Morgunblaðið - 29.11.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.11.2010, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 9. N Ó V E M B E R 2 0 1 0  Stofnað 1913  279. tölublað  98. árgangur  HREYFINGIN FÆKKAÐI VEIKINDADÖGUM LÍFLEGUR ÓÐUR TIL DANSINS ÞÓRUNN MEISTARI Í BRASILÍU BARÁTTA 28 SIGURSÆL ÍÞRÓTTIRLEIKSKÓLINN KRÓKUR 10 Félagar í Hjálparsveit skáta í Garðabæ stefna að því að á næstu þremur árum verði sex hundaþjálf- arar með jafn marga hunda tilbúnir að fara í útköll á vegum Íslensku al- þjóðabjörgunarsveitarinnar. Þjálfun hundanna er hafin og fer meðal ann- ars fram á athafnasvæði Gámaþjón- ustunnar sunnan við Hafnarfjörð. „Við fórum í rýnivinnu eftir að við komum frá Haítí með það að mark- miði að finna leiðir til að bæta sveit- ina enn frekar. Eitt af því sem kom upp er að æskilegt væri að vera með eigin hundateymi,“ segir Dagbjart- ur Kristinn Brynjarsson, einn af stjórnendum hinnar alþjóðlegu björgunarsveitar. Þjálfun leitarhunda er afar tíma- frek og segja þjálfararnir verkefnið fremur lífsstíl en áhugamál. Æft er tvisvar sinnum í viku yfir sumartím- ann og vikulega á veturna. Þá þurfa þjálfarar að sækja námskeið í 34 daga á ári til að halda hundunum við í víðavangs- og snjóflóðaleit. Þá bætast við æfingadagar nú vegna björgunar úr rústum. Enginn þeirra hunda sem Garðbæingarnir eru með hafa farið í snjóflóðaleit en hafa aft- ur á móti verið notaðir við leit að fólki á víðavangi og sannað gildi sitt þar. Hundar sem fluttir eru til lands- ins þurfa að fara í fjögurra vikna sóttkví. Björn Hermann Þorvalds- son, félagi í Hjálparsveit skáta í Garðabæ, segir koma til greina að óska eftir samvinnu við yfirvöld um einangrunarstöð sem Slysavarna- félagið Landsbjörg myndi reka. »6 Stofna íslenska hundasveit eftir Haítí  Hjálparsveit skáta í Garðabæ þjálfar menn og hunda til björgunarstarfa Morgunblaðið/Golli Í rústum Björgunarhundasveitin á rústabjörgunaræfingu um helgina. Rauði liturinn var áberandi á Austurvelli um miðjan dag í gær þegar ljósin á Óslóartrénu voru tendruð. Ekki aðeins klæddust gestir og gangandi rauðu heldur stálust nokkrir jólasveinar snemma til byggða svona til að taka þátt í fjörinu. Vöktu þeir mikla kátínu meðal yngstu kynslóðarinnar. Jólafjör á Austurvelli Morgunblaðið/Golli Hjalti Geir Erlendsson hjaltigeir@mbl.is Þátttaka í stjórnlagaþingskosning- unum var 36% sem er slakasta þátt- taka í almennum kosningum á Ís- landi frá lýðveldisstofnun. Til samanburðar var þátttaka í þjóðar- atkvæðagreiðslunni um Icesave fyrr á þessu ári um 62%. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að dræm kjörsókn á laugardaginn hljóti að vera áfall fyrir Jóhönnu Sigurðar- dóttur því hún hafi lengi verið tals- maður stjórnlagaþings. Augljóst sé að forsætisráðherrann stígi ekki í takt við þjóðina hvað varðar áhuga á stjórnlagaþinginu. Bjarni telur þó breytinga þörf á stjórnarskrá Ís- lands en deilir á aðferðirnar. Hann vonast þó til að sátt náist um nið- urstöðu stjórnlagaþingsins. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, tek- ur í svipaðan streng og segir ákveðin skilaboð felast í svo lélegri þátttöku. Kominn sé tími til að ríkisstjórnin taki af skarið í stað þess að láta aðra sjá um málin fyrir sig. Umboð veitt með að mæta ekki „Það eru vonbrigði að virkni al- mennings hafi ekki verið meiri en raun ber vitni. Á hinn bóginn er það þannig í kosningum sem þessum að þeir sem ekki taka þátt gefa í raun þeim sem taka þátt umboð sitt. Það gerði þorri manna í þessum kosning- um,“ segir Þórunn Sveinbjarnar- dóttir, þingflokksformaður Samfylk- ingarinnar. Stefanía Óskarsdóttir stjórnmála- fræðingur segir að þeir einstakling- ar sem gáfu kost á sér beri mikla ábyrgð á slakri kosningaþátttöku. „Óréttmætt er að segja að fjölmiðlar eða stofnanir á borð við Háskóla Ís- lands hafi brugðist, því það voru ein- staklingar sem gáfu kost á sér og ábyrgðin er því þeirra að ná í gegn.“ Hún bætir við að afar takmarkaðar upplýsingar um frambjóðendur hafi verið að finna. » 4 Slakasta þátt- takan frá lýð- veldisstofnun  Kosningaþátttaka á laugardaginn var 36% og í sögulegu lágmarki  Ríflega 41% Ís- lendinga er fylgj- andi aðild lands- ins að Atlantshafs- bandalaginu (NATO) og um 35% hvorki fylgj- andi né andvíg veru Íslands í bandalaginu. Að sama skapi eru 22% landsmanna andvíg aðild Ís- lands að NATO. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Miðlun framkvæmdi nýverið. Úrtakið í könnuninni var 1.600 einstaklingar á aldrinum 18-75 ára. Af þeim svöruðu 856 manns könnuninni og 814 tóku afstöðu til spurningarinnar um NATO. Karlar voru mun frekar fylgjandi en konur. Mun fleiri fylgjandi eða sama um NATO Anders Fogh Rasmussen  Írar munu greiða að jafnaði 5,8% ársvexti af allt að 85 milljarða evra láni, sem þeir fá frá Evrópusam- bandinu og Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum vegna skuldakreppunnar. Brian Cowen, forsætisráðherra Írlands, skýrði frá þessu á blaða- mannafundi í gær eftir fund full- trúa evruríkjanna auk Bretlands, Danmerkur og Svíþjóðar í Brussel. Hann sagði vextina verða breyti- lega, þeir færu eftir því hvenær lán- in yrðu greidd út og eftir markaðs- aðstæðum. Þess má geta að Grikkir greiða 5,2% vexti af lánapakka sem þeir fengu fyrr á árinu. »13 Írar greiða hærri vexti en Grikkir Í vörn Brian Cowen, forsætisráðherra Ír- lands, á blaðamannafundi í Dyflinni í gær. Guðrún Pétursdóttir, formaður stjórnlaganefndar, segir varhugavert að túlka kjörsóknina á einn veg þótt vissulega sé hún vonbrigði. Venjulega mótmæli fólk kosningum með því að mæta á kjörstað og skila auðu enda séu það virk mótmæli. Guðrún segir að ef til vill finnist fólki stjórnarskráin fjarlæg og því skipti kosningarnar það litlu máli. Hún vonast eftir því að umræða um stjórnskipan Íslands haldi áfram af fullum krafti þótt kosningarnar séu afstaðnar. Vinnan við nýja stjórnarskrá sé nú rétt að hefjast. Kjörsóknin er mikil vonbrigði MIKILVÆGT AÐ UMRÆÐA UM BREYTINGAR HALDI ÁFRAM Guðrún Pétursdóttir  Bandaríska hugbúnaðarfyrir- tækið Statsheet hefur hannað bún- að sem getur einn og óstuddur skrifað íþróttafréttir, að sögn Jyl- landsposten. Búnaðurinn er fóðr- aður á úrslitum leikja og ræður yfir um 5.000 dæmigerðum setningum, að sögn stofnanda Statsheet, Rob- bie Allen. Búnaðurinn var upprunalega gerður fyrir skóla með öflugar íþróttadeildir til að auðvelda þeim að fá fréttir um afrek skólans birt- ar í stórum íþróttablöðum. Þau þyrftu ekki að verja peningum og tíma í að skrifa fréttirnar sjálf. Allen segist hafa stefnt að því að 80% lesenda myndu ekki sjá neitt vélmennalegt við skrifin og er sannfærður um að það hafi þegar tekist. Búnaðurinn ræður þó ekki við langar og flóknar setningar. kjon@mbl.is Bjóða vélskrifaðar íþróttafréttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.