Morgunblaðið - 25.01.2011, Síða 14

Morgunblaðið - 25.01.2011, Síða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2011 STUTTAR FRÉTTIR ... Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Sparisjóður Keflavíkur (SpKef) þyrfti á auknu framlagi frá ríkinu að halda færi svo að lán sjóðsins, sem veitt voru 260 stofnfjáreigendum sjóðsins árið 2007, og nýtt voru til kaupa á stofnfé í sjóðnum, yrðu dæmd ólögmæt í dag. Þetta staðfest- ir Einar Hannesson, sparisjóðs- stjóri. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á föstudaginn var nokkrum stofnfjáreigendum í Sparisjóði Norðlendinga og Byr í vil í inn- heimtumáli Íslandsbanka þeim á hendur. Bankinn hafði lánað stofn- fjáreigendum í sjóðunum tveimur háar fjárhæðir til að taka þátt í stofnfjáraukningum sem sjóðirnir réðust í árið 2007, á svipuðum tíma og SpKef. „Við bíðum bara eftir dómi Hæstaréttar í þessu máli,“ sagði Einar við Morgunblaðið í gær. Ekki endilega fordæmisgefandi „Okkar lögfræðingar hafa hins vegar skoðað dóma Héraðsdóms Reykjavíkur. Þeir telja ekki að lánin sem SpKef veitti eigi að fella í sama flokk og lánin frá Glitni á sínum tíma. Þó svo að dómurinn sem féll í héraði verði staðfestur, er ég alls ekki viss um að hann reynist for- dæmisgefandi fyrir SpKef,“ segir sparisjóðsstjórinn. Einar bendir á að lán til stofnfjár- kaupa árið 2007 hafi verið af ýmsum toga, rétt eins og í tilfelli erlendra lána. „Ef við ímynduðum okkur að öll lán til stofnfjárkaupa myndu dæm- ast ólögleg á morgun, þá þyrfti SpKef á auknu framlagi ríkisins að halda. Að sjálfsögðu voru lánin færð yfir í nýja sparisjóðinn á niðurfærðu verði, við gerðum ekki ráð fyrir að þetta myndi innheimtast að fullu, enda staða lántakenda mismunandi. Við höfum þegar fært lánin aftur á sinn upphaflega höfuðstól, sem er í sjálfu sér talsverð afskrift.“ Sparisjóðsstjórinn vildi ekki gefa upp hversu mikið SpKef á undir í lánum til stofnfjárkaupa, en heimild- ir Morgunblaðsins herma að það sé á annan milljarð. Hefur þegar boðið skilmálabreytingu SpKef hefur þegar boðið þeim skuldurum sem tóku lán vegna stofnfjáraukningar sjóðsins skil- málabreytingu á sínum lánum. Þeir sem tóku krónulán geta fengið þau færð niður í upprunalegan höfuð- stól að viðbættum 3,75% óverð- tryggðum vöxtum. Sömu skilmálar gilda fyrir erlend lán, auk þess sem þeim er skuldbreytt í íslenskar krónur. Að auki er veittur 10% stað- greiðsluafsláttur sé lánið greitt upp í heild. Óvíst hvort þarf aukið ríkisframlag  SpKef lánaði 260 einstaklingum milljarða króna til stofnfjárkaupa  Dómur í máli stofnfjáreigenda Byr og SpNor eykur óvissu um heimtur SpKef  Sparisjóðsstjóri SpKef efast um fordæmisgildi dóms Héraðsdómur Hefur dæmt lán til stofnfjárkaupa árið 2007 ólögleg. SpKef » Færi svo að öll lán SpKef yrðu dæmd ólögmæt þyrfti rík- ið líklegast að veita aukið fé til sjóðsins. » Framlag ríkissjóðs til SpKef hleypur þegar á öðrum tug milljarða króna. » Einar Hannesson, spari- sjóðsstjóri, telur ekki að hér- aðsdómur í máli stofnfjáreig- enda Sparisjóðs Norðlendinga og Byrs reynist fordæmisgef- andi fyrir lánveitingar SpKef til stofnfjárkaupa. Lán sem þessi séu af ýmsum toga. ● Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,14 prósent í viðskiptum gær- dagsins, en verðtryggði hluti vísitöl- unnar lækkaði um 0,08 prósent og sá óverðtryggði um 0,26 prósent. Velta á skuldabréfamarkaði í gær nam 9,3 milljörðum króna, mest með óverð- tryggð bréf, eða 7,6 milljarðar króna. Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækk- aði um 0,15 prósent í 92 milljóna króna viðskiptum í gær. Bréf Marels hækkuðu um 0,89 prósent en Atlantic Airways, Icelandair og BankNordik lækkuðu. Skuldabréf lækkuðu ● Útsölur hafa nú staðið yfir í ríflega þrjár vikur og eru viðtökur neytenda svipaðar og í fyrra. „Þetta hefur gengið ágætlega. Það er almennt ágætishljóð í kaupmönnum, ég heyri ekki annað en þeir séu þokkalega sáttir,“ segir Sturla Gunnar Eðvarðsson framkvæmdastjóri. Sturla segir að gangurinn á útsölum í ár sé svipaður og í fyrra, að minnsta kosti miðað við fjölda gesta í Smára- lind. Síðastliðin tvö til þrjú ár hafi hins vegar átt sér stað ákveðin færsla úr jólaversluninni í desember fram á út- sölurnar í janúar. Ágætishljóð í mönnum Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is MP banki er búinn að gera upp við slitastjórn Landsbankans allar úti- standandi kröfur á milli bankanna, að því er heimildir Morgunblaðsins herma. Í hálfsársuppgjöri MP frá því í fyrra er að finna sjöhundruð og fimmtíu milljóna króna gjald- færslu undir liðnum Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður. Þessi ein- skiptiskostnaður er til kominn vegna áðurnefndra uppgjöra við gamla Landsbankann. Inni í þess- ari tölu eru meðal annars þær millifærslur af reikningum Lands- bankans í Seðlabanka Íslands, sem eru til rannsóknar hjá embætti sérstaks saksóknara. Eins og áður hefur komið fram í Morgunblaðinu voru miklir fjár- munir fluttir af reikningi Lands- bankans yfir á reikninga MP banka og Straums fjárfestingar- banka þann 6. október 2008, en Landsbankinn var tekinn yfir af Fjármálaeftirlitinu degi síðar. Handtökur og húsleitir Á fimmtudag í síðustu viku voru gerðar húsleitir hjá Straumi, sem nú heitir ALMC, MP og í Seðla- bankanum auk þess sem fjórir menn voru handteknir í tengslum við rannsóknina. Enginn hinna handteknu er starfsmaður MP eða Straums. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins innan MP þýðir þessi sjö- hundruð og fimmtíu milljóna króna gjaldfærsla að ef til sölu á við- skiptabankahluta MP banka kem- ur muni nýir eigendur ekki þurfa að hafa áhyggjur af því að frekari greiðslur til Landsbankans séu yf- irvofandi. Stór hluti af tapi MP Tap MP á fyrstu sex mánuðum ársins 2010 var um 1.860 milljónir króna og er því áðurnefnd færsla stór hluti af því tapi. Á sama tíma árið 2009 var 414 milljóna króna tap á rekstri bankans. Eigið fé bankans var í júnílok um 3,2 milljarðar króna, sem þýðir að eiginfjárhlutfall var 5,1 prósent. Eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um fjármálastofnanir var 9,2 pró- sent, en lögbundið lágmark er 8,0 prósent. Eigið fé umfram lágmark- ið var í júnílok um 341 milljón króna. Hundruð milljóna til Landsbankans  Uppgjör á málum MP og Lands- bankans  Stór hluti taps MP í fyrra Morgunblaðið/Kristinn MP Sjöhundruð og fimmtíu milljóna gjaldfærsla MP var til að gera upp við gamla Landsbankann og munu engin mál vera útistandandi milli bankanna. ● Fjárhagsstaða einstakra ríkja og borga í Bandaríkjunum er orðin mjög slæm, eins og fram hefur komið í frétt- um. Í Wayne-sýslu í Michigan-ríki er hún svo bágborin að sýslan hefur ekki leng- ur efni á að jarðsetja fátækt fólk og óþekkta einstaklinga sem koma inn á borð réttarlæknis sýslunnar. Á vefsíðu Wall Street Journal segir að réttarlæknirinn hafi bara fasta fjár- hæð til að jarðsetja þau lík, sem hann ber ábyrgð á, og þegar sá peningur er uppurinn verður hann að geyma í frysti- geymslum þau lík sem eftir standa. bjarni@mbl.is Hefur ekki efni á að jarðsetja fátækt fólk Ársfundur Alþjóðaefnahagsþingsins (World Economic Forum) hefst á morgun í Davos-Klosters í Sviss og stendur í fimm daga. 2.000 fulltrúar – flestir þekktir í viðskiptalífi heimsins – munu sitja þingið. Á dagskránni verða m.a. fyrirlestrar, málstofur og blaðamannafundir. Á meðal gesta verða æðstu yfirmenn stærstu fyrirtækja heims, stjórnmálamenn frá 20 stærstu iðnríkjum heims, yfirmenn flestra stórra alþjóðlegra stofnana og yfirmenn stærstu fjölmiðlafyrirtækja heims. ivarpall@mbl.is Davos-fundur hefst Davos Ársfundur Alþjóðaefnahagsþingsins hefst í Sviss á morgun. Reuters                                           !"# $% " &'( )* '$* ++,-./ +0/-/ ++,-1+ 2+-233 2.-.,3 +,-,+0 +22-+ +-4+25 +02-+5 +50-,, ++,-14 +0,-.5 ++,-/5 2+-1/+ 2.-+10 +,-,, +22-44 +-4+// +02-/3 +53-2+ 2+4-3+50 ++,-/2 +0,-5 ++,-33 2+-421 2.-+3, +,-022 +22-,0 +-42., +01-21 +53-/5

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.