeir eru: 1) Ólafur Grétar Óskarsson, f. 1938, maki Steinunn Thorarensen. Þau eiga fjóra syni. 2) Sveinbjörn Bene- diktsson, f. 1944. Hann á eina dótt- ur með Sigrúnu Guð- mundsdóttur og 5 börn með Olgu Thor- arensen. 3) Helgi Benediktsson, f. 1948, maki Regula Verena Rudin. Hann á fimm börn. 4) Jón Gunnar Benediktsson, f. 1952, maki Nicole Chene. Þau eiga þrjú börn. 5) Hjörtur Már Bene- diktsson, f. 1958, maki Björg Hilm- isdóttir. Hann á þrjár dætur og Björg á þrjú börn. Barnabörnin eru 20, barna- barnabörn eru 31 og eitt barna- barnabarnabarn. Ólöf og Benedikt bjuggu í 18 ár á Bjargastöðum í Mosfellssveit en ár- ið 1967 fluttu þau að Austvaðsholti í Landsveit. Þau bjuggu um tíma í Laugarási í Biskupstungum en eftir að Benedikt lést flutti Ólöf aftur í Austvaðsholt. Síðustu fimm árin dvaldi hún á dvalarheimilinu Lundi á Hellu. Útför Ólafar fer fram frá Lága- fellskirkju í dag, 20. september 2010, og hefst athöfnin kl. 14. Það rifjast margt upp er minnast skal móður minnar Ólafar, eða Lóu sem hún oftast nefnd. Henni var margt til lista lagt. Hún gekk í öll sveitastörf af miklum þrótti og alúð. Hún var mikil hannyrðakona og prjónaði fjöldann allan af lopapeys- um og öðru fallegu sem maður skartaði sem spariklæðnaði langt fram á fullorðinsár. Hún var söng- elsk mjög og hafði afar hreina sópr- anrödd svo eftir var tekið. Margan áttir þú erfiðan tímann en biðin eftir að ég kæmi í heiminn var löng, þú beiðst rúman mánuð á Hvammstanga. „Mér leiddist,“ sagð- ir þú mér þegar við ræddum saman um fæðingu mína og pabbi þinn og Grétar í Austurárdal og allt á kafi í snjó. „Svo kom Benedikt að sækja mig og frumburð sinn og búið var um þig í bláum Frónkexkassa með gæruskinn í botninn. Síðan var kass- inn settur á klakk og var það bleikur hestur Jóhanns bróður sem bar þig fram í Austurárdal.“ Móðir mín hafði afar gaman af því að klæðast fallegum fötum. Oft kom fyrir að hún fór til Reykjavíkur og keypti sér nýja spjör en oftar en ekki var óánægð daginn eftir og vildi fá annan lit eða númeri minna eða stærra og fór þá faðir minn með sínu glaða geði í þá snúninga. Hélt hún þessari ástríðu sinni fram eftir aldri og skal hér dæmi nefnt. Fyrir tólf árum fór hún með mér til Spánar og var hún í hjólastól. Á hverjum rúm- helgum degi vildi hún fara að versla og ég var viljugur að fara í þessa verslunarferðir og hafði lúmskt gaman af nema þegar farið var kannski daginn eftir að skila vegna þess að liturinn eða stærðin voru ekki rétt. Þá upphófst oft mikil leit að verslun þeirri þar sem þessi eða hin flíkin var keypt en mesta furða var hvað kaupmennirnir voru liðleg- ir við hana þótt hún væri ekki spænskumælandi og kölluðu hana margir Mamý. Besta kaupmanns- dæmið var þegar hún fékk sér ísinn og var meira en hálfnuð með hann þegar fór með hann til hans og tjáði honum það að tennurnar hennar þyldu ekki svona harðan ís. Kaup- maðurinn kom að vörmu spori með mjúkan súkkulaðiís og sagði, gjörðu svo vel Mamý. Aðra ógleymanlega ferð fór ég með mömmu 1955 en það var norður í Miðfjörð og fórum við með Norðurleiðarrútunni. Voru þingmenn Framsóknarflokksins samtímis í rútunni, Björn frá Löngu- mýri á norðurleið og Skúli Guð- mundsson á suðurleið. Spjölluðu þeir báðir þó nokkuð við móður mína á leiðinni. Við fórum fyrst að Reyn- hólum og óðum þar yfir mýrar og móa og þaðan að Huppahlíð og fram að Neðra-Núpi, fram að Bjargastöð- um og Aðalbóli. Alls staðar voru móttökur frábærar. Hér rifjaði hún upp bernsku sína sem greyptist inn í drengstaulann og ég svo stoltur að eiga svona fallega og vel kynnta móður. Það var í þessari ferð sem ég fór á minn fyrsta dansleik. Hálf var ég nú afbrýðisamur þegar bændurn- ir buðu henni upp í dans og svifu með hana um dansgólfið, töfrandi fagra. Margt fleira gæti ég rifjað upp en læt ég það bíða betri tíma. Þá ber mér sérlega að þakka er dætur mína tvær dvöldu hjá henni, þær Guðfinna og Lóa. Elsku mamma, við ræddum oft hispurs- laust um hlutina. Kæra mamma, að leiðarlokum þakka ég fyrir allt og börnin mín líka. Þinn sonur, Sveinbjörn Benediktsson. Nú hefur elsku amma okkar kvatt þennan heim. Við systurnar eigum margar góðar minningar um hana ömmu. Þegar amma bjó í Austvaðsholti komum við systur oft að heimsækja hana og þá um leið hittum við frændsystkini okkar á næstu bæj- um. Því má segja að hún hafi sam- einað hluta af stórfjölskyldunni í Austvaðsholti. Þegar við komum til hennar gátum við alltaf gengið að því vísu að það væru til pönnukökur með sultu og rjóma eða jólakaka með rúsínum og mjólk beint úr fjós- inu. Stundum gistum við systur hjá ömmu yfir páskana og þá var ým- islegt brallað eins og að prjóna, spila, horfa á sjónvarpið og taka til í garðinum. Eins var fylgst vel með því sem gerðist út við fjárhúsið eða út á túnum og kom þá kíkirinn að góðum notum. Amma átti alltaf til konfekt inni í ísskáp og ef beðið var fallega fékk maður nokkra mola. Eins átti hún það til að lauma pen- ing í lófann á okkur þegar við vorum að kveðja og þá sérstaklega í kring- um afmælin okkar. Aldrei var húmorinn langt undan og var amma fljót í tilsvörum og orð- heppin mjög og rifjum við systur oft upp skemmtilegar sögur, brandara og atvik og hlæjum dátt. Nú er án efa glatt á hjalla í sælli veröld þar sem nú hafa orðið endurfundir systkina hennar og afa. Hvíl í friði, elsku amma okkar. Ragna, Arna og Helga Hjartardætur. Elsku amma. Þá er ferðalagi þínu lokið. Þó að okkar sterka samband hafi dofnað með árunum þegar þú fórst á dvalarheimili eru minningarnar sem við áttum saman ógleymanlegar. Alltaf var amma til staðar þegar eitthvað var að, hvort sem maður var svangur eða vantaði félagsskap. Þegar ellin fór að segja til sín og þú gast ekki lengur hugsað um sjálfa þig var sú ákvörðun tekin að þú myndir flytja á Hellu til að öðlast meiri aðstoð. Ekki man ég nákvæm- lega hvað fór í gegnum huga mér þegar ég frétti af þeirri ákvörðun en eitt var víst að líf mitt myndi líka breytast. Að hafa ekki ömmu í næsta húsi var nokkuð sem ég hafði aldrei upplifað áður. Ég óx úr grasi og eftir barnaskóla lengdist vega- lengdin á milli okkar ennþá meira, þó svo að maður hafi gefið sér tíma til að kíkja á ömmu á Hellu var það aldrei eins og í gamla daga þegar maður gat skroppið á hvaða tíma dags í heimsókn eins og manni sýndist. Síðustu daga þína var líkami þinn og viljastyrkur á þrotum en ég vona svo innilega að þér líði betur núna þar sem þú ert. „Við hittumst hressar og kátar næst og förum út að skokka!“ var seinasta setningin sem ég sagði við þig áður en ég kvaddi þig í síðasta sinn og þú játaðir henni. Þó að það verði kannski ekki á næstunni þá er ég viss um að það muni rætast ein- hverntíma. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Hvíldu í friði. Þín, Katharina Ólöf (Katíóla). Elsku amma. Nú ertu farin frá okkur en minn- ingarnar um þig munu varðveitast í hjarta mínu um alla framtíð. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig og það voru yndislegar heimsóknirnar til þín og afa, bæði á Laugarás og svo í fimm mínútna fjarlægð frá okkur í Austvaðsholti. Ég man eftir því þegar ég skokkaði yfir til þín um miðjan daginn og fór ekki aftur fyrr en seint um kvöld eftir að hafa spjallað, spilað og prjónað. Því mið- ur fékk ég ekki hæfileika þína við að prjóna, þú rumpaðir af hverju sokkapari og vettlingapari á fætur öðru og þar á milli komu ullarpeys- urnar sem við fengum að gjöf frá þér. Alltaf var mikil gleði, hamingja og ánægja í heimsóknunum hjá þér og öll helstu spilin á spil sem ég kann lærði ég af þér. Ávallt var hægt að koma til þín á hvaða tíma sólahrings sem var, ég var alltaf vel- komin og þú tókst á móti mér með bros á vör og mikilli hlýju. Þegar ég ákvað að hlaupa heim seint að kvöldi í niðamyrkri og með hjartað í bux- unum af myrkfælni fylgdir þú mér alltaf út að dyrum, knúsaðir mig fast, kysstir og hvíslaðir huggunar- orðum í eyra mér. Ég lærði meðal annars af þér að heilsa og kveðja alltaf innilega. Ekki má gleyma hversu mikla at- hygli þú veittir fötum og útliti bæði hjá öðrum og sjálfri þér. Þú vildir líta vel út og sérstaklega á manna- mótum og mér fannst svo gaman að sjá hversu vel þú hugsaðir um þig og fötin þín. Þú vildir alltaf vera fín um hárið þegar þú fórst eitthvað og settir þá rúllur í hárið einnig sem þú settir á þig varalit og litaðir auga- brúnirnar þínar. Þú tókst þér tíma til að velja þér eina af fallegu flík- unum þínum sem þú áttir til að vera í. Ef að ástvinir þínir fóru til útlanda óskaðir þú þeim alltaf góðrar ferðar og skemmtunar þótt þú vildir helst hafa þá heima nálægt þér. Það sýnir bara hversu mikið þér þótti vænt um okkur, þú vildir hafa okkur nærri þér svo þú vissir að okkur var óhætt. Elsku, yndislega amma mín, ég mun sakna þín sárt og samveru- stunda okkar en enginn getur tekið minningarnar mínar um þig og okk- ar samverustundir frá mér. Þær eru mér mjög dýrmætar og þær verða mjög vel geymdar í hjarta mínu. Af þér lærði ég margt og mikið og varð að þeirri manneskju sem ég er í dag með þinni hjálp. Þú hefur gefið mér dýrmætar gjafir og gleðistundir allt frá því ég var pínulítil í pössun hjá þér þegar mamma og pabbi voru í fjósinu eða þegar þau fóru í hesta- ferðir, allt til hinstu stundar. Ástarþakkir, elsku amma, fyrir allt, hvíldu í friði með öllum þínum ástvinum sem hafa beðið þín lengi. Þín Emilía. Meira: mbl.is/minningar Elsku besta amma. Þakka þér fyrir alla þá góðu hluti sem við gerðum saman í lífinu. Ég man síðustu jólin sem við áttum saman. Ég las á jólakortin fyrir þig og hjálpaði þér að opna pakkana. Takk fyrir allt sem þú gafst mér. Takk fyrir að vera alltaf tilbúin að taka á móti mér og hugga mig þegar mér leið illa. Takk fyrir að hafa haft mikinn áhuga á því sem ég vildi segja og sýna þér. Takk fyrir að vera til staðar þeg- ar ég þarfnaðist þín. Sofðu vel, dreymi þig vel og hafðu það sem allra best. Ég mun aldrei gleyma þér. Elskulega amma, njóttu eilíflega Guði hjá, umbunar þess, er við hlutum, ávallt þinni hendi frá; þú varst okkar ungu hjörtum, eins og þegar sólin hlý, vorblómin með vorsins geislum vefur sumarfegurð í. Hjartakær amma, far í friði, föðurlandið himneskt á, þúsundfaldar þakkir hljóttu þínum litlu vinum frá. Vertu sæl um allar aldir, alvaldshendi falin ver; inn á landið unaðsbjarta, englar Drottins fylgi þér. (Höf. ók.) Þinn Símon Helgi. Hærra, minn Guð, til þín, hærra til þín, enda þótt öll sé kross upphefðin mín. Hljóma skal harpan mín: Hærra, minn Guð, til þín, hærra til þín. Lyfti mér langt í hæð lukkunnar hjól, hátt yfir stund og stað, stjörnur og sól, hljómi samt harpan mín: Hærra, minn Guð, til þín, hærra til þín. (Matthías Jochumsson.) Nú skiljast leiðir að sinni, elsku amma. Þú varst allaf svo hlý og góð. Allaf var gott að koma í heim- sókn til þín, spjalla við þig um heima og geyma. Oft talaðir þú um Miðfjörðinn og æskuárin þín þar. „Þetta tíðkaðist ekki í mínu umdæmi,“ sagðir þú oft. Þær eru svo margar góðar minn- ingarnar um þig,elsku amma, og þær munu lifa um ókomna tíð. Hvíl í friði, elsku amma. Sigurjón Helgason, Benedikt Helgason, Borgþór Helgason og fjölsk. Við þökkum samfylgd á lífsins leið þar lýsandi stjörnur skína og birtan himnesk björt og heið hún boðar náðina sína en alfaðir blessar hvert ævinnar skeið og að eilífu minningu þína. (Vigdís Einarsdóttir) Haustið heilsar með sín fallegu litbrigði núna þegar föðursystir okkar Ólöf, alltaf kölluð Lóa, fékk hvíldina sem hún var farin að þrá, orðin 92 ára gömul. Hún var fædd í Hnausakoti í Mið- firði, ein af 8 systkinum sem nú eru öll látin. Á æskuheimili okkar á Hamra- felli í Mosfellsbæ voru þessi systk- ini pabba ævinlega þátttakendur í helstu viðburðum.Var þá gjarnan tekið lagið því öll höfðu þau yndi af söng. Tengsl okkar við Lóu voru sér- staklega náin því hún var ekki bara föðursystir heldur líka gift Bene- dikt móðurbróður okkar. Lengi bjuggu þau á Bjargarstöðum í næsta nágrenni Hamrafells. Heim- ilin voru nátengd og mikil samvinna sem aldrei bar skugga á. Ekki spillti að til heimilis hjá okkur var Sigríður amma okkar og bræðranna á Bjargarstöðum. Við minnumst heyskapar á tún- unum þar sem nú eru íbúðarhús, skólar og íþróttahús. Við minnumst jólahalds þar sem hangikjöt og hnallþórur voru á borðum, síðan gengið í kringum jólatré og sungið. Á jóladag var allt- af byrjað á kirkjuferð þar sem pabbi og hjónin á Bjargarstöðum sungu í kórnum á kirkjuloftinu. Við minnumst afmæla með heitu súkkulaði og alls kyns góðgæti. Þá var glatt á hjalla hjá krakkaskar- anum. Síðar fluttu Lóa og Bensi að Austvaðsholti í Landsveit. Þá fækk- aði samfundunum en þau litu alltaf við í ferðum til Reykjavíkur. Eftir lát Bensa 1989 var Lóa sjaldnar á ferð en þá var síminn notaður til að viðhalda tengslunum og afla frétta af fjölskyldunni sem stækkaði með hverju árinu. Áttu þær mágkonurnar, mamma og Lóa, löng samtöl um gamla daga. Það stytti stundirnar þegar þær voru báðar orðnar einar í heimili. Lóa var fyrst og fremst húsmóðir með langan vinnudag á stóru heim- ili með synina fimm. Drengirnir mínir sagði hún oft með hlýju í röddinni og það leyndi sér ekki hvað skipti hana mestu máli í lífinu. Skemmtilegt áhugamál var að fylgjast með tísku- straumum og eignast nýja flík. Glaðværð og gestrisni mætti okk- ur alltaf. Þegar við eignuðumst börn fylgdist Lóa með þeim af ein- lægum áhuga. Síðustu árin var heilsan farin að gefa sig og gott að fá skjól á dval- arheimilinu Lundi á Hellu. Andlegri heilsu hélt Lóa fram undir síðustu daga og þegar við hittumst í sumar var stutt í brosið og húmorinn aldrei langt undan. Hún var sérlega ánægð með þegar sonur Siggu, fæddur 2009, fékk nafnið Benedikt Óli. Að leiðarlokum þökkum við syst- ur frænku okkar langa samfylgd og umhyggju. Sendum fjölskyldu Lóu innilegar samúðarkveðjur og biðjum þess að hún hvíli í guðs friði. Góða minning að geyma gefur syrgjendum fró. Til þín munu þakkir streyma. Þér munum við ei gleyma. Sofðu í sælli ró. (Höf. ók.) Sigríður Birna, Guðný Margrét og fjölskyldur. Ólöf Helgadóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞORGERÐUR JÓNSDÓTTIR frá Neðri-Svertingsstöðum, Miðfirði, sem lést þriðjudaginn 14. september, verður jarðsungin frá Garðakirkju á Álftanesi miðvikudaginn 22. september kl. 13:00. Friðrik Jónsson, Oddrún Sverrisdóttir, Sævar Jónsson, María Gunnarsdóttir, Sólrún Jónsdóttir, Ólafur Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.