Morgunblaðið - 28.02.2011, Page 2

Morgunblaðið - 28.02.2011, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. www.noatun.is Fermingarveislur Nánari upplýsingar á noatun.is eða í næstu Nóatúns verslun. 1990 KR./MANN VERÐ FRÁ AÐEINS Bókamarkaðurinn í Perlunni er árviss viðburður og margir landsmenn láta hann helst ekki fram hjá sér fara. Þar er enda mikið úrval bóka, jafnt nýlegra sem eldri rita, og ekki skemmir fyrir að á markaðnum má gera hin bestu kaup. Sumir eru með ákveðnar bækur í huga og fara á mark- aðinn í þeim tilgangi að verða sér úti um þær en margir mæta upp á von og óvon, kanna úrvalið og draga síðan upp veskið. Bókamarkaðurinn í Perlunni Morgunblaðið/Ómar Fjöldi titla og mikill áhugi Gísli Baldur Gíslason gislibaldur@mbl.is Mikill munur er á þjónustu við blinda í Reykjavík og í öðrum sveit- arfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Nokkrir blindir einstaklingar hafa sent kvörtun til síns sveitarfélags og telja að lög séu brotin. Þórarinn Þórhallsson er einn þeirra. Hann er með skerta hliðar- sjón og telst lögblindur. Hann er bú- settur í Hafnarfirði en er í fullu starfi í Reykjavík. Þórarinn þarf að njóta aðstoðar til að komast til og frá vinnu, því hann þurfti að leggja bíl sínum þegar sjón hans fór að hraka. Hann telur sig ekki fá þessa þjón- ustu frá sveitarfélagi sínu. Vinnudagur Þórarins hefst fyrir klukkan sjö á morgnana og stendur yfirleitt til um fimm á daginn, en stund- um lengur. Hann starfar sem fram- leiðslustjóri hjá fyrirtækinu Í ein- um grænum. Sök- um þess hversu snemma hann þarf að fara af stað og hversu seint hann fer heim, getur hann ekki nýtt sér hefðbundna ferðaþjónustu fyrir fatl- aða í bænum sem er í boði frá átta til fjögur á daginn. „Það er ekki verið að koma beint að þörfum einstaklingsins, heldur er reynt að fella þetta inn í kerfi sem hugsanlega einhverjir geta sætt sig við, en aðrir geta alls ekki nýtt sér,“ segir Þórarinn. Eiga að hafa sama rétt „Samkvæmt lögum um málefni fatlaðra eru sveitarfélög skuldbund- in til að veita slíka þjónustu. Lög- bundið markmið þessarar þjónustu er að gera fötluðum kleift að stunda atvinnu, nám og njóta tómstunda með sama hætti og ófatlaðir,“ segir Páll Rúnar M. Kristjánsson, lögmað- ur Þórarins. „Grunnþjónusta við fatlaða er ekki valkvæð fyrir viðkom- andi sveitarfélög. Hér er um að ræða lögbundinn rétt fatlaðra og skyldu sveitarfélaga sem þau geta ekki komið sér undan.“ Í Reykjavík fá blindir sextíu ferðir með leigubíl á mánuði og nemur kostnaðurinn af hverri ferð því sama og strætisvagnafargjald. Í Hafnar- firði fá blindir átta sambærilegar ferðir auk hinnar hefðbundnu ferða- þjónustu fatlaðra á daginn. „Það er ótrúlegt að málefni fatl- aðra á höfuðborgarsvæðinu skuli ekki vera samræmd hjá sveitarfélög- unum. Það á ekki að skipta máli hvorum megin við Fossvoginn þú býrð,“ segir Þórarinn. Hann er þó bjartsýnn. „Ég vonast til þess að fá jákvæða niðurstöðu og að bæjar- félagið sýni þessu skilning og miði við mínar þarfir. Ég vænti þess.“ Kemst ekki í vinnu á réttum tíma  Blindir njóta mun verri þjónustu í Hafnarfirði og Kópavogi en í Reykjavík  Sinna fullu starfi en komast ekki til og frá vinnu  Mannréttinda- og lögbrot af hálfu sveitarfélaganna, segir lögmaður Páll Rúnar M. Kristjánsson Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is „Fólkið okkar í Krýsuvík er vant svona jarðskjálftum. Jörðin hefur verið að hristast þarna annað slagið í gegnum tíðina. Ég hef verið í sam- bandi við það og það hafa ekki kom- ið upp nein vandamál vegna þessara skjálfta núna,“ segir Lovísa Christi- ansen, forstöðumaður meðferðar- heimilisins í Krýsuvík, en þar skalf jörðin ítrekað um helgina.. Stór jarðskjálfti, 4,2 á stærð, fannst vel víða um höfuðborgar- svæðið og víðar um klukkan hálfsex í gær. Skjálftinn átti upptök sín við Kleifarvatn en þar skalf jörð í allan gærdag. Skjálftinn var ívið stærri en skjálftinn sem varð í gærmorgun en sá mældist þá um fjögur stig. Upptök skjálftans voru á svipuðum slóðum, rúmlega þrjá kílómetra norð-norðaustur af Krýsuvík. Skjálftavirkni var þar mikil framan af degi en upp úr hálfþrjú tók að draga mjög úr henni að sögn Veð- urstofunnar og átti skjálftavaktin allt eins von á því að virknin væri að deyja út þar til kippurinn kom síð- degis í gær. Tekið með stóískri ró Lovísa segir að allt hafi hrist og skolfið á meðferðarheimilinu en skjólstæðingar þess hafi þó ekki orðið hræddari vegna þess en áður. Aðspurð hvort eitthvert tjón hafi orðið á húsnæði heimilisins vegna skjálftanna nú segist Lovísa ekki vita til þess. „Húsið er byggt til þess að þola mjög sterka skjálfta. Það er þó sprungið á tveimur stöðum eftir fyrri skjálfta, fyrst árið 2000 og síð- an nokkrum árum síðar. En það er allt í ferli hjá Viðlagasjóði.“ Jarðskjálftar fundust vel á höfuðborgarsvæðinu  Vistmenn í Krýsuvík taka lífinu með ró Morgunblaðið/Eyþór Skjálfti Kraftur er í iðrum jarðar í Krýsuvík og við Kleifarvatn. Beiðni um aðstoð barst stjórnstöð Landhelgisgæsl- unnar í gær- kvöldi frá græn- lensku nótaveiðiskipi vegna skipverja sem fallið hafði útbyrðis. Beiðnin barst um níuleyt- ið, en skipið var þá statt suður af Malarrifi á Snæ- fellsnesi. Þyrla Landhelgisgæsl- unnar fór í loftið um hálftíma síðar og sótti manninn. Þyrlan lenti síðan í Reykjavík um klukkan tíu og var manninum komið undir lækn- ishendur. Ekki liggur fyrir hver líð- an mannsins er. Maður féll útbyrðis af grænlensku nótaveiðiskipi Lítið einbýlishús í Hveragerði er að líkindum ónýtt eftir að eldur kom upp í því. Húsráðandi, kona, fór að heiman í gær og þegar hún sneri aftur sá hún að allar rúður hússins voru svartar að innan. Hún afréð að hringja í neyðarlínu og hætti sér ekki inn. Talið er ljóst að eldurinn hafi kviknað út frá eldavélarhellu sem húsráðanda láðist að slökkva á. Einbýlishús ónýtt eftir eldsvoða Blindrafélagið lagði í janúar fram stjórnsýslukæru til úr- skurðarnefndar velferðarráðu- neytisins vegna meintra brota Kópavogsbæjar á rétti drengs til ferðaþjónustu. Að sögn Páls Rúnars, lögmanns Blindra- félagsins, hefur enn ekkert svar borist vegna kærunnar. Svar ekki enn borist STJÓRNSÝSLUKÆRA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.