Morgunblaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 26
26 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2010 Sudoku Frumstig 9 7 6 2 5 4 8 1 8 6 1 8 9 7 8 2 7 4 2 6 4 6 5 6 9 8 4 5 1 9 3 2 4 1 4 5 8 1 7 8 1 9 5 3 4 5 1 3 2 8 4 5 7 9 8 7 1 1 8 2 8 1 8 4 5 5 4 3 9 7 2 9 4 5 9 8 1 2 7 3 5 6 4 3 5 2 1 4 6 8 7 9 6 7 4 5 9 8 2 3 1 4 2 7 9 8 5 6 1 3 5 9 3 4 6 1 7 8 2 1 6 8 7 3 2 4 9 5 2 1 6 3 5 7 9 4 8 8 3 9 6 2 4 1 5 7 7 4 5 8 1 9 3 2 6 3 4 6 1 5 8 7 9 2 5 1 8 9 7 2 4 6 3 7 2 9 4 6 3 5 1 8 2 6 3 8 9 7 1 5 4 9 7 4 5 3 1 8 2 6 8 5 1 6 2 4 9 3 7 1 8 2 3 4 5 6 7 9 4 9 7 2 1 6 3 8 5 6 3 5 7 8 9 2 4 1 5 4 6 8 1 2 9 3 7 7 2 1 9 3 6 5 4 8 9 8 3 4 5 7 1 2 6 2 1 8 7 4 9 6 5 3 4 9 7 5 6 3 8 1 2 3 6 5 2 8 1 4 7 9 1 7 2 6 9 5 3 8 4 8 3 9 1 2 4 7 6 5 6 5 4 3 7 8 2 9 1 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er miðvikudagur 1. desember, 335. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Vaknið, því þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur. (Matth. 24, 42.) Víkverji gat ekki varist aðdáunþegar hann horfði á leikmenn Barselóna taka Madríd á beinið. Þessi tvö lið hafa haft algera yfirburði í spænsku deildinni og á mánudags- kvöld fór ekki á milli mála hvort liðið er betra. Fimm sinnum mátti lands- liðsmarkvörður Spánar, Iker Casil- las, hirða boltann úr netinu áður en leikurinn var á enda. Í liði Barselóna voru sjö leikmenn úr heimsmeist- araliði Spánar, þrír í liði Madrid. José Mourinho, þjálfari Madrídar hafði sagt að hann viti hvernig ætti að sigra Barselóna. Það sást ekki á mánudag. Mourinho sagði einnig að hvort sem Madríd ynni eða tapaði kæmi þriðju- dagur daginn eftir leikinn. Kannski var hann farinn að átta sig á því að ekkert yrði gefið á heimavelli Barse- lónu þetta kvöld. x x x Hafi leikurinn átt að vera mæli-kvarði á hvor knattspyrnumað- urinn er betri, Lionel Messi eða Ro- naldo, blasir svarið við, en kannski er málið ekki svo einfalt. Ekki var nóg með að Messi væri í ham á mánu- dagskvöldið, félagar hans allir voru í stuði. Hinn fýldi Ronaldo reyndi þótt árangurinn væri takmarkaður, en það verður ekki sagt um félaga hans. Messi var gjörsamlega óstöðvandi, hljóp um völlinn með boltann límdan við sig og skildi eftir sig slóð aumk- unarverðra varnarmanna. Hann var iðulega sparkaður niður (þeim mun fastar eftir því sem lengra leið á leik- inn), en var jafnharðan kominn á fæt- ur aftur, jafnvel með bros á vör. x x x Fyrir ósigurinn hafði Madrid leikið26 leiki án taps. Rob Hughes, íþróttafréttamaður International Herald Tribune, sagði að leikurinn hefði verið svo ójafn að hefði verið um hnefaleika að ræða hefði dómarinn verið búinn að flauta leikinn af til að hlífa þeim við frekari refsingu. x x x Viðureignir þessara tveggja liðahafa á Spáni fengið viðurnefnið El Clásico. Leikurinn á mánudags- kvöld stendur hæglega undir því að kallast klassík. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 tilkynnir, 8 af- komandi, 9 ílát, 10 blása, 11 merkilega, 13 hvalaafurð, 15 deilu, 18 fornrit, 21 nægileg, 22 aurinn, 23 farsæld, 24 sannleikurinn. Lóðrétt | 2 alda, 3 híma, 4 spottar, 5 blóðsugan, 6 esp- um, 7 skott, 12 ráðsnjöll, 14 loga, 15 fjárhjörð, 16 galdrakerlinga, 17 sigruð, 18 fjallsbrúnin, 19 klappi egg í ljá, 20 ill. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 sænsk, 4 flesk, 7 pútur, 8 æsing, 9 nær, 11 rúmt, 13 espi, 14 ásinn, 15 fálm, 17 naut, 20 ána, 22 geymt, 23 gátur, 24 rotin, 25 afana. Lóðrétt: 1 sýpur, 2 nótum, 3 korn, 4 flær, 5 efins, 6 kaggi, 10 ærinn, 12 tám, 13 enn, 15 fagur, 16 leynt, 18 aftra, 19 terta, 20 átan, 21 agga. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 Bb4+ 4. Rbd2 b6 5. e3 Bb7 6. Bd3 0-0 7. 0-0 d5 8. a3 Bxd2 9. Bxd2 dxc4 10. Bxc4 Rbd7 11. De2 c5 12. Hfd1 De7 13. dxc5 Rxc5 14. Rd4 Rfe4 15. f3 Rxd2 16. Hxd2 a6 17. b4 Rd7 18. Df2 Re5 19. Bf1 Hac8 20. e4 Hc3 21. Re2 Árið 1993 var haldið heimsmeist- aramót landsliða í skák í Luzern í Sviss. Landslið Kúbu forfallaðist á síð- ustu stundu og íslenska landsliðið kom í þeirra stað. Margeir Pétursson hafði hér svart gegn armenska stórmeist- aranum Smbat Lputjan. 21. … Hxf3! 22. Dxb6 Dg5! 23. Dxb7 Hh3!! 24. Da7 Rf3+ 25. Kf2 Rxd2 og hvítur gafst upp enda liðstap óhjákvæmilegt eftir t.d. 26. gxh3 Rxe4+ 27. Kf3 Rd2+ 28. Kf2 Df6+. Þessi skák fékk fegurðarverðlaun heimsmeist- arakeppninnar. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Órætt bros. Norður ♠G82 ♥KD3 ♦KDG2 ♣853 Vestur Austur ♠643 ♠D10 ♥Á1075 ♥G862 ♦964 ♦Á1087 ♣K96 ♣G74 Suður ♠ÁK975 ♥94 ♦53 ♣ÁD102 Suður spilar 4♠. Eitt andartak horfðust þeir í augu, sænski landsliðsmaðurinn Peter Bert- heau og bandaríski atvinnuspilarinn Ron Smith. Augnaráð Bertheau var spyrjandi, en í daufu brosi Smiths var ekkert svar að finna. Bandarísku haustleikarnir fara fram þessa dagana í Orlando í Flórída og er spilið að ofan þaðan komið, úr svoköll- uðum meistaratvímenningi. Eins og flestir sunnanmenn varð Bertheau sagnhafi í 4♠. Útspilið var tromp- þristur – tvisturinn úr borði og drottn- ingin frá umræddum Smith í austur. Bertheau drap og leit spyrjandi á Smith, sem brosti dauflega á móti. Það er ókurteisi að stara lengi á ann- að fólk og Bertheau er enginn dóni. Hann ákvað að trúa eigin augum og spilaði næst trompi á áttuna. Þá brosti Smith út að eyrum. 1. desember 1918 Ísland varð fullvalda ríki. At- höfn var við Stjórnarráðshúsið en var stutt og látlaus vegna spænsku veikinnar. Ríkisfáni Íslands var dreginn að hún í fyrsta sinn sem fullgildur þjóð- fáni. Fullveldisdagurinn var al- mennur hátíðisdagur fram til 1944. 1. desember 1932 Sjálfvirkar símstöðvar voru teknar í notkun í Reykjavík og Hafnarfirði. Tugir símastúlkna misstu vinnuna þegar símnot- endur fóru sjálfir að velja núm- er fyrir innanbæjarsímtöl. 1. desember 1948 Sex af sautján manna áhöfn breska togarans Sargon var bjargað þegar togarinn strand- aði undir Hafnarmúla við Ör- lygshöfn. Tekin var kvikmynd af björguninni og hún notuð í kvikmyndina um björgunar- afrekið við Látrabjarg. 1. desember 1975 Silfurbergsnáman hjá Helgu- stöðum í Reyðarfirði var frið- lýst sem náttúruvætti. Hún var öldum saman ein gjöfulasta silfurbergsnáma í heimi. Stærsti steinninn úr námunni er í Museum of Natural History í London og vegur 230 kg. 1. desember 1994 Þjóðarbókhlaðan, hús Lands- bókasafns Íslands og Háskóla- bókasafns, var tekin í notkun, en hún var reist í minningu ell- efu alda Íslandsbyggðar 1974. Byggingin rúmar 900 þúsund bindi og sæti eru fyrir 700 not- endur. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Sigurður G. Tómasson útvarpsmaður er önnum kafinn við að sjá um bókaþáttinn „Segðu okkur frá bókinni“, sem er frumsýndur á sjónvarpsstöðinni ÍNN á sunnudögum kl. 21 og síðan endursýndur á öðrum tímum, en gefur sér samt tíma til þess að taka á móti ættingjum og vinum í dag í tilefni 60 ára afmælisins. Hann segist samt ekki vera mikið fyrir að halda upp á afmæli en að þessu sinni sé þreföld ástæða til þess að hóa saman fólki. Hjónin séu nýbúin að byggja við húsnæði sitt og hafi ekki haldið upp á það enn. Í öðru lagi hafi eiginkonan Steinunn Bergsteinsdóttir myndlistarkona átt sex- tugsafmæli í fyrrasumar og það hafi farið frekar hljótt. Í þriðja lagi eigi hann afmæli. „Það er tímabært að sýna aðeins lit og svo er alltaf gaman að hitta vini og kunningja,“ segir hann. Annars segist Sigurður hafa nóg að gera. Hann lesi mikið og sjón- varpsþátturinn hafi fengið mjög góð viðbrögð. „Þetta er skemmtilegt og ég kvarta ekki,“ segir hann og bætir við að mikið líf sé í kringum þau við Varmá í Mosfellsbæ. Sjálf eigi þau fjóra ketti og tvo hunda og auk þess fóðri hann allt að 100 stokkendur. Hann sé líka oft leið- sögumaður. „Þingvallasveit er mín heimasveit.“ steinthor@mbl.is Sigurður G. Tómasson 60 ára Á kafi í bókum og lestri Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is Flóðogfjara 1. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 2.11 3,4 8.27 1,1 14.32 3,4 20.54 0,9 10.46 15.49 Ísafjörður 4.24 1,9 10.32 0,7 16.30 1,9 23.04 0,5 11.21 15.23 Siglufjörður 0.06 0,3 6.35 1,2 12.34 0,3 18.55 1,2 11.05 15.05 Djúpivogur 5.23 0,7 11.38 1,9 17.46 0,7 10.23 15.11 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þrátt fyrir að þú eigir meira en nóg af dóti langar þig í eitthvað nýtt. Viðraðu góðar tillögur við yfirmann þinn. (20. apríl - 20. maí)  Naut Leyndur og týndur hæfileiki kemur upp á yfirborðið í leiðinlegu verkefni. Gangið skipulega til verks, þá hefst það. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú færð tækifæri á næstu sex mán- uðum til þess að endurvinna gerða samn- inga, einkum ef um er að ræða samninga á sviði afþreyingar og lista. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú átt ekki í erfiðleikum með að tjá þig. Gefðu sjálfum þér tíma til að sinna áhugamálunum og fjölskyldunni. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Það er möguleiki fyrir þig að vinna þér inn peninga í gegnum starf sem þú starfaðir eitt sinn við áður. Láttu vinnufélagana engin áhrif hafa á ákvörðun þína. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Liggðu ekki á skoðunum þínum heldur láttu þær í ljós því það auðveldar lífið að hafa allt á hreinu. Búðu þig undir að svar, sem þú bíður eftir, geti komið á óvart. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Kjörinn dagur til að grípa niður í heim- spekileg eða trúarleg viðfangsefni. Skoðaðu þá hluti sem þú hefur talið sjálfsagða til þessa og – lærðu að meta þá. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú hefur skapað sterk tengsl sem endast allt lífið. Gerðu þér glaðan dag en mundu að á morgun bíður þín nýtt verk- efni. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Sagt hefur verið að fallegur hlut- ur verði manni til eilífrar gleði. Einbeittu þér að því að sjá hlutina í jákvæðara ljósi – lífið verður auðveldara. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Oft getur saklaus umræða breyst í deilur og rifrildi. Vertu hvergi smeyk/ur því þú hefur alla burði til að vinna verkið. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú finnur þig hugsanlega knúinn/ knúna til þess að annast einhvern á næstu vikum. Skynsemi þín mun koma þér að góð- um notum. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Fólk laðast að þér og þú nýtur þess en gefðu þér tíma til að hugleiða hvort þú þurfir á því að halda. Heimurinn er betri með þér. Stjörnuspá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.