Morgunblaðið - 16.04.2011, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 16.04.2011, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2011 ✝ Pétur ÓlafurPálsson fædd- ist í Sandgerði í Fáskrúðsfirði þann 3. nóvember 1927. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja 6. apríl 2011. For- eldrar hans voru Þuríður Guð- mundsdóttir frá Stokkseyri, f. 16.11. 1907, d. 23. 8. 1988, og Páll Jóhannes Guðmundsson frá Fáskrúðsfirði, f. 29.1. 1898, d. 1.5. 1955. Systkini Ólafs eru Valdís Viktoría, f. 14 .9. 1929, d. 3. 1. 2008. Már Guðlaugur, f. 26.5. 1931, d. 8.9. 2005. Brynja Jón- ína, f. 26.12. 1935, d. 19.11. 2009. Kristinn Viðar, f. 4.1. 1938. Einar Sævar, f. 17. 10. 1941, d. 6.3. 1989. Guð- mundur, f. 3.1. 1943. Snjólaug, f. 15.3. 1944, og Jóhanna, f. 5.3. 1946. Ólafur flutti með foreldrum sínum og systkinum til Vestmannaeyja árið 1934. Fyrst bjuggu þau á Sólbergi, síðan á Þingeyri við Skólaveg. Árið 1941 fluttu þau að Héð- inshöfða en við það hús voru þau systkinin oftast kennd. Hinn 1. apríl 1950 kvæntist Ólafur unnustu sinni, Þóreyju Guðrúnu Björgvinsdóttur, f. 9.4. 1931, frá Hvoli við Heima- götu. Hófu þau búskap, fyrst á æskuheimili Þóreyjar en festu síðan kaup á Eyj- arhólum við Há- steinsveg. Árið 1956 fluttu þau þaðan í nýbyggt hús sitt á Kirkju- bæjarbraut 18. Þar bjuggu þau fram að eldgosinu 1973. Börn þeirra hjóna eru Þyrí, f. 16.11. 1949, Björg- vin, f. 4.1. 1951, Gunnhildur, f. 14.1. 1953, Guð- rún, f. 25.8. 1956, Ólafur Þór, f. 17.7. 1961 og Anna María, f. 12.2. 1967. Fyrir átti Ólafur dóttirina Erlu, f. 6.10 .1945. Afkomendur Ólafs eru 73 tals- ins. Ungur stundaði Ólafur sjó- mennsku en gerðist síðan fisk- verkandi í samstarfi við Símon Kristjánsson. Í samstarfi við aðra gerðu þeir út bátana Andvara (síðar Blátind) og Sæunni. Eftir gos starfaði hann hjá Ríkismati sjávaraf- urða og Fiskistofu. Eftir sundrungu eyjasamfélagsins 1973 bjuggu þau hjón lengst af að Heiðarlundi 20 í Garða- bæ, síðar í Lautarsmára 1 í Kópavogi. Að loknum löngum starfsdegi lá leiðin aftur heim til æskustöðvanna í Vestmana- eyjum þar sem þau bjuggu síð- ustu árin að Áshamri 55. Útför Ólafs fer fram frá Landakirkju í dag, 15. apríl, og hefst athöfnin kl. 15. Mínar fyrstu minningar eru af Kirkjubæjarbrautinni. Sólríkir dagar, við frændsystkinin að leik og þegar komið var að kaffitíma birtist afi með sitt einstaka við- mót með góðgæti sem hann hafði keypt í siglingu til útlanda. Toble- rone er sterkt í minningunni sem besta súkkulaði í heiminum. Afi var mikil hetja að fara alla þessa leið bara til að kaupa þetta handa okkur. Eftir eldgos eru margar góðar minningar af Heiðarlund- inum þar sem þið Þórey sköpuð- uð ykkur svo fallegt og hlýlegt heimili sem alltaf stóð mér opið. Matargerðin lét ekki á sér standa, alltaf var töfrað fram eitt- hvað ótrúlegt þar sem þú stóðst að baki Þóreyju og taldir þig vera að gefa góð ráð. Þá gleymi ég ekki tóninum sem var sendur ef maður slysaðist til að tjá sig með- an á fréttum stóð því þá átti að sjálfsögðu að vera þögn. Þegar þið fluttuð í Kópavoginn kynntust börnin mín ykkur vel. Við þurft- um mjög oft að fara til Reykjavík- ur og ávallt var komið við í Laut- arsmáranum. Aðdáun yngsta drengsins míns á þér afi minnti mig á mína eigin aðdáun á mínum yngri árum, hann sótti mikið í þig og alltaf gafst þú þér tíma til að ærslast með honum þegar leiðir ykkar lágu saman. Þessar fallegu minningar mun hann taka með sér á sinni lífsleið sem og við öll. Þegar ég frétti að þið væruð að flytja aftur heim til Eyja réð ég mér varla fyrir kæti. Nú yrðu samverustundirnar svo miklu fleiri. Minningarnar sem við Dóra og börnin okkar eigum úr öllum afmælis-, matar- og jóla- boðunum munu lifa að eilífu. Spjallið við eldhúsborðið á Ás- hamrinum sem ég, þú og Þórey áttum reglulega eru ómetanlegur tími í mínu lífi. Eftir að leið þín lá á spítalann tókum við einstaklega góða bryggjurúnta ég, þú, Gunn- ar í Gerði og Siggi Gunn. Skoð- anaskipti ykkar félaganna voru einstök og fengu mig til að veltast um af hlátri. Þarna var sannar- lega líf og fjör. Ég verð að við- urkenna að ég brosti í það minnsta út í annað þegar þín hinsta kveðjustund var ljós, þ.e. kl. 11.50. Það mátti ekki seinna vera því þú þurftir að ná hádeg- isfréttum á nýjum stað. Elsku afi, ég kveð þig með miklum söknuði, sakna þíns hlý- lega og elskulega viðmóts. Elsku afi, þú ert maður sem ég mun aldrei gleyma. Jón Ólafur. Ólafur Pálsson HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 • Hlýlegt og gott viðmót á Grand hótel. • Fjölbreyttar veitingar lagaðar á staðnum. • Næg bílastæði og gott aðgengi. Grand erfidrykkjur Grand hótel Reykjavík, Sigtúni 38, sími 514 8000. erfidrykkjur@grand.is grand.is ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLDÓRA INGIMARSDÓTTIR, andaðist á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri föstudaginn 8. apríl. Útför hennar verður gerð frá Akureyrarkirkju mánudaginn 18. apríl kl. 10.30. Margrét Jóhannsdóttir, Ásgeir Sverrisson, Helga Sigurðardóttir, barnabörn og langömmustelpurnar. ✝ Okkar ástkæra BRYNHILDUR ÞRÁINSDÓTTIR kennari, Torfunesi, varð bráðkvödd á heimili sínu sunnudaginn 10. apríl. Útför hennar fer fram frá Þóroddsstaðar- kirkju mánudaginn 18. apríl kl. 14.00. Baldvin Kristinn Baldvinsson, Margrét Lárusdóttir, Margrét Baldvinsdóttir, Axel Gunnar Vatnsdal, Þráinn Árni Baldvinsson, Berglind Rúnarsdóttir og barnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓNAS GUÐBERG RAGNARSSON hafnsögumaður, Aratúni 16, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju miðviku- daginn 20. apríl kl. 15.00. Blóm vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Ljósið í síma 561 3770 eða líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Marsibil Katrín Guðmundsdóttir, Ragnar Jónasson, Sólveig Einarsdóttir, Ólafur Jónasson, Guðmundur Einisson, Valgerður Gísladóttir, Óðinn Einisson, Laufey E. Gunnarsdóttir, Björk Einisdóttir, Valtýr E. Valtýsson, barna- og barnabarnabörn. ✝ LEIFUR VILHELMSSON, Jökulgrunni 8, verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn 19. apríl kl. 11.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Sæunn Eiríksdóttir, Þorsteinn Leifsson. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og veittu okkur ómetanlegan stuðning á erfiðum tímum við andlát og útför okkar ástkæra JENS ÓLA KRISTJÁNSSONAR, Urðargili 17, Akureyri. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Anna Guðrún Ásgeirsdóttir. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR GUNNARSSONAR, Kirkjuhvoli, áður Stóragerði 19, Hvolsvelli. Gunnar Guðmundsson, Björg Sigurjónsdóttir, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Sæmundur Holgersson, Hákon Mar Guðmundsson, Gróa Hermannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför SIGURBJARGAR FINNBOGADÓTTUR, Heiði í Ásahreppi. Tryggvi Sveinbjörnsson. ✝ Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, MARGRÉTAR ÓLAFSDÓTTUR leikkonu. Steindór Hjörleifsson, Ragnheiður Steindórsdóttir, Jón Þórisson, Steindór Grétar Jónsson, Margrét Dórothea Jónsdóttir. ✝ Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN SIGURDÓRSSON, Hæðargarði 29, lést fimmtudaginn 14. apríl. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðju- daginn 26. apríl kl. 13.00. Svavar G. Stefánsson, Dagrún Sigurðardóttir, Sigurdór Stefánsson, Guðný Jódís Steinþórsdóttir, Jón Á. Stefánsson, Sigrún Högnadóttir, Helga Stefánsdóttir, Finnbogi Sævar Guðmundsson, Sigríður Sigurþórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Þökkum einlægar samúðarkveðjur og hlýju vegna andláts okkar ástkæru KATRÍNAR KOLKU JÓNSDÓTTUR hjúkrunarfræðings. Guð blessi ljúfar og bjartar minningar um Katrínu Kolku. Þær munu lifa með okkur sem sólargeislar um ókomin ár. Eiríkur Valdimarsson, Valdimar Kolka Eiríksson, Ingibjörg Sólveig Kolka, Jón Bjarnason, Bjarni Jónsson, Ásgeir Jónsson, Gerður Bolladóttir, Ingibjörg Jónsdóttir Kolka, Guðmundur Sæmundsson, Laufey Erla Jónsdóttir, Páll Valdimar Kolka Jónsson, Sandra Sif Einarsdóttir. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengda- föður, afa og langafa, HELGA HARÐAR GUÐJÓNSSONAR skipstjóra, Sóleyjarima 3, Reykjavík. Sérstakar þakkir til Landspítalans Fossvogi, deild 7-A og hjúkrunardeildar Hrafnistu Hafnarfirði. Guð blessi ykkur öll. Guðlaug Dagmar Jónsdóttir, Eyrún Helgadóttir, Guðbrandur Jónatansson, Steinar Helgason, Elín Katla Elíasdóttir, Sævar Helgason, Sigríður Halldórsdóttir, G. Harpa Helgadóttir, Jónas Garðarsson, Berglind Helgadóttir, Baldvin Örn Berndsen, Arnar Þór Helgason, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ÁSTRÍÐUR H. ANDERSEN, andaðist á Landspítalanum fimmtudaginn 14. apríl. Útförin verður auglýst síðar. Gunnar Þ. Andersen, Margrét Kr. Gunnarsdóttir, Þóra Andersen, Roger Schneider, Victoria Ástríður Andersen, Tiffany Louise Andersen, Eric Ian Andersen, Richard Vilhelm Andersen, Christopher og Alexander Farrington.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.