Morgunblaðið - 25.02.2011, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2011
Komdu í VIST og hafðu samskipta- og upplýsinga-
tæknimál fyrirtækisins á einum og öruggum stað.
VIST byggir á grunnpakka sem inniheldur m.a.
heimasvæði, tölvupóst, öryggisvarnir og afritun
– á föstu mánaðargjaldi fyrir hvern starfsmann.
[VIST]
UT-lausnir fyrir
þitt fyrirtæki
Það er
800 4000 – siminn.isAfritun Öryggi Rekstrarþjónusta Hýsing Tímasparnaður
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Við vissum ekki mikið umÍsland áður en við komumhingað, en það hefur sann-arlega komið á óvart.
Mannlífið er frábært og hér þekkja
allir alla og allt er svo frjálst og af-
slappað í skólanum,“ segja þau Phil
Widiger og Alexandra Llouquet sem
bæði hafa verið skiptinemar hér á
Íslandi frá því í ágúst á síðasta ári.
Phil er frá Þýskalandi og er 17 ára
en Alexandra er frönsk og sextán
ára. Þau stunda nám í Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti og kunna því
vel. Þau segja skólareglurnar mun
strangari í heimalöndum þeirra en
hér á landi. „Í Frakklandi og Þýska-
landi er miklu stærra bil á milli
kennara og nemenda. Hér eru allir
meira eins og jafningjar. Hér má
borða í tímum og fara á klósettið ef
maður þarf og það er ekkert stórmál
þótt síminn hringi. Við yrðum rekin
úr tíma ef það gerðist heima hjá
okkur, síminn yrði sennilega tekinn
af okkur. Heima í Þýskalandi er líka
allt svo niðurnjörvað og skipulagt,
ólíkt því sem hér er,“ segir Phil.
Hann er umvafinn stelpum
Alexandra segir að heima í
Frakklandi sé skóladagurinn líka
miklu lengri. „Mér finnst frábært að
hafa svona mikinn tíma til að vera
með vinum mínum hér á Íslandi. Við
höfum líka miklu meira val hérna
þegar kemur að fögum í skólanum.
Ég er til dæmis í jóga og Phil er í
júdó.“
En hvernig er að vera útlendur
nemandi á Íslandi? Eru krakkarnir
spenntir fyrir þeim af því þau eru
útlendingar eða forðast þau af þeim
sökum? „Það er misjafnt, en íslensk-
ar stelpur eru mun opnari fyrir er-
lendum nemendum en strákarnir.
Íslenskir vinir okkar eru langflestir
kvenkyns, Phil er umvafinn stelpum
öllum stundum,“ segir Alexandra og
hlær og bætir við að hún eigi aðeins
einn íslenskan strák fyrir vin, allir
hinir vinirnir séu stelpur. Þau segja
skemmtanalífið hér ekki svo ólíkt
því sem þau eigi að venjast í sínum
heimalöndum, margir krakkar á
framhaldsskólaaldri fari út á lífið og
séu byrjuð að drekka. Phil segist
fara meira í samkvæmi heima í
Þýskalandi og þar gisti hann oft hjá
vinum sínum en hér þurfi hann
helst að vera kominn heim um
klukkan eitt eftir miðnætti.
Víkingar og ísbirnir
Alexandra segir ástæðu þess
að hún kom hingað sem skipti-
nemi þá að það sé nánast
hefð í hennar fjöl-
skyldu að fara til
útlanda sem skipti-
nemi. „Mamma fór
sem skiptinemi til Bandaríkjanna og
systir mín fór til Panama, en hún
starfar auk þess núna í AFS-
samtökunum. Mér finnst gaman að
ferðast og ég var því ákveðin í að
prófa þetta. Þegar ég valdi Ísland
vissi ég í raun ekkert um landið
frekar en aðrir Frakkar sem tengja
Ísland við víkinga sem lifa með ís-
björnum á norðurpólnum. Og vinir
mínir sögðu mér að passa mig á
mörgæsunum. En þegar ég fór að
lesa mér til fannst mér landið mjög
spennandi og sé ekki eftir að hafa
komið hingað.“ Phil segir ástæðu
þess að hann ákvað að gerast skipti-
nemi vera þá að hann hefur mikinn
áhuga á tungumálum og langaði til
að kynnast ólíkri menningu og
mannlífi annars lands. „Foreldrar
mínir hvöttu mig óspart, sögðu þetta
tækifæri aðeins gefast einu sinni og
ég ætti ekki að láta það framhjá mér
fara. Nokkrir vina minna höfðu
komið til Íslands og sögðu náttúr-
una hér fallega og samfélagið
skemmtilegt, svo ég ákvað að fara
hingað, mér fannst það mátulega
ævintýralegt.“
Phil segir að Ísland hafi farið
Passið ykkur
á mörgæsunum
Þeim finnst allt frekar afslappað og notalegt hér á Íslandi og merkilegt hvernig all-
ir þekkja alla. Þeim finnst íslenska tónlistarflóran kræsileg og landið og lífið hér
hefur komið skiptinemunum Phil og Alexöndru skemmtilega á óvart.
Frakkland Á heimaslóðum Alexöndru, Torcy, rétt utan við París.
Svalur Phil lætur sig fljóta um í sjónum í sumarfríi heima í Þýskalandi.
Það fer sjaldan jafn mikið fyrir vef-
síðum fyrir karla og konur. Ein karla-
síða ber þó af þeim sem í boði eru,
síðan Artofmanliness.com þar sem
karlmenn ættu að finna svör við öll-
um sínum spurningum og meira til.
Það eru hjónin Brett og Kate
McKay sem stofnuðu síðuna í janúar
2008 og hefur heimsóknum á hana
fjölgað í hverri viku síðan. Brett seg-
ir að hugmyndin að Art of Manliness
hafi komið þegar hann var að lesa
karlatímarit í bókabúð og fannst
innihald þeirra heldur rýrt, eintómar
greinar um kynlíf og magavöðva,
eins og það sé það eina sem karl-
mennskan snýst um. Þau ákváðu því
að setja á fót þessa vefsíðu og af-
hjúpa listina að vera karlmaður sem
var týnd að þeirra mati. Þau líta
mikið til fortíðar og finna þar dæmi
um karlmennsku í verki.
Á Artofmanliness.com má lesa
greinar sem eiga að hjálpa karl-
mönnum að verða betri eiginmenn,
feður og betri karlmenn. Þarna má
lesa greinar um hvernig karlmenn
eiga að klæða sig og hugsa um sig,
um sambönd og fjölskyldulíf, vinn-
una, heilsu og íþróttir og bara líf
karlmannsins almennt. Hægt er að
sjá hvert er vinsælasta efnið á síð-
unni og í gær var efst listi yfir 100
bækur sem karlmenn verða að lesa,
svo kemur grein um hvernig á að
raka sig eins og afi gerði, einnig er
grein um það hvernig á að kveikja
eld án eldfæra, listi yfir tíu verstu
vörur sem hafa verið framleiddar
fyrir karlmenn, hvernig á að ganga
með hatt og grein um það hvernig
karlmenn eiga að hætta að hanga
með konum og fara frekar á stefnu-
mót með þeim. Aðdáendur sjón-
varpsþáttanna Mad Men, þar sem
karlmennskan og snyrtimennskan er
í hávegum höfð, eiga eftir að
vera hrifnir af þess-
ari vefsíðu.
Vefsíðan www.artofmanliness.com
Karlmennska Hvernig á að vera herramaður af gamla skólanum?
List karlmennskunnar
Það er stundum erfitt að bíða þeg-
ar von er á góðu. Í byrjun mars-
mánaðar sendir Sin Fang (hét áður
fullu nafni Sin Fang Bous) frá sér
sína aðra sólóplötu, mun hún bera
nafnið Summer Echoes. Sú fyrri
nefnist Clangour og kom út 2008.
Sin Fang er Sindri Már Sigfússon
í Seabear og þeir sem hafa fylgst
með Seabear og fyrri sólóverk-
efnum Sindra bíða nú líklega
óþreyjufullir eftir því sem verður
eflaust næsta meistaraverk. Fyrir
óþreyjufulla er hægt er að sjá mjög
flott myndband við lagið „Because
of The Blood“, sem er á nýju plöt-
unni, á netinu, til dæmis á Youtube.
Hlakkið svo til.
Endilega …
… hlakkið til Summer Echoes
Morgunblaðið/Eggert
Sin Fang Sindri Már er að senda frá sér sína aðra sólóplötu sem Sin Fang.