Morgunblaðið - 25.02.2011, Page 28
28 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HÆTTU AÐ
HAFA ÁHYGGJUR
AF ÞESSUM FANTI
ÉG HEFÐI ÁTT
AÐ STANDA
Í HONUM
ÆI JÓN... ÉG ER EKKI
AÐ LEITA AÐ STERKUM
KARLMANNI, ÉG VIL BARA...
...ÞIG! ER ÞAÐ? ÞAUERU
FULLKOMIN
FYRIR HVORT
ANNAÐ
ÉG
HELD AÐ VIÐ
VANMETUM
MIKILVÆGI
DAGBLAÐA
VIÐ GERUM OKKUR EKKI
GREIN FYRIR ÞVÍ HVERSU
MIKIÐ KRAFTAVERK ÞAU ERU
ÉG Á SAMT ERFITT MEÐ AÐ
ÚTSKÝRA HVAÐ ÞAÐ ER SEM
ÉG ER SVONA ÁNÆGÐUR MEÐ
MAÐUR GETUR TEKIÐ ÞAU
MEÐ SÉR Á KLÓSETTIÐ
MORGUN-
MATURINN
ER TILBÚINN!
SVONA
KOMDU ÞÉR
Á FÆTUR!
EN
ÉG FÓR
SVO SEINT
AÐ SOFA Í
GÆR
GEYMDU ÞETTA
BARA, ÉG BORÐA
ÞETTA Í HÁDEIGINU
HVAÐ Á ÉG ÞÁ AÐ GERA
VIÐ PYLSURNAR, BEIKONIÐ,
EGGIN, VÖFFLURNAR OG
KAFFIÐ SEM ÉG ER BÚIN
AÐ HAFA TIL!?
KANNSKI VAR
MÉR BARA SAGT UP
STÖRFUM VEGNA ÞESS
AÐ ÉG ER EKKI NÓGU
MENNTAÐUR
ÞAÐ ER
EFLAUST
EINA
ÁSTÆÐAN
ÞÚ ÞARFT
BARA AÐ MENNTA
ÞIG MEIRA OG ÞÁ
GETURÐU FENGIÐ
GÖMLU VINNUNA
ÞÍNA AFTUR
MÉR ÞYKIR
LÍKA VÆNT UM
ÞETTA TRÉ EN VIÐ
VERÐUM AÐ
FELLA ÞAÐ
EN
SÉRFRÆÐINGURINN
SAGÐI AÐ ÞAÐ VÆRI
ÖRYGGT Í BILI
HANN
SAGÐI LÍKA
AÐ TRÉÐ
VÆRI ORÐIÐ
MJÖG GAMALT
ÞETTA
TRÉ GÆTI
STAÐIÐ Í MINST
10 ÁR Í VIÐBÓT.
STENDUR EFLAUST
ÞANGAÐ TIL VIÐ
SELJUM HÚSIÐ
EÐA
VIÐ LIFUM
EKKI NÓGU
LENGI TIL AÐ
SELJA HÚSIÐ!
SJÁÐU
BARA, ÞETTA TRÉ
STENDUR EINS
OG KLETTUR
ÞAÐ MÆTTI HALDA AÐ
ARMARNIR ÞÍNIR VÆRU LIFANDI!
EN
ÞEIR HAFA
SAMT EKKERT
Í MIG!
OG
NÚNA MUNTU
FÁ FYRIR
FERÐINA
EF
WOLVERINE
ER HÉRNA
ÞÁ ER PETER
HÉRNA LÍKA
Á MEÐAN...
Týndur köttur
í Kópavogi
Herkúles er grá-
bröndóttur högni sem
tapaðist frá Meltröð í
Kópavogi (nálægt
MK) hinn 19. janúar síðastliðinn.
Hefur ekkert til hans spurst síðan.
Herkúles er geldur, eyrnamerktur
08G123 og var með svarta ól þegar
hann hvarf. Hann er mjög gæfur og
lítið mál að nálgast
hann. Hans er mjög
sárt saknað. Vinsam-
legast látið vita ef þið
hafið verðið hans vör,
Sigurbjörg sími 690-
2019.
Vegna kvæðisins
Eitt sinn um þögla
aftanstund
Mig langar að biðja
konuna frá Hvamms-
tanga, sem er að leita
eftir kvæðinu Eitt sinn
um þögla aftanstund,
að hringja í síma 456-
8153.
Kristjana.
Ást er…
… langhlaup en ekki
spretthlaup.
Velvakandi
Herkúles er týndur.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, bingó
kl. 13.30.
Árskógar 4 | Smíðastofa kl. 9. Bingó kl.
13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Kertanámskeið kl. 9,
sögustund kl. 13, leikfimi kl. 13.45, handa-
vinna allan daginn.
Dalbraut 18-20 | Söngstund kl. 14.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8,
botsía kl. 10.45.
Ferðaklúbburinn Flækjufótur | Eigum
nokkur sæti laus í ferðina til Ítalíu 4.-11.
júní nk. Allar uppl. í síma 898-2468.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fundur
FEBK í Félagsheimilinu Gjábakka, Fann-
borg 8, laugardaginn 26. febrúar kl. 14.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra
mætir á fundinn og ræðir um málefni
aldraðra. Kaffiveitingar í boði félagsins.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Fær-
eyingasaga kl. 13, leikfélagið Snúður og
Snælda sýnir Rauðu klemmuna í Iðnó á
sun. kl. 14, miðasala í Iðnó s. 562-9700.
Dansleikur sunnudag kl. 20, Sighvatur
Sveinsson leikur fyrir dansi.
Félagsheimilið Boðinn | Samverustund
með prestum Kópavogssóknar kl. 13.30.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofa, málm- og silfursmíði kl. 9.30/
13, botsía kl. 9.30/13, jóga kl. 10.50, fé-
lagsvist kl. 20.30.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 9.15/12.10, málun kl. 10,
félagsvist/leðursaumur kl. 13. Dansiball í
Jónshúsi kl. 20, Þorvaldur Halldórsson,
miðaverð kr. 1000.
Háteigskirkja – starf eldri borgara |
Brids-aðstoð kl. 13.
Hraunbær 105 | Bingó kl. 13.30.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, leikfimi kl.
11.30, brids kl. 12.30, biljardstofa og pílu-
kast í kjallara alla virka daga kl. 9.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30, 9.30
og 10.30. Opin vinnustofa kl. 9 án leið-
beinanda. Myndlist kl. 13. Bíó kl. 13.30,
kaffisala.
Hæðargarður 31 | Guðrún Ögmunds-
dóttir morgungestur kl. 10 mán. 28. febr-
úar. Tölvuleiðbein. alla mánudaga kl.
13.15. Sigríður Kristjánsdóttir leiðbeinir.
Bókmenntaklúbbur 1. mars kl. 20.
Soffíuhópur flytur dagskrá 4. mars til
heiðurs Vilborgu Dagbjartsdóttur. Mynd-
listarsýning listasmiðju opnuð kl. 14 í dag.
Íþróttafélagið Glóð | Botsía í Gjábakka
kl. 13.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða-
klúbbur kl. 10.10, leikfimi kl. 11, opið hús,
spil vist/brids kl. 13, hárgreiðslust. opin.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða-
klúbbur kl. 10.10, leikfimi kl. 11, bingó kl.
13.30, kaffiveitingar kl. 14.30.
Norðurbrún 1 | Myndlist og útskurður kl.
9.
Vesturgata 7 | Skartgripagerð/kortagerð
kl. 9, enska kl. 11.30. Tölvukennsla kl.
13.30. Sungið v/flygilinn kl. 14.30. Dans-
að í aðalsal.
Grjótharðir bændur æfa nú leik-ritið Með fullri reisn hjá Leik-
félagi Hörgdæla, sem hefur verið
staðfært heim í Hörgárdalinn. Í
sýningunni sjá bændur sér þann
kost vænstan í kreppunni að halda
konukvöld, þar sem fötum verður
fækkað. Leikritið verður frumsýnt
í byrjun mars að Melum í Hörg-
árdal. Höskuldi Jónssyni varð að
orði er hann heyrði af uppátækinu:
Hörgdælar nú gerast grand,
grunnstoð vex í sveitum.
Nú er þakið Norðurland
nöktum kroppum heitum.
Og vísa fæddist fullsköpuð hjá
Sigmundi Benediktssyni:
Ekkert þeirra ástir þvingar,
áfram ríkir stanslaust geim.
Naktir eru Norðlendingar,
nú er ekki kalt hjá þeim.
Það hafa skapast líflegar um-
ræður um endurútgáfu Skólaljóða,
ekki aðeins í Kiljunni, heldur einn-
ig á fésbók og víðar. Það hversu
mikla athygli útgáfa bókarinnar
vekur og hversu mjög skýtur í tvö
horn með fólki, er auðvitað til
marks um að fólki stendur ekki á
sama og að bókin er enn ofarlega í
huga Íslendinga, mörgum hjart-
fólgin.
Umsjónarmaður getur sagt fyrir
sjálfan sig, að hann myndi sakna
þess ef hann sæi ekki móta fyrir
bláum kili meðal ljóðasafna í eigu
sinni. Og teikningar Halldórs Pét-
urssonar gæða kveðskapinn lífi.
Það má auðvitað alltaf deila um
val á kvæðum í ljóðasöfn, ekki síst
þau sem ætluð eru til kennslu í
skólum. Slíkt val er undirorpið tíð-
arandanum hverju sinni, að
minnsta kosti í kringum þann sem
velur. Um sumt verður þó ekki
deilt, eins og haustvísu Kristjáns
fjallaskálds:
Allt fram streymir endalaust,
ár og dagar líða.
Nú er komið hrímkalt haust,
horfin sumarblíða.
„Tárin“ eftir Ólöfu frá Hlöðum
falla einnig í þann flokk:
Dýpsta sæla og sorgin þunga
svífa hljóðlaust yfir storð.
Þeirra mál ei talar tunga,
tárin eru beggja orð.
Og vísur Hannesar Hafsteins:
Blessuð sólin elskar allt,
allt með kossi vekur,
haginn grænn og hjarnið kalt
hennar ástum tekur.
Geislar hennar út um allt
eitt og sama skrifa
á hagann grænan, hjarnið kalt:
Himneskt er að lifa.
Það slæddust innsláttarvillur í
rómantíska vísu Ingólfs Ómars Ár-
mannssonar í gær og birtist hún
hér aftur:
Alltaf hjá mér ástin mín
unaðskenndir vekur;
blíðuatlot þrái þín
þegar kvelda tekur.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af skólaljóðum og reisn