Morgunblaðið - 29.11.2010, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 2010
BRUCE WILLIS,
MORGAN
FREEMAN,
JOHN MALKO-
VICH OG HELEN
MIRREN ERU
STÓRKOSTLEG Í
ÞESSARI ÓTRÚLEGA
SKEMMTILEGU GRÍN
HASARMYND
HHHH
- HOLLYWOOD REPORTER
HHHH
- MOVIELINE
HHHH
- NEW YORK POST
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KEFLAVÍK
ROBERT
DOWNEY JR.
OG ZACH
GALIFIANAKIS
EIGA EFTIR AÐ
FÁ ÞIG TIL AÐ
GRENJA ÚR
HLÁTRI FRÁ TODD PHILIPS,
LEIKSTJÓRA THE HANGOVER
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
„HELDUR
ATHYGLI
MANNS FRÁ
UPPHAFI TIL
ENDA”
- MORGUNBLAÐIÐ
„HELVÍTI
HRESSANDI“
- ERPUR
EYVINDARSSON
HHHHH
- PRESSAN
HHHH
- FRÉTTABLAÐIÐ
SÝND Í KRINGLUNNI OG SELFOSSISÝND Í EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SÝND Í ÁLFABAKKA
HHHH
- T.V. - KVIKMYNDIR.IS
HHHH
- H.S. MBL
MIÐASALA Á SAMBIO.IS
Í BEINNI ÚTSENDINGU FRÁ
NATIONAL THEATER 9. DES KL. 19.00
Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
MIÐASALA Á
WWW.SAMBIO.IS
TRYGGIÐ YKKUR MIÐA Í TÍMAHARRY POTTER and the Deathly Hallows kl. 5:30 - 8:30 - 10:10 10
GNARR kl. 8 L
DUE DATE kl. 8 - 10:20 10
ÆVINTÝRI SAMMA ísl. tal kl. 63D L
THE SWITCH kl. 5:50 10
/ KRINGLUNNI
HARRY POTTER kl. 6 - 9 10
DUE DATE kl. 6 - 8 10
RED kl. 10:10 12
/ AKUREYRI
SNILLDAR GAMANMYND
Ítölsk sönglög hafa löngum ver-ið eitt helsta vígi tenórsöngv-ara enda hafa þeir brætthjörtu áheyrenda sinna í
gegnum tíðina með ljúfum laglínum,
iðandi mandólínum og suðrænum
blóðhita. Sönglögin eiga sér djúpar
rætur í ítölsku óperuhefðinni án
þess þó að kalla á allan þann um-
búnað, dramatík og alvarleika sem
henni fylgir. Þau eru léttúðugri og í
raun dægurlög og mansöngur ten-
óranna, en ástarsorgin er sjaldnast
langt undan.
Það er því vel til fundið hjá Giss-
uri Páli Gissurarsyni tenórsöngvara
að helga fyrstu sólóplötu sína þess-
ari tegund tónlistar, og þakkarvert,
í stað þess að falla í þá gryfju að
syngja óheyrilegt samsull popp-
tónlistar og
klassíkur, eins
og allt of marg-
ir tenórar hafa
gert með held-
ur klisju-
kenndri út-
komu.
Platan er í marga staði ákaflega
vel heppnuð og nær að fanga vel
hina ítölsku stemningu með öllu sínu
pasta, rótsterku espressókaffi og af-
slöppun í steikjandi sól. Gissur er
með ákaflega áferðarfallega rödd og
rennir sér áreynslulítið upp á háu
tónana – á stundum jafnvel helst til
áreynslulítið því ekki er laust við að
maður sakni meiri ástríðu og blóð-
hita á stundum. Dæmi um þetta er
„Core n’grato“ þar sem sungið er
um kramin hjörtu og glataða ást, en
örvænting þess sem syngur er ekki
fyllilega trúverðug.
Á plötunni blandar Gissur saman
þekktum ítölskum sönglögum og
öðrum óvæntari, sem flest falla þó
vel að hugmyndinni á bak við disk-
inn, enda útsetningar Þorvaldar
Bjarna Þorvaldssonar bæði vand-
aðar og smekklegar. Á þessu eru þó
nokkrar undantekningar; þannig
heppnast sú tilraun að ættleiða tvö
íslensk sönglög inn á diskinn ekki
nema að hálfu leyti. Á meðan nýr
búningur klæðir „Í fjarlægð“ Karls
O. Runólfssonar skemmtilega vel
næst ekki að ná norrænum vetr-
ardrunganum úr lagi Sigvalda
Kaldalóns, „Ég lít í anda liðna tíð“.
Lagi Charles Aznavour, „Hún“,
sem Gissur syngur með Björgvini
Halldórssyni, hefði að ósekju mátt
sleppa alveg af plötunni. Ekki að-
eins fellur Gissur þarna í fyrrnefnda
samsullsgryfju heldur kemur lagið
eins og skrattinn úr sauðarleggnum
og brýtur upp annars góða ítalska
stemningu með óþægilegum hætti.
Skiptir þá engu þótt duglega sé
smurt yfir með mandólínspili í út-
setningunni.
Gissur bætir þó nokkuð fyrir í síð-
asta laginu og er vel til fundið að
enda slíkan disk á tenóraslagara
allra tíma, „O sole mio“, sem Gissur
klárar með bravúr.
Undirleikur Caput styður vel við
tónlistina og eins nær umslag og
bæklingur að fanga vel hið ljúfa
andrúmsloft. í heild nokkuð vel
heppnuð frumraun, með örfáum
hnökrum.
Suðræn stemn-
ing heim í hús
Gissur Páll Gissurarson – Ideale
bbbmn
BERGÞÓRA NJÁLA
GUÐMUNDSDÓTTIR
TÓNLIST
Morgunblaðið/Eggert
Ítalskt-íslenskt Gissur Páll Gissurarson syngur ítölsk og íslensk lög í bland
á plötunni Ideale. Vel heppnuð plata í marga staði að mati gagnrýnanda.
Hindúaleiðtoginn Rajan Zed, yf-
irmaður heimssamtaka hindúa (Uni-
versal Society of Hinduism) segir
hof eitt í Kambódíu, sem notað var
sem tökustaður kvikmyndarinnar
Lara Croft: Tomb Raider árið 2000,
nú kallað Angelinu Jolie-hofið af al-
menningi þar í landi en leikkonan
lék hetjuna Löru Croft í myndinni.
Zed segir leikkonuna dáða mjög í
Kambódíu og því hafi fólk tekið upp
þennan sið, að nefna hofið eftir
henni. Hofið er frá 12. öld og heitir í
raun Rajavihara. Jolie ættleiddi
kambódískan dreng fyrir nokkrum
árum og heitir sá Maddox.
Jolie-hofið í
Kambódíu
Vinsæl Jolie sem Lara Croft.
Leikstjóranum David Lynch er
margt til lista lagt: ljósmyndun, list-
málun og kvikmyndagerð og nú er
komið að tónlistinni. Lynch á að
baki margar merkar kvikmyndir,
m.a. Blue Velvet og Mullholland
Drive auk sjónvarpsþáttanna súr-
realísku Twin Peaks en tónlist hef-
ur alltaf skipað veigamikið hlut-
verk í verkum hans. Tvær
smáskífur eru nú væntanlegar með
tónlist eftir Lynch, Good Day
Today og I Know. Lynch segir í
samtali við breska dagblaðið Gu-
ardian að tónlist hafi veitt honum
mikinn innblástur við listsköpun
sína um áratugaskeið. Tónlist
Lynch ku vera raftónlist með marg-
radda söng undir, m.a. hans eigin.
Íhugun Lynch hélt fyrirlestur um
íhugun í Háskólabíói í fyrra.
Lynch gefur
út tónlist
Í gær var leikritið Fíasól sýnt í 100. skipti í
Þjóðleikhúsinu og var sú sýning tileinkuð
Neista, styrktarfélagi hjartveikra barna. Leik-
ritið er byggt á bókum Kristínar Helgu Gunn-
arsdóttur um hina uppátækjasömu stúlku Fíu-
sól sem er átta ára og drottning í sínu eigin,
risastóra hugmyndaríki, eins og því er lýst á
vef Þjóðleikhússins. Þá var hin jólasýningin
Leitin að jólunum sýnd í 125. sinn og er ekki
annað af myndunum að sjá en að börnin hafi
skemmt sér vel og séu farin að hlakka til
jólanna.
Kostuleg Lára Sveinsdóttir í hlutverki Fíusólar ræðir eitthvað afar mik-
ilvægt við sýningargesti. Börnin lifa sig inn í undraheim Fíusólar.
Morgunblaðið/Golli
Jólaleit Engu líkara en að hér séu heldur skrautlegir álfar komnir út úr
hól. Úr sýningunni Leitin að jólunum sem sýnd var í 125. sinn í gær.
Átta ára drottning og leit að jólum