Morgunblaðið - 29.11.2010, Blaðsíða 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 2010
Þýska myndlistarkonan El-
isabeth Wagner heldur fyr-
irlestur í dag kl. 12.30 í Bak-
herberginu, kynningaröð
myndlistardeildar Listahá-
skóla Íslands, í húsnæði skól-
ans Laugarnesvegi 91. Wagn-
er gegnir stöðu prófessors við
Muthesius-listaháskólann í
Kiel. Hún er rýmislistamaður
og hefur hin síðustu ár unnið
innsetningar út frá íkonó-
grafíu málaralistar sem hún mótar og útfærir í
margs konar frístandandi skúlptúrum með tilvitn-
unum í listamenn á borð við Albrecht Dürer og
Jan van Eyck, að því er segir í tilkynningu. Fyr-
irlesturinn fer fram á ensku.
Myndlist
Elisabeth Wagner
heldur fyrirlestur
Verk eftir El-
isabeth Wagner.
Hádegistónleikar verða
haldnir á morgun, 30.
nóvember, í Hafnar-
fjarðarkirkju. Á þeim
leikur Friðrik Vignir
Stefánsson organisti á
orgel kirkjunnar við
söng Eyglóar Rúnars-
dóttur mezzósópran.
Í kirkjunni eru tvö
ólík orgel, barokkorgel
annars vegar og orgel í rómantískum stíl hins veg-
ar. Í tilkynningu vegna tónleikanna er því líkt við
að borða konfekt upp úr tveimur mismunandi
konfektkössum að leika á þessi tvö ólíku orgel
kirkjunnar. Tónleikarnir hefjast kl. 12.15 og lýkur
um 30 mínútum síðar.
Tónlist
Eins og tveir
konfektkassar
Friðrik Vignir Stefánsson
og Eygló Rúnarsdóttir.
Tenórsöngvarinn Garðar Cort-
es heldur þrenna hádegistón-
leika á Kjarvalsstöðum í vik-
unni; 2., 3. og 4. desember, en á
þeim mun hann syngja mörg af
sínum eftirlætislögum, m.a.
negrasálma, jólalög og þekktar
ballöður. Sænski píanóleik-
arinn Robert Sund leikur með
Garðari á tónleikunum en þeir
hafa starfað reglulega saman
frá árinu 1980 og gefið út þrjá geisladiska með
þekktum sönglögum, jólalögum og negrasálmum.
Tónleikarnir hefjast allir kl. 12.15. og eru miðar
seldir við inngang safnsins. Miðaverð er 1.000 kr.
en frítt er á tónleikana fyrir eldri borgara og
námsmenn.
Tónlist
Garðar og Sund á
Kjarvalsstöðum
Garðar Cortes
Á fullveldisdaginn, 1. desember nk.,
bjóða íslensku- og menningardeild
og Hugvísindasvið til bókmennta-
fagnaðar og verða þrír íslenskir rit-
höfundar sæmdir heiðursdoktors-
nafnbót við Háskóla Íslands, rithöf-
undarnir Álfrún Gunnlaugsdóttir,
Matthías Johannessen og Thor Vil-
hjálmsson. Í tilkynningu vegna
þessa segir: „Háskóli Íslands veitir
þessum höfundum sinn hæsta heiður
fyrir sköpunarstarf þeirra, og um
leið sendir skólinn með þessum
gjörningi skilaboð um mikilvægi
orðsins listar og annarrar frjórrar
menningarstarfsemi í íslensku sam-
félagi, enda gæti hann ekki staðið
undir nafni sem þjóðskóli án þess að
leggja rækt við íslenska menningu.“
Kennarar og nemendur íslensku-
og menningardeildar taka þátt í dag-
skránni auk sviðsforseta og deild-
arforseta. Fögnuðurinn fer fram í
Hátíðarsal Háskóla Íslands í að-
albyggingunni og stendur frá kl.
13.30 til kl. 15.
Þrír rit-
höfundar
heiðraðir
Sæmdir heiðursdokt-
orsnafnbót við HÍ
Heiður Matthías Johannessen hlýt-
ur heiðursdoktorsnafnbót við HÍ.
Fyrstu hausttónleikar tónlistar-
deildar Listaháskóla Íslands verða
haldnir í dag kl. 18 í Þjóðmenning-
arhúsinu og verða þeir sýndir í
beinni útsendingu á vef skólans,
lhi.is. Tónleikarnir eru haustpróf
nemenda sem stunda nám í hljóð-
færaleik eða söng og er efnisskrá
þeirra afar fjölbreytt, eins og segir
í tilkynningu. Dagskrá hausttón-
leikanna má finna á vef skólans.
Hausttón-
leikar á vef
Það er ánægjuleg til-
breyting að hverfa
um sinn úr einsleitum heimi
þrívíddarbrellna ... 27
»
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Salka lætur ekki sitt eftir liggja í
bókaflóðinu og hefur á árinu sent frá
sér fjörutíu titla. „Skáldsagan Hlust-
arinn eftir Ingibjörgu Hjartardóttur
kom út snemma árs og seldist svo
vel að nú er verið að endurprenta
hana. Útgáfurétturinn hefur verið
seldur til Þýskalands,“ segir Hildur
Hermóðsdóttir, eigandi Sölku. „Þóra
Jónsdóttir sendir frá sér örsögur,
lýsingar úr hversdagslífi konu, og
eftir Guðrúnu Hannesdóttur kemur
út ljóðabókin Staðir. Í vor gáfum við
út Sálminn um glimmer, ljóðabók
eftir Auði Övu Ólafsdóttur, og það
sætir líka tíðindum að nú höfum við
selt útgáfuréttinn á Afleggjaranum
hennar til sjö landa. Afleggjarinn
var nýlega valin besta evrópska
skáldsagan sem kom út í Frakklandi
2010. Út í birtuna er stórfalleg bók
eftir Arnfríði Guðmundsdóttur og
listakonuna Æju. Arnfríður, sem er
guðfræðiprófessor, velur kafla úr
Biblíunni og leggur út af þeim og
Æja myndskreytir, þetta er bók sem
bæði hvetur okkur til dáða og hugg-
ar á erfiðum stundum.“
Foreldrahandbók
Segja má að Konur eiga orðið sé
eins konar flaggskip Sölku en þetta
er dagatalsbók með spakmælum eft-
ir konur sem kemur út árlega og
nýtur vaxandi vinsælda. Salka er 10
ára um þessar mundir og hefur í ár-
anna rás komið upp fjölbreyttum lista
sívinsælla bóka sem eru endurprent-
aðar reglulega. Á afmælisárinu er
Salka hvað stoltust af Foreldra-
handbókinni eftir Þóru Sigurð-
ardóttur. „Þóra hefur safnað fróðleik
eftir fagfólk og inn á milli er blandað
einlægum og skemmtilegum viðtölum
ásamt reynslusögum íslenskra for-
eldra, þetta er 300 blaðsíðna stórvirki
með glæsilegum myndum,“ segir
Hildur og bætir við:„Andlit íslenskra
listamanna, fyrsta ljósmyndabók Jón-
atans Grétarssonar með texta eftir
Guðmund Andra Thorsson, er líka
stór og mögnuð bók sem á örugglega
eftir að vekja mikla athygli og ekki
megum við gleyma Fiskmarkaðnum
hennar Hrefnu Rósu Sætran, sem
ásamt kokkalandsliðinu var að vinna
silfurverðlaun í Lúxemborg í vik-
unni.“
Barnabækur og fleira gott
Nokkrar bækur fyrir börn og ung-
linga koma út hjá Sölku. Loðmar er
barnabók eftir Auði Ösp Guðmunds-
dóttur og Emblu Vigfúsdóttur. Þórð-
ur Helgason sendir frá sér unglinga-
bókina Vinur, sonur, bróðir og Kristín
Arngrímsdóttir er höfundur nýrrar
bókar um Arngrím apaskott. Stafa-
súpan geymir vísur fyrir börn á öllum
aldri eftir Áslaugu Ólafsdóttur og
Jólasveinar Iðunnar Steinsdóttur eru
svo endurútgefnir.
Auk þessa koma út hjá Sölku ýmsar
handbækur, mörg þýdd skáldverk og
ferðamanna- og útivistarbækur.
„Margir af nýju titlunum okkar hafa
farið vel af stað og við erum í miklu
jólaskapi hjá Sölku,“ segir Hildur að
lokum.
Í jólaskapi í bókaflóði
Fjörutíu titlar
koma út hjá bóka-
forlaginu Sölku
þetta árið
Morgunblaðið/Eggert
Jólaskap „Margir af nýju titlunum okkar hafa farið vel af stað,“ segir
Hildur Hermóðsdóttir, útgáfustjóri forlagsins Sölku.
Heiti tónleika fimmtudags-kvöldsins hjá Sinfón-íuhljómsveitinni var„Rómeó og Júlía“. Saga
þessara þekktu elskenda er öllum
kunn og gaf því nafngiftin fögur fyr-
irheit um rómantíska og tilfinninga-
þrungna kvöldstund, sem segja má
með sanni að hafi verið uppfyllt með
glæsibrag. Strengjaverkið Rakas-
tava eftir Jean Sibelius hefur verið
nefnt „tónlistin við finnska útgáfu
Rómeós og Júlíu“ en verkið á sér
óvenjulega sögu. Sibelius samdi það
upphaflega sem kórverk þar sem
tenór og mezzósópran fóru með
hlutverk elskendanna. Verkið féll
hins vegar ekki í kramið og Sibelius
samdi því strengjaverk kvöldsins
upp úr stefjum kórverksins.
Verkið er litríkt og síbreytilegt og
Gaffigan nýtti sér efnið til hins ýtr-
asta ásamt strengjasveitinni og
pákuleikara hljómsveitarinnar.
Fyrsti kaflinn var ljóðrænn og brot-
hættur og norrænt yfirbragðið
leyndi sér ekki. Annar þátturinn ein-
kenndist af tiplandi tríólum enda
lýsir hann gönguför elskendanna og
í síðasta þættinum tóku einleiksfiðla
og -selló við hlutverkum elskend-
anna á kveðjustund. Flutningurinn
var tregablandinn, endurtekin mótív
líkt og elskendurnir vildu ógjarnan
skilja en kvöddust síðan að lokum.
Verkið var nú flutt í fyrsta sinn á
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands en af þessum flutningi að
dæma verður það ofarlega á óska-
lista tónleikagesta í framtíðinni.
Fiðlukonsert Mendelssohns er
eitt þekktasta einleiksverk tónbók-
menntanna í heild og því ekki heigl-
um hent að takast á við þá þrekraun.
Konsertinn var saminn fyrir Ferdin-
and David, konsertmeistara Ge-
wandhaus-sveitarinnar í Leipzig, og
var í smíðum frá 1838 til frumflutn-
ingsins 1844. Allan þann tíma þáði
tónskáldið góð ráð frá einleik-
aranum og er það ef til vill ein skýr-
ingin á vinsældum hans. Nokkuð
þótti nýstárlegt við verkið, einleik-
arinn tekur hljóðfæri sitt strax til
kostanna í upphafi án eiginlegs for-
spils hljómsveitar og kaflarnir eru
tengdir saman í eina heild án þess að
hlé sé gert.
Í Mendelssohn steig hinn ungi
einleikari kvöldsins, Helga Þóra
Björgvinsdóttir, á svið. Nokkur
spenna lá að sjálfsögðu í loftinu og
var ekki laust við að hennar gætti í
upphafi. Hraðavalið var varfærn-
islegt og flutningurinn eilítið mattur
til að byrja með en Helga Þóra spil-
aði fljótt úr sér hrollinn. Tónninn var
nokkuð grannur en fallega mótaðar
hendingar og ljóðræn túlkun á þessu
erfiða verki, sérstaklega í andante-
kaflanum, gáfu flutningi Helgu Þóru
fallegan og glæsilegan heildarsvip
og allegro-lokakaflinn var fluttur af
bravúr. Hljómsveitin spilaði af-
bragðsvel undir styrkri stjórn Gaff-
igans.
Eftir hlé var síðan komið að Róm-
eó og Júlíu eftir Prokofiev. Ball-
etttónlistin sjálf er samin um miðjan
fjórða áratuginn, þegar tónsmið-
urinn er nýkominn heim til Sov-
étríkjanna eftir að hafa dvalið lang-
dvölum erlendis. Nýsköpun í tónlist
á þessum tímum í Sovétríkjunum
átti erfitt uppdráttar enda fór svo að
yfirmenn Bolsjoj-ballettsins riftu
samningum áður en að sviðsetningu
kom. Ákvað Prokofiev þá að semja
tvær hljómsveitarsvítur upp úr efni-
viðnum, op. 64 a/b. Mun síðar kom
þriðja svítan, op.101, og voru hér
fluttir hlutar úr svítunum þremur.
Mikilúðlegur fyrsti kaflinn er þekkt-
asta stef Prokofievs og hefur verið
notað ótal sinnum við ýmis tilefni.
Meðal annars hefur knattspyrnu-
félagið Sunderland notað það til þess
að blása liði sínu baráttuanda í
brjóst og sá fræjum ótta í brjóstum
andstæðinga og rokksveitirnar The
Smiths og Muse hafa báðar notað
tónlistina þegar þær ganga á svið.
Flutningur kvöldsins var glæsi-
legur undir styrkri stjórn Gaffigans.
Tónlistin býður upp á ótal litbrigði,
allt frá ofsanum í upphafsstefinu og
dauða Kapúlets til rómantískra sam-
verustunda elskendanna. Öllu var
komið til skila með fallegum ein-
leiksstrófum og glæsilegu samspili.
Þótt það sé ef til vill ósanngjarnt
ætla ég að nefna sérstaklega horn-
deildina þó, sem átti rífandi flottar
strófur. En allir áttu góðan dag og
það var greinilegt að samstarf Gaff-
igans og Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands bar ríkulegan ávöxt þessa
kvöldstund.
Tónlist elskenda
Háskólabíó
Sinfóníutónleikarbbbbn
Jean Sibelius: Elskhuginn (Rakastava),
Felix Mendelssohn-Bartholdy: Fiðlu-
konsert í e-moll op. 64, Sergej Proko-
fíev: Rómeó og Júlía (ballettsvíta).
Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðla;
Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi:
James Gaffigan. Fimmtudaginn 25. nóv-
ember kl. 19:30.
SNORRI
VALSSON
TÓNLIST
Góð Helga Þóra Björgvinsdóttir