Morgunblaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 30
Menning MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2010 Þann 4. janúar 2011 kemur út glæsilegt sérblað um skóla og námskeið semmun fylgja Morgunblaðinu þann dag. Í blaðinu verður fjallað ummenntun og þá fjölbreyttu flóru sem í boði er fyrir þá sem vilja auðga líf sitt og möguleika með því að afla sér nýrrar þekkingar og stefa því á nám og námskeiða. MEÐAL EFNIS: Háskólanám.. Verklegt nám og iðnnám. Endurmenntun. Símenntun. Listanám. Sérhæft nám. Námsráðgjöf og góð ráð við námið. Kennsluefni. Tómstundanám- skeið og almenn námskeið. Nám erlendis. Lánamöguleikar til náms. Ásamt fullt af öðru spennandi efni Skó lar o g ná msk eið Skólar og námskeið –– Meira fyrir lesendur Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, miðvikudaginn 22. desember Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Benni Hemm býr nú í Skotlandi en þangað flutti hann fyrir tveimur árum þegar konan hans ákvað að fara í framhaldsnám til Edinborg- ar. Hann er að gefa út nýja plötu sem nefnist Skot og Morgunblaðið náði á honum í Edinborg þar sem hann var í fimbulkulda og snjó sem var svo mikill að mestallt skólahald lá niðri og almenningssamgöngur líka. Á þessari nýju plötu spilar Retro Stefson með honum en Benni segir að sú hugmynd hafi komið upp í einhverju jólafríinu að þau myndu spila undir í einhverjum af lögunum hans. „Síðan þróaðist þetta út í það að þau tóku upp heila plötu með mér,“ segir Benni. „En þetta eru lög eftir mig. Ég kenni þeim lögin og við spilum þau saman. Ég vann með þeim eins og ég hef unnið með minni hljómsveit, ég er svolítill ein- ræðisherra. Ég hef heyrt frá þeim sem hafa hlustað á tónleikana okk- ar að menn hafi búist við meiri Retro Stefson í þessum lögum en raunin er. Ég skipaði þeim óhikað fyrir og þau voru frábær í þessu. Þau eru magnaðir tónlistarmenn,“ segir Benni. Hissa á eigin lögum Aðspurður hvernig tónlistin á nýja disknum sé segist hann eiga erfitt með að lýsa því. Hann sé ekki viss um neitt nema það að hann sé ósammála öllu sem aðrir skrifa um tónlistina. „Ég er yfirleitt ósam- mála því sem ég les um mína eigin tónlist, en ég veit svo sem ekki hvað ég myndi skrifa sjálfur um hljóm- sveitina mína. Mér finnst þetta yf- irleitt asnalegar samlíkingar sem er komið með í blöðunum,“ segir Benni. En eftir þó nokkurn þrýst- ing er hann tilbúinn til að lýsa tón- listinni sem öðruvísi á þessari plötu en hinni. „Það er til dæmis engin bras- stónlist á nýju plötunni. Mér finnst það ágæt tilfinning að breyta aðeins til. Þetta er kannski nær því að vera hefðbundnari popp- tónlist. Textar með lögunum og þau eru beinskeyttari. Það er minni áhersla á útsetn- ingar á þessari plötu. Þegar ég flutti hingað út til Edinborgar fyrir tveimur árum fór ég að semja mikið á ensku. En núna á þessari plötu er ég bara með íslenska texta. Fyrir mittt leyti er allt öðruvísi að semja íslenska texta um hitt og þetta hérna í Skotlandi en að gera það heima. Þetta kom mjög auðveldlega hér. Ég held að ég hefði ekki getað samið þessa texta heima á Íslandi. Ég er mjög hissa á þessum lögum, en mjög ánægður með þau. Það er betra að vera hissa á því sem maður er að gera en að finnast það kunn- uglegt og vera þá kannski fastur í því sama,“ segir Benni. Sekkjapípuáhrif Spurður hvort sekkjapípurnar í Skotlandi séu ekki farnar að hafa áhrif á tónlistina hafnar hann því ekki. „Mér finnst sekkjapípurnar mjög fallegar. Það er mikil sena í kringum þær hljómsveitir sem eru að taka nýjan vinkil á þjóðlaga- tónlistina. Alistair Roberts, sem ég spilaði með á Listahátíðinni núna síðast, er kannski gott dæmi um það sem er í gangi hérna. Hann gef- ur út til skiptis gömul þjóðlög í sín- um útsetningum og síðan sín eigin lög. Þegar maður hlustar á plöt- urnar hans í fyrsta sinn veit maður ekki hvað er gamalt lag og hvað er nýsamið af honum. Það er fullt af fólki að vinna með þjóðlegan arf hér í Skotlandi á mjög spennandi hátt. Það er erfitt að ímynda sér eitthvað sambærilegt á Íslandi. Það er allt öðruvísi þjóðlagahefð hér en þar. En það má segja að ég leyfi mér smá áhrif frá þeirri tónlist, til dæm- is í gítarstillingum og smá nörda- skap í þjóðlagatónlistinni sem mað- ur er að detta í. Ég les þessi kvæði sem þau eru að syngja og finnst þau spennandi,“ segir Benni. Textasmíðin Textarnir eru ýmiskonar á plöt- unni og segir Benni að áhrifin að þeim komi víða að. „Einn textinn er byggður á skáldsögunni Falli kon- ungs eftir danska nóbelsverðlauna- hafann Jensen. Hann segir að bókin skýri að miklu leyti hvers vegna Danir séu orðnir svona linir. Þetta er mjög brútal bók. Það er svo fal- legt móment í bókinni þar sem kóngurinn ætlar að flýja yfir sundið og síðan hættir hann við og siglir til baka. Hættir síðan við að hætta við. Þetta móment er svona hans fall. Hann veit ekkert hvað hann á að gera. Svo er annað lag þarna þar sem ég er að reyna að telja sjálfan mig á að borða ekki kjöt. Textinn að því lagi sprettur út frá þessum vangaveltum mínum, því mig hefur lengi langað til að neita mér um kjöt en alltaf er maður borðandi þetta. Ég er eiginlega búinn að sannfæra mig með þessu lagi, ég á fáar afsakanir eftir. Svo er eitt sem fjallar um dauðann. Nokkrar mis- munandi sýnir á það fyrirbrigði. Síðan er þarna saga af því þegar ég fór með hljómsveitinni minni Rúnk til Belgíu. Við fórum á vegum Hins hússins í evrópskt samvinnuverk- efni með Ásu Hauks sem vinnur hjá Hinu húsinu. Þetta var frábær ferð en furðuleg. Það voru margar áhugaverðar týpur sem komu að verkefninu sem koma fram í laginu. Það sem gerðist í ferðinni er útlist- að nokk nákvæmlega í laginu,“ seg- ir Benni. Benni segist vera tilbúinn með næstu plötu á eftir og þar séu skosku áhrifin enn meiri. „Þar er ég með lög á ensku sem ég geri með skosku hljómsveitinni minni. Ég er með hardcore-gítarnördapælingar með ígrunduðum útsetningarpæl- ingum. Sú hljómsveit varð til út frá kunningsskap hér á staðnum. Í Glasgow og Edinborg er mikið af góðu tónlistarfólki og mikil sam- vinna á milli tónlistarmanna hér,“ segir Benni. Blanda Ólíkar stefnur mætast á nýrri plötu Benna Hemm Hemm því þar spilar Retro Stefson með honum. Skotar hafa áhrif á Benna Hemm Hemm  Retro Stefson spilar með Benna á nýju plötunni Ný plata Benna Hemm Hemm, Skot, er undir áhrifum af nýja heimalandinu hans Benna, Skotlandi. Benni kemur heim frá Skotlandi til að halda út- gáfutónleika vegna Skotsins í desember. Tónleikar verða hinn 11. des- ember á Bakkusi. Prins Póló mun hita upp fyrir Benna og Báru- járn spilar á eftir honum, en það ku vera ein uppáhalds- hljómsveit Benna. DJ Öf- ull lokar svo gigginu. Skot SKOTLAND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.