Morgunblaðið - 16.04.2011, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 16.04.2011, Blaðsíða 27
SVIPMYND Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Stóraukið fylgi Sannra Finna fyrir þingkosningarnar í Finnlandi á morgun er að miklu leyti rakið til lýðhylli leiðtoga flokksins, Timo Soini, sem hefur ýmist verið líkt við hnyttinn uppistandara eða slunginn skákmeistara. Timo Soini er 48 ára, þykir alþýð- legur, gæddur miklum persónutöfr- um og hefur getið sér orð fyrir að vera hnyttinn ræðumaður og fundvís á skýrar myndlíkingar. Ilkka Ruostetsaari, stjórn- málafræðiprófessor við Tampere- háskóla, segir að að Soini sé gæddur sérstökum hæfileika til að hrífa fjöldann með sér og slyngur í því að koma höggi á andstæðingana með „popúlískum slagorðum“. Soini hefur þótt mjög ólíkur leið- togum hinna stóru flokkanna í Finn- landi í sjónvarpskappræðum fyrir kosningarnar á morgun. Hann talar yfirleitt í stuttum og skýrum setn- ingum, ólíkt hinum leiðtogunum sem eiga það til að vera of formlegir og tæknilegir í orðavali. „Hann er mjög góður ræðumaður sem höfðar til fólks og talar þannig að flókin mál virðast mjög einföld,“ segir Jan Sundberg, prófessor við Helsinki-háskóla. Soini er með meistaragráðu í stjórnmálafræði og sagður hafa næmt auga fyrir leikfléttum í póli- tísku refskákinni. „Hann tekur ekki mikla áhættu og hann vegur og met- ur hvern leik mjög gaumgæfilega,“ hefur fréttastofan Reuters eftir Raimo Vestbacka, sem var kjörinn leiðtogi Sannra Finna þegar flokkur- inn var stofnaður árið 1995. Flokkurinn á rætur að rekja til Finnska dreifbýlisflokksins sem var stofnaður árið 1959 til að beita sér fyrir bættum kjörum verkafólks og smábænda. Soini gekk í flokkinn árið 1979, þegar hann var sextán ára. Soini hefur verið leiðtogi Sannra Finna frá árinu 1997 og aukið fylgi flokksins í þéttbýlinu. Soini bauð sig fram í forsetakosningum árið 2006 en fékk aðeins 3,4% atkvæðanna. Þremur árum síðar var hann kjörinn á Evrópuþingið með 9,8% atkvæða, meira fylgi en nokkur annar fram- bjóðandi í kosningunum. Sannir Finnar fengu um 4% at- kvæða í síðustu þingkosningum árið 2007 en síðustu skoðanakannanir benda til þess að fylgi hans hafi auk- ist í 15-18%. Forystumenn flokksins segja að hann hafi tekið fylgi af Mið- flokknum, Jafnaðarmannaflokknum, Sameiningarflokknum (hægriflokki) og Vinstrabandalaginu. Andvígur evrunni Á meðal frambjóðenda Sannra Finna eru nokkrir félagar í hreyf- ingu þjóðernissinna sem hafa verið sakaðir um útlendingahatur. Soini hefur gert lítið úr áhrifum þessara frambjóðenda innan flokksins en viðurkennt að þeir aðhyllist ekki „pólitíska rétthugsun“. Soini segir að málefni innflytjenda hafi ekki verið ofarlega á baugi í kosningabaráttunni. „Fólkið spyr um lífeyrisgreiðslurnar, störfin, krísu Evrópusambandsins og önnur mál sem hafa áhrif á lífskjörin. Eng- inn spyr um hælisleitendur.“ Soini hefur oft gagnrýnt Evrópu- sambandið, er andvígur evrunni og andstaða hans við þátttöku Finn- lands í aðstoð við Portúgal og fleiri ríki til að bjarga evrunni hefur feng- ið góðan hljómgrunn meðal kjós- enda. „Finnar eru orðnir mjög gagnrýn- ir, ganga ekki svo langt að vilja segja sig úr Evrópusambandinu, en þessi lán hafa komið almenningi í stríðs- ham,“ hefur fréttastofan AFP eftir Jan Sundberg, prófessor í stjórn- málafræði við Helsinki-háskóla. Hnyttinn og slyngur leiðtogi Reuters Leiðtogar á at- kvæðaveiðum Timo Soini, leiðtogi Sannra Finna (efri myndin), þykir mjög ólíkur leiðtogum hinna flokkanna. Við hlið Soini á myndinni til vinstri er Mari Kiviniemi, forsætis- ráðherra og leiðtogi Miðflokksins, Jyrki Katainen, fjár- málaráðherra og leiðtogi Sameining- arflokksins, og Jutta Urpilainen, leiðtogi jafnaðarmanna.  Soini líkt við grínista og skákmeistara FRÉTTIR 27Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2011 www.gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Ódýr og góð gisting í hjarta Kaupmannahafnar Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969 www.ils.is Lán og styrkir til tækninýjunga og umbóta í byggingariðnaði Umsóknarfrestur er til 20. maí 2011 Íbúðalánasjóður auglýsir til umsóknar lán og styrki til tækninýjunga og umbóta í byggingariðnaði. Lán eða styrki má veita einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum sem vinna að þróun tæknilegra aðferða og nýjunga sem leitt geta til lækkunar á byggingarkostnaði og viðhaldskostnaði íbúðarhúsnæðis, styttri byggingartíma eða stuðlað með öðrum hætti að aukinni hagkvæmni í byggingariðnaði. Rafræn umsóknarblöð er að finna á vefsíðu Íbúðalánasjóðs, www.ils.is Nánari upplýsingar veitir Helga Arngrímsdóttir hjá Íbúðalánasjóði í síma 569 6900 og með tölvupósti helga@ils.is Sannir Finnar eru álitnir mjög sundurleitur flokkur, þykja til vinstri í efnahagsmálum en til hægri í ýms- um samfélagsmálum, auk þess sem sumir frambjóð- enda hans hafa verið sakaðir um útlendingahatur. Finnski stjórnmálaskýrandinn Pasi Saukkonen seg- ir að margir frambjóðenda Sannra Finna séu reynslu- litlir í stjórnmálunum og erfitt geti verið fyrir Timo Soini að hafa stjórn á flokknum ef hann fær mikið fylgi í þingkosningunum. „Flokkurinn skiptist aug- ljóslega í fylkingar með mjög sterkar og ólíkar skoð- anir,“ segir Saukkonen. Hann bætir við að flokkar sem margfaldi fylgi sitt í þingkosningum reynist oft „sundraðir og óstarfhæfir“. Talið er að myndun næstu ríkisstjórnar Finnlands geti tekið langan tíma eftir þingkosningarnar á morgun ef Sannir Finnar fá mikið fylgi og verða á meðal þriggja stærstu flokkanna. Sannir Finnar sundurleitir STUNDUM TIL VINSTRI, STUNDUM TIL HÆGRI Stytta við þing- húsið í Helsinki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.