Morgunblaðið - 02.02.2011, Page 22

Morgunblaðið - 02.02.2011, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2011 ✝ Björn Björns-son fæddist í Keflavík 12. maí 1960. Hann lést á heimili sínu Holta- gerði 13, Kópa- vogi, 22. janúar 2011. Foreldrar hans eru Jóhanna María Björnsdóttir f. 5.10. 1934, dótt- ir Snjólaugar Hjörleifsdóttur og Björns Júlíussonar frá Akureyri og Jón Björn Vilhjálmsson, f. 18.4. 1934, sonur Ástríðar Þórarins- dóttur og Vilhjálms Magn- ússonar frá Höfnum. Jóhanna María og Jón Björn slitu sam- vistum. Seinni kona Jóns Björns er Margrét Elimarsdóttir, f. 24.6. 1949. Systkini Björns eru: Ásta, f. 11.1. 1957, og Ólafur, f. 14.12. 1958, kvæntur Rósu Ingvarsdóttur, þau eiga tvö börn og eitt barnabarn. Eftirlifandi eiginkona Björns laugu Gísladóttur, þau eiga tvo syni og Jóhanna Gerður, í sam- búð með Rafni Baldri Gíslasyni og eiga þau þrjá syni. Björn var fæddur og uppal- inn í Keflavík. Hann gekk í Gagnfræðaskóla Keflavíkur og Héraðsskólann á Núpi í Dýra- firði. Björn var til sjós nokkrar vertíðir, vann við smíðar bæði í Keflavík og á Akureyri þar til hann fluttist til Reykjavíkur og hóf störf hjá Ísól þar sem hann starfaði til æviloka. Aðaláhuga- mál Björns var stangveiði og naut hann þess að veiða í góðra vina hópi, auk þess að vinna við leiðsögn í laxveiðiám á sumrin. Anna og Björn hófu sambúð sumarið 1984 að Engjaseli 29 í Reykjavík þar sem þau bjuggu til ársins 1987 er þau fluttu að Maríubakka 28 í Reykjavík, 1994 fluttu þau að Holtagerði 13 í Kópavogi þar sem fjöl- skyldan býr í dag. Björn byggði fjölskyldunni sumarbústað í landi Litla-Klofa í Landsveit sem var þeirra sælureitur. Útför Björns fer fram frá Digraneskirkju í dag, 2. febr- úar 2011, og hefst athöfnin kl. 13. er Anna Gunnlaug Egilsdóttir, f. 29.12. 1959, ritari í Breiðholtsskóla. Anna og Björn gengu í hjónaband 23.4. 1993. Dætur Björns og Önnu Gunnlaugar eru Elísabet, f. 16.12. 1984, kennari við Menntaskóla Kópavogs og Eva, f. 22.3. 1987, nem- andi við Háskóla Íslands. Fyrir átti Björn, Jóhönnu Maríu, f. 12.1. 1983, starfsmaður hjá Varn- armálastofnun, sambýlismaður hennar er Hlynur Jónsson. Móðir Jóhönnu Maríu er Þórdís Þórðardóttir. Foreldrar Önnu Gunnlaugar eru Elísabet Gunn- laugsdóttir, f. 13.7. 1932, og Egill Guðmundsson, f. 25.9. 1923. Anna Gunnlaug á 3 systk- ini: Guðmundur Þór, kvæntur Sigrúnu Óskarsdóttur, þau eiga tvö börn, Viðar, kvæntur Guð- Elsku pabbi, mikið óskaplega söknum við þín mikið. Við erum bún- ar að vera duglegar að skoða myndir og við finnum hvað það er gott að rifja upp sögur. Fyrir okkur hefur þú alltaf verið kraftmikill dugnaðarforkur, ákveð- inn og með sterkar skoðanir. Þess á milli varstu einlægur og ávallt stutt í húmorinn. Við dáðumst að því hvernig hlutirnir léku í höndunum þínum, allt frá því að hnýta minnstu veiðiflugur í að reisa sumarbústaði. Þú hefur gefið okkur mikið og kennt okkur margt. Þú varst fljótur að koma okkur upp á lagið með mús- ík, okkar aðaláhugamál, og við vor- um kornungar farnar að hækka græjurnar í botn. Tónlist hefur aldr- ei verið langt undan hvort sem við vorum sönglandi heima, í bílnum eða spilandi plötur uppi í bústað. Þú hefur líka sýnt okkur hvað það skiptir miklu máli að hugsa vel um þá sem eru manni næst og um- kringja sig góðu fólki. Þegar við hittum fólk sem hefur kynnst þér í gegnum tíðina þá talar það alltaf svo vel um þig og hefur sögur að segja sem okkur þykir svo vænt um. Hugarfarið þitt í gegnum síðast- liðin 3 ár er svo einkennandi fyrir þig. Fyrir okkur varstu aldrei veik- ur heldur var þessi barátta bara hvert verkefnið á fætur öðru sem þurfti að yfirstíga svo hægt væri að komast í sveitina eða að veiða við ár- bakkann sem fyrst. Þú hefur alltaf verið okkar klettur og við reynum eftir bestu getu að vera sterkar. Stelpurnar þínar, Elísabet og Eva. Með örfáum orðum viljum við minnast hans Bjössa tengdasonar okkar. Það var stórt skarð höggvið í fjölskyldu okkar við fráfall hans. Hann var alltaf hress og skemmti- legur og það var aldrei neinn rolu- gangur í kringum hann. Vinnuorkan var óendanleg og hjálpsemin eftir því. Ef hann vissi til að við vildum ein- hverju breyta eða bæta var hann alltaf reiðubúinn að taka það að sér og var svo mættur með hamar og borvél en þá var líka bezt fyrir okk- ur að vera ekki að þvælast fyrir. Öll störf leysti hann svo vel af hendi. Eitt var það þó sem Bjössi gat ekki unnið á þó hraustur væri fyrir, það var hinn illvígi sjúkdómur sem hann átti í harðri baráttu við síðastliðin þrjú ár. Við viljum þakka þér allar sam- verustundirnar og allt sem þú gerðir fyrir okkur, elsku Bjössi okkar. Hvíl þú í Guðs friði. Elísabet (Lísa) og Egill. Það er sárt að kveðja Björn bróð- ur minn og geta ekki notið nærveru hans framar. Þessi góði drengur var snemma kraftmikill dugnaðarfork- ur, glaðlyndur og trúr sínum. Snemma kom í ljós einstakur hæfi- leiki Björns til þess að ná til og kynnast fólki, hæfileiki sem kom honum til góða alla tíð bæði í leik og starfi. Við fórum ungir í sveit að Laug- arholti í Skagafirði og vorum þar nokkur sumur hjá yndislegu fólki sem æ síðan hefur verið okkur kært. Björn vann ungur við hin ýmsu störf bæði til sjós og lands. Um tíma bjó hann á Akureyri og vann við tré- smíðar hjá frænda okkar, þetta voru góð og eftirminnileg ár þar sem hann treysti frændgarðinn og eign- aðist góða vini. Eftir að hann fluttist til Reykjavíkur hóf hann störf hjá þeim Sófusi og Magnúsi í Ísól, þar starfaði hann eins lengi og hann hafði orku til. Vinnustaðurinn var honum kær og Sófus og sonur hans Hjörtur voru honum sem fjölskylda frekar en vinnuveitendur. Þeim feðgum þakka ég fyrir þann hlýhug og stuðning sem þeir ávallt sýndu honum. Björn var einstaklega vinnusam- ur, ósérhlífinn og bóngóður. Hann var alltaf að, ég veit ekki hversu marga bústaði hann byggði fyrir og með öðrum en þeir fylla allavega tuginn. Hann byggði sér og sínum sum- arbústað á fallegum stað við Heklu- rætur. Mikla alúð lagði fjölskyldan í þessa fallegu fjölskylduparadís. Allt unnu þau sjálf, ræktuðu landið, hlúðu að umhverfinu og sífellt var verið að byggja og bæta. Veiðimennskan var okkur bræðr- um í blóð borin, við vorum ekki háir í loftinu þegar við vorum farnir að veiða á bryggjunni, seinna tók stangveiðin í lax- og silungsám við. Hann tók að sér að kenna mér að halda á flugustöng og reyna að kasta flugu. Það reyndi á þolrifin í honum Birni bróður mínum en hann gaf mér það að halda þetta út og margir fleiri fengu notið faglegrar leiðsagn- ar hans. Ég veit að hans verður sárt saknað úr nokkrum veiðihópum. Björn átti úrvalsvini sem stóðu vörð um vin sinn af mikilli væntumþykju og virðingu allt þar til yfir lauk. Bróðir minn var svo lánsamur að verða ástfanginn ungur og giftast ástinni sinni. Þau Anna voru ekki bara hjón heldur frábærir félagar sem virtu hvort annað. Saman eign- uðust þau fallegu frænkurnar mínar þær Elísabetu og Evu. Fjölskyldan í Holtagerði er samhent og kærleiks- rík og það hefur verið einstakt að fylgjast með því hversu sterkar þær mæðgur eru í sorginni. Þær stóðu sem klettar að baki honum og um- vöfðu hann kærleika og hlýju. Engin orð fá lýst þeirri fegurð sem skein úr augum hans þegar hann horfði á þær, heyrði í þeim eða spjallaði við þær. Þetta allt var svo lifandi ljóst nú í lokabaráttunni. Mér er þungt um hjarta og vildi að samferðatím- inn hefði orðið lengri. Elsku Anna, Elísabet, Eva og Jó- hanna María, megi allar góðar vætt- ir vaka yfir ykkur og minningunni um góðan dreng. Vertu Guði geymdur, minn kæri bróðir Ólafur. Það er erfitt að kveðja yngri bróð- ur sinn, sem fór frá okkur á besta aldri. Baráttan við veikindin var ströng og það var aldrei réttlátt gef- ið. Þvílíkur dugnaður og baráttuvilji sem var einkennandi fyrir hann Björn. Í öllum þessum meðferðum bar hann sig alltaf vel. Ég er svo stolt og full aðdáunar á honum bróð- ur mínum, hvernig hann gat lifað og notið alveg fram á síðustu stund. Hann var alltaf svo þakklátur og tjáði manni það þegar hann var að- stoðaður. Ég er þeim Önnu, Elisa- bet og Evu þakklát fyrir að hann gat verið heima. Ég veit að það hefði verið erfitt án aðstoðar bróður hans og vina. Ég er strax farin að sakna hans og á eftir að sakna hringing- anna hans til að gefa mér skýrslu um ástand gróðurs og einstakra plantna uppi í bústað. Guð geymi kæran bróður og blessi konu hans og dætur. Ásta systir. Okkur langar að kveðja hann Bjössa mág okkar og svila með nokkrum orðum. Anna systir kynnti þennan ágæta dreng frá Keflavík til sögunnar fyrir um það bil 27 árum og hafa þau staðið saman í blíðu og stríðu alla tíð síðan. Þau áttu saman tvær frábærar dætur, þær Elísa- betu og Evu, sem nú eiga ásamt móður sinni um mjög svo stórt sár að binda, enda reyndist hann þeim sem og okkur öllum traustur og góð- ur vinur. Bjössi var alltaf strákslegur og glaðvær í lund og hressileikinn smit- aði frá honum alla tíð en hann var einnig slíkur vinnuþjarkur að með eindæmum var. Þá var hann mikill smiður og reyndist það okkur oft vel þegar beita þurfti hamri og sög og hafði hann þá alltaf ráð og lausnir við öllum uppákomum. Hann var alltaf boðinn og búinn til að hjálpa og eigum við honum margt að þakka. Við munum vissulega sakna þess að hafa hann Bjössa ekki leng- ur hér á meðal okkar og ótrúlegt að þetta mikla hraustmenni hafi að lok- um þurft að láta í minni pokann fyrir illvígum sjúkdómi þrátt fyrir harða baráttu hans til að hafa betur og það með alla klæki læknavísindanna að vopni. Við viljum nú að leiðarlokum þakka góðum og traustum sam- ferðamanni vináttu hans í gegnum tíðina. Guðmundur (Gummi), Sigrún og börn. Hverfulleiki tilverunnar birtist í hinum ýmsu myndum og á stundu sem þessari hugsum við um tilurð alls. Fyrir tæpum tveimur áratug- um stofnuðum við frændurnir veiði- hóp, sem farið hefur reglulega á vit ævintýranna og notið samvista í náttúrunni við veiðar. Í dag horfum við á eftir leiðtoga okkar og leiðbein- anda, Birni Björnssyni. Það gerðist nefnilega ekkert af viti nema karlinn léti í sér heyra og setti stefnuna. Bræðurnir Björn og Ólafur oftast sammála um hvað gera skyldi fyrir hópinn. Við hinir fylgdum í humátt á eftir. Nutum leiðsagnar þeirra og velvildar og Björn ávallt í farar- broddi. Vöðlur, skór og stangir í boði ef við byrjendurnir misstum fótanna í veiðihamnum. Ófáar flug- urnar sem hann hnýtti og stakk í boxið okkar þegar honum fannst það fátæklegt. Kenndi okkur fræðin í leiðinni og fangbrögðin. „Búss- mann“-túpan ómissandi í hvern túr. Vakti okkur á morgnana þegar þynnkan og þreytan gerði vart við sig hjá okkur svefnpurkunum. „Ræs,“ glumdi í morgunsárið og við hlýddum eins og skólastrákar í sum- arbúðum. Keypti verðlaunagripi til að styrkja sjálfstraustið hjá frænd- um sínum, stærsti fiskur, flestir fiskar, flugufiskurinn og maður árs- ins. Bikarar sem veittir voru á árshátíð og uppgjöri með frænda- konum. Björn var samt ekki mikið fyrir að trana sér fram, nema til þess að herða okkur frændurna. Hann sýndi okkur og sannaði að hann var hörku- tól og gerði óspart grín að okkur. Við höfðum þó á hann, að okkur fannst hann full ýktur í frásögnum af eigin veiðni og gripi alltof oft til skáldaleyfis í þeim efnum. Honum þótti vænt um þær athugasemdir og bætti frekar í en að draga úr, þegar um var rætt. Við nutum frásagn- anna enn frekar fyrir vikið. Gerðum óspart grín að hvor öðrum með hans aðstoð. Tryggðum enn frekar frændskapinn og gerum enn. Rækt- arsemi og hjálpsemi er ekki öllum gefin en sannarlega var það Birni hugleikið að sinna því af eljusemi. Fyrir vikið nutum við þess í hví- vetna, enda honum mikilsvert og samofið. Aldrei gerði hann upp á milli landshlutanna sem hann átti ættir að rekja til. Þegar við sunn- anmenn þöndum okkar vegferð í dagsins erli og leik, var hann beggja blands og leysti það með prýði. Beitti okkur óspart norðlenskunni í stríðinu um hagsæld sveitarfélag- anna, þegar honum fannst við „rembast eins og rjúpan við staur- inn“. Við munum sakna hans breiða faðms, hjartahlýju, dugnaðar, elju og fylgni. Vonandi höfum við lært af honum ýmislegt til eftirbreytni á vegferð okkar um landsins drauma og lindir. Án efa munum við halda merki hans á lofti um ókomin ár og í komandi ævintýrum. Minningin um frændsemi hans og góðan vilja mun lifa með okkur um aldur og ævi. F.h. Hafnamanna, Páll Ketilsson. Elsku frændi. Stóri frændi sem lagaði bremsuna á veiðihjólinu og skipti um girni þegar ég missti minn fyrsta stórlax. „Við sækjum hann á morgun,“ sagðir þú. Busi frændi í hnotskurn. Ávallt boðinn og búinn, hjálparhöndin aldrei langt undan, baráttuþrekið til staðar og af því átt- ir þú nóg. Best kom það í ljós síðustu ár þegar þú tókst storminn í fangið, spyrntir við veikindunum frá fyrsta degi uns þú óhjákvæmilega og að endingu lygndir aftur augunum. Ef í heimreiðinni stóð bíllinn hans frænda man ég til þess að hafa stokkið til og flýtt mér heim því þá var góð heimsókn þegar hafin. Þeg- ar inn var komið voruð þið pabbi oft- ar en ekki að ræða um laxveiði, ég hef alltaf getað hlustað á ykkur tala um laxveiði svo tímunum skipti. Ég verð seint jafn góður veiðimaður og þið pabbi en get huggað mig við þá staðreynd að hafa lært af þeim bestu og bý vel að því að hafa haft þig í mínu horni. Ég óska öllum þess að eignast stóran frænda eins og þig, frænda sem sýnir ósvikinn áhuga og stuðning. Betri mann í mínum huga hafa fáir, ef nokkrir, að geyma. Þegar við Hilma fluttum í Skip- holtið og vorum að fríska upp á bað- herbergið okkar komst þú í heim- sókn einn daginn, ég átti bara eftir að setja fúgu á flísarnar og spurði þig hvernig best væri að bera sig að. „Svona,“ svaraðir þú og kláraðir verkið á mettíma. Svona var þetta í þrjá áratugi, stóri frændi gat allt. Ætli það lýsi þér ekki best, kæri frændi, að um leið og dóttir mín gat farið að tjá sig þá kallaði hún þig afa Busa. Slík var nærvera þín. Þín verður sárt saknað í okkar litlu fjölskyldu og víðar, þú hefur verið kallaður á brott og eftir stönd- um við með minningarnar. Þær eru og verða um ókomna tíð einhver dýrmætasta eign okkar. Elsku Anna, Elísabet og Eva, megi góður Guð styrkja ykkur í sorginni. Vertu sæll, elsku frændi minn. Jón Björn. Í dag kveðjum við yndislegan frænda og vin Björn Björnsson, Busa eins og ættingjar kölluðu hann alltaf. Hann barðist kröftuglega í rúm 3 ár við krabbamein. Þessi mikli bjartsýnis- og keppnismaður setti sér mörg markmið með fjöl- skylduna efst í huga og náði þeim ef- laust flestum ef ekki öllum áður en yfir lauk. Busi var sérlega frændrækinn og kom oft í heimsókn til okkar, alltaf glaður og iðandi af lífskrafti. Eins var hann hrókur alls fagnaðar á ætt- armótum, þorrablótum og raunar hvar sem fjölskyldan kom saman. Mikill veiðimaður var hann og hafði mjög gaman af að segja veiði- sögur. Þó voru náttúrulýsingar frá ýmsum árbökkum engu síðri. Hann var kröftugur og ham- hleypa til verka. Einstakt lán var að eiga svona handlaginn frænda sem var viljugur að hjálpa til með allt sem hann mögulega gat. Busi var vinsæll og vinmargur sem best sást í veikindum hans, hvað vinir hans voru traustir. Vinn- an og vinnufélagar hjá Ísól voru honum líka mikils virði. Önnu, Elísabet og Evu sendum við okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Minningar um Busa frænda eru góðar og skemmtilegar. Hans er sárt saknað. Jófríður, Kristinn og Inga Rún. Björn Björnsson, vinur minn og starfsfélagi í nær þrjá áratugi, er fallinn frá eftir langvarandi veikindi. Með honum er genginn góður vinur og vinnufélagi, rétt aðeins liðlega fimmtugur. Björn eða Bjössi, eins og hann var alltaf kallaður, gekk til liðs við okkur feðga fyrir 27 árum þegar hann réðst til starfa hjá Ísól. Þá strax kom í ljós að hann var hamhleypa til allra verka – hann hreinlega óð í verkin og oftar en ekki var best að vera ekki fyrir þegar hann tók til hendinni. Þegar krabbinn knúði dyra tók Bjössi því af æðruleysi, staðráðinn í að hafa betur í ójafnri keppni. Upp- gjöf kom ekki til greina. En jafnvel keppnismaðurinn þurfti að játa sig sigraðan þegar við ofurefli var að etja. Bjössi var meðalmaður á hæð, þéttur og sterklegur á velli. Þétt handtakið og góðlegt brosið gaf til kynna að þar færi maður sem hægt væri að treysta. Og aldrei brást Bjössi traustinu og sjaldan man ég eftir að hann reiddist. En hann var ekki skaplaus, þvert á móti. Hafði fastmótaðir skoðanir á mönnum og málefnum og gekk hreint til verka í þeim efnum, eins og öllum öðrum. Í þessu eins og svo mörgu öðru áttum við gott skap saman. Það er ómetanlegt fyrir fyrirtæki að hafa á að skipa starfsmanni sem setur sig inn í málin og gjörþekkir þær vörur sem hann er að selja. Við- skiptavinir sóttust í að fá þjónustu Bjössa, vegna þekkingar, lipurðar og léttleika í öllu fasi. Í þeim fjöl- mörgu utanlandsferðum, sem við Bjössi fórum, hvort heldur á vöru- sýningar eða til að heimsækja birgja, naut hann sín sérstaklega í fagmennsku sinni. Hann aflaði sér trausts og trúnaðar hvar sem hann kom. Lífið er ekki aðeins vinna og Bjössi kunni að njóta lífsins. Hvergi naut hann sín betur en á árbakk- Björn Björnsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.