Morgunblaðið - 02.02.2011, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.02.2011, Blaðsíða 10
Sendingarkostnaður fellur aðeins á kaupandann ef hann er að skipta vöru. Helga Dóra segir verslunina hafa fengið mjög góð- ar viðtökur. „Ég hef líka boðið fólki heim þar sem ég hef verið með lagerinn. Þar vilja allir kaupa allt enda verðið gott og skórnir góðir. Það eru líka mjög margir búnir að fá nóg af vöruverðinu hér og farnir að velta fyrir sér hvernig þeir geti fengið vörur ódýrari. Það er ekki hægt að kaupa 10.000 kr. par t.d. á þrjá krakka, það er fljótt að telja auk þess sem börnin vaxa hratt upp úr skónum.“ Helga Dóra segir að það hafi verið hellings vinna að setja versl- unina á laggirnar en þau séu ánægð með árangurinn. „Ég er í fæðingarorlofi og þetta er hugsað sem aukavinna til að nýta tímann á meðan. Ég er lærður naglafræðingur og með brúnkusprautun, auk þess sem ég vinn við ræstingar og í prent- smiðju. Maðurinn minn er bílasali svo við erum öll í sölumennskunni og þetta á vel við okkur. Það er alveg inni í myndinni að fara með þetta inn í verslanir, við erum bara að sjá hvernig þetta fer af stað og svo ætlum við að færa út kvíarnar,“ segir Helga Dóra að lokum. Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Við vorum búin að vera aðhugsa þetta svolítið lengi,við erum með tvö börn og þegar von var á yngri syninum var ákveðið að hrinda þessu í framkvæmd. Allir þurfa nýja skó, þetta kostar svo mikið og við vild- um finna leið til að hafa þetta ódýrara og leyfa fleirum að njóta. Við vorum upphaflega að hugsa um vefsíðu með allskonar barna- vörum en enduðum á að byrja á skónum enda finnst okkur verðið á þeim komið í rugl úti í búð. Skórnir eru samt bara byrjunin, við ætlum að stækka verslunina þegar fram í sækir,“ segir Helga Dóra um aðdragandann að Súp- erskóm. Skóna flytja þau inn frá Kína. „Við lágum á netinu í nokkra mánuði, skoð- uðum úrval og komum okkur í samband. Við erum með allskonar skó á börn, aðallega strigaskó, ljósaskó og kuldaskó. Það er að- eins af karlmannsskóm og svo eigum við eftir að taka inn kven- skóna, það er í vinnslu núna. Peak er líka nýtt íþróttavörumerki á Ís- landi sem við erum með umboð fyrir og bjóðum upp á körfuboltaskó frá þeim. En það er líka bara byrjunin, við tök- um innan skamms inn allskonar íþróttaskó frá Peak,“ segir Helga Dóra. Ætla að færa út kvíarnar Athygli vekur að Súperskór sendir frítt hvert á land sem er. Voru komin með nóg af vöruverðinu www.superskor.is Súperskór er líka á Facebook. Fjölskyldan Helga Dóra og Bjarmi með synina tvo. Þau búa á Selfossi. Hjónin Helga Dóra Gunnarsdóttir og Bjarmi Skarp- héðinsson voru komin með nóg af verðlaginu á Íslandi og ákváðu að gera eitthvað í málunum. Fyrir tveimur mánuðum opnuðu þau vefverslunina Súperskór.is þar sem má fá skó á fjölskylduna á góðu verði. Súperskór Sem stendur eru barnaskór aðallega í boði á síðunni. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is H ugsunin er að færa Ís- lendingum bragð af Indlandi og leyfa þeim í leiðinni að leggja í púkkið til að bæta aðstöðu barnanna í skól- anum,“ segir Guðrún Hulda Páls- dóttir sem er nýkomin heim frá Indlandi þar sem hún ásamt vin- konu sinni Jóhönnu Björk Svein- björnsdóttur var að kenna í Ma- tendla-skóla í Andhra Pradesh-fylki á Indlandi. „Þar fengum við á hverj- um degi svo dásamlega góðan mat að við tókum okkur til og settumst í læri hjá kokkunum. Við fylgdumst með þeim verka og matreiða matinn á sinn einstaka, frumstæða hátt. Af- raksturinn er fjöldi uppskrifta sem við bjóðum matgæðingum og áhugasömum til sölu á heimasíðu okkar. Þetta er okkar innlegg til fjáröflunar fyrir nemendur skólans. Peningana munum við nota til kaupa á húsgögnum í skólastofur, kennsluefni og hluti til íþróttaiðk- unar s.s. bolta, taflborð og íþrótta- búninga til að vera í þegar þau taka þátt í íþróttakeppnum en þessir krakkar eru framúrskarandi íþróttafólk.“ Skólinn er útí sveit og þar eru um 370 nemendur á grunnskólaaldri sem koma úr þorpunum í nágrenn- inu. „Nemendurnir koma úr bænda- samfélagi og þekking þeirra á nátt- úrunni er þeim því í blóð borin. Þau Bjóða fólki bragð af Þær selja dásamlegar indverskar matarupp- skriftir á netinu og safna þannig fyrir húsgögnum og öðru fyrir börn í skóla í Andhra Pradesh fylki á Indlandi þar sem þær voru sjálfar að kenna börnum sem eru afar þakklát fyrir að njóta menntunar. 1 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2011 Það er oft gaman að setja hlutina í óvenjulegt samhengi og það býður vefsíðan Howbigreally.com upp á. Á síðunni eru mikilvægir staðir, við- burðir eða hlutir teknir og settir sem viðmið við þann stað sem þú velur. Það er til dæmis hægt að sjá hvað svæðið sem Glastonbury-tónlistarhá- tíðin er haldin á næði yfir stóran hluta af Reykjavík eða hvað olíu- lekinn í Mexíkóflóa í fyrra hefði náð yfir stóran hluta af Íslandi. BBC heldur þessari síðu úti og vill með henni færa fólki mannlegan mælikvarða á viðburði og staði úr sögunni. Er þetta ein af leiðum BBC til að reyna að finna leiðir til að miðla sögunni til fólks svo það geri sér bet- ur grein fyrir sögulegum hlutum í samhengi við nærumhverfi sitt. Ef Chernobyl-slysið hefði orðið á Íslandi er hægt að sjá hversu langt geislunin hefði náð út frá landinu en hún hefði farið yfir hluta Bretlands, Grænland og Kanada. Það er áhuga- vert að tengja þetta mikla slys við sitt nærumhverfi og auðveldar það manni að gera sér grein fyrir hvað það náði yfir stórt svæði. Það er fróðlegt að sjá hlutina í samhengi við eitthvað sem maður þekkir. Vefsíðan www.howbigreally.com Morgunblaðið/Ómar Tunglið Á síðunni má m.a. sjá hvað Ísland yrði fáránlega lítill hluti af tunglinu. Sagan í óvenjulegu samhengi Í gær, 1. febrúar, var dagur kven- félagskonunnar. Þann 1. febrúar 1930 var Kvenfélagasamband Íslands stofnað og í fyrra var dagurinn form- lega gerður að degi kvenfélags- kvenna. Var það gert til að vekja at- hygli á miklu og óeigingjörnu starfi kvenfélagskvenna um árabil og þótti löngu tímabært að kvenfélagskonur fengju sinn eigin dag á dagatalinu. Það er skemmtileg og upplífgandi að vera í kvenfélagi. Þau eru starf- rækt allstaðar um landið og fyrir áhugasamar stúlkur og konur er hægt að fá frekari upplýsingar á: www.kvenfelag.is. Endilega … … gangið í kvenfélag Morgunblaðið/Árni Sæberg Fundur Kvenfélagasamband Íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.