Morgunblaðið - 02.02.2011, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 02.02.2011, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2011 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Nýliðinn janúar var hlýr en þó ekki jafnhlýr og í fyrra. Meðalhiti var um 1,1 til 2,5 stigum yfir með- allagi. Janúar bætist því í stóran hóp hlýrra mán- aða undanfarin misseri. Fram kemur í yfirliti Trausta Jónssonar veður- fræðings að fremur þurrt hafi verið í janúar um sunnan- og suðaustanvert landið en annars hafi úrkoma verið í ríflegu meðallagi. Meðalvindhraði var meiri en í janúar undanfarin ár og urðu nokkr- ar fokskemmdir í norðanveðri snemma í mán- uðinum. Talsvert var um samgöngutruflanir um landið norðan- og austanvert framan af mánuð- inum. Meðalhiti í Reykjavík var 1,6 stig og er það 2,1 stigi yfir meðallagi. Reyndist hann vera 19. hlýj- asti janúar af 141 sem mældur hefur verið frá upphafi. Á Akureyri var meðalhitinn 0,4 stig, eða 2,5 stigum yfir meðallagi, og á Höfn í Hornafirði var meðalhitinn 1,2 stig. Meðalhitinn í Stykkis- hólmi var 1,0 stig, 2,3 stigum yfir meðallagi. Hæsti hiti í mánuðinum mældist í Bjarnarey í Vopnafirði þann 23. janúar, 13,8 stig, en lægsti hitinn mældist á Brúarjökli þann 10., -20,6 stig. Lægstur hiti í byggð mældist í Svartárkoti í Bárð- ardal þann 9., -18,6 stig. Á mönnuðu stöðvunum var mesti hámarkshiti 12,6 stig og mældist hann á Sauðanesvita þann 23. Lægsti lágmarkshiti á mannaðri stöð mældist -15,9 stig þann 6. á Gríms- stöðum á Fjöllum. Fremur þurrt var um landið sunnan- og suð- austanvert. Úrkoma mældist 61,2 millimetrar í Reykjavík og er það 81% meðalúrkoma. Úrkoma í Reykjavík hefur mælst aðeins 563 mm síðustu 12 mánuði. Á Akureyri mældist úrkoman 64,4 mm og er það um 17% umfram meðallag. Sólskinsstundir mældust aðeins 15,9 í Reykja- vík, 12 stundum færri en í meðalári. Á Akureyri mældust þær 2,1 en að jafnaði eru sólskinsstundir á Akureyri aðeins 7 í janúar. Vindhraði var vel yfir meðallagi síðustu 15 ár og hefur ekki verið jafnmikill í janúar síðan 1995. Janúar bættist í hóp hlýrra mánaða  Mánuðurinn var sá 19. hlýjasti frá upphafi mælinga í Reykjavík  Þurrt var sunnanlands og vest- an en úrkoma í ríflegu meðallagi annars staðar  Vindhraði hefur ekki verið jafnmikill í 15 ár Snjólétt í borginni » Mjög snjólétt var sunn- anlands í janúar og alhvítir dagar í Reykjavík aðeins tveir. Það er 10 dögum færra en að meðallagi. » Meiri snjór var fyrir norð- an og olli nokkrum erf- iðleikum fyrir miðjan mánuð, m.a. féllu stór snjóflóð á nokkrum stöðum þar og á Vestfjörðum. » Alhvítir dagar á Akureyri urðu 20, einum degi færri en í meðalárferði. Morgunblaðið/Skapti Akureyri Mikið snjóaði suma daga í janúar og þess voru dæmi að götur væru alveg ófærar. Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Bréfið verður á engan hátt haft til hliðsjónar þegar við vinnum okkar greinargerð,“ segir Sveinn Arason ríkisendurskoðandi, aðspurður hvort tekið verði tillit til bréfs Jó- hönnu Sigurðardóttir forsætisráð- herra til Alþingis og Ríkisendur- skoðunar, vegna þeirrar beiðni forsætisnefndar að veittar verði upplýsingar um aðkeyptan sér- fræðikostnað hjá starfsmönnum fé- lagsvísindasviðs Háskóla Íslands. Er forsaga málsins sú að Guð- laugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, óskaði eftir upp- lýsingunum frá forsætisráðherra og taldi svo þegar þær voru veittar að Jóhanna færi með rangt mál. Guðlaugur krafðist svara Krafðist Guðlaugur Þór þess að forsætisnefnd óskaði eftir umrædd- um gögnum og var orðið við því. Sveinn kveðst í embættistíð sinni aldrei hafa fengið skýringarbréf af því tagi sem barst frá forsætisráð- herra. „Þetta er allavega í fyrsta sinn sem ég fæ svona bréf í þau rúm tvö og hálft ár sem ég hef verið ríkis- endurskoðandi,“ segir Sveinn og tekur fram að málið sé í vinnslu. „Ég get ekki sagt til um hvenær þessari vinnu ljúki. Það þarf að afla gagna upp á nýtt og þar með endur- taka þá vinnu sem unnin var í upp- hafi. Síðan er óskað eftir upplýs- ingum til viðbótar við þær sem áður voru veittar og þeirra þarf að afla. Við eigum eftir að sjá hvað kemur út úr því að endurtaka fyrirspurnina í bókhaldskerfi ríkisins. Tölurnar verða sóttar þangað aftur. Að því loknu mun liggja fyrir efni sem verð- ur kannað. Við þurfum að staðfesta að allar upplýsingar sem við fáum séu réttar og trúverðugar.“ Sviðsstjóri fjárhagsendurskoð- unar, Ingi K. Magnússon, fer með málið innan stofnunarinnar. Bréfið þykir með fádæmum Morgunblaðið/Ernir Á Alþingi Jóhanna Sigurðardóttir.  Svarbréf Jóhönnu til ríkisendurskoðanda Hugrún Halldórsdóttir hugrun@mbl.is Íslenski fjárhundurinn Bjartur fagnaði í gær 10 ára afmæli sínu en samkvæmt gamalli þumalfingursreglu jafngildir eitt hundsár sjö mannsárum og því lætur nærri að hann sé sjötugur. Að sögn Hrundar Gunnarsdóttur, eiganda Bjarts, hefur hann frá byrjun árs 2010 starfað sem sjálf- boðaliði fyrir Rauða kross Íslands og fór á því ári tvisvar sinnum í viku á Hrafnistu í Hafnarfirði og gaf vistmönnum tækifæri á að fara í göngutúr með sér um svæðið. „Við fórum svo inn á deild sem er fyrir Alzheimerssjúklinga. Bjartur er orðinn þetta gamall og yfirveg- aður svo hann er rólegur og liggur hjá þeim og leyfir þeim að klappa sér. Þetta er gríðarlega gefandi og skemmtilegt,“ segir Hrund og bætir við að sögur og minningar kvikni hjá vistmönnum við að sjá Bjart. „Þeir hafa farið að sækja myndir af hundunum sínum úr sveitinni og segja sögur.“ Bjartur og Hrund venja nú komur sínar í Drafnarhúsið í Hafnarfirði, dag- vistun fyrir fólk með elliglöp og Alzheimer. „Við njótum okkar af- skaplega vel.“ Að sögn Hrundar ætlar Bjart- ur að halda upp á afmælið sitt næstkomandi laugardag og tekur á móti gestum á heimili sínu, Suðurgötu 56 í Hafnarfirði, á milli kl. 15 og 18. Söfnun fyrir Rauða krossinn Bjartur æskir þess að velunn- arar hans og aðdáendur séu ekki að spandera í afmælisgjafir en þeir mega þess í stað veita and- virði gjafa til Rauða krossins. „Þetta er pínulítil söfnun. Krakkar halda tombólu og gefa andvirðið í Rrauða krossinn, Bjartur ætlar að gefa andvirði afmælisgjafanna. Hann ætlar að taka á móti bæði fjórfættum vinum sínum og tví- fættum. Ef hann fær verðlaun, harðfisk, getur hann gert brellur sem búið er að kenna honum, t.d. vinkað, heilsað, snúið sér í hringi.“ Þegar blaðamaður sló á þráð- inn til Hrundar var góður og lang- ur göngutúr á dagskrá í tilefni af- mælisins. „Svo fær hann að fara í uppáhaldsbúðina sína, Dýraríkið, og velja sér nýtt dót og bein. Svo pössum við upp á að eiga ein- staklega mikið af harðfiski, til að verðlauna hann allan daginn, þó svo að hann viti ekki af hverju við erum að verðlauna hann,“ segir Hrund og hlær. Hrund fékk Bjart þegar hann var einungis fjögurra mánaða og hefur hann alla tíð ver- ið hinn vænsti hundur að hennar sögn. „Hann er þó algjör sveita- hundur og nýtur sín best í sveit- inni. Þó að hann búi hérna í bæn- um höfum við ferðast mikið með hann um landið. Hann hefur farið með okkur í rekstur og það er frá- bært að sjá þessa hunda sem eru ekki aldir upp í sveit fara í hlut- verkið og reka. Þetta er bara í genunum,“ segir Hrund að lokum. Velunnendum Bjarts er bent á styrktarreikning Rauða krossins 0327-26-6808 og kt. 680878-0139. Fjórfættum og tvífætt- um vinum boðið til veislu  Hundurinn Bjartur 10 ára  Afmælisveisla á laugardag  Andvirði afmælisgjafanna rennur til Rauða krossins Gefandi Bjartur er sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum og hefur m.a. farið á Hrafnistu í Hafnarfirði. Góðhjartað afmælisbarn Hund- urinn Bjartur æskir þess að vel- unnarar hans og aðdáendur séu ekki að spandera í afmælisgjafir fyrir hann en þeir mega þess í stað veita andvirði gjafa til Rauða krossins. „Biðlistinn er langur og plássin sem við höfum ekki mörg. Því höfum við mark- að þá stefnu að doktorsnemar hafi forgang og því næst fólk í meistaranámi. Með því er hvert rúm fullskipað,“ segir Edda G. Björgvinsdóttir, fjár- málastjóri Þjóðarbókhlöðunnar, í samtali við Morgunblaðið. Nemandi við Hólaskóla í Hjalta- dal óskaði eftir því að fá inni í einu af lestrarherbergjum Þjóðarbók- hlöðunnar en fékk afsvar. Var vísað til þess að pláss væri ekki til staðar auk þess sem nemar við Háskóla Ís- lands hefðu forgang. „Við höfum sérstakar skyldur við HÍ enda er þetta bókasafn skólans. Því kemur þetta til,“ segir Edda og bendir á að svo eftirsótt séu plássin að nemendur í almennu námi við HÍ fái þar ekki inni. Því séu herbergin góðu sérstaklega ætluð fólki sem er að afla sér menntunar á æðsta stigi og fái færri en vilji – eins og staðan í bókhlöðunni sé nú um stundir. sbs@mbl.is Doktors- nemar fá herbergin Bókhlaðan Þétt er setinn bekkurinn. Gæsluvarðhald yfir fjórum karl- mönnum sem játað hafa aðild sína að skotárás sem framin var í Ás- garði í Reykjavík síðastliðinn að- fangadag var framlengt um tvær vikur í Héraðsdómi Reykjavíkur síðdegis í gær. Mennirnir verða í haldi til 15. febrúar nk. Samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkissaksóknara undi einn fjórmenninganna úrskurði héraðs- dóms, tveir tóku frest til að ákveða hvort þeir mundu kæra hann til Hæstaréttar og sá fjórði kærði úr- skurðinn á staðnum.. Ríkissaksóknari mun gefa út ákæru á næstu dögum. Morgunblaðið/Júlíus Vettvangur Tveir mannanna játuðu að hafa hleypt af haglabyssu. Skotmenn áfram í haldi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.