Morgunblaðið - 02.02.2011, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 02.02.2011, Blaðsíða 29
DAGBÓK 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ROP! ROP! VIÐ EYÐUM ALLT OF MIKLUM TÍMA SAMAN ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ SEGJA MÉR ÞAÐ VIÐ EIGUM SVO ÓTRÚLEGA VEL SAMAN OKKUR ÞYKIR BÁÐUM SVO GAMAN AÐ HENDA STEINUM OG KLIFRA Í TRJÁM ÞAÐ ER EKKI SATT! EN ÞÉR MUN ÞYKJA ÞAÐ GAMAN ER ÞETTA EKKI ÞAÐ SEM HJÓNABÖND GANGA ÚT Á? MÁLAMIÐLANIR!!! ÞÚ ERT EKKI MANNLEGUR! ÞAÐ ER RÉTT HJÁ ÞÉR! HLAUPTU NÚ! ÉG ER EKKI LAUS VIÐ TRUFLANIR EN ÞETTA VERÐUR AÐ DUGA HEYRÐU, ÉG VERÐ Á TENGSLA- MYNDUNAFUNDI Í DAG ÞETTA ER SÁ ÞRIÐJI Í ÞESSARI VIKU?!? ÞAÐ ER MIKILVÆGT AÐ MYNDA NÝ TENGSL JÁ, EN VIÐ ÞURFUM LÍKA AÐ REKA FYRIRTÆKIÐ OKKAR HEFUR ÞÉR TEKIST AÐ MYNDA EINHVER NÝ VIÐSKIPTATENGSL? NEI, ÞAU ÞURFA FYRST AÐ FINNA VINNU HÆ, HÆ! HÆ, HÆ! ÉG HEF ÁHGYGGJUR AF ÞVÍ AÐ ÞESSAR LYFJAAUGLÝSINGAR SÉU AÐ HAFA OF MIKIL ÁHRIF Á ÞIG AF HVERJU SEGIRÐU ÞAÐ? ÞÚ ERT BYRJAÐUR AÐ TAKA ALLSKONAR MISMUNANDI LYF ÁN ÞESS AÐ VITA EINU SINNI HVAÐ ÞAU GERA!?! ÞAÐ ER EKKI SATT! MÉR FINNST ÞESSI LYF VERA AÐ HAFA JÁKVÆÐ ÁHRIF Á LÍF MITT Hellisheiði Mikið er talað um tvö- földun Suðurlands- vegar þessa dagana. Frá landnámi og langt fram á seinustu öld ferðuðust menn fót- gangandi eða á hest- um um landið. Þetta leiddi það af sér að all- ar leiðir urðu eftir þurru og greiðfæru landi þar sem það var hægt, leiðin til Reykjavíkur lá eftir Bústaðahálsi, utan í Öskjuhlíð, út í Litla Skerjafjörð eftir klapparhrygg sem liggur gegnum mýrina og svo eftir melunum niður í bæ. Hver var að fara þangað? Mjög fáir, því þar var bara einn sveitabær. Umferðin var út á Nes, því þaðan reru menn til fiskjar á vertíðum. „Þurra“ leiðin austur í sveitir var um Hellisheiði, engar mýrar, ekkert hraun. Jú, svo rann Svínahraun og þá var bara krækt fyrir það. Að lok- inni fyrri heimsstyrjöld stóð til að leggja járnbraut austur á Rang- árvelli og suður með sjó, járnbraut- arstöð átti að reisa við Rauðarárstíg, nokkurn veginn þar sem utanrík- isráðuneytið er og smávöruverslunin Draumurinn. Af þessu varð ekki en austurbrautin átti að liggja um Þrengsli og voru gerðar þar land- mælingar og fundin góð leið, en ekk- ert gert frekar. Svo kom Kaninn, kommúnistabaninn, með sínar jarð- ýtur og risatrukka. Jarðýturnar nýttust m.a. til þess að ryðja snjó af Hellisheiði en það var dýrt og dugði ekki alltaf. Þá var dregið fram járnbraut- arkortið sem Jón Þor- láksson og Nils Per Kirk höfðu búið til og lagður vegur um Þrengslin, þetta var um miðjan sjötta ára- tug seinustu aldar. Þrjátíu árum síðar var svo gerð brú yfir ósa Ölfusár. Þegar vega- lengdir eru athugaðar á vegakortum kemur í ljós að það er aðeins fimm kílómetr- um lengri leið frá Reykjavík til Sel- foss um Þrengsli en yfir Hellisheiði. Þessi munur er fljótur að hverfa þeg- ar heiðinni er sleppt, því það kostar heilmikla orku að hífa hálft annað tonn af járni upp Kambana, senni- lega ekki minna en einn lítra af bens- íni. Nú um stundir er sífellt verið að tala um umhverfismat, hefur einhver metið það hversu mikilli orku er sóað í óþörf ferðalög yfir Hellisheiði? Nú þarf að breikka brúna yfir Ölfus- árósa og Þrengslaveginn. Þjóðin mætti venja sig af því að láta vanann stjórna öllu, stóru og smáu. Gestur Gunnarsson tækni- fræðingur, Flókagötu. Ást er… … að baka saman Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa, postulín kl. 9, útskurður/postulín/Grandabíó kl. 13. Árskógar 4 | Handavinna/smíði/ útskurður kl. 9. Heilsugæsla kl. 10. Bólstaðarhlíð 43 | Spiladagur, glerlist, handavinna allan daginn. Bústaðakirkja | Spil og föndur kl. 13. Heiðar Ö. Arnarson fjallar um Sjúkra- tryggingar Íslands. Ritningarlestur og bæn. Dalbraut 27 | Handavinna kl. 8, vefn- aður kl. 9, leikfimi kl. 11. Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-hrólfar frá Ásgarði kl. 10. Söngvaka kl. 14. Dansspor í kaffihléi. Söngfélag FEB æfing kl. 17. Félagsheimilið Boðinn | Stólaleikfimi kl. 10.30, hádegismatur kl. 12. Félagsheimilið Gjábakki | Handa- vinnustofa, botsía kl. 9.30/10.30, gler- list kl. 9.30/13, félagsvist kl. 13, viðtalst. FEBK kl. 15, bobb kl. 16.30, línud. kl. 18, samkv.dans kl. 19. Á morgun kl. 14, dag- skráin Þulið á þorra í umsjón ljóðahóps. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Mynd- list kl. 9.05, ganga kl. 10, postulín, kvennabrids, málm- og silfursmíði kl. 13. Íslendingasögur kl. 16. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Sýning Óla Kr. Jónssonar, vatnsleikfimi kl. 8.15/12.10, kvennaleikfimi í Sjálandi kl. 9.15/10, í Ásgarði kl. 11, bútas./brids kl. 13. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur kl. 9, leiðsögn fellur niður e. hád. Leik- fimi kl. 10 söngur og dans. Spilasalur op e. hád. Á morgun leikhúsferð á Afinn, skrán. á staðnum og s. 575-7720. Grensáskirkja | Samverustund kl. 14. Háteigskirkja - starf eldri borgara | Setrið kl. 10. Helgistund kl. 11, brids kl. 13 - veitingar. Hraunsel | Pútt kl. 10, bókm.kl. næst 9. febr. Línudans kl. 11, boltaleikfimi kl. 12, glerbr./handav. kl. 13, tréskurður kl. 13, bingó kl. 13.30, vatnsleikfimi kl. 14.40, kór kl. 16. Dansleikur 11. feb., Þorvaldur Halldórs. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30 og 9.30. Vinnustofa kl. 9. Samvera kl. 10.30. Hæðargarður 31 | Hringborðið/kaffitár kl. 8.50. Stefánsganga kl. 9. Listasmiðja kl. 9, postulín. Framsagnarhópur kl. 9. Gáfumannakaffi kl. 15. Spænska hefst 3. feb. kl. 12. Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Kópa- vogsskóla kl. 14.40. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun kl. 10 keila í Öskjuhlíð. Listasmiðja kl. 13, sjúkraleikf. Eirborgum kl. 14.30. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr- unarfr. kl. 10.30, iðjustofa - glermálun kl. 13. Neskirkja | Opið hús kl. 15. Guðni Ágústsson, fv. ráðherra kemur. Kaffiveit- ingar í upphafi. Norðurbrún 1 | Útskurður kl. 9. Hjúkr- unarfr. kl. 10. Félagsvist kl. 14. Vesturgata 7 | Þeir sem eiga ósótta miða á þorrablótið fös. 4. feb. vitji þeirra. Sund kl. 10, spænska kl. 13, myndmennt kl. 11.30, Bónus kl. 13, tréskurður kl. 14.30. Vitatorg, félagsmiðstöð | Tréskurður og smiðjan, bókband kl. 9, handav. kl. 9, morgunstund kl. 10, verslunarferð kl. 12.20, uppl. kl. 12.30, Dans fyrir alla kl. 14. Áheimasíðu sinni, gangleri.is,birtir Gylfi Þorkelsson pistla um aðskiljanlegustu efni, en einnig kveðskap. Í síðasta pistli var þetta erindi: Ríð ég kátur! Ríð ég undir þaki, rennur hryssan tölt og brokk og skeið. Glóa lampar, gaman er á baki, gullinn sandur, þett’ er engin neyð! Næsta hringinn nota skal ég til að ná í mjúkt og fallegt hófaspil. Ólafur Stefánsson svaraði í létt- um dúr: Alltaf ríð ég undir þaki, eins þótt blíðuveður sé, enda dett ég ekki af baki, eða slæmsku fæ í hné. Gylfi svaraði að bragði: Úti jafnt sem undir þaki í æðum sama fjörið kenni: Fullnægjuna finn á baki er folanum í skeið ég renni. Og Ólafur klykkti út með: Fyrst og síðast má fjörmenn kenna, sem fara um land með hrossin sín: Þeir elska konur og alltaf nenna ærlega að súpa brennivín. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af vísum, hestum og hófaspili

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.