Morgunblaðið - 28.02.2011, Síða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2011
Sjúkratryggingum Íslands hefur verið falið að endur-
greiða kostnað sjúkratryggðra sem dvöldu á sjúkra-
hótelinu Lind á tímabilinu 15. september 2005 til og
með 30. september 2009.
Teljir þú þig eiga rétt á endurgreiðslu vegna dvalar á
sjúkrahótelinu á þessu tímabili hvetjum við þig til að
senda rafræna umsókn þess efnis, sem finna má á vef
stofnunarinnar www.sjukra.is, eða hafa samband við
þjónustumiðstöð í síma 515-0000.
Umsóknarfrestur er til 1. maí 2011.
Átt þú rétt á endur-
greiðslu vegna dvalar
á sjúkrahóteli?
SJÚKRATRYGGINGAR ÍSLANDS
LAUGAVEGI 114
150 REYKJAVÍK
www.sjukra.is
VIÐTAL
Gísli Baldur Gíslason
gislibaldur@mbl.is
Jeff Wieland starfar hjá vefveldinu
Facebook í höfuðstöðvum þess í Palo
Alto í Kaliforníu í Bandaríkjunum.
Hann er einn af um tvö þúsund
starfsmönnum fyrirtækisins fræga,
en sker sig nokkuð úr þeim hópi. Jeff
er Íslendingur en hefur alla tíð átt
heima í Bandaríkjunum.
„Móðir mín er íslensk, svo ég ólst
upp á heimili þar sem snæddar voru
fiskibollur og hangikjöt í kvöldmat.
Móðir mín er ein sex systkina, en öll
hin búa á Íslandi. Ég fór oft til Ís-
lands þegar ég var krakki, sem gerði
mér kleift að viðhalda sambandi við
fjölskylduna,“ segir Jeff. Hann
kveðst reyna að fara í heimsókn til
Íslands að minnsta kosti annað hvert
ár.
Úr Njálu í notendaviðmót
„Mér gafst tækifæri til að stunda
nám við Háskóla Íslands einn vetur.
Ég varði níu mánuðum árið 2004 í að
þreifa mig áfram í samræðu-íslensku
og læra um Njál,“ segir Jeff.
Jeff hóf störf fyrir Facebook árið
2006. Fyrst um sinn var hlutverk
hans að fylgjast með öllum göllum
síðunnar sem notendur tilkynntu og
koma kvörtunum áleiðis til réttra
forritara. Árið 2008 skipti Jeff um
deild og starfar í dag við hönnunar-
hlið síðunnar.
„Mitt helsta hlutverk hjá Facebo-
ok er að afla upplýsinga um viðhorf
og notkun notenda síðunnar, svo
teymin sem þróa síðuna geti tekið
eins vel upplýstar ákvarðanir og
hægt er. Við viðmótshönnun vef-
síðna er yfirleitt byggt á nokkuð
ófullkomnum upplýsingum – en mitt
starf er til að tryggja að við vitum
eins mikið og við getum áður en við
bjóðum 500 milljónum notenda upp á
vöruna okkar.“
Jeff segir að hann líti án efa á
sjálfan sig sem Íslending og að ís-
lenska fánanum sé gjarnan flaggað á
skrifborði hans í vinnunni. En hefur
hann tileinkað sér eitthvað úr ís-
lenskri menningu?
„Ég er heittrúaður knattspyrnu-
áhugamaður,“ segir Jeff, en knatt-
spyrna hefur ekki enn náð miklum
vinsældum vestan hafs, að minnsta
kosti ekki í samanburði við Ísland.
Íslendingar eru óhræddir
„Á öðrum nótum þykir mér for-
vitnilegt hversu óhræddir Íslending-
ar eru að eðlisfari, þrátt fyrir fá-
menni og takmörkuð pólitísk áhrif.
Ég hef alltaf dáðst að þessu. Hvort
sem það eru hinir frábæru íslensku
tónlistarmenn, rithöfundar eða vís-
indamenn sem reyna að kortleggja
genamengi mannsins – Íslendingar
takast á við viðfangsefni sem gefa
kannski ekki rétta mynd af þeirra
látlausa uppruna. Ég elska að starfa
sem lítilmagni og Ísland er hinn eini
og sanni lítilmagni.“
Fulltrúi Íslands hjá Facebook
Íslendingur starfar fyrir vefveldið í Kaliforníu Ólst upp við að snæða hangikjöt og fiskibollur í
kvöldmat og flaggar íslenska fánanum í vinnunni Segir íslenskt samfélag henta vel fyrir Facebook
Í höfuðstöðvunum Facebook Hér stendur Jeff fyrir framan vegginn fræga sem er í anddyri höfuðstöðvanna.
Íslendingar eru einstaklega
Facebook-vædd þjóð. Sam-
kvæmt Time Magazine eru um
86% Íslendinga á Facebook.
Jeff segir að hann geti því mið-
ur ekki eignað sér heiðurinn af
þessum miklu vinsældum hér á
landi, en kann þó skýringu á
þessu.
„Mín reynsla af Íslandi er sú,
að samfélagið er afar samtengt
og fjölskyldumeðlimir og vinir
eru gríðarlega mikilvægir. Þessi
miklu tengsl aðlagast vel að
Facebook, í ljósi þess að okkar
vara er hönnuð fyrir frábæra
félagslega upplifun fyrir fólk,“
segir Jeff, sem kveðst ekki vera
fulltrúi Íslands hjá Facebook.
„Nei, það er ég ekki, en það
hljómar vel – ef til vill ætti ég
að breyta um starfstitil.“
Facebook-
vædd þjóð
FJÖLMARGIR NOTENDUR