Morgunblaðið - 25.01.2011, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2011
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Í framhaldi af mælingum á loðnustofn-
inum fyrr í þessum mánuði leggur Haf-
rannsóknastofnunin til að leyfilegur há-
marksafli á vertíðinni verði aukinn um
125 þúsund tonn og verði alls 325 þús-
und tonn. Áætla má að verðmæti þess-
arar aukningar nemi yfir sex milljörð-
um króna fyrir þjóðarbúið og í heild
geti loðnuvertíðin gefið um 14-15 millj-
arða í útflutningsverðmæti.
Gildandi aflaregla gerir ráð fyrir að
400 þúsund tonn séu skilin eftir til
hrygningar. Áfram verður fylgst með
loðnugöngum og ráðgerir Hafrann-
sóknastofnunin að fara að nýju af stað
þegar loðnan er farin að sjást við suð-
austurströndina.
Hluti af heildaraflamarki af loðnu
kemur í hlut Norðmanna og Grænlend-
inga samkvæmt samningi þjóðanna. Í
gær höfðu norsk veiðiskip veitt um 21
þúsund tonn af loðnu í íslenskri lög-
sögu.
Jákvæðar niðurstöður
Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri
nytjastofnasviðs Hafrannsóknastofn-
unar, segir að vissulega séu þessar nið-
urstöður jákvæðar. Eigi að síður séu
loðnumælingar vetrarins með þeim
lægri í sögulegu samhengi. Þorsteinn
segir að loðna hafi sést á stóru svæði,
en þéttust hafi hún verið úti af norð-
anverðum Austfjörðum og austan við
Kolbeinseyjarhrygginn.
Sú loðna sem nú er út af austanverðu
Norðurlandi gæti veiðst fyrir Aust-
fjörðum næstu vikur. Líklegt má telja
að um 20% hrognafylling verði komin í
loðnuna eftir um einn mánuð, en mest
verðmæti fást þá fyrir hrognin.
Rannsóknaskipið Árni Friðriksson
var við mælingar 6.-22. janúar og var
svæði frá Suðausturlandi, norður um
og allt að sunnanverðum Vestfjörðum
kannað. Fyrstu dagana komu jafn-
framt fimm veiðiskip að þessum rann-
sóknum.
Fram kom í loðnuleiðangri í nóvem-
ber að árgangurinn sem kemur inn í
veiðina næsta vetur er enn sterkari en
sá sem nú er einkum veitt úr. Vænta
má þess að ráðgjöf um upphafskvóta í
loðnu á vertíðinni 2011-12 verði gefin út
með ráðgjöf um aðra fiskstofna
næsta sumar. Í þeim efnum hefur
Hafrannsóknastofnun samráð við
Alþjóðahafrannsóknaráðið þar
sem um deilistofn er að ræða.
Aukning kvótans gæti
gefið yfir sex milljarða
Vart varð við loðnu á stóru svæði Áfram verður fylgst með loðnugöngum
Ljósmynd/Haukur Jónsson
Vertíð Líflegt hefur verið í höfninni á Eskifirði undanfarið og meðal annars hafa norsk skip landað þar um 3.500
tonnum. Eittt norsku skipanna sést á myndinni en Jón Kjartansson er við bryggju og Faxi hefur fengið þjónustu hjá
Egersund nótastöðinni. Unnið er á vöktum í Fiskimjölsverksmiðjunni og í nótastöðinni meðan slík uppgrip eru.
Þráinn Freyr Vigfússon, aðstoðar-
yfirmatreiðslumaður á Grillinu á
Hótel Sögu, er um þessar mundir
staddur í Lyon í Frakklandi þar
sem hann tekur fyrir Íslands hönd
þátt í Bocuse d’Or, keppni mat-
reiðslumeistara, í dag.
Fyrstu dagarnir hafa þó ekki
gengið áfallalaust fyrir sig en að
sögn Atla Þórs Erlendssonar, mat-
reiðslunema og aðstoðarmanns
Þráins, hófust vandræðin strax á
útleið sl. fimmtudag. „Við sendum
fragtina af stað frá Íslandi á undan
okkur. Hún millilenti í Kaupmanna-
höfn og átti að fara þaðan með flugi
til Parísar þar sem við ætluðum að
taka við henni og keyra með hana
til Lyon. Þegar við komum til Par-
ísar kom í ljós að fragtin var enn í
Kaupmannahöfn,“ segir Atli.
Vegna þessa fengu Þráinn og lið
hans ekki hráefni sitt og búnað
fyrr. Þarna voru vandræðin hins
vegar aðeins rétt að byrja.
Rúmfastir með magakveisu
Þráinn hafði látið sérsmíða fyrir
sig silfurstanda en þrátt fyrir að
hafa verið fluttir í handfarangri
brotnuðu þeir og segir Atli að ýmsar
tilfæringar með lími hafi þurft til að
laga þá. Um helgina veiktust svo
bæði aðalaðstoðarmaður Þráins og
þjálfari hans af magakveisu og voru
rúmfastir. Þá kom í ljós að eitt mikil-
vægt hráefni, sítrónu-tímían, fékkst
ekki í Lyon. Hringt var heim og
brunaði frændi Þráins á garðyrkju-
stöðina Engi í Laugarási til að ná í
kryddið og flaug vinafólk Þráins
með það út í gær.
Hópurinn krossleggur nú fingur
og vonar að engin fleiri áföll komi
upp á og að fall sé fararheill, líkt og
máltækið segir. ylfa@mbl.is
Tekur þátt í HM matreiðslumanna í Lyon
Morgunblaðið/Heiddi
Meistarakokkur Þráinn keppir fyrir Íslands hönd á Bocuse d’Or í dag.
Ekki gengið áfallalaust hjá Þráni Frey Vigfússyni á Bocuse d’Or í Frakklandi Fragtin festist í
Kaupmannahöfn, búnaður brotnaði, aðstoðarmenn veiktust og eitt hráefnanna var ófáanlegt
Afar virt keppni
» Bocuse d’Or er ein stærsta
og virtasta einstaklings-
matreiðslukeppni í heimi og
hefur verið haldin síðan 1987.
Hún er oft kölluð heimsmeist-
arakeppnin í matreiðslu.
» Færri þátttakendur komast
að en vilja. 24 þjóðir fá keppn-
isrétt eftir að hafa unnið for-
keppni í sinni heimsálfu en
fimm efstu sætin í sjálfri
keppninni tryggja sjálfkrafa
keppnisrétt í næstu keppni.
» Þráinn var valinn mat-
reiðslumaður ársins 2007 og
hefur unnið fjölda verðlauna í
alþjóðlegum keppnum.
„Þetta er jákvætt og ég hef enga trú á öðru en að
aflaheimildir verði auknar enn frekar,“ segir Gunnþór
Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Nes-
kaupstað. „Það er langt síðan loðnuveiðar
hafa gengið eins vel og í ár. Auk þess
sem skipstjórar telja sig sjá töluvert af
loðnu og eru fullir bjartsýni.
Verð á mjöli og lýsi hefur verið að
styrkjast, en hins vegar er meiri óvissa
með afurðir til manneldis. Auðvitað er
það slæmt að geta ekki keyrt frysti-
húsin eins og við höfum gert, en
Norðmenn eru að frysta loðnu og
sömuleiðis Rússar. Markaðir fyr-
ir frysta loðnu eru mjög þungir
og verðið sem hefur verið í boði skilar minna en verð-
mæti mjöl- og lýsisvinnslunnar.
Við höfum tekið ákveðna áhættu og veitt talsvert
af loðnu til mjöl- og lýsisvinnslu. Við trúðum því að
það yrði aukið við kvótann og byggðum þessa ákvörð-
un á mati skipstjóra sem voru á miðunum fyrir ára-
mót. Nú er komið á daginn að þetta var rétt mat.
Menn verða að átta sig á því að tíminn er peningar í
þessu og verðmæti mjöl- og lýsisvinnslunnar rýrnar
þegar líður á vertíðina vegna minnkunar á fituinni-
haldi.
Við þurfum einfaldlega að vera stöðugt á vaktinni
og fylgjast með göngu loðnunnar og menn sem að
þessu koma þurfa að hafa trú á því að auknar rann-
sóknir skili okkur árangri,“ segir Gunnþór Ingvason.
Þurfum að vera stöðugt á vaktinni
VERÐ FYRIR MJÖL OG LÝSI AÐ STYRKJAST EN MARKAÐIR ÞUNGIR FYRIR FRYSTA LOÐNU
Gunnþór Ingvason
Hlákukaflinn sem staðið hefur frá
því um miðja síðustu viku stendur
áfram, að minnsta kosti út vikuna.
Hiti verður gjarnan tvö til sjö stig.
Þó er hugsanlegt að það stirðni við
jörðu ef léttir til á Norður- og Aust-
urlandi.
Óli Þór Árnason, veðurfræðingur
hjá Veðurstofu Íslands, neitar því
að komið sé vor. Hlákukaflinn sem
nú stendur sé hefðbundinn. Slíkir
kaflar komi venjulega tvisvar til
þrisvar á hverjum vetri.
Heitast hefur orðið 17,6 stig 25.
janúar. Það var á síðasta ári, á
Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði.
Útlit er fyrir hlýjan dag á Suður- og
Suðausturlandi í dag.
Veðurkortin sýna rauðar tölur
áfram. Þó er gert ráð fyrir því að
það birti til á föstudag og að þá
verði létt frost inn til landsins.
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Einar Falur
Hláka Hlýtt loft er yfir landinu og
útlit er fyrir milt veður áfram.
Hlákukafl-
inn stendur
áfram
Upplýsingar um
gönguljósin í
Reykjavík verða
kynntar um-
hverfis- og sam-
gönguráði í dag.
Ráðið óskaði eft-
ir þessum upp-
lýsingum eftir
banaslys gang-
andi vegfaranda á Snorrabraut í
desember sl. Sérfræðingur var
fenginn í kjölfarið til að kanna
gönguljósin og sýnt þykir að þau
hafi starfað rétt, segir í tilkynn-
ingu. Málið sé enn á rannsókn-
arstigi og beðið er eftir niðurstöðu
rannsóknarnefndar umferðarslysa
um slysið og gönguljósin. „Við vilj-
um tryggja umferðaröryggi í borg-
inni eins og kostur er og skoða þarf
málið í heild sinni,“ segir Karl Sig-
urðsson, formaður umhverfis- og
samgönguráðs.
Skoða betur
gönguljósin