Morgunblaðið - 29.11.2010, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 29.11.2010, Blaðsíða 32
Hundraðasta sýningin á barnaleikritinu Fíusól var í Þjóðleikhúsinu í gær og var hún tileinkuð tækjum Fíusólar og var glatt á hjalla þegar ljós- myndara bar að garði, eins og sjá má. Neista, styrktarfélagi hjartveikra barna. Börn og foreldrar skemmtu sér konunglega yfir uppá- Fíasól vakti kátínu í hundraðasta skipti MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 333. DAGUR ÁRSINS 2010 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2218 1. Veiktist og þarf nýtt hjarta 2. Spáir allt að 20 stiga frosti 3. Maðurinn sem sló Obama 4. Geimverubarn á leiðinni? »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  „Flutningur kvöldsins var glæsi- legur undir styrkri stjórn Gaffigans,“ segir m.a. í gagnrýni um tónleika Sin- fóníuhljómsveitar Íslands fimmtu- dagskvöldið sl., „Rómeó og Júlía“. Stjórnandi var James Gaffigan. »24 Morgunblaðið/Eggert Rómantískt og tilfinn- ingaþrungið hjá SÍ  Á morgun, 30. nóvember, kl. 21, verður haldin herrafatasýning herrafataverzl- unar Kormáks & Skjaldar í Þjóð- leikhúskjall- aranum. Sýndur verður fatnaður úr versluninni sem og fatalínan Kor- mákur & Skjöldur. Þekktir tónlistar- menn og skemmtikraftar munu koma fram, m.a. Helgi Björns. Herrafatasýning Kormáks & Skjaldar  Fimmtudaginn næstkomandi, 2. desember, verða haldnir hádegistón- leikar í Hafnarborg í Hafnarfirði. Á þeim munu tenórsöngvarinn Snorri Wium og píanó- leikarinn Antonía Hevesi flytja ýmis jóla- og aðventu- lög og hefjast tón- leikarnir kl. 12. Há- degistónleikar hafa verið fastur liður í starfi Hafnarborgar í sjö ár. Jóla- og aðventulög í Hafnarborg Á mánudag Suðvestan 8-13 m/s og slydda eða rigning vestanlands, en mun hægari vindur og bjartviðri eystra. Hiti 0 til 5 stig vestanlands, en annars frost 1 til 6 stig. Á þriðjudag og miðvikudag Vestlæg átt og súld eða dálítil slydda vestanlands, en bjart með köflum í öðrum landshlutum. Hiti 1 til 6 stig vestan til, en annars vægt frost. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestan 8-13 m/s og rigning eða slydda vestan til, en hægari vindur og úrkomulítið eystra. Frost 2 til 12 stig, mest inn til landsins, en hlánar vestanlands. VEÐUR Kvennalandslið Íslands í handknattleik sýndi tals- verðar framfarir í leikjum sínum í Noregi um helgina. Eftir stóran skell gegn heimaliðinu á föstudag veitti það sterkum liðum Dana og Serba harða keppni í hinum tveimur leikjunum. „Þessi ferð var fín generalprufa. Þetta voru hörkulið sem við spiluðum gegn og það verð- ur ekkert síðra á EM,“ sagði Júlíus Jónasson þjálfari. »5 Stóðu vel í Dönum og Serbum Ragnheiður Ragnarsdóttir sundkona varð í níunda sæti í 50 metra skrið- sundi á Evrópumótinu í Eindhoven í gær og í dag fer hún til Dubai við Persaflóann og æfir þar næstu daga í 30 stiga hita. Heimsmeistaramótið fer þar fram í næsta mánuði. „Markmiðið er að vera á toppnum eftir tvær og hálfa viku,“ segir Ragnheiður. » 5 Ragnheiður beint í 30 stiga hitann í Dubai „Það er nú stutt í báða enda í þessu þannig að það er ekkert í höfn ennþá,“ segir Birgir Leifur Hafþórs- son atvinnukylfingur sem stendur mjög vel að vígi á úrtökumóti á Spáni. Birgir Leifur er á tveimur höggum undir pari og í sjöunda sæti fyrir lokahringinn í dag. Fyrstu 23 komast yfir á þriðja stig úrtöku- mótanna. »1 Birgir Leifur er með góða stöðu á Spáni ÍÞRÓTTIR „Okkur hefur tekist að hjálpa og gleðja fleiri börn og fjölskyldur þeirra en við væntum þegar við fór- um af stað með þetta verkefni í síð- asta mánuði,“ segir Rannveig Sig- fúsdóttir, annar tveggja aðstand- enda Barnabrosa. Undir merkjum Barnabrosa er safnað framlögum frá einstaklingum og fyrirtækjum og keypt gjafabréf á upplifun fyrir þá sem þarfnast. Má nefna ferðir í leikhús, bíó, veitinga- staði og svo framvegis. Barnabros voru stofnuð í október síðastliðnum og hafa það inntak að gleðja börn á Íslandi. Ragnheiður segir að þær Andrea Margeirsdóttir sem saman standa að Barnabrosum séu í samvinnu við Hjálparstarf kirkjunnar og námsráðgjafa í skól- um. Sjá félagsráðgjafar hjálpar- starfsins og annað fagfólk svo um að koma gjafabréfunum áfram „Auk þessa má nefna að Barna- bros eru nú farin af stað með jóla- verkefnið Hjálparsveinar, en til 6. desember getur fólk hjálpað Barna- brosum og aðstoðað jólasveina að safna glaðningi í skóinn,“ segir Rannveig. Tekið er á móti glaðningi í skóinn á öllum Olís-stöðvum, en einnig er hægt að leggja fé inn á reikning Barnabrosa sem sjá þá um innkaupin. sbs@mbl.is Gleðja fleiri en vænst var  Barnabros safna framlögum og kaupa gjafabréf í leikhús, bíó og á veitingastaði  Hjálpa nú öllum jólasveinum landsins að safna glaðningi í gluggaskó barnanna Morgunblaðið/Ómar Barnabros Rannveig Sigfúsdóttir og Andrea Margeirsdóttir. Barnabros gleðja » Gleðigjafar eru þeir sem styrkja Barnabros með fram- lögum og afslætti. Með hjálp fyrirtækja má gera meira úr framlögum einstaklinga. » Meðal gleðigjafa eru Fjöl- skyldu- og húsdýragarðurinn, Laugarásbíó, Sena og fleiri. » Reikningsnúmer Barna- brosa er: 0313-26-047101 og kennitala: 471010-1380 Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.