Morgunblaðið - 02.02.2011, Síða 11

Morgunblaðið - 02.02.2011, Síða 11
eru ótrúlega næm á umhverfið sitt, þau lesa í veðrið, vita nákvæmlega hvernig er hægt að nýta hvaða hluta af plöntu til matargerðar og þau kunna að rækta allan þann mat sem þau borða. Hluti af hug- myndafræði skólans er að viðhalda þessari mikilvægu þekkingu og því sjá krakkarnir um garðinn við skól- ann þar sem allt hráefni til mat- argerðarinnar er ræktað, hrísgrjón, kartöflur, maís, tómatar, kúrbítur, eggaldin, chili, dahl, karrílauf, engi- fer og krydd. Þar eru líka ávaxtatré af ýmsu tagi og ótrúlegustu krydd- jurtir. Það litla sem upp á vantar til matreiðslu er fengið úr nágranna- görðum. Við fengum því ævinlega mat sem gerður var úr afar fersku hráefni og við hvetjum fólk sem kaupir uppskriftirnar okkar til að taka þetta til fyrirmyndar og styrkja íslenskan landbúnað með því að kaupa íslenskt hráefni frekar en innflutt. Betra væri þó að fólk ræktaði sjálft sitt grænmeti úti í garði, ef það hefur kost á.“ Taka virkan þátt í skólanum Guðrún Hulda og Jóhanna Björk fóru til Indlands síðastliðið haust til starfa í skólanum sem er svokallaður Rural Development Fund-skóli (RDF) „RDF eru sam- tök sem reka sjö skóla á Indlandi og hugmyndafræðin byggist meðal annars á lýðræði nemenda og kenn- ara. Krakkarnir taka því virkan þátt í rekstri skólans, fimmti bekk- ur sér um nemendabankann, sjötti og sjöundi bekkur sjá um að halda skólanum hreinum, áttundi bekkur sér um að rækta garðinn og níundi og tíundi bekkur hjálpa til í eldhús- inu. Jafnvel börnin í yngstu deild- inni, sem eru fjögurra og fimm ára, hafa hlutverk. Þau kunna að sauma og þau sjá sjálf um að laga fötin sín.“ Guðrún segir börnin í skól- anum ekki taka menntun sem sjálf- sögðum hlut, heldur séu þau afar þakklát fyrir að geta verið í skóla, því það er ekki sjálfsagt mál fyrir þau að fá frí frá vinnunni heimafyrir þar sem eru bæði skepnur, hrís- grjónarækt og bómullarrækt. „Ekki eru nema nokkur ár síðan skólinn var stofnaður og því eru nemend- urnir fyrsta kynslóð læsra ein- staklinga á svæðinu. Þau eru mjög metnaðarfull og ætla að nota menntun sína til að bæta samfélagið sitt.“ Bjuggu með 40 froskum „Að vera í Matendla var dásamlegt ævintýr. Við vorum ber- fættar meira og minna allan tímann. Herbergið okkar var mjög látlaust, við sváfum á trébekkjum og bjugg- um með 40 froskum. Við fengum þrjár máltíðir á dag, aldrei fisk eða kjöt, aðeins eitt harðsoðið egg á dag með hádegisverðinum. Við bjuggum í skólanum og þrátt fyrir fábrotinn aðbúnað þá var hugsað mjög vel um okkur. Á hverjum morgni færði kokkurinn og dýrlingurinn Ramesh okkur te og matreiddi dásamlegan morgunverð. Matmálstímum fylgdi ákveðin serimonía. Þegar öll börnin 370 voru sest niður í lótusstellingu með diskinn sinn fóru þau með möntru. Við matargerðina voru aldrei notuð verkfæri. Hráefnið var rifið, tætt og kreist og eldhúsið var opið svæði með hlóðum. Okkur fannst gott að fá hvíld frá vestrænu neyslusamfélagi. Það var bæði ynd- islegt og þroskandi að búa í þessu fallega samfélagi.“ Indlandi 4 1 Guðrún Hulda (með appels- ínugult sjal) og Jóhanna með nem- endum sínum. 2 Yelava að skera eggaldin - Vang Kaya - með fótahníf. 3 Einn af girnilegu réttunum þeirra. 4 Matseld með berum höndum. 5 Kokkurinn Ramesh að störfum í eldhúsinu. 3 5 2 Heimasíða Guðrúnar Huldar og Jóhönnu Bjarkar: www.web.me.com/creat- ingrealities (þar má nálgast upp- skriftirnar undir flipanum Buy a Recipe.) Samtökin sem reka RDF skólana: www.rdfindia.org DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2011 18% staðgreiðsla Frá 1. janúar 2010 ber bönkum og öðrum fjármálastofnunum að reikna og halda eftir 18% staðgreiðslu af vaxtatekjum og innleystum gengis- hagnaði ársfjórðungslega. Sama gildir um arð sem greiddur er til eigenda af eignarhlutum í félögum. Athygli er vakin á breyttum reglum um skattalega meðferð á úthlut- uðum arði sem fer umfram 20% af skattalegu bókfærðu eigin fé viðkom- andi félags í lok viðmiðunartímans til þeirra sem skylt er að reikna sér endurgjald vegna starfa í þágu félagsins. Rafræn skil á fjármagnstekjuskatti Nú er hægt að gera skil á fjármagnstekjuskatti á rafrænan hátt. Farið er á þjónustusíðu ríkisskattstjóra, skattur.is, með kennitölu og aðallykli eða skilalykli. Síðan er valið vefskil > staðgreiðsla fjármagnstekjuskatts og opnast þá form útfyllingar. Fylgja þarf leiðbeiningum til enda og verður þá til krafa í heimabanka gjaldanda. Hafi ekki verið um að ræða neinar skatt- skyldar greiðslur arðs og vaxtatekna á tímabilinu skal gera grein fyrir því. Gjalddagar Fjármagnstekjuskattur er 18% frá 1. janúar 2010. Gjalddagar afdreginnar staðgreiðslu eru 20. apríl, 20. júlí og 20. október 2010 og 20. janúar 2011. Eindagi er 15 dögum síðar. Gjalddagi afdreginnar staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts á fjórða ársfjórðungi 2010 er 20. jan. en eindagi er 4. feb. Fjármagnstekjuskattur Tímabilið 1. október - 31. desember

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.