Morgunblaðið - 16.04.2011, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2011
Holtagörðum 2. hæð • Sími 512 6800 • www.dorma.is
25%
afsláttur
Ilmur
mánaðarins
aði bæjarráð eftir því að fjárhalds-
stjórnin samþykkti viðbótarfjár-
veitingu til Tónlistarskóla
Álftaness. Ekki væri hægt að hag-
ræða frekar nema með því að
snarminnka starfsemi skólans.
Pálmi segir að miðað sé við að
aukafjárveitingin verði ekki til þess
að útgjöld fari fram úr áætlun held-
ur verði þau tekin af öðrum liðum
sem eru innan áætlunar.
Innanríkisráðherra hefur framlengt
skipunartíma fjárhaldsstjórnar
Álftaness til 1. júlí næstkomandi og
er þetta í fimmta sinn sem skip-
unartími hennar er framlengdur.
Fjárhaldsstjórnin var fyrst skip-
uð í byrjun febrúar 2009, eftir að
meirihluti Á-listans var fallinn. Síð-
an þá hefur skipunartími hennar
ítrekað verið framlengdur enda
hefur ekki enn tekist að greiða úr
skuldavanda sveitarfélagsins. Ræð-
ur þar mestu að lausn á vandanum
er samofinn endurskipulagningu
Eignarhaldsfélagsins Fasteignar.
Fjárhaldsstjórnin þarf að sam-
þykkja öll fjárútlát sveitarfélagsins.
Að sögn Pálma Þórs Mássonar,
bæjarstjóra Álftaness, er sveitarfé-
lagið rekið innan þess ramma sem
fjárhaldsstjórnin setti því.
Á bæjarráðsfundi í fyrradag ósk-
Framlengt í lífi
fjárhaldsstjórnar
Fimmta tímabilið á Álftanesi hafið
Morgunblaðið/Heiddi
Starfsmaður íhaldshóps Norð-
urlandaráðs á Íslandi hefur ver-
ið leystur frá störfum vegna
gruns um að hann hafi dregið
sér fé af reikningum ráðsins.
Talið er að fjárdrátturinn hafi
staðið yfir frá árinu 2009 og
upphæðin nemi milljónum króna.
Starfsmaðurinn hafði aðstöðu
á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins
í Valhöll en að sögn Jónmundar
Guðmarssonar, framkvæmda-
stjóra Sjálfstæðisflokksins, vökn-
uðu grunsemdir þegar upp komu
vísbendingar um að misferli
hefði átt sér stað.
„Þá var farið í það að athuga
málið og í ljós kom að þarna var
eitthvað á ferðinni sem ekki
stóðst og að lokum reyndist
nauðsynlegt að leita til efna-
hagsbrotadeildar lögreglunnar,“
segir Jónmundur en málið var
kært til lögreglu fyrir tveimur
vikum. Peningarnir hafa ekki
skilað sér og málið er í rann-
sókn.
Grunaður
um fjárdrátt
Leikskólamál í uppnám?
Samtökin Börnin okkar fordæma tillögur borgarstjórnarmeirihlutans
Segja sameiningartillögur „kollvarpa algerlega öllu leikskólastarfi í borginni“
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Samtökin Börnin okkar harma forgangsröðun
meirihlutans í borginni og hvernig málefni leik-
skólabarna séu „fótum troðin“, eins og segir í yf-
irlýsingu frá samtökunum. „Auk þess að sameina
24 leikskóla fyrir 1. júlí næstkomandi verður bak-
land leikskólanna sett í algjört uppnám með tillögu
um sameiningu leikskólasviðs, menntasviðs og
tómstundamála ÍTR,“ segir í yfirlýsingunni. 47
leikskólastjórum og aðstoðarleikskólastjórum,
verði sagt upp, einnig sviðstjórum leikskólasviðs og
menntasviðs.
„Það á að kollvarpa algerlega öllu leikskólastarfi
í borginni með sameiningartillögunum, segja upp
stjórnendum sem hafa menntunina og lengsta
starfsreynsluna,“ segir Kristín Bjarnadóttir, einn
stjórnarmanna samtakanna. „En samhliða þessu
mikla róti segja þeir upp sviðstjóra leikskólasviðs
sem er bakland leikskólanna. Sviðstjórinn átti nátt-
úrlega að aðstoða starfsfólkið við alla þessa sam-
einingu en nú er búið að segja upp konunni sem
gegndi því starfi. Þetta er gert á sama tíma og verið
er að keyra alla þessa sameiningu í gegn í mikilli
andstöðu við vilja foreldra.“ Kristín segir ljóst að
þann eða þá sem nú muni taka við hlutverki nýs
sviðstjóra muni skorta nauðsynlega reynslu og
ekki þekkja nógu vel til mála.
„Við óttumst að þetta muni valda varanlegum
skemmdum á öllu leikskólastarfinu. Það er farið
allt of hratt í breytingarnar og það þarf enginn að
segja mér að þetta hafi ekki slæm áhrif á börnin.“
Hún segir breytingarnar illa undirbúnar. Fækk-
að verði stjórnunarstöðum sem merki minni launa-
kostnað. En eftir tvö til þrjú ár verði þannig aðeins
hægt að spara minna en 1% af útgjöldum til leik-
skólanna. Á sama tíma sé varið 500 milljónum
króna í lagfæringar á sundlaugum og 12 milljónum
til að lagfæra lóð Alþingishússins, þá sé nóg til af
peningum.
Við óttumst að þetta muni
valda varanlegum
skemmdum á öllu leik-
skólastarfi.
Kristín Bjarnadóttir
Meirihluti stjórn-
ar Orkuveitu
Reykjavíkur
samþykkti á
fundi sínum í gær
að ganga til
könnunarvið-
ræðna við Land-
samband lífeyr-
issjóða um
fjármögnun og/
eða eignarhald á
Hverahlíðarvirkjun. Sóley Tóm-
asdóttir borgarfulltrúi segir að til-
laga fulltrúa Vinstri grænna í
stjórninni, um að málinu yrði frestað
og það tekið til umfjöllunar af hálfu
eigenda, hafi verið felld og málið
samþykkt með mótatkvæði hans.
Sóley gagnrýnir þessa ákvörðun
harðlega í pistli á heimasíðu sinni og
segir að þótt þegar hafi verið lagðir
um fjórir milljarðar króna í und-
irbúning Hverahlíðarvirkjunar sé
ljóst að hátt á þriðja tug milljarða
þurfi til að hún verði að veruleika.
Orkuveita Reykjavíkur hafi enga
burði til að bæta slíkum upphæðum
í lánasafn sitt og ekki verði séð að
ríkir almannahagsmunir krefjist
þess. Þvert á móti sé nauðsynlegt að
fyrirtækið sýni aukna ábyrgð í með-
ferð fjármuna nú þegar borgarbúar
hafi hlaupið undir bagga til að koma
því aftur á réttan kjöl eftir „gassa-
gang og áhættusækni“ undanfarin
ár.
OR í við-
ræður við
lífeyrissjóði
Sóley
Tómasdóttir
Tillögu VG um
frestun málsins hafnað
Reykjanesbær hefur ákveðið að
greiða niður skuldir um 2,5 milljarða
króna. Samsvarandi innistæða bæj-
arsjóðs á reikningi í Landsbank-
anum er nýtt til að greiða niður
skuldabréfaútboð sem bærinn efndi
til í október 2008.
Það sem tilgreint er í skuldir og
skuldbindingar A-hluta bæjarsjóðs,
að undanskildum leiguskuldbind-
ingum, í ársreikningi fyrir árið 2009
er 14,1 milljarður. Nemur þessi
skuldalækkun 17,7% af þeirri upp-
hæð, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu frá Reykjanesbæ.
Ársreikningur sveitarfélagsins
verður tekinn til fyrri umræðu í bæj-
arstjórn nk. þriðjudag. Seinni um-
ræða og afgreiðsla er áætluð á fundi
bæjarstjórnar 3. maí nk.
Greiða niður um
2,5 milljarða
Miðbærinn í Reykjavík iðaði af lífi í gær þegar nemendur nokkurra fram-
haldsskóla voru þar á ferð í sinni dimitteringu. Brátt tekur við próflestur
og þá er vissara að vera búinn að sletta úr klaufunum áður en alvara lífsins
tekur við að nýju. Tilvonandi stúdentar gátu gleymt stað og stund í gær.
Dimitterað dátt á Austurvelli
Morgunblaðið/Ómar