Morgunblaðið - 02.02.2011, Side 30

Morgunblaðið - 02.02.2011, Side 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2011 Verk eftir Stefán Jónsson erusjaldséð á höfuðborg-arsvæðinu en um þessarmundir lætur hann að sér kveða í Sverrissal Hafnarborgar með sýningunni „Kjarvalar“, í frjórri og bráðskemmtilegri samræðu við verk og arfleifð Jóhannesar S. Kjarvals. Til sýnis eru 10 skúlptúrar, eða Kjar- valar, og 8 stafrænt prent sem bera yfirskriftina Kjarval og ég. Ríkuleg efniskennd skúlptúranna vekur strax athygli sýningargesta. Þeir eru unnir með ýmsum efnum, svo sem gifsi, bronsi, steypu, hraungrjóti, flísum, korki, lakki, garni, tré og pappa. Efnin skírskota til listasög- unnar, náttúrunnar, handverks og iðn- aðar auk vísunar af ýmsu tagi í verk Kjarvals. Hraungrjótið í verkinu Kjar- vali XII (Í Meðallandi) er fengið beint úr náttúrunni, ólíkt því sem „flust“ hefur með táknrænum hætti inn í verk Kjarvals og þar með inn á söfn og heimili. Túlkun Stefáns á Botnssúlum í Kjarvala VIII, er á hinn bóginn fyrst og fremst út frá verkum Kjarvals fremur en hinni náttúrulegu fyr- irmynd. Einföld form „fjalla“ eru klædd prjónverki í jarðbundnum litum og þannig vísar verkið til fortíðar og alþýðumenningar. Stöpullinn – undir- staðan – er þakinn blómableiku garni, eins og til að árétta prjónaiðju kvenna, starfa sem á sér stað á heimilinu. Heimilið er raunar ekki langt und- an í Kjarvölum Stefáns, enda ekki ófáir heimilisveggir sem skarta Kjar- valsverki. Oft á tíðum gefa slík verk til kynna borgaralega stöðu eig- endanna eða fjölskyldunnar, auk þess sem þau lýsa tengslum náttúru og sjálfsvitund þjóðarinnar í víðara sam- hengi. Útfærsla verkanna Kjarvali V (Úti og inni), VI (Mosi við Vífilsfell), IX (Snjór og gjá) og XI (Dverghamr- ar) undirstrikar heimilissamhengi listaverkanna á kíminn hátt. Í Kjar- vala V umbreytast mósaíkflísar í „kúbískt“ fjallsform og í Kjarvala IX er kunnuglegur klettur úr verkum Kjarvals mósaíklæddur þar sem hann hvílir á stöpli lögðum venjulegum baðherbergisflísum. Í Kjarvala VI er það annað algengt gólfefni híbýla, korkur, sem tekur á sig svipmót lands í lúmskri skírskotun til þeirra „verð- mæta við hvert fótmál“ sem hraunið, grjótið og mosinn í verkum Kjarvals opnaði augu þjóðarinnar fyrir, eins og oft er sagt. Stefán vekur þarna áleitn- ar spurningar um gildismat, ekki síst hvað snertir viðhorf til náttúru, listar og markaðsvæðingar, og sókn eftir efnislegum gæðum. Mörk listaverka, nytjahluta og hönnunar eru á reiki í verkinu Kjarvali XI þar sem slegið er saman landslagssýn Kjarvals á Dverghamra og fjöldaframleiddum, lituðum glösum af ýmsum stærðum og gerðum sem standa á gulu borði, eða stalli. Stefáni er hugleikið hversu Kjar- valsverk, jafnvel sem hlutir meðal hluta, eru samofin menningarvitund- inni sem merkingarbær stef, minni eða tákn í hversdagslegri tilveru. Borgarsamhengi hinnar manngerðu náttúru er undirstrikað í „endurgerð“ Stefáns á Fjallamjólk Kjarvals, eða Kjarvali IV: viðarkubbum á trékassa er hafa ásýnd borgarlandslags. Pens- ilför á gifsformi á pappastöpli í Kjar- vala X (Landslag) leiða hugann und- ireins að málverkum Kjarvals, jafnvel þótt efniviðurinn sé fábrotinn og fjöldaframleiddur, auk þess að vísa til safngeymslna. Skúlptúrarnir hafa tvívíða virkni í þeim skilningi að þar er gert ráð fyrir að horft sé að mestu beint fram á þá, líkt og sést í tvívíðu verkunum, Kjarval og ég. Þar virðast áhrif Kjarvals yfirþyrmandi; svo er sem sýn listamannanna tveggja hafi runnið saman – er unnt að greina þarna á milli? Það býr í senn smitandi leikgleði og íhugun í verkum Stefáns sem útfærð eru af næmri tilfinningu. Kjarval er miðlægur á sýningunni en verkin búa engu að síður yfir eigin aðdráttarafli, um leið og þau bregða upp óvæntum og ögrandi sjónarhornum á verk Kjar- vals og arfleifð. Raunar eru þau prýði- legt dæmi um hvernig unnt er að spinna áfram þræði úr listasögunni þannig að hún birtist okkur sem sí- kvikt og lifandi afl. Kjarvalar á kreiki Morgunblaðið/Golli Listamaðurinn Stefán Jónsson við verk sinn Kjarvali III. Morgunblaðið/Golli Gólfefni „Stefán vekur þarna áleitnar spurningar um gildismat...“ Hafnarborg – Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Kjarvalar – Stefán Jónsson bbbbm Til 6. febrúar 2011. Opið kl. 11-17 alla daga, fimmtud. til kl. 21. Lokað á þriðju- dögum. Aðgangur ókeypis. ANNA JÓA MYNDLIST Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Þau Libia og Ólafur eru sífellt að takast á við fé- lagslegar og pólitískar spurningar; þau eru ekki aðgerða- sinnar en vinna sem slíkir innan listarinnar,“ segir þýski sýningarstjórinn Ellen Blumenstein. Hún er að tala um myndlist tvíeykisins Libiu Castro og Ólafs Ólafssonar sem verða fulltrúar Íslands á Feneyjatvíæringnum sem verður opnaður í júní næstkomandi. Blumenstein var á síðasta ári ráðin sýningarstjóri verkefnsisins. Þau búa öll og starfa í Berlín og hafa átt í miklum samræðum þar síðustu mánuði en Blumenstein hefur starfað sem sýn- ingastjóri í rúman áratug og sett upp fjölda sýninga. Blumenstein segir að á síðustu vikum hafi skýrst hvaða stefnu sýning þeirra Libiu og Ólafs í Feneyjum taki. „Þar koma saman verkefni og þræðir sem þau hafa unnið með síðustu ár,“ segir hún. Þau Libia og Ólafur hafa sýnt reglulega hér heima en starfa annars á meg- inlandi Evrópu. „Eitt verkið sem þau vinna áfram með, en með nýjum fókus, kannast margir við; „Your Country Doesn’t Exist“. Þau byrjuðu að vinna með þá hugmynd árið 2003 og hafa gert nokkrar útgáfur af því, hér á Ís- landi og erlendis. Það verður sett upp á nýjan hátt sem verk í opinberu rými í Feneyjum.“ Þau Libia og Ólafur munu því bæði vinnan innan nýs sýningarrýmis sem ríkið hefur leigt úti í borginni, ekki fjarri húsnæðinu sem Ragnar Kjartansson og Stein- grímur Eyfjörð sýndu í á síðustu tvíæringum, en einnig í opinberu rými í borginni. Verkin bæði alvarleg og mótuð af leik Í list sinni fást Libia og Ólafur við ákveðin ferli og vinna með ýmsa miðla, myndbönd og hljóð þar á meðal. Þegar Blumenstein er beðin um að lýsa list þeirra segir hún að þau hafi upp á síðkastið rætt þær skilgreiningar. „Ég sagði að mér þætti erfitt að lýsa verkunum þeirra í einni eða tveimur setningum en þá spurðu þau: hvers vegna ættirðu að vilja gera það?“ segir hún og hlær. „Verk þeirra eru í senn alvarleg og mótuð af ákveðnum leik, ákveðnum húmor. Ég ímynda mér að hugmyndaauðgi þeirra sé svo mikil þar sem þau hafa af- ar ólíkan bakgrunn, hér á Íslandi og á Spáni, og hafa ólík áhugamál. Listin er vettvangur þar sem þessi áhugamál þeirra mætast, á áhugaverðan hátt. Ólafur og Libia spyrja ákveðinna spurninga, eins og hvað við sem eintaklingar getum gert innan samfélags- ins. Þau takast á við pólitískar spurningar sem þau færa iðulega út úr safninu eða sýningarýminu; þau flytja listina út í samfélagið og samfélagið inn í listheiminn.“ Blumenstein segir að þótt Libia og Ólafur vinni með tæki listheimsins þurfi fólk ekki að vera innvígt í þann heim, því þau vinna oft með myndbönd og kvikmyndir sem má horfa á á sama hátt og tónlistarmyndbönd. „Og fyrir vikið virka verkin ekki bara innan listheimsins held- ur stökkva út úr honum,“ segir hún. Í sambandi við sýningu Libiu og Ólafs í Feneyjum kemur út sýningarskrá þar sem í fyrsta sinn verður fjallað ítarlega um listsköpun þeirra síðasta áratug. Vinna eins og aðgerðas- innar innan listarinnar  Ellen Blumenstein er sýn- ingastjóri Libiu Castro og Ólafs Ólafssonar í Feneyjum Morgunblaðið/Einar Falur Ellen Blumenstein Sýningarstjórinn segir að á sýningu Ólafs og Libiu komi saman þræðir úr fyrri verkum. 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Ofviðrið – „Ógleymanleg stund,“ B.S pressan.is Ofviðrið (Stóra sviðið) Fim 3/2 kl. 20:00 9.k Sun 20/2 kl. 20:00 Sun 13/3 kl. 20:00 Fim 10/2 kl. 20:00 10.k Fim 3/3 kl. 20:00 Fim 17/2 kl. 20:00 7.k Fim 10/3 kl. 20:00 Ástir, átök og leiftrandi húmor Fjölskyldan (Stóra svið) Fös 4/2 kl. 19:00 auka Fös 11/2 kl. 19:00 aukas Sun 27/2 kl. 19:00 lokas Lau 5/2 kl. 19:00 aukas Lau 19/2 kl. 19:00 aukas Síðustu sýningar Faust (Stóra svið) Sun 6/2 kl. 20:00 aukas Sun 13/2 kl. 20:00 aukas Lau 12/2 kl. 20:00 aukas Fös 18/2 kl. 20:00 lokas Aukasýningar vegna fjölda áskorana Elsku Barn (Nýja Sviðið) Mið 2/2 kl. 20:00 Mið 9/2 kl. 20:00 Mið 16/2 kl. 20:00 Fim 3/2 kl. 20:00 Fim 10/2 kl. 20:00 Fim 17/2 kl. 20:00 lokas Sýningum lýkur í febrúar! Afinn (Litla sviðið) Fim 3/2 kl. 20:00 Fös 11/2 kl. 19:00 Fös 18/2 kl. 19:00 Fös 4/2 kl. 19:00 Lau 12/2 kl. 19:00 Lau 19/2 kl. 19:00 Lau 5/2 kl. 19:00 Sun 13/2 kl. 20:00 Sun 20/2 kl. 20:00 Sun 6/2 kl. 20:00 Fim 17/2 kl. 20:00 Sun 27/2 kl. 20:00 Óumflýjanlegt framhald Pabbans Nýdönsk í nánd (Litla svið) Mið 9/2 kl. 20:00 frums Mið 23/2 kl. 20:00 4.k Fös 25/2 kl. 22:00 Fim 10/2 kl. 20:00 2.k Fim 24/2 kl. 20:00 5.k Mið 16/2 kl. 20:00 3.k Fös 25/2 kl. 20:00 6.k Sáldrandi brjáli sem aldrei fyrr Skoppa og Skrítla á tímaflakki (Litla svið) Lau 5/2 kl. 14:00 Sun 13/2 kl. 14:00 Lau 26/2 kl. 14:00 Sun 6/2 kl. 14:00 Lau 19/2 kl. 14:00 Sun 27/2 kl. 14:00 Lau 12/2 kl. 14:00 Sun 20/2 kl. 14:00 Bestu vinkonur allra barna Ath. Sýningar hefjast kl. 19:00 Nánar á leikhusid.is Sími miðasölu 551 1200 Mbl, GSP ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.