Morgunblaðið - 02.02.2011, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 02.02.2011, Blaðsíða 32
Heimildar- og stutt-myndahátíðinni Reykja-vík Short&Docs lauk ámánudaginn. Helgin síð- asta var óvenju listahátíðahlaðin, Myrkir músíkdagar voru auk þess í gangi og enn lifði eitthvað af frönsku kvikmyndahátíðinni. Ég þarf ekki að fjölyrða mikið um það hversu mik- ilvægur þáttur í menningarlífinu, hvað þá í kvikmyndalífinu, hátíðir sem þessar eru og ég ætla líka að hafa fá orð um það hversu frábært það er að hafa kvikmyndahús eins og Bíó Paradís í rekstri. Þetta segir sig allt sjálft og það er hollt bæði og nær- andi að ganga aðeins frá Drauma- verksmiðjunni – þó ekki sé nema til að koma þangað tvíefldur til baka, vit- andi það að það er svei mér þá verið að gera kvikmyndir í öðrum löndum heimsins, og fara þær meira að segja stundum ekki alveg eftir formúlunni sem þar tíðkast. Alltént náði ég í skottið á Short- &Docs á mánudaginn og barði þá ansi athyglisverða heimildarmynd augum. Dönsk er hún að uppruna, um klukkustund að lengd og fjallar um það hvernig tveir drífandi og óvenju- lega þenkjandi borgarstjórar ná að draga höfuðborg Kólumbíu, Bogotá, úr svaðinu og reisa hana við; bæði byggingar- og skipulega séð en um leið siðferðis- og hugmyndafræðilega séð. Við upphaf myndar er árið 1993 og fáum við þá að vita að borgin er talin sú hættulegasta í heimi. Við enda myndar kemur í ljós að umferð- arslysum hefur fækkað um 50%, morðtíðni hefur fallið um 70%, hjól- anotkun hefur aukist, drykkjarvatn komið inn á flest heimili o.s.frv. Þessi bylting hófst með Antanas Mockus, litríkum persónuleika sem klæddist m.a. súpermanbúningi og fékk látbragðsleikara til að stýra um- ferðinni. Mockus er drifinn áfram af heimspekilegum hugsjónum og heið- arleika, hann einsetur sér að breyta hugarfari íbúanna og það ótrúlega er að það tekst. Hann gengur m.a. langt í að uppræta landlæga spillingu í embættismannakerfinu og bjó þannig í haginn fyrir arftaka sinn, Enrique Peñalosa, sem var ekki síður umhug- að um að gera borg sinni gagn. Peña- losa var ekki jafn „flippaður“ og Moc- kus en hann lét verkin tala og hélt hinu góða starfi Mockus áfram sem tók svo við af Peñalosa aftur. Manni verður óneitanlega hugsað til okkar góða borgarstjóra, Jóns Gnarr, þegar maður horfir á mynd- ina. Hvað sem segja má um árangur hans í borginni var ástæðan fyrir sigri hans sú að fólk var komið með upp í kok af síendurteknu pólitísku hjali þar sem allir hljómuðu eins. Fólkið gaf því stöðnuðu kerfi fing- urinn og það er hressandi að fylgjast með því þegar Jón svarar einhverju af einlægni frekar en að vera með bjánalegt yfirklór eins og venjan er. Sagan sem er sögð í myndinni er mögnuð en líkast til nokkuð einhliða, getur maður ímyndað sér. Hún er þá næstum of hefðbundin í byggingu, er eiginlega eins og löng fréttaskýring í 60 minutes. Árangurinn í Bogotá er engu að síður ótrúlegur og manni féll- ust eiginlega hendur þegar maður kom aftur út í napra janúargoluna, vitandi að sama helvítis tuðið bíður manns hérna. Hvar er hinn íslenski Mockus? Bíó Paradís - Reykjavík Short&Docs Cities on Speed - Bogotá Change bbbmn Leikstjóri: Andreas Mol Dalsgaard. 55 mín. Danmörk, 2009. ARNAR EGGERT THORODDSEN Ofurhugi Antanas Mockus gerði góðan skurk í málefnum Bogotá. Afl hins óvenjulega KVIKMYNDIR 32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2011  Fjórðu minningartónleikarnir um söngvaskáldið Bergþóru Árna- dóttur verða haldnir í Salnum í Kópavogi þriðjudaginn 15. febrúar kl. 20. Það er Minningarsjóður Bergþóru sem efnir til tónleikanna en þeir eru að vanda haldnir á af- mælisdegi hennar. Að þessu sinni verða mörg af þekktari lögum Bergþóru flutt í fyrsta sinn í kórútsetningum og koma þrír kórar við sögu, en stjórn- andi þeirra er Guðlaugur Vikt- orsson. Um er ræða hinn lands- þekkta Lögreglukór Reykjavíkur, Kór Menntaskólans í Reykjavík og Vox Populi. Tónlist Bergþóru Árna í nýjum búningi Fólk  …ráðin um næstu tónleika í RVK.“ Svo segir í nýjustu fésbók- arfærslu þessa stærsta orgel- kvartetts heims. Ekki stendur á viðbrögðum og er þegar búið að „læka færsluna í drasl“ eins og ungviðið segir. Önnur plata kvart- ettsins, Pólýfónía, sló heldur en ekki í gegn á síðasta ári, og það þrátt fyrir að hafa komið út kort- er fyrir jól. Þá er gaman að segja frá því að platan er væntanleg á vínyl þetta árið. Gaman verður að heyra hvernig nýjustu Appa- stemmurnar hljóma á forminu fullkomna. „Apparat Organ Quartet leggur á … Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Tónlistarhátíðinni Myrkum mús- íkdögum lauk á sunnudagskvöldið í Listasafni Íslands en þá lék Kamm- ersveit Reykjavíkur verk eftir nokk- ur íslensk nútímatónskáld. Hátíðin hefur fyrir löngu öðlast sess í menn- ingarlífi landsins, var haldin í fyrsta sinn árið 1980. Í ár voru um sautján atriði á dagskrá af ýmsum toga, mikið af nýjum verkum eftir ís- lenska höfunda voru frumflutt og hljóðmynd hátíðarinnar teygði sig frá argasta orgi yfir í kliðmjúka feg- urð. „Samuli Famuli“ Bráðsnjallri nýjung var ýtt úr vör á sunnudeginum kl. 13.00 en þá stóð finnski slagverks- og trommuleik- arinn Samuli Kosminen fyrir tón- leikum sem ætlaðir voru börnum og fjölskyldufólki. Var yfirskriftin glettnisleg, „Samuli Famuli“. Sam- uli þessi tengist Íslandi órofa bönd- um, hann hefur m.a. starfað mikið með hljómsveitinni múm og lék á trommur á sólóplötu Jónsa. Tónleikarnir voru bráðvel heppn- aðir og runnu smurt áfram. Ég við- urkenni að ég átti von á því að meira yrði um einhvers konar samvinnu við börnin, þau fengju að fikta í slag- verkinu eða eitthvað slíkt en ég er líklega orðinn of „leikskólaður“. Börnin fylgdust hins vegar með af athygli allan tímann og vel til fundið að þau fái einu sinni að heyra tónlist fremur en barnatónlist. Samuli sagði mér í lok tónleikana að hann hefði samið tvö verk sér- staklega fyrir þá en annars valið út lög úr safni sínu sem hann taldi henta ungum eyrum hvað best. Af stemningunni í salnum að dæma „hitti“ hann á rétt. Morgunblaðið/Ómar Snjall Slagverks- og trommuleikarinn Samuli Kosminen á að baki farsælan feril og hóf að vinna með íslenskum tónlistarmönnum fyrir um tíu árum síðan. Hitti bara trommuna sem small  Slagverks- og trommuleikarinn Samuli Kosminen hélt barna- og fjölskyldu- tónleika á Myrkum músíkdögum  Húsfyllir var í Norræna húsinu Gestir Úlfur Eldjárn með börn og buru. Bróðir hans, Halldór, til vinstri.Vertarnir Alex Somers og Kira Kira sáu um vöfflur og heitt kakó.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.