Morgunblaðið - 25.01.2011, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2011
Ný ævisaga um Bobby Fischer eftir
Frank Brady kemur út í Bandaríkj-
unum í janúar og á Bretlandi í vor.
Bókin nefnist Endatafl eða End-
game, Bobby
Fischer’s remar-
kable Rise and
Fall – From Am-
erica’s Brightest
Prodigy to the
Edge of Madness.
Brady þekkir
vel til Fischers og
bandarísks skák-
lífs. Hann var
einn af stofn-
endum tímarits-
ins Chess Life,
sem bandaríska
skáksambandið
gaf út. Hann hitti
Fischer fyrst þeg-
ar hann var tíu
ára undrabarn í
New York.
Janet Maslin
segir í umsögn
um bókina í The New York Times
um helgina að Fischer hafi verið
maður mikilla öfga, einn af dáðustu
og um leið hötuðustu persónuleikum
bandarískrar sögu, og því sé sé auð-
velt að skrifa um hann. Brady hafi þá
visku til að bera að átta sig á að
„snilligáfa væri ekki snilligáfa ef auð-
velt væri að útskýra hana“. Í bókinni
er því lýst hvernig vænisýki Fischers
og tortryggni jókst um leið og orðstír
hans óx, hvernig hann „níddi Banda-
ríkin, Sovétríkin, gyðinga (hugtak,
sem hann notaði af handahófi til að
lýsa hverjum þeim sem hann kunni
ekki við með orðunum „ég áskil mér
rétt til að alhæfa“) og jafnvel Íslend-
inga, sem veittu honum ný heim-
kynni þegar restin af heiminum vildi
ekkert hafa með hann að gera“.
kbl@mbl.is
Endatafl
Bobbys
Fischers
Ný ævisaga um skák-
snillinginn umdeilda
Bobby Fischer
Kápa Endgame
Karl Jóhann Jónsson myndlist-
armaður hlaut Dimmalimm – ís-
lensku myndskreytiverðlaunin
2010, fyrir bókina Sófus og svínið
sem Námsgagnastofnun gaf út.
Verðlaunin voru afhent við opn-
un sýningarinnar Þetta vilja börnin
sjá! í Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi á laugardag.
Í dómnefnd sátu Aðalsteinn Ing-
ólfsson, Bryndís Loftsdóttir og Kal-
man le Sage de Fontenay.
Bók Karls Jóhanns er tilraun til
að vekja áhuga yngstu nemendanna
á myndlist og hjálpa þeim að njóta
hennar. Söguhetjan Sófus málar
fyndin tilbrigði um andlitsmyndir
eftir marga frægustu listamenn
sögunnar en þær eru litaðar af
nærveru aðstoðarmanns hans,
svínsins Konráðs. Í bókinni má bera
saman örmyndir af fyrirmyndunum
og útleggingar Sófusar.
Karl Jóhann er níundi handhafi
verðlaunanna sem kennd eru við
Dimmalimm.
Myndskreytirinn Karl Jóhann og Dimmalimm við verðlaunaafhendinguna.
Karl Jóhann hlaut
Dimmalimmverðlaunin
Á hádegistónleikum ungra ein-
söngvara í Íslensku óperunni í dag,
þriðjudag, verða fluttar óperuaríur
og tónlist úr söngleikjum. Hefjast
tónleikarnir klukkan 12.15.
Að þessu sinni er Snorri Wium
gestasöngvari á tónleikunum, en
þessi kunni tenórsöngvari hefur á
undanförnum árum komið reglulega
fram á íslensku tónleikasviði og tek-
ið þátt í uppfærslum Íslensku óp-
erunnar.
Efnisskrá tónleikanna er í léttari
kantinum, en þar er að finna atriði
úr óperunum Brúðkaupi Fígarós og
Brottnáminu úr kvennabúrinu eftir
Mozart, óperettunni Paganini eftir
Franz Lehár og söngleikjunum An-
nie Get Your Gun eftir Berlin og
West Side Story eftir Bernstein.
Létt efnisskrá á hádeginu
Á æfingu Líflegt í Óperunni.
Listamiðstöðin Hafnarborg íHafnarfirði hefur efnt tilsýningarraðar á verkumeftir Eirík Smith. Eiríkur,
sem er Hafnfirðingur í húð og hár,
gaf listamiðstöðinni hátt í fjórða
hundrað verk fyrir rétt rúmum 20
árum. Sýningin „Brot úr náttúrunni
– Eiríkur Smith abstraktverk 1957-
1963“ er önnur í röðinni þar sem
könnuð eru tímabil á ferli hans. Sú
fyrri laut að strangflatarskeiðinu og
á þessari sýningu eru einnig sýnd af-
straktmálverk en formgerðin er öll
mýkri og tjáningin ljóðrænni – og
áhrif frá náttúrunni segja sterklega
til sín.
Elstu málverkin hanga vinstra
megin þegar komið er upp stigann
(eitt þeirra er á vegg herbergis sem
slegið hefur verið upp í miðjum saln-
um). Þau eru máluð með ripólínlakki
á masonít og er yfirborð þeirra
glansandi og slétt. Myndheimur
þessara aðlaðandi og geysivel gerðu
verka er byggður upp með mett-
uðum litaflötum og strikum sem hafa
ýmist lóðrétta eða lárétta stefnu.
Jarðlitir eru áberandi og í sumum
verkum liggja rauðir tónar undir
dekkri flötum og skapa dýpt og innri
glóð, t.d. í Skammdegi frá 1958. Blá-
ir litir eru ríkjandi í verkunum Gjáin
(frá um 1960) og Hrímklettur (1961)
en í þeim túlkar Eiríkur fallega birt-
una sem glittir í og fellur á klettana.
Í síðarnefnda verkinu skapa mark-
vissar málningarslettur lífleg áhrif.
Á endaveggnum hanga tvö falleg
verk í svipuðum dúr auk tveggja
stærri verka þar sem olíulitur er
notaður í bland við lakkið sem gefur
mattari áferð. Sköfutæknin er áber-
andi og við það verða formin, eða
litafletirnir gagnsærri. Þetta eru
voldug verk en þau skortir tærleika
og léttleika minni verkanna. Um-
rædd verk eru máluð á árunum
1960-62 en í stærri verkum á borð
við Morgunn við sjóinn (1961, hægra
megin í salnum) leikur olíuliturinn í
höndunum á honum. Þarna skapar
Eiríkur blæbrigðaríka mýkt og
hrynjandi með sterkri formbygg-
ingu og næmri litameðferð.
Verkin eru óhlutbundin en Eirík-
ur dregur ekki dul á áhrif frá nátt-
úrunni. Tilvitnun í listamanninn í
sýningartexta á dökkum vegg lýsir
viðhorfi hans til afstraktmynda og
landslagsmynda sem tveggja greina
á sama meiði. Auðvelt er að lesa
óhlutbundin form úr gljúfrum, klett-
um, hrauni og hellum, og þetta eru
endurtekin mótíf í verkunum, einnig
í hliðarsalnum þar sem hanga verk
sem eru eingöngu unnin með olíu-
litum. Áferð þessara verka er hrjúf-
ari, fletir gagnsærri og lausbeislaðri
og í heild einkennast þau af meiri
sviptingum en verkin í stóra salnum.
Titill og efnistök verksins Þar sem
rauður loginn brann frá 1963 er gott
dæmi um hinar tjáningarríku
áherslur.
Það fer vel á því að búa til sérrými
í miðjum stóra salnum en þar eru til
sýnis smærri myndir, unnar með
vatnslitum og tússi en Eiríkur hefur
frábært vald á þessum miðlum. Í
sýningarborðum má glöggva sig á
gömlum sýningarskrám, boðs-
kortum, gestabókum og blaða-
gagnrýni frá tveimur sýningum, auk
þess sem sjá má verk eftir Eirík á
forsíðu 1. heftis tímaritsins Birtings
1958. Þessi sýningarhluti hefur
skemmtilegt menningarsögulegt yf-
irbragð en þar má m.a. lesa nöfn ým-
issa þekktra listamanna.
Það er fagnaðarefni þegar góðum
listamönnum eru gerð skil með jafn
ítarlegum og vönduðum hætti og
raunin er á þessari sýningu. Hönnun
sýningarinnar, hvað snertir upp-
setningu verka og texta, er til fyr-
irmyndar. Sýningin dýpkar skilning
áhorfandans á ferli listamannsins og
vekur löngun til að kynnast fram-
haldinu.
Óhlutbundin form Verk Eiríks Smith, Kvöld í fiskibænum, frá 1960.
Hafnarborg – Menningar- og
listamiðstöð Hafnarfjarðar
Brot úr náttúrunni – Eiríkur Smith
abstraktverk 1957-1963
bbbbn
Til 6. febrúar 2011. Opið kl. 11-17 alla
daga, fimmtud. til kl. 21. Lokað á þriðju-
dögum. Aðgangur ókeypis. Sýning-
arstjóri: Ólöf K. Sigurðardóttir.
ANNA JÓA
MYNDLIST
Glóð úr náttúrunni
Eiríkur Brynjólfsson sagnfræð-
ingur heldur fyrirlestur í hádeginu
í dag og kallar hann Um kvenfólk
og brennivín. Fyrirlesturinn, sem
verður fluttur í Þjóðminjasafni Ís-
lands og hefst klukkan 12.05, er í
hádegisfundaröð Sagnfræðinga-
félags Íslands, Hvað er kynjasaga?
Fjallað verður um áfengisnotkun
kvenna og hvernig þær notuðu það
málstað sínum til framdráttar.
Um kvenfólk og
brennivín
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Nýdönsk – forsalan í fullum gangi
Ofviðrið (Stóra sviðið)
Þri 25/1 kl. 20:00 Fim 10/2 kl. 20:00 10.k Fim 10/3 kl. 20:00
Mið 26/1 kl. 20:00 Fim 17/2 kl. 20:00 7.k Sun 13/3 kl. 20:00
Sun 30/1 kl. 20:00 8.k Sun 20/2 kl. 20:00
Fim 3/2 kl. 20:00 9.k Fim 3/3 kl. 20:00
Ástir, átök og leiftrandi húmor
Fjölskyldan (Stóra svið)
Lau 29/1 kl. 19:00 Lau 5/2 kl. 19:00 aukas Lau 19/2 kl. 19:00 aukas
Fös 4/2 kl. 19:00 auka Fös 11/2 kl. 19:00 aukas Sun 27/2 kl. 19:00 aukas
Síðustu sýningar
Faust (Stóra svið)
Fös 28/1 kl. 20:00 aukas Lau 12/2 kl. 20:00 aukas Fös 18/2 kl. 20:00 aukas
Sun 6/2 kl. 20:00 aukas Sun 13/2 kl. 20:00 aukas
Aukasýningar vegna fjölda áskorana
Elsku Barn (Nýja Sviðið)
Þri 25/1 kl. 20:00 4.k Mið 2/2 kl. 20:00 Fim 10/2 kl. 20:00
Mið 26/1 kl. 20:00 5.k Fim 3/2 kl. 20:00 Mið 16/2 kl. 20:00
Sun 30/1 kl. 20:00 6.k Mið 9/2 kl. 20:00 Fim 17/2 kl. 20:00
Sýningum lýkur í febrúar!
Afinn (Litla sviðið)
Mið 26/1 kl. 20:00 9.k Sun 30/1 kl. 20:00 Lau 12/2 kl. 19:00
Fim 27/1 kl. 20:00 10.k Fim 3/2 kl. 20:00 Sun 13/2 kl. 20:00
Fös 28/1 kl. 19:00 11.k Fös 4/2 kl. 19:00 Fim 17/2 kl. 20:00
Fös 28/1 kl. 22:00 aukas Lau 5/2 kl. 19:00 Fös 18/2 kl. 19:00
Lau 29/1 kl. 19:00 Sun 6/2 kl. 20:00 Lau 19/2 kl. 19:00
Lau 29/1 kl. 22:00 Fös 11/2 kl. 19:00 Sun 20/2 kl. 20:00
Óumflýjanlegt framhald Pabbans
Nýdönsk í nánd (Litla svið)
Mið 9/2 kl. 20:00 frums Mið 23/2 kl. 20:00 4.k Fös 25/2 kl. 22:00
Fim 10/2 kl. 20:00 2.k Fim 24/2 kl. 20:00 5.k
Mið 16/2 kl. 20:00 3.k Fös 25/2 kl. 20:00 6.k
Sáldrandi brjáli sem aldrei fyrr
Skoppa og Skrítla á tímaflakki (Litla svið)
Sun 30/1 kl. 14:00 Lau 12/2 kl. 14:00 Sun 20/2 kl. 14:00
Lau 5/2 kl. 14:00 Sun 13/2 kl. 14:00 Lau 26/2 kl. 14:00
Sun 6/2 kl. 14:00 Lau 19/2 kl. 14:00 Sun 27/2 kl. 14:00
Bestu vinkonur allra barna
Ath. Sýningar hefjast kl. 19:00
Nánar á leikhusid.is
Sími miðasölu 551 1200
Mbl, GSP
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ