Morgunblaðið - 02.02.2011, Side 20

Morgunblaðið - 02.02.2011, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2011 Elsku Inga mín, það er komið að Ingveldur Magnúsdóttir ✝ Ingveldur Magn-úsdóttir húsfreyja frá Ólafsvík fæddist 21. desember 1930. Ingveldur lést á Sankti Franciskus- spítalanum í Stykk- ishólmi 13. janúar 2011. Útför Ingveldar var gerð frá Ólafsvík- urkirkju 21. janúar 2011. kveðjustund. Ég hef þekkt þig alla mína ævi og var sem heim- alningur á heimili þínu, Rikka og Kötu í Ólafsvík. Það er margt að minnast um þessa tíma, en eitt stendur þó alltaf upp úr í minningunni, það var blessaða sérríið sem þér þótti svo gott að dreypa á og þegar ég var komin á aldur fékk ég loksins að smakka. Man að ég var búin að bíða svo lengi eftir því. Við fengum okkur oft staup saman þegar ég kom til þín í heimsókn og mikið var spjallað og hlegið. Elsku frænka og vinkona, ég kveð þig með þessum orðum. Góðu stundanna mun ég minnast með gleði í hjarta og þakklæti fyrir þann tíma sem við áttum saman í gegnum árin. Hvíl í friði Inga mín. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (Vald. Briem) Elsku Kata, Stebbi, Hafdís, Sigurvin og Ísabella, ég votta ykkur mína samúð. Anna Sofía Gærdbo. ✝ Ingibjörg Ragn-heiður Svein- björnsdóttir fæddist í Vesturkoti á Skeiðum 30. september 1953. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi 24. janúar 2011. Foreldrar hennar eru Guðrún Sigurð- ardóttir, f. 7. febrúar 1915, og Sveinbjörn Kristjánsson, f. 29. apríl 1913, d. 17. júlí 2003. Systkini Ingi- bjargar eru: Sigrún Gyða, f. 1937, Ólína Kristín, f. 1940, Magnús, f. 1941, Kolbrún, f. 1942, Svanhildur, f. 1947, Sigurður Magni, f. 1951, Hörður, f. 1956, Þröstur Kamban, f. 1959. Systk- inabörnin eru mörg sem Ingibjörg fylgdist vel með. Ingibjörg var í sambúð frá 1992 með Björgvini Guðmundssyni þar til hann lést 27. júlí 2009. Ingibjörg ólst upp í sveitinni til 11 ára ald- urs, þá var hún vistuð á Sólheimum í Gríms- nesi en var mikið heima á sumrin. For- eldrar hennar brugðu búi 1973. Flutti hún með þeim til Reykja- víkur og bjó hjá þeim. Var í starfsþjálfun á Bjarkarási nokkur ár, síðan í Múlalundi. Þegar starfsgetan þvarr fór hún í dag- vistun og var í Iðjubergi síðustu 10 árin. Á sambýlið í Víðihlíð 7 fór Ingibjörg árið 1985. Ingibjörg og Björgvin bjuggu lengst af í Auð- arstræti 15, en síðast í Langagerði 122. Ingibjörg verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju í dag, 2. febrúar 2011, og hefst athöfnin kl. 15. Minningarnar streyma fram, allt frá því að Ingibjörg fæddist. Það var yndisleg lítil stúlka sem kom í heim- inn síðsumars í gömlu baðstofunni í Vesturkoti. Ljósmóðirin setti barnið í hand- klæði og í fangið á stóru systur, sex- tán ára gamalli. Svo vorið eftir, við fermingu næstelstu systur, fékk ég, stóra systir, að halda litlu systur und- ir skírn. Fljótlega kom í ljós að ekki var „allt í lagi“, þroskinn var ekki eins fljótur að koma og hjá öðrum. En per- sónuleikinn var strax skemmtilegur og glaðværðin mikil. Hún var góð og blíð. Hún eignaðist tvo yngri bræður, þremur og sex árum seinna og eldri systkinin eru sex. Ingibjörg ólst upp í sveitinni við allt það frjálsræði sem er þar, samlagað- ist skepnunum, var með í því að reka og sækja kýrnar og gefa kálfunum. En hestarnir voru hennar uppáhald. Hún var ekki gömul þegar hún fór að sitja hest, að príla á bak, og Gráni stóð grafkyrr á meðan, svo skokkaði hann með hana á milli bæja í hverf- inu. Stundum var tvímennt, þá fékk litli bróðir að vera með. Þegar ferð- irnar nálguðust 20 á dag, var Gráni stundum þreyttur og glefsaði laust í þau. Ingibjörg var á Sólheimum í Grímsnesi í nokkur ár en flutti með foreldrum okkar suður og tóku þá við nokkur ár í starfsþjálfun og í dagvist- un, síðan á sambýli. Það var hreykin og sjálfstæð kona sem gaf okkur kaffi í íbúðinni sem innréttuð var fyrir þau Björgvin á efstu hæðinni í Auðarstrætinu. Þau áttu þar mörg góð ár saman. Og hún sagði oft „Ég ræð mér sjálf“. Hún hafði unun af ferðalögum og að fara í heimsóknir til ættingjanna og vera helgi öðru hvoru hjá systkinum sín- um. Nú er hún farin í ferðina löngu og hittir Björgvin sinn, og hún hafði lof- að honum að koma bráðum til hans. Ég þakka fyrir að hafa átt þessa systur og fyrir allt sem hún hefur kennt mér. Gyða systir. Það er með miklum söknuði að ég kveð hana Ingibjörgu móðursystur mína. Satt að segja er ég ekki alveg farin að trúa því að ég eigi ekki lengur von á að fá kremjuknús frá henni með tilheyrandi prakkaraglotti, eitthvað sem enginn maður getur verið án. Eitt var það sem einkenndi Ingu umfram flesta aðra og það var að hún var gleðigjafi. Hún var ein af þessum sjaldgæfu manneskjum sem alltaf eru með bros á vör, tilbúin að umvefja sína nánustu með öllum þeim kærleik sem hún átti til. Og það var betra að vera viðbúin þegar Inga frænka knúsaði því að hún var handsterk í meira lagi. Inga var ættrækin með afbrigðum og vildi hafa ættingja sína og vini sem mest nærri sér. 30. september á hverju ári var dagur sem henni fannst jaðra við að eiga að vera almennur frí- dagur og það var ekki hvaða afsökun sem var tekin gild þegar Inga frænka bauð í afmæli. Það gleyma því fáir sem viðstaddir voru á annað borð þegar afmælisveisla hjá henni stóð sem hæst og fólk sat í litlum hópum og naut veitinga þegar skyndilega var barið hraustlega á stofugluggann að utanverðu, þá hafði hún vippað sér út á svalir og tekið til sinna ráða þegar henni fannst athyglin vera orðin óþarflega lítil í hennar eigin afmæli! Ingu dugðu engin venjuleg orð þegar átti að lýsa ást sinni og söknuði eftir ættingjum og vinum ef henni fannst of langt líða milli endurfunda. Ekki séð þig lengi er orðalag sem flestir nota en það var ekki nógu sterkt orðalag fyrir Ingu, hún varð að nota sterkustu orð sem hún vissi til að lýsa tifinningum sínum og aldrei séð þig lengi var hennar útgáfa. Og það vissi hver manneskja að þegar Inga knúsaði mann nánast til bana og sagði með áherslu um leið og hún lygndi aftur augunum; elsku frænka mín, aldrei séð þig lengi, þá var það meint af öllu hjarta. Hennar Ingibjargar verður sárt saknað. Margrét Birna Auðunsdóttir. Minningar okkar um Ingibjörgu Ragnheiði Sveinbjörnsdóttur eru margar. Þar var á ferðinni ákveðin, skemmtileg og frændrækin kona. Hún hafði mikinn áhuga á fólki al- mennt, aðstæðum þess og þá sérstak- lega af hvaða ætt viðkomandi væri. Ingibjörg var þjóðleg í háttum, fannst fátt skemmtilegra en að borða alvöru íslenskan sveitamat og þá helst eitthvað með beini. Hún var kona með stóra drauma, átti margt eftir ógert eins og þeir vita sem þekkja hana vel. Í vetur stundaði hún nám í Myndlistaskóla Reykjavíkur, var afar ánægð með það. Áhugamálin voru mörg og nýtti Ingibjörg vel tím- ann sem hún fékk. Hún var alltaf eitt- hvað að sýsla heima, prjóna, taka í sundur tæki, horfa á sjónvarpið, hlusta á tónlist, kíkja í blöð eða tíma- rit og skipuleggja framtíðina. Kallið kom fyrr en hún ætlaði. Ingibjörg var ekki búin að lifa alla sína drauma. Hún hafði þó ákveðið legstað sinn við hlið mannsins síns hans Björgvins sem féll frá árið 2009. Við minnumst Ingibjargar með þakklæti og söknuð í hjarta. Með ástarþökk ertu kvödd í hinsta sinni hér og hlýhug allra vannstu er fengu að kynn- ast þér. Þín blessuð minning vakir og býr í vina- hjörtum á brautir okkar stráðir þú, yl og geislum björtum. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Fjölskyldu Ingibjargar sendum við innilegar samúðarkveðjur og þökk fyrir samveruna. F.h. íbúa og starfsfólks í Langa- gerði 122, Hrefna Sigurðardóttir. Ingibjörg var nemandi Myndlista- skólans í Reykjavík nú í vetur. Hún var opin og hlý og hafði mik- inn áhuga á umhverfi sínu og fólkinu í kringum sig. Ingibjörg heilsaði manni innilega, smellti kossi á kinn og spurði gjarnan hverrar ættar maður væri en sjálf sagðist hún vera af Vík- ingaætt. Hún var hrifnæm og hressti oft upp á andrúmsloftið með skemmtilegum athugasemdum um allt milli himins og jarðar. Undanfar- in ár hefur Myndlistaskólinn átt sam- starf við Fjölmennt, fullorðinsfræðslu fatlaðra og þaðan hafa nemendur komið sem sýnt hafa sérstakan áhuga á myndlist. Hópurinn frá Fjölmennt hefur aukið enn á fjölbreytilega flóru nemenda við skólann. Ingibjörg var rétt að byrja sinn námsferil í Mynd- listaskólanum og þó höfðu kennarar hennar á orði að sjaldan hefðu þeir séð jafn mikla framför hjá einum nemanda og í vetur hjá Ingibjörgu. Ekki þekki ég til lífshlaups Ingi- bjargar en sjálfsagt var hún af þeirri kynslóð fatlaðra sem hafði lengi fram- an færri tækifæri í lífinu en eru í boði í dag. Í það minnsta nýtti Ingibjörg sér námið til hins ýtrasta og var glöð og ánægð og deildi þeirri gleði með sam- nemendum sínum og kennurum. Við munum öll sakna Ingibjargar og þyk- ir leitt að hafa ekki fengið að njóta samvista við hana lengur. Fyrir hönd kennara og nemenda Myndlistaskólans í Reykjavík. Ingibjörg Jóhannsdóttir, skólastjóri. Ingibjörg Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir✝Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, SÓLEY TÓMASDÓTTIR, lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 25. janúar. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju föstu- daginn 4. febrúar kl. 13.00. Hallgrímur G. Magnússon, Anna G. Ástþórsdóttir, Hrafn Magnússon, barnabörn og langömmubörn, Fjóla Tómasdóttir. ✝ Ástkær faðir okkar, afi og langafi, ÁRMANN KRISTJÁNSSON, verður jarðsunginn frá Kotstrandakirkju fimmtu- daginn 3. febrúar kl. 13.00. Rögnvaldur Rúnar Ármannsson, Kristín Inga Ármannsdóttir, Ingólfur Ómar Ármannsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, JÓNAS MAGNÚSSON húsasmíðameistari, áður til heimilis að Rauðalæk 32, lést á Hrafnistu í Reykjavík laugardaginn 22. janúar. Útför hans fer fram frá Laugarneskirkju föstudag- inn 4. febrúar kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningar- kort Blindrafélagsins eða Hrafnistu í Reykjavík. Sigríður Þorkelsdóttir. ✝ Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR, Dalbraut 27, áður Espigerði 4, lést á líknardeild Landspítala, Landakoti mánu- daginn 31. janúar. Jarðarför verður auglýst síðar. Björg Helgadóttir, Hróðmar Helgason, Yrsa Björt Löve, Sigríður Hrönn Helgadóttir, Jónas Ingi Ketilsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, KLARA ÞORLEIFSDÓTTIR, Teigaseli 9, Reykjavík, lést á heimili sínu sunnudaginn 30. janúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 11. febrúar kl. 13.00. Þorleifur Jónsson, Halldóra Andrésdóttir, Andrés Þorleifsson, Hjalti Þorleifsson. ✝ JÓNÍDA STEFÁNSDÓTTIR á Sigurðarstöðum er andaðist mánudaginn 24. janúar, verður jarðsungin frá Lundarbrekkukirkju laugardaginn 5. febrúar kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeir sem vilja minnast hennar láti Heilbrigðisstofnun Þingeyinga eða aðrar líknarstofnanir njóta þess. Ríkarður Sölvason, Steinunn Sölvadóttir, dætur hennar og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.