Morgunblaðið - 25.01.2011, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2011
Í tilefni af stórafmæli Vigdísar
Finnbogadóttur á síðasta ári, og því
að 30 ár voru liðin frá forsetakjöri
hennar, hefur lyfjafyrirtækið Ac-
tavis ákveðið að styrkja Stofnun
Vigdísar Finnbogadóttur um 30
milljónir króna til byggingar húss
fyrir starfsemi stofnunarinnar.
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, for-
stjóri Actavis á Íslandi og Kristín
Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Ís-
lands, undirrituðu samning um
stuðninginn í Háskóla Íslands á
föstudag sl. Stofnun Vigdísar Finn-
bogadóttur hefur sett sér það
markmið að byggja þrjú þúsund
fermetra hús austan við Háskólabíó
sem mun m.a. hýsa alþjóðlega
tungumálamiðstöð og alla kennslu
og rannsóknir í þeim 14 erlendu
tungumálum sem kennd eru við Há-
skóla Íslands.
Morgunblaðið/Kristinn
Gefa 30 milljónir
til húsbyggingar
Matís ohf. hefur sett upp nýja
„kæligátt“, sem er upplýsingaveita
með hagnýtum upplýsingum og
umfjöllun um kælingu og með-
höndlun á fiski á öllum stigum virð-
iskeðjunnar frá miðum á markað.
Leiðbeiningarnar byggjast á rann-
sóknum sem framkvæmdar hafa
verið innan kæliverkefnana Chill
on, Hermunar kæliferla, og Kæli-
bótar.
Kæligáttin er bæði til á íslensku
(www.kaeligatt.is) og á ensku
(www.chillfish.net). Leiðbeining-
arnar eru settar fram á not-
endavænan hátt og eiga vonandi
eftir að nýtast sjómönnum, fram-
leiðendum og flutningsaðilum og
einnig koma að gagni við fræðslu
og námskeiðahald á þessu sviði.
Upplýsingaveita um
kælingu á fiskmeti
Í dag, þriðjudag, stendur Fem-
ínistafélagið fyrir fundi þar sem
staðgöngumæðrun verður rædd frá
hinum ýmsu hliðum. Fundurinn fer
fram í Fríðuhúsinu á horni Snorra-
brautar og Njálsgötu og hefst kl.
20. Frummælendur verða Guðrún
Þorsteinsdóttir, formaður vinnu-
hóps heilbrigðisráðuneytisins um
staðgöngumæðrun, Ástríður Stef-
ánsdóttir, læknir, siðfræðingur og
félagi í vinnuhópi um stað-
göngumæðrun, og Salvör Nordal
siðfræðingur. Einnig mun með-
limur úr félaginu Staðganga, stuðn-
ingsfélagi staðgöngumæðrunar á
Íslandi ávarpa fundinn.
Umræðufundur um
staðgöngumæðrun
Í dag, þriðjudag
kl. 12, mun Húni
Heiðar Hallsson
halda erindi um
lagalega stöðu
hvítabjarna við
Ísland. Erindið
fer fram í Há-
skólanum á Ak-
ureyri í M102
Sólborg v/Norðurslóð.
Í erindi sínu fjallar Húni um þær
réttarheimildir sem gilda um hvíta-
birni á Íslandi og hvernig þær hafa
þróast. Hann fjallar einnig um túlk-
un réttarheimilda um hvítabirni og
þær móttökur sem þeir hafa fengið
á Íslandi á síðustu árum. Þá mun
Húni útskýra þær ráðstafanir sem
stjórnvöld gripu til árið 2008 þegar
tveir hvítabirnir gengu á land.
Lagaleg staða hvíta-
bjarna á Íslandi
STUTT
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
ÚTSALA
Gerið góð kaup
Verð áður: Verð nú:
Kjóll 15.900 kr. 5.900 kr.
Kjóll 8.900 kr. 3.500 kr.
Gullvesti 14.900 kr. 5.900 kr.
Sparimussa 8.900 kr. 7.500 kr.
Toppur 11.900 kr. 2.000 kr.
Prjónakjóll 21.900 kr. 8.700 kr.
Siffonbuxur 14.900 kr. 5.900 kr
Verðdæmi:
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Útsala
Str. 38-56
Laugavegi 63 • S: 551 4422
ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR
á klassískum og vönduðum kvennfatnaði
frá þekktum framleiðendum
laxdal.is
MÖGNUÐ ÚTSALA
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500
www.flis.is • netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni Sími 551 3010
Hárgreiðslustofan
- nýr auglýsingamiðill
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Gert er ráð fyrir að alls 94 íbúðir og
hús verði seld á nauðungaruppboði á
Suðurnesjum í febrúar og er það
með allra mesta móti. Hér er um að
ræða lokastig í nauðungarsöluferl-
inu. Þá verða um 85 nýjar nauðung-
arsölubeiðnir teknar fyrir í febrúar
og 180 eignir eru komnar á annað
stig uppboðs, þ.e. á þeim mun hefjast
uppboð.
Til samanburðar má benda á að
allt árið í fyrra lauk uppboðum á 280
húseignum, þ.e. afsal var gefið út
vegna þeirra. Um 590 ný nauðung-
arsölumál komu inn á borð sýslu-
mannsins í fyrra.
Flestar í eigu fasteignafélags
Ásgeir Eiríksson, fulltrúi sýslu-
mannsins í Keflavík, segir að lang-
flest af þeim 94 íbúðum og húsum
sem boðin verða upp á framhalds-
uppboði í febrúar séu í eigu fast-
eignafélagsins Norðurkletts en til-
tölulega fáar í eigu einstaklinga eða
fjölskyldna.
Eftir hrun var lögum um nauðung-
arsölu breytt og nauðungarsölum
frestað í þrjá mánuði ef fólk óskaði
þess. Þetta úrræði var ítrekað fram-
lengt, nú síðast þannig að hægt var
að óska eftir fresti allt til 31. mars
2011. Það styttist því óðum í að síð-
asti fresturinn renni út.
Ásgeir á ekki von á holskeflu upp-
boða þegar fresturinn rennur út.
Sýslumannsembættið hafi undanfar-
ið þurft að bjóða upp eignir hjá fólki
sem hafði fengið þriggja mánaða
frest en hann runnið út. Þá hefðu
margir leitað úrræða hjá umboðs-
manni skuldara.
Bankarnir passa upp á veðin
Ásgeir segir að það komi fyrir að
einstaklingar bjóði í eignir sem eru á
nauðungarsölu en einkum séu það
bankarnir sem leysi til sín fasteign-
irnar. „Þeir eiga engan annan kost,“
segir hann. Einstaklingar sem komi
á uppboð bjóði lágt í eignir og langt
undir verðmætinu. Hann þekkir
þess ekki dæmi að einstaklingar hafi
getað keypt eignir á smánarvirði á
uppboðum, bankarnir gæti þess að
tapa ekki veðum sínum.
Í febrúar verða 94 eignir
á Suðurnesjum slegnar
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Reykjanesbær Fjöldi íbúða bættist við á gamla varnarsvæðinu, Ásbrú.
Frestur á
nauðungarsölu
rennur út 31. mars
Fresti frestað
» Í mars 2009 var ákveðið að
fresta nauðungarsölu fram yfir
31. október 2009.
» Í nóvember var lögunum
breytt og nú var hægt að
fresta allt til 28. febrúar 2010.
» Aftur var framlengt, í síð-
asta lagi til 31. mars nk.
Þrjár þernur, sem störfuðu um borð
í Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi,
segjast hafa fengið afhent uppsagn-
arbréf eftir að þær óskuðu eftir því
að fá stéttarfélög sín til að fara yfir
starfslýsingarsamning áður en hann
yrði undirritaður.
„Við vildum láta stéttarfélagið
okkar skoða hann, og létum skip-
stjórann vita af því á sunnudag. En
þá kom hann bara með uppsagnar-
bréfið og það gildir frá og með 23.
[janúar],“ sagði Íris Valgeirsdóttir,
ein þernanna, í samtali við mbl.is.
Íris sagði að þernurnar hefðu
óskað eftir því að tvö atriði yrðu
tekin út úr samningnum, sem varða
þrif sem þernurnar sinna m.a. Sl.
föstudag hefði þeim verið tjáð að
annaðhvort myndu þær skrifa undir
eða verða reknar. Íris sagðist ekki
hafa viljað svara þessu strax og
sagði að rekstrarstjóri Herjólfs
hefði gefið sér frest fram á mánu-
dag, þ.e. í gær, til að svara. Í lok
vinnudags á sunnudag hefðu þær
rætt málið við skipstjóra Herjólfs
um stöðuna. „Við sögðum við hann
að við ætluðum að láta félagið okk-
ar skoða þetta, og vorum búnar að
fá tíma kl. 13 í dag [gær]. Þá kom
hann með þetta uppsagnarbréf. Og
uppsagnarbréfið er dagsett 12. jan-
úar 2011,“ sagði Íris og kvaðst vera
mjög undrandi. Hún hefur starfað
sem þerna um borð í Herjólfi í rúm
fimm ár.
Leita réttar síns
Þernurnar þrjár funduðu í gær
með Sjómannafélaginu Jötni og
Stéttarfélaginu Drífanda vegna
málsins.
„Við skiljum þetta ekki,“ segir Ír-
is. Það sé skrítið að það skuli vera
hægt að reka fólk fyrir að vilja láta
stéttarfélagið fara yfir samning.
„Við ætlum að leita réttar okkar.
Svo vitum við ekki meira, þetta er
bara kjaftshögg.“ jonpetur@mbl.is
Þremur þernum sagt upp
Vildu láta stétt-
arfélagið skoða
starfslýsinguna
Morgunblaðið/RAX
Herjólfur Ferjan leggst að bryggju í
Landeyjahöfninni nýju.
Jón Sveinbjörn Arn-
þórsson, stofnandi Iðn-
aðarsafnsins á Akureyri,
er látinn. Hann lést 23.
janúar sl., 79 ára að
aldri.
Jón lauk stúdents-
prófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri
1951 og cand. phil.-prófi
frá Háskóla Íslands
1952. Hann vann lengst
af fyrir SÍS og var virk-
ur í félagstörfum ýmiss
konar. Meðal annars var hann formað-
ur Félags ungra framsóknarmanna í
Reykjavík, forseti Junior Chambers
Íslandi, formaður Knattspyrnufélags
Akureyrar, í menningarmálanefnd
Akureyrar, umdæmis-
stjóri Rótarýhreyfing-
arinnar á Íslandi og í
stjórn Leikfélags Akur-
eyrar. Jón hlaut ýmsar
viðurkenningar fyrir
störf sín, þ.á m. ridd-
arakross hinnar ís-
lensku fálkaorðu 2008
fyrir framlag til varð-
veislu íslenskrar verk-
kunnáttu og safna-
menningar.
Eftirlifandi eiginkona
Jóns er Gisela Rabe-Stephan. Jón átti
sex börn, þrettán barnabörn og sjö
barnabarnabörn. Þar að auki átti hann
þrjú stjúpbörn og í gegnum þau tíu
barnabörn.
Jón Sveinbjörn
Arnþórsson
Andlát