Morgunblaðið - 02.02.2011, Side 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2011
ákvarðanir. Okkar sýn á heri er að
þar er alltaf einn maður á toppnum,
sem tekur ákvarðanir, sem aðrir
undirmenn hans fylgja mögl-
unarlaust.
Svo var því ekki farið meðmálaliðana tíu þúsund. Jafnvel
áður en leiðtogarnir voru teknir af
lífi í miðri Persíu er greinilegt að
grísku málaliðarnir eru óvenju-
legir. Nær allar stórar ákvarðanir
kalla á fund allra hermannanna þar
sem hver og einn hefur rétt til að
láta sínar skoðanir í ljós og svo er
reynt að ná einhvers konar sátt um
AF FORNFRÆÐUM
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Fyrir snilld hátækninnar,iPod Touch annars vegarog Stanza forritsins hins
vegar hef ég sankað að mér nokkr-
um klassískum ritum, grískum og
rómverskum. Ég tel að menntun
mín sé ófullkomin – ekki að mennt-
un manns sé nokkurn tímann full-
komin eða að henni sé nokkurn tím-
ann lokið – þar sem ég hef ekki
lesið þessi rit.
Fyrst fyrir valinu varð meist-araverkið Anabasis eftir
Xenofón, sem skrifað er á fjórðu
öld fyrir Krist. Anabasis (sem út-
leggja má á íslensku sem „Ferðin
inn í land“) segir frá för 10.000
grískra málaliða, sem tóku þátt í
uppreisn Cýrusar gegn bróður sín-
um, sem þá var Persakóngur. Í orr-
ustu við Cunaxa komst her Cýrusar
nærri því að vinna sigur, en vinnu-
veitandi málaliðanna féll hins vegar
í orrustunni. Persarnir tóku af lífi
alla helstu leiðtoga málaliðanna, en
náðu ekki að grípa hermennina
sjálfa. Þeir þrömmuðu langa leið að
Svartahafi og tóku þar skip aftur
heim til Grikklands. Leiðin var löng
og ströng, enda þurftu þeir að
kljást við bræðandi eyðimerkursól
og nístandi kulda í fjöllum Litlu-
Asíu á meðan þeir þurftu að berjast
við persneska herflokka nær alla
leiðina.
Afrek málaliðanna er mikið ogsagan er spennandi, en það
sem vakti einna mestan áhuga hjá
mér var það hvernig herinn tók
næstu skref. Leiðtogarnir á leiðinni
inn í land beittu vissulega alls kyns
brögðum til að fá mennina á sitt
band, en aldrei var neinn vafi um
hvar valdið lá. Undirliggjandi er sú
almennt viðurkennda staðreynd að
hverjum hermanni var frjálst að
standa upp og labba frá hernum.
Málaliðunum tíu þúsund hef-ur því verið líkt við gangandi
borgríki, þar sem menn kusu leið-
toga sína, gjaldkera og greiddu at-
kvæði um hvernig takast ætti á við
hinar ýmsu hindranir. Þetta voru
ekki endilega bestu synir Grikk-
lands, því þeir voru jú menn sem
voru tilbúnir að berjast og drepa
ókunnuga fyrir gull og loforð um
jarðir og góðar stöður hjá Cýrusi
eftir ætlaðan sigur hans. En hug-
myndin um að hver þeirra hefði
mikilvæg og óaðskiljanleg réttindi
var svo sterk að þeir fórnuðu henni
ekki þótt umkringdir væru óvinum
í miðju fjandsamlegu landi. Einhver
gæti haldið að þetta stjórnleysi
myndi leiða til þess að ákvarðanir
væru seint teknar og að stjórn
flokksins einkenndist af ringulreið,
en svo er ekki. Gangan að hafinu
tók vissulega sinn tíma, en lang-
stærstur hluti málaliðanna komst
heilu og höldnu á áfangastað. Þótt
saga af gráðugum málaliðum sé ef
til vill ekki til þess fallin að auka
hróður lýðræðislegra vinnubragða
sýnir hún samt að ríki, þar sem
flestir fá að koma að ákvarð-
anatöku og hlustað er á allar hug-
myndir er síst verra stjórnarform
en alræði hinna fáu.
Sagan minnti mig líka á sög-una af því þegar herir Oktav-
íanusar og Antóníusar stóðu hvor
gegn öðru nærri Brundisium 360
árum eftir göngu Xenófóns og fé-
laga. Þá hafði Rómarveldi logað í
borgarastríði um margra ára skeið
og voru hermennirnir orðnir lang-
þreyttir á að berjast við samborg-
ara sína. Hundraðshöfðingjar í
herjunum tveimur ákváðu því að nú
væri nóg komið og neytuðu að berj-
ast. Óbreyttir hermennirnir tóku
mark á þessu og lögðu líka niður
vopn og þurftu hershöfðingjarnir
tveir því að tala saman eins og sið-
aðir menn. Hippar spurðu stundum
á sjöunda áratugnum hvað myndi
gerast ef kallað væri til stríðs og
enginn mætti á staðinn. Hundraðs-
höfðingjarnir svara þessari spurn-
ingu afar vel.
Gangandi borgríki
»Málaliðunum tíuþúsund hefur því
verið líkt við gangandi
borgríki, þar sem menn
kusu leiðtoga sína,
gjaldkera og greiddu
atkvæði um hvernig
takast ætti á við hinar
ýmsu hindranir.
Hörfað Málaliðarnir 10.000 hopa á þessu málverki Jean Adrien Guignet en verkið er í Louvre-safninu góða.
LAUGARÁSBÍÓ
THE FIGHTER Sýnd kl. 8 og 10:20
THE GREEN HORNET 3D Sýnd kl. 8
ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI 3D Sýnd kl. 6 ísl. tal
SAW 3D Sýnd kl. 10:20 ótextuð
ALFA OG ÓMEGA Í 2D Sýnd kl. 6 ísl. tal
LITTLE FOCKERS Sýnd kl. 8 og 10
HHHHH
„SKEMMTILEG, FYNDINN
OG SPENNANDI”
- S.V BOXOFFICE MAGAZINE
SPENNANDI ÆVINTÝRI SEM FÆR ÞIG
TIL AÐ GRENJA ÚR HLÁTRI. FRÁBÆR
TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA.
LÖGIN ERU BROTIN
ÞEIM TIL BJARGAR
í3D SÝND Í 3D
HROTTALEG SPENNA
Í ÞVÍVÍDD Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þúgreiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum
Sýningartímar
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
VINSÆLA
STA
MYND VE
RALDAR
ÞRJÁR V
IKUR Í RÖ
Ð!
NÁNARI UPPL. Á AF.IS OG MIDI.IS
SMÁRABÍÓ Nánar á Miði.is
Nánar á Miði.isBORGARBÍÓ
THE DILEMMA kl. 5.50 - 8 - 10.10
THE GREEN HORNET 3D kl. 8 - 10.10
ALFA OG ÓMEGA 3D kl. 5.50
L
12
L
Nánar á Miði.is
THE DILEMMA kl. 5.30 - 8 - 10.30
THE DILEMMA LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30
THE GREEN HORNET 3D kl. 5.25 - 8 - 10.35
BURLESQUE kl. 8 - 10.35
ALFA OG ÓMEGA 3D kl. 3.30
THE TOURIST kl. 5.40 - 8 - 10.20
GULLIVER´S TRAVELS 3D kl. 3.30 - 5.50
MEGAMIND 3D ÍSL. TAL KL. 3.40
NARNIA 3 3D KL. 3.30
L
L
12
L
L
12
L
L
7
THE FIGHTER KL. 5.30 - 8 - 10.30
BURLESQUE KL. 10.10
GAURAGANGUR KL. 5.50 - 8
LÍFSLÖNGUN kl. 6 Enskur texti
BARA HÚSMÓÐIR kl. 8 Enskur texti
HVÍTAR LYGAR kl. 5.20 Íslenskur texti
EINS OG HINIR KL. 8 Enskur texti
ÆVINTÝRI ADÉLE KL. 10 Íslenskur texti
VELKOMIN KL. 10 Enskur texti
14
L
7
L
L
L
L
L
L
HÁSKÓLABÍÓGLERAUGU SELD SÉR 5%
Ath: Tilboðin gilda ekki í Borgarbíó/haskolabio/smarabio
-Þ.Þ., FRÉTTATÍMINN-H.S.S., MBL
5%
Titilllag næstu plötu Fleet Fox-
es, Helplessness Blues, er farið
að fljóta um netið. Platan kem-
ur út í maí komandi. Óhætt er
að segja að tónlistaráhugafólk
bíði spennt eftir þessari næstu
plötu Fleet Foxes en frum-
burður þessarar Seattle-
sveitar sem kom út 2008 var
lofaður í hástert og toppaði
ófáa árslista málsmetandi tón-
listargagnrýnenda.Nýmeti Fleet Foxes.
Nýtt lag frá
Fleet Foxes Ringo Starr, trymbillinn knái og
kersknislegi, hefur sótt um einka-
leyfi fyrir nafninu Ringo og hyggst
hann nota það í tölvuleikjagerð
samkvæmt því sem breskir miðlar
komast næst. Miklar vangaveltur
eru nú um það í Bretlandi hvað
Ringo hyggst nákvæmlega gera.
Kannski er hann kominn á bragðið
eftir góða sölu á The Beatles Rock
Band leiknum?
Ringo er með varirnar læstar
hvað málið varðar og hvorki geng-
ur né rekur hjá breskum miðlum að
fá hann til að láta nokkuð uppi.
Það var sumarið 2009 sem hann
og McCartney, bassagígjuleikari
Bítalanna mættu glaðbeittir til að
kynna leikinn áðurnefnda en hann
hefur nú selst í um 2 milljónum ein-
taka.
Síðasta hljómplata Starr kom út
á síðasta ári, Y Not, og þótti svona
skítsæmileg, ekki mikið meira en
það. Sólóferill Starr hefur verið
gloppóttur í meira lagi þannig að
tölvuleikjabransinn er kannski upp-
lagður fyrir hann …
Morgunblaðið/Ómar
Tölvugúrú Ringo gamli Starr.
Ringo í tölvuleikjagerð?