Morgunblaðið - 25.02.2011, Side 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2011
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Hljómsveitin goðsagnakennda Ham
heldur tónleika í kvöld, sem er
kannski ekki í frásögur færandi, þeir
Ham liðar hafa spilað öðru hvoru
undanfarin ár. Þegar grannt er
skoðað býr þó meira undir; þetta eru
fyrstu eiginlegu Ham-tónleikarnir,
tónleikar sem sveitin heldur sjálf,
frá sumrinu 2006, og að auki tón-
leikar þar sem uppistaða dagskrár-
innar verða nýir ópusar, ný lög sem
stendur til að hljóðrita í byrjun
næsta mánaðar til útgáfu í haust.
Fyrsta blómaskeið Ham var í lok
níunda áratugarins og í upphafi þess
tíunda. Hljómsveitin hélt kveðju-
tónleika sumarið 1994, en sneri svo
aftur til að hita upp fyrir þýsku
rokksveitina Rammstein í Laug-
ardalshöll sumarið 2001. Eins og
þeir Flosi Þorgeirsson og Sigurjón
Kjartansson rekja söguna kviknaði
með þeim áhugi á að vinna meira
saman. Síðustu ár hafa þeir félagar
svo leikið á tvennum til þrennum
tónleikum á ári og á æfingum fyrir
þá tónleika hafa jafnan komið fram
hugmyndir sem margar hafa endað
sem lög.
Goðsagnakennd rokksveit
Eins og getið er hefur orðstír
Ham batnað svo með tímanum að
óhætt að skipa hljómsveitinni á bekk
með goðsagnakenndum rokk-
sveitum íslenskum. Þeir félagar
segja að sú staðreynd sé þeim ekki
ofarlega í huga og Sigurjón segist til
að mynda aldrei velta því fyrir sér.
Flosir segir þó frá því að sér hafi lið-
ið mjög einkennilega þegar hann átt-
aði sig á því að Ham lifði meðal þjóð-
arinnar þó að hljómsveitin hefði
hætt 1984. „Ég bjó úti í Danmörku í
nokkur ár og velti Ham ekkert fyrir
mér þar. Síðan fljótlega eftir að ég
flutti heim var ég að bíða eftir
strætó og þá voru þar nokkrar þrett-
án til fjórtán ára stelpur að hlusta á
eitthvað og ég áttaði mig skyndilega
á því að það var Animalia,“ segir
hann og dæsir, „þá leið mér mjög
einkennilega.“
Upptökur framundan
Næst á dagskrá hjá sveitinni eru
upptökur, því það stendur til að taka
upp nýja plötu í næsta mánuði. „Við
förum með níu til tíu lög í stúdíóið,“
segir Sigurjón og leggur áherslu á
að platan megi ekki vera of löng,
„mér er illa við langar plötur“. Þeir
sem sáu sveitin spila á Iceland
Airwaves sl. haust fengu að heyra
nokkur af nýju lögunum sem eru í
senn Ham-leg og nýstárleg, greini-
legt að sveitin er ekki að reyna að
semja lög í gömlum stíl heldur hefur
hún þróað tónmál sitt í gegnum árin.
Sigurjón tekur undir þetta og seg-
ir að þeir félagar séu að eldast upp í
hlutverkið, séu nú loks að komast á
þann aldur sem þarf til að spila svo
stórkarlalega tónlist. „Við vorum um
tvítugt þegar Hold varð til og við
vorum alltaf að spila upp fyrir okk-
ur, vorum að þykjast geta spilað tón-
list sem hæfði miklu frekar fertug-
um mönnum með skegg. Mér óx
ekki einu sinni skegg á þeim tíma, en
samt var ég að spila mjög stórkarla-
lega. Við erum orðnir nógu gamlir
núna og gætum alveg eins orðið sjö-
tugir í Ham, það er alveg hægt.“
Stórkarlaleg tónlist
Æfing Sigurjón á æfingu með HAM, stilla úr myndskeiði af mbl.is, en í því heimsækir Nilli hljómsveitina.
Morgunblaðið/Sigurgeir S
Kaffi Blaðamaður ræðir við þá Sigurjón og Flosa, liðsmenn HAM.
Ham heldur
tónleika á Nasa í
kvöld Loksins
orðnir nógu gamlir
fyrir tónlistina
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Farsinn Nei ráðherra! verður frum-
sýndur á Stóra sviði Borgarleik-
hússins í kvöld og það er leik-
hússtjórinn sjálfur, Magnús Geir
Þórðarson, sem stýrir verkinu. Nei
ráðherra! er breskur gamanleikur
frá árinu 1990 eftir Ray Cooney og
heitir á frummálinu Out of Order.
Cooney hlaut bresku Olivier-
leiklistarverðlaunin árið 1991 fyrir
verkið en hann á að baki fjölda far-
sælla farsa og hafa nokkrir þeirra
verið settir upp hér á landi, t.d.
Með vífið í lúkunum, Sex í sama
rúmi og Viltu finna milljón.
Í verkinu segir af ráðherra sem
ætlar að eiga notalega stund með
viðhaldinu í svítu á Hótel Borg.
Babb kemur í bátinn þegar í ljós
kemur að dauður maður er í svít-
unni. Hvað gerir ráðherra þá? Jú,
hringir í strangheiðarlegan og
vammlausan aðstoðarmann sinn og
lætur hann sjá um skítverkin, eins
og söguþræðinum er lýst á vef
Borgarleikhússins. Sjá þarf um við-
haldið, fela verksummerki, losa sig
við líkið og halda öllu leyndu fyrir
afbrýðisömum eiginmönnum og
-konum, svo fátt eitt sé nefnt.
Tækni og nákvæmni
Blaðamaður tók leikstjórann og
leikhússtjórann tali í fyrradag og
spurði hann fyrst hvort ekki væri
töluverður munur á því að leikstýra
farsa og öðrum gamanleikjum.
„Já og nei. Farsinn er sérstakur
fyrir margra hluta sakir og eitt af
því sem blasir við er að hann krefst
mjög mikillar tækni og nákvæmni,
með tímasetningum, leiktækni og
þess háttar. Hins vegar
finnst mér mjög mikilvægt
að nálgast farsa af alvöru,
þetta er venjulegt fólk
sem lendir í óvenjulegum
kringumstæðum og
bregst svo vitlaust við
því og líður herfilega
illa. Í rauninni er fars-
inn harmleikur fyrir
persónurnar sjálfar.
Áhorfendur horfa á
þetta venjulega fólk
klúðra málunum
svona rækilega,
fylgjast með
fólkinu engjast
um sundur og
saman og það er
það sem er fyndið,“ segir Magnús
Geir. „Ef þetta er of stórkarlalegt
grín eða ýkt þá er þetta svo langt
frá okkur að við náum engri teng-
ingu við það. Mér finnst alltaf
skemmtilegastir þeir farsar sem
unnir eru af alvöru. Maður finnur
fyrir sársaukanum hjá persónunni
og hlær að því. Maður sér það í
mörgum, góðum gamanþáttum, t.d.
Klovn-þáttunum og bíómyndinni.“
Ekki Icesave
Gísli Rúnar Jónsson sá um að
staðfæra verkið og sögusviðið Ís-
land í dag, ráðherrann er í rík-
isstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og
heitir Örvar Gauti Scheving. „Það
er ekki þannig að á sviðinu birtist
eftirhermur að leika nafntogaða
einstaklinga, Steingrímur J. sést
ekkert á sviðinu. Þetta eru tilbúnar
persónur en hins vegar eru vísanir í
samtímann og það er drepfyndið og
skemmtilegt. Þó höfum við gætt
þess að velta okkur ekki upp úr ein-
hverju dægurþrasi, það þarf enginn
að hafa áhyggjur af því að sitja
undir umræðum um Icesave eða
stjórnlagaþing,“ ítrekar Magnús
Geir. Æfingaferlið hafi verið afar
skemmtilegt, hann hafi verið í hlát-
urskasti síðustu vikurnar með leik-
urunum. Viðbrögð gesta á prufu-
sýningum hafi verið mjög góð og
því kvíði hann ekki frumsýningunni.
Vonandi takist að kæta þúsundir
landsmanna, veita þeim hvíld frá
öllum neikvæðu fréttunum.
Líkið í svítunni leikur Þröstur
Leó Gunnarsson og segir Magnús
Geir Þröst sýna kostulegan leik í
því hlutverki. Hann vill þó ekki fara
nánar út í af hverju jafnvinsæll og
virtur leikari fái hlutverk sem við
fyrstu sýn virðist fjörlítið og segir
að þetta hlutverk sé flóknara og
kostulegra en það virðist í fyrstu.
Framhjáhald Ráðherrann lætur vel að viðhaldinu. Guðjón Davíð Karlsson
og Lára Jóhanna Jónsdóttir í farsanum Nei ráðherra! í Borgarleikhúsinu.
Farsinn er
harmleikur
Ráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu í
mikilli klípu í farsanum Nei ráðherra!
Í aðalhlutverkum í Nei ráðherra! eru þau Guðjón Davíð Karlsson,
Lára Jóhanna Jónsdóttir og Sigurður Sigurjónsson en auk þeirra
leika í verkinu Hilmar Guðjónsson, Bergur Þór Ingólfsson, Unnur
Ösp Stefánsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason og Elma Lísa Gunn-
arsdóttir. Baggalútur semur tónlistina við verkið og hefur titillag
þess „Ónáðið ekki“ hljómað á öldum ljósvakans upp á síðkastið.
Snorri Freyr Hilmarsson sér um leikmynd verksins og Björn Berg-
steinn Guðmundsson um lýsingu. Gísli Rúnar Jónsson þýddi og
heimfærði verkið.
AÐSTANDENDUR NEI RÁÐHERRA!
Magnús Geir,
leikstjóri og
leikhússtjóri.
Gói, Siggi og Lára