Morgunblaðið - 25.01.2011, Síða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2011
Hann átti myndir á sýningum
áhugaljósmyndara hérlendis og er-
lendis og vann til verðlauna. Hann
var hagur í höndum og eftir hann
liggja margir afbragðs smíðagripir,
bakkar, skartgripaskrín og fleira
sem dætur hans og barnadætur
njóta góðs af í dag.
Hann var mikill fjölskyldumaður
og lét sér mjög annt um hag barna
sinna. Hann bjó fjölskyldu sinni gott
heimili og þangað var gott að koma.
Þegar þau Elín fluttust hingað heim
skömmu eftir stríð settust þau að í
litlu húsi í Árbæjarbletti, rétt við
túnfótinn á Árbæ, þaðan sem Elín á
ættir að rekja. Hann byggði við hús-
ið eftir því sem fjölskyldan stækkaði
og garðurinn var stór og fallegur.
Hann var góðhjartaður, hlýr og rétt-
sýnn þótt hann gæti átt það til að
vera þrjóskur og stífur á meining-
unni. Þótt hann væri mikill Eng-
lendingur í hjarta sínu og ynni ætt-
jörð sinni var hann mjög sáttur við
að hafa sest að á Íslandi. Honum
fannst vel tekið á móti sér og sá
ýmsa kosti við að búa hér á landi.
Hann talaði um hvað hann væri
heppinn að búa hér þar sem öll börn
hans byggju í nágrenni við sig og
hann sæi þau öll nánast í hverri
viku. Ef hann hefði búið í Englandi
sagði hann hefðu börn hans líklegast
dreifst víðar, flest búið langt frá
honum og hann hefði séð þau sjald-
an, jafnvel bara einu sinni á ári.
Hann átti langa og góða ævi og
kvaddi sáttur.
Ragnar Þ. Ragnarsson.
Það var á sólríkum sumardegi er
ég sat með Ralph í garðinum hans
og dáðist að trjánum, blómunum og
fuglasöngnum. „Þetta er Paradís,“
sagði hann, „ég er heppinn að hafa
fengið að búa hér.“
Það eru nú fimmtíu ár síðan ég
kom fyrst inn í þennan fallega garð
og inn á heimili Elínar og Ralph og
allar götur síðan hefur mér verið
tekið þar opnum örmum. Á þeim
tíma var enginn skóli í Árbæjar-
hverfi og börnin gengu í Laugarnes-
skólann, við Sólveig urðum bestu
vinkonur og fljótlega urðu foreldrar
okkar góðir vinir. Það var mikið líf
og fjör í litla húsinu við Árbæjar-
blett. Elín var ein af þessum glæsi-
legu konum sem setjast sjaldan nið-
ur og stjana við alla, var
listakokkur, saumaði, vann að góð-
gerðar- og félagsmálum, var hrókur
alls fagnaðar, glaðvær og skemmti-
leg og naut þess að ferðast. Það var
alltaf stóísk ró yfir Ralph, hann var
heimakær og þarna var allt sem
hann unni. Hann var smiður góður
og byggði við litla húsið eftir því
sem fjölskyldan stækkaði. Einnig
smíðaði hann undurfagra kistla og
skartgripaskrín. Hann var góður
ljósmyndari og vann til verðlauna
hjá erlendum ljósmyndatímaritum.
Það var gaman að fá að líta inn í litlu
framköllunarkompuna hans og
skoða þessar listrænu ljósmyndir.
Ég minnist þeirra hjóna við garð-
yrkjustörf, ræktun matjurta, fá-
gætra blóma og fegurstu rósa. Svo
var sest niður, hellt upp á teketilinn
og kíkt í ensku blöðin – stundum
smásérrístaup.
Takk fyrir allt elsku Ralph og El-
ín – minningarnar eru dásamlegar.
Linda Sólbjörg Ríkarðsdóttir.
Tregi, sorg og söknuður fylgja
ávallt andláti ástvinar, sama hvort
heldur það er skyndilegt eða fyr-
irséð. Tengdafaðir minn, Ralph
Thomas Hannam, andaðist 15. þ.m.
eftir fárra daga legu. Hann átti
langa, farsæla og hamingjuríka ævi;
hefði orðið 96 ára í apríl nk.
Á stríðsárunum, þá ungur maður í
þjónustu breska hersins á Íslandi,
batt hann bönd við Ísland með
kynnum sínum af eiginkonu sinni,
Elínu Guðlaugsdóttur. Fyrstu hjú-
skaparárin bjuggu þau í Bretlandi,
en eftir stríðslok fluttu þau til Ís-
lands. Ísland varð hans heimaland,
órofið nema til heimsókna á uppeld-
isslóðir í Bretlandi. Hann hélt sínu
breska ríkisfangi og fylgdist með
öllum málum föðurlandsins eins og
góðum borgara sæmir. Ísland var
samt sem áður heimalandið og hér
festi hann rætur.
Skömmu eftir komuna til Íslands
keyptu þau hjónin, Elín og Ralph,
lítið hús í túnfætinum á Árbæ, en
Elín rakti ættir þangað. Húsið stóð
afskekkt, eiginlega í sveit. Sam-
göngur voru ekki svo greiðar sem
nú í dag og einkabíll á heimili ekki
eins sjálfsagður og síðar varð. Það
þurfti áræði og dug til að setja sig
niður svo afskekkt og sækja daglega
vinnu um langan veg í Þingholtin og
miðbæinn. Það var einmitt ekki
skortur á áræði og dugnaði hjá þeim
hjónum og því dafnaði þessi sælu-
reitur eins og best varð á kosið, fjöl-
skyldan öll og heimilið blómstraði í
túnfætinum við Árbæ. Í þessu húsi
bjuggu þau hjón til æviloka. Lítið
hús í upphafi, en með vexti fjöl-
skyldunnar óx húsið líka að stærð og
í sama takti með markvissum hand-
tökum handlagins fjölskylduföður
en það var Ralph svo sannarlega.
Auk þess að vera laginn smiður og í
öllu því, sem að handverki laut, náði
Ralph góðum tökum á ljósmyndun
og tók þátt í starfi áhugaljósmynd-
ara, m.a. með þátttöku í sýningum
og vann til viðurkenninga. Í þessu
hlýlega húsi óx og dafnaði fjölskyld-
an. Þarna þroskuðust kynni okkar
Sólveigar, elstu dóttur þeirra hjóna.
Alltaf var líf og fjör og mikill gesta-
gangur. Auðvitað hægðist um, þegar
á leið og börnin stofnuðu sín eigin
heimili.
Eftir fráfall Elínar um mitt ár
2008 bjó Ralph einn í húsinu. Þrátt
fyrir hve Ralph var yfirmáta heima-
kær var honum afar umhugað að
fjölskyldan kynntist uppeldisstöðv-
um hans í Bretlandi. Þær urðu
nokkrar ferðirnar til Yorkshire til
að kynna fjölskyldunni æskuslóðirn-
ar, ánægjulegar og ógleymanlegar.
Einu atviki gleymi ég seint, þegar
Ralph, þá um 75 ára, endurlifði æsk-
una, sýndi okkur eitt af leiksvæðum
strákanna, snaraði sér úr fötunum,
klifraði upp á nokkuð háan kletta-
vegg við fallegan hyl í á, sem þar
rann, vippaði sér fram á kletta-
brúnina og stakk sér í tæran hylinn.
„Svona lékum við okkur í gamla
daga,“ sagði hann, þ.e. um 60 árum
áður.
Það er margs að minnast frá
langri viðkynningu. Fastheldni,
áreiðanleiki, traust og trygglyndi
eru sennilega þau persónueinkenni,
sem mörkuðu allt hans æði og háttu
til orðs og athafna. Hann var hug-
ljúfur og góður öllum sem til hans
leituðu. Hann var fjölskyldu sinni sá
bakhjarl og stuðningur, sem hvergi
verður betri. Ég minnist hans með
virðingu og þökk.
Árni Ólafur Lárusson.
Elsku amma og Daddi. Okkur
langar að kveðja ykkur bæði þegar
við kveðjum Dadda, eins og það er
erfitt þá huggum við okkur við það
að amma hefur tekið á móti þér með
góðum tebolla eða e.t.v. sérrítári.
Rosalega margar og góðar minning-
ar sem orðnar eru að fjársjóði koma
upp í hugann. Allir sunnudagarnir
þegar öll fjölskyldan kom í kaffi og
ömmukökur í litla dúkkuhúsið ykk-
ar, og allir hinir dagarnir sem við
frænkurnar hjóluðum til ykkar í
gegnum Elliðaárdalinn, skíðuðum á
veturna niðurefir og renndum okkur
í Ártúnsbrekkunni eða lékum okkur
í fallega skrúðgarðinum ykkar sem
við hjálpuðum ömmu oft að arf-
areyta og þér að slá og á sumrin
hlupum við yfir mýrina upp á Ár-
bæjarsafn og sögðum öllum stoltar
að langalangamma okkar hefði verið
síðasta húsfreyjan á Árbæ og að afi
okkar væri hermaður.
Litlar og vitlausar földum við okk-
ur uppi á skúrþaki með súkkulaði úr
búrinu og héldum að þið sæjuð okk-
ur ekki, fylgdumst með Dadda
smíða einhvern af þeim fallegu hlut-
um sem við seinna fengum svo í
gjafir.
Já, þær eru endalausar fallegu
minningarnar sem við eigum um
ykkur og eru þær vel geymdar í
hjörtum okkar eins og músarævin-
týrin sem amma sagði okkur og
bænirnar sem hún kenndi okkur á
meðan hún nuddaði á okkur tásl-
urnar og klóraði okkur á bakinu þar
til við sofnuðum. Vöknuðum svo iðu-
lega í kærleiksknús hjá Dadda
ásamt bröndurum með morgun-
matnum sem héldu áfram alveg
fram á síðustu vikur því alltaf var
stutt í húmorinn.
Kveðjum nú með söknuði en á
sama tíma gleði yfir að vita af ykkur
saman.
Kiss kiss amma og Daddi.
Ein af bænunum sem amma
kenndi okkur:
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Ykkar
Elín Arna og Sólveig Sigríður
(Solla Sigga).
Þá ertu farinn frá okkur elsku
Daddi okkar. Það koma margar góð-
ar og ljúfar minningar upp í hugann
núna, minningar um þig að smíða
fallega muni úr tré á litla verkstæð-
inu þínu og er eftirminnilegt hversu
hlýr og blíður þú varst við hana
ömmu og okkur öll. Oft hjólaði ég til
ykkar úr Langagerði og oftar en
ekki fór ég með súkkulaðistykki í
vasanum mínum heim. Þú kenndir
okkur krökkunum enskar vöggu-
vísur eins og amma kenndi okkur
bænirnar. Einnig er ég ofsalega
þakklátur fyrir kvöldin og dagana
sem við áttum saman eftir að amma
dó. Þú varst alltaf svo ánægður að
sjá okkur og sérstaklega þegar Nat-
an Örn var með. Okkur þótti líka
ofsalega gaman að hlusta á sögurnar
frá Englandi, skoða myndirnar frá
þeim tíma og tímanum í hernum en
okkur þótti alltaf mjög merkilegt að
afi hefði verið hermaður. Allar þess-
ar yndislegu minningar mun ég
geyma í hjarta mínu og varðveita
vel.
Dvel ég í draumahöll
og dagana lofa,
litlar mýs um löndin öll
liggja nú og sofa.
Sígur ró á djúp og dal,
dýr til hvílu ganga,
einnig sofna skolli skal
með skottið undir vanga.
(Þýð. Kristján frá Djúpalæk)
Ég veit að amma hefur tekið vel á
móti þér og að þú ert ánægður að
vera kominn í hennar faðm.
Við söknum þín.
Helgi Geir og Natan Örn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GUÐMUNDAR MARINÓS ÞÓRÐARSONAR,
Þelamörk 1,
Hveragerði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks og lækna Heilsu-
stofnunar Hveragerðis og starfsfólks á Bæjarási,
Ási, Hveragerði.
Halldóra Þórðardóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GYÐA JÓNSDÓTTIR,
Miðleiti 5,
Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landspítala Landakoti
mánudaginn 17. janúar, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju fimmtudaginn 27. janúar kl. 13.00.
Óttar Ottósson,
Helga Ottósdóttir, Stefán S. Guðjónsson,
Geirlaug Ottósdóttir, Grímur Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát ástkærrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
JÓHÖNNU JÓHANNESDÓTTUR,
Kópavogsbraut 85.
Gréta Pálsdóttir,
Páll Pálsson, Margrét Yngvadóttir,
Jóhannes H. Pálsson, Kristín Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Föðursystir okkar og frænka,
INGIBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR,
Hjúkrunarheimilinu Fellsenda,
lést mánudaginn 10. janúar.
Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir fær allt starfsfólk að Fellsenda
fyrir frábæra umönnun og hlýtt viðmót. Jafnframt
þökkum við öllum þeim sem komið hafa að
umönnun hennar á lífsleiðinni.
Guð blessi ykkur öll.
Valur Franklín,
Erna Franklín,
Esther Franklín,
Stefán D. Franklín
og fjölskyldur.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
JÓHANNA BJÖRNSDÓTTIR,
Stóragerði 29,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
27. janúar kl. 13.00.
Jónas Jónasson, Bára Sigfúsdóttir,
Björn Jónasson,
Arnfríður Jónasdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, pabbi okkar, sonur,
bróðir og tengdasonur,
SIGURJÓN BRINK
tónlistarmaður,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 27. janúar kl. 15.00.
Þórunn Erna Clausen,
Róbert Hrafn Brink,
Haukur Örn Brink,
Kristín María Brink,
Aron Brink,
Bjarney Sigríður Sigurjónsdóttir, Filippus Gunnar Árnason,
Róbert Magnús Brink, Þóranna Bjarnadóttir,
Árni Filippusson,
Nína Dögg Filippusdóttir,
Róbert Aron Brink,
Rannveig Hrönn Brink,
Magnús Þór Brink,
Elín Hrefna Thorarensen.
Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð, en athygli er
vakin á Áfram – hvatningarsjóði barna Sigurjóns Brink, sem hefur það
markmið að hvetja og styðja börnin hans í framtíðinni.
Reikningsnúmer sjóðsins er 0546-14-401730 og kennitala 251278-4909.