Morgunblaðið - 29.11.2010, Síða 21

Morgunblaðið - 29.11.2010, Síða 21
veitti yngri systrum mínum og aldrei fékk hún nóg af því að heyra þær syngja, þó að ég sem elsti bróðir hafi ekki alltaf verið jafn- hrifinn af því. Amma Gréta var alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér þegar ég var krakki en eftir því sem árin hafa liðið, og ég gert mér betri grein fyrir hvaða manneskju hún hafði að geyma, hefur aðdáun mín á henni síst minnkað. Því miður var heilsa hennar orð- in svo léleg að okkur Lilju gafst ekki almennilegt tækifæri til að kynna hana fyrir nýfæddri dóttur okkar en við vitum að hún var mjög stolt af öllum börnunum og barnabörnunum. Við munum hins vegar passa vel upp á að Valgerður litla fái að heyra skemmtilegar sögur af langömmu sinni, enda er af nógu að taka. Það var með söknuði sem við kvöddum ömmu, en við sem unnum henni getum huggað okkur við að nú hefur hún hitt afa Jacob að nýju og hvílir við hlið hans í Ölfusinu þar sem þeim leið svo vel saman. Jakob Hansen. „Ég er á leiðinni, alltaf á leiðinni til þess að segja þér hve heitt ég elska þig …“ Elsku amma Gréta er farin frá okkur og eftir sitjum við með tár á hvarmi, full af söknuði en aðallega þakklæti fyrir liðnar stundir. Minningarnar streyma fram og í hugann kemur þessi lagabútur sem heyrðist oftar en ekki frá þeirri gömlu þegar maður kallaði á hana til að hjálpa sér með eitthvað. Hjálpinni fylgdi svo vanalega dönskuslettan „sådan“ með göml- um og góðum íslenskum hreim. Ég var nefnilega svo heppin að í grunnskóla kom amma oft og tók á móti okkur systkinunum eftir skóla. Þá daga var margt skemmti- legt brallað og fylgdi Telma vin- kona nánast alltaf með heim þegar hún vissi að amma var þar. Lummubaksturinn stendur án efa upp úr og þó að minnið hafi verið orðið gloppótt undir það síðasta hló amma alltaf jafn mikið þegar hún rifjaði upp hvernig við stöllurnar stóðum uppi á stólum með allt of stórar svuntur og bökuðum lumm- ur „á stærð við tíkalla“. Heimsóknir til ömmu Grétu í Álfheimana og seinna Ásholtið eru minnisstæðar, t.d. dagurinn sem hún sendi Nonna frænda með mig og Erlu Kristínu frænku niður að Tjörn að gefa öndunum. Ferðin endaði með því að Erla teygði sig of langt út eftir einum svaninum og datt á bólakaf ofan í. Aumingja Nonni var hálfmiður sín yfir þessu en amma bara skellihló þegar við komum heim, miklu fyrr en áætlað var og með leigubíl. Skemmtilegustu heimsóknirnar voru samt án efa þegar ég fékk að fara með ömmu eitthvað út að stússast, stundum bara út í Glæsibæ en oft lengra og þá í strætó. Áður en út var haldið sett- um við báðar, að sjálfsögðu, á okk- ur varalit, enda aldrei að vita hvern við gætum rekist á á leið- inni. Í strætó sá ég svo um að skemmta hinum farþegunum með söng, ömmu til mikillar ánægju en eflaust við misjafnar undirtektir annarra. Oftar en ekki enduðu strætóævintýrin svo á Alþingi, þar sem við settumst á áhorfendapall- ana og fylgdumst með þingfundum, enda var amma ákveðin kona sem fylgdist vel með því sem gerðist í þjóðfélaginu og var ekki þekkt fyr- ir að liggja á sínum skoðunum. Ekki var hún amma nú hrifin af því þegar við frænkurnar, fyrst Erla Kristín og svo ég, byrjuðum á þeirri vitleysu að lita á okkur hárið á sínum tíma. Henni leist heldur ekkert á það þegar ég fékk mér göt í eyrun, þar sem ég myndi nú bara enda „með hangandi eyrn- arsnepla eins og hún og geta ekki notað annað en klemmueyrna- lokka.“ Þegar ég heimsótti ömmu undir það síðasta á Lund var heils- unni farið að hraka en þrátt fyrir að aldurinn væri farinn að færast yfir hana var hún söm við sig, hreinskilin og beinskeytt. Hún bauð mér upp á konfekt og eftir nokkra mola þegar ég sagðist nú ekki hafa gott af meiru, hnussaði í henni: „Hva, þú ert ekkert feit.“ Það verður tómlegt og skrýtið að hafa hana ömmu ekki hjá okkur um jólin eins og venjulega, en viss- an um að hún sé komin á betri stað og loksins búin að hitta afa Jacob aftur eftir öll þessi ár hlýjar manni um hjartaræturnar. Hvíl í friði, elsku amma mín. Anna Hansen. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 2010 MÍMIR 6010112919 I°  HEKLA 6010112919 IV/V  GIMLI 6010112919 III° I.O.O.F. 3 19111298 G.H. Félagslíf Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Antík Antikklukkur og viðgerðir Sérhæfð viðgerðarþjónusta á gömlum klukkum og úrum. Guðmundur Hermannsson úrsmíða- meistari, ur@ur.is, s. 554 7770 - 691 8327. Dýrahald Hundagallerí auglýsir Bjóðum taxfría smáhunda fram að jólum. Lögleg hundaræktun. Visa og Euro. Sími 5668417. Gisting Þú átt það skilið að slappa af fyrir jólin! Allar helgar langar í vetur í Minniborgum. Þú færð 3 nætur á verði tveggja. Fyrirtækjahópar, óvissu-hópar, ættarmót. Heitir pottar og grill. Opið allt árið. www.minniborgir.is Gisting á góðum stað. AKUREYRI Höfum til leigu 50, 85 og 140 m² sumarhús 5 km frá Akureyri, öll með heitum potti og flottu útsýni yfir Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir á Akureyri. www.orlofshus.is, Leó, s. 897- 5300. Sumarhús Sumarhús - orlofshús Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratugareynsla. Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn Vanur smiður. Tek að mér alla al- menna smíðavinnu. Upplýsingar í síma 6968674 eða email: agustorn@gmail.com Ágúst Örn. Málverk UMBOÐSSALA Vantar málverk í umboðssölu Lág sölulaun Mikið úrval málverka til sölu Innrömmun 20% afsláttur Sérskorinn karton 20% afsláttur Tré- og álrammar 50-60% afsláttur Álrammar 21x30 kr. 1200,- og 59x67 kr. 1800.- Myndir eftir Atla Má Íslensk grafík Tolli - Bragi - Jón Reykdal - Þórður Hall o.fl. 20 - 40% afsláttur Gildir til 4. des Opið virka daga kl. 9-18 Síðumúla 34, sími 533 3331 Til sölu Ódýr blekhylki og tónerar í HP, Dell, Brother, Canon og Epson. Send samdægurs beint heim að dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150. Sjá nánar á blekhylki.is BÚÐU TIL ÞÍN JÓLAKORT Gleðileg jól! Auðvelt, þægilegt, flott, Ódýrt!!! ...eftir þínu höfði. www.prentlausnir.is Auðvelt, þægilegt, flott, Ódýrt!!! ...eftir þínu höfði. www.prentlausnir.is BÚÐU TIL ÞITT DAGATAL JÚLÍ 20 08 Auðvelt, þægilegt, flott, Ódýrt!!!...eftir þínu höfði. www.prentlausnir.is BÚÐU TIL ÞITT MYNDA- ALBÚM Jólavörur Grindur til að standa í glugga og margt fleira. Uppl. á internet.is/jons eða í síma 822-7124 Augnablik Geisladiskur með lögum við ljóð Hákonar Aðalsteinssonar flutt af Nefndinni og gestum. Fæst í Hagkaupum, Tónspili, Samkaupum Egilsstöðum og hjá útgefanda í síma 863 3636. Netfang; darara@gmail.com. Mokka- jakkar Mokka- kápur Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum gull til að smíða úr. Spörum gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. Ýmislegt .is persónuleg jólakort persónulegt púsl Nýkomið glæsilegt úrval af ökklaskóm úr leðri með vetrar- fóðri. Stærðir: 36 - 42 Verð: 17.500,- Sími: 551 2070, opið: mán. - fös. 10 - 18, laugardaga 10 - 14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Bílaþjónusta Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, 4WD. Akstursmat og endurtökupróf. Öruggur í vetraraksturinn. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '08. 6960042/5666442. Snorri Bjarnason BMW 116i. 8921451/5574975. Visa/Euro. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '08. 8924449/5572940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 8637493/5572493. Húsviðhald Þak og utanhússklæðningar og allt húsaviðhald Ragnar V Sigurðsson ehf Sími 892 8647. Handriðaplast - Efni og vinna. 27 ára góð reynsla. Margir litir. Komum á staðinn og gefum ráðgjöf og fast verð. Uppl. www.pyrite.is, S. 840 8282. Kerrur Haustútsala á kerrum !! Seljum síðustu ORKEL samanbrjótan- legu kerrurnar á frábæru útsöluverði: 195.000,- kr. Visa/Euro. ORKUVER ehf. www.orkuver.is, Smiðjuvegi 11, Kópavogi. Byssur Haglaskot. Ný sending. Rjúpna-, sjófugla- og gæsaskot. Gott verð, frábær gæði. Sportvörugerðin, s. 660-8383. www.sportveidi.is.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.