Morgunblaðið - 16.04.2011, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 16.04.2011, Blaðsíða 37
DAGBÓK 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2011 Sudoku Frumstig 7 3 5 6 2 4 6 4 8 7 8 1 7 5 7 2 3 2 1 1 6 7 5 5 3 1 4 3 2 3 5 2 7 2 6 1 8 7 5 7 8 9 6 7 5 1 2 6 8 5 2 8 3 5 7 3 4 2 1 9 5 6 4 2 8 6 1 4 5 7 9 2 9 6 8 1 6 7 4 2 5 3 9 3 2 5 9 1 8 4 7 6 4 7 9 6 3 5 8 2 1 9 6 7 2 5 3 1 8 4 1 5 3 8 6 4 2 9 7 2 4 8 1 7 9 3 6 5 6 9 2 4 8 1 7 5 3 5 8 1 3 9 7 6 4 2 7 3 4 5 2 6 9 1 8 6 4 1 5 2 8 7 9 3 8 9 3 7 1 6 4 5 2 5 7 2 3 9 4 1 6 8 7 3 5 6 4 9 2 8 1 2 1 6 8 7 5 3 4 9 9 8 4 2 3 1 5 7 6 1 6 9 4 5 2 8 3 7 3 5 8 1 6 7 9 2 4 4 2 7 9 8 3 6 1 5 3 5 4 1 8 2 7 9 6 1 9 2 4 7 6 5 3 8 8 6 7 9 3 5 2 1 4 7 4 1 2 5 8 9 6 3 2 3 9 7 6 4 8 5 1 6 8 5 3 1 9 4 7 2 5 7 6 8 4 1 3 2 9 9 1 8 5 2 3 6 4 7 4 2 3 6 9 7 1 8 5 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 16. apríl, 106. dagur ársins 2011 Orð dagsins: Andinn opinberast í sér- hverjum til þess, sem gagnlegt er. (I.Kor. 12, 7) Víkverji setur hér með fram þákenningu að verið sé að spara í viðhaldi gatna í Reykjavík. Það sem rökstyður kenninguna er að Mikla- brautin og Ártúnsbrekkan eru sund- urskornar af djúpum hjólförum. Nú þegar tíðin hefur verið eins og hún hefur verið (förum ekki nánar út í það!) fyllast hjólförin af vatni. Við slíkar aðstæður reynir Víkverji auð- vitað að fara upp úr hjólförunum. En það getur reynst þrautin þyngri þegar allar þrjár akreinarnar eru sundurskornar og bílstjórar sem aka allar akreinarnar eru einmitt að hugsa það sama: Að koma sér upp úr hjólförunum. Þá vandast málið. Fer bílstjórinn á næstu akrein upp úr hjólförunum til hægri eða vinstri? Hvoru megin á Víkverji að fara upp úr förunum? Stundum er besta lausnin að hægja á sér og aka í hjól- förunum. Það getur líka reynst erfitt að skipta um akrein þegar förin eru yfirfull af vatni. Þetta skapar auðvit- að slysahættu. x x x Víkverji borgar sína skatta sam-viskusamlega og vill gjarnan að göturnar séu í lagi. Þær eru óþarf- lega farnar að minna á skorningana í Kenía, þar sem Víkverji ferðaðist fyrir nokkrum árum. Bílstjórar í Kenía eru orðnir svo vanir skorningunum (oft í malar- vegum eða moldarvegum réttara sagt) að þeir reyna að fljúga fyrir holurnar á ægilegum hraða. Víkverji mælir ekki með þeirri aðferð. Ekki meira um það. x x x Víkverji fer ekki í neina ferming-arveislu í ár og er mjög feginn. En hann skammast sín svolítið fyrir að vera feginn því vissulega er ferm- ing stór áfangi í lífi margra barna. En fermingarveislur eru yfirleitt hundleiðinlegar. Víkverji hefur reyndar farið í eina skemmtilega fermingarveislu. Þar voru aðeins nánustu ættingjar og vinir ferming- arbarnsins sem hélt sjálft ræðu og kynnti heimatilbúin skemmtiatriði frændfólks síns. Maturinn var allur heimatilbúinn, meira að segja ferm- ingarkakan. Glæsileg veisla! víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 fiskur, 8 spræna, 9 kompa, 10 ferskur, 11 bygg- inga, 13 ákveð, 15 fars, 18 ljúka við, 21 eldiviður, 22 drembna, 23 mannsnafn, 24 afbrotamanns. Lóðrétt | 2 ísstykki, 3 hindra, 4 auðugra, 5 orðum aukinn, 6 grip, 7 raggeit, 12 nálægari, 14 illmenni, 15 vöndur, 16 skeldýr, 17 valda tjóni, 18 rispa, 19 elskan, 20 forar. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 bófar, 4 sópur, 7 letur, 8 rokið, 9 táp, 11 næði, 13 fráa, 14 lyfta, 15 stál, 17 ráma, 20 ern, 22 klæki, 23 ókind, 24 seiðs, 25 tónar. Lóðrétt: 1 bólin, 2 fátíð, 3 rýrt, 4 sorp, 5 pokar, 6 riðla, 10 álfar, 12 ill, 13 far, 15 síkis, 16 áræði, 18 ásinn, 19 andar, 20 eims, 21 nótt. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. e5 Rfd7 5. f4 c5 6. Rf3 Rc6 7. Be3 Db6 8. Ra4 Da5+ 9. c3 c4 10. b4 Db5 11. Rc5 a5 12. a3 Re7 13. Be2 Rf5 14. Bf2 a4 15. Dc2 b6 16. Rxd7 Bxd7 17. g4 Rh6 18. Rg5 g6 19. h4 0-0-0 20. h5 Bg7 21. hxg6 hxg6 22. Hxh6 Hxh6 23. Rxf7 Hh1+ 24. Bf1 Be8 25. Rxd8 Kxd8 26. Bg3 Hh8 27. 0-0-0 Dd7 28. Bg2 Df7 29. Hf1 Bd7 30. Dd1 Kc7 31. Hh1 Df8 32. Hxh8 Dxh8 33. Dh1 Bh6 34. Kd2 Df8 35. Ke3 Kc6 36. Dh4 b5 37. Bf3 Kb6 38. Df6 Dxf6 39. exf6 Be8 40. g5 Bf8 41. f5 gxf5 42. Be5 Kc6 43. Kf4 Bg6 44. Kg3 Bd6 45. Bxd6 Kxd6 46. Kf4 Kd7 47. Ke5 Bf7 Staðan kom upp á Evrópumeistaramóti einstaklinga í Aix-les-Bains í Frakklandi. Stórmeistarinn Andrei Volokitin (2.677) frá Úkraínu hafði hvítt gegn ísraelska al- þjóðlega meistaranum Yohan Benitah (2.401). 48. Bxd5! exd5 49. Kxf5 Bh5 50. g6 Ke8 51. Kg5 Bf3 52. f7+ Ke7 53. Kh6 Kf8 54. g7+! og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Ósvífni. Norður ♠D ♥1084 ♦ÁD76 ♣KD752 Vestur Austur ♠G83 ♠9654 ♥ÁG9 ♥D76532 ♦543 ♦8 ♣Á1094 ♣G6 Suður ♠ÁK1072 ♥K ♦KG1092 ♣83 Suður spilar 3G. Á spilakvöldi BR síðastliðinn þriðju- dag varð Ísak Örn Sigurðsson sagnhafi í 3G í suður. Fyrir því lágu kerfislegar ástæður, fyrst og fremst. Makker hans, Helgi Sigurðsson, vakti á Pre- cision-tígli, en Ísak krafði í geim og ræsti um leið spurnarvél með svari á 1G. Ísak spurði í þaula og frétti að Helgi ætti skiptinguna 1=3=4=5 og 2-3 kontról. Vestur ákvað að leggja til atlögu við upplýstan stuttlit blinds – kom út með ♠3. Ísak taldi hratt á fingrum sér upp í átta slagi. „Ekta sénsinn“ er að treysta á fall spaðagosans, en útspilið (fjórða hæsta) benti til að vestur ætti gosann valdaðan. Það væri hrein uppgjöf að fara í laufið, en hins vegar gæti smá póker dugað vel: „Lítið hjarta, takk,“ sagði Ísak. Vestur drap ♥K og … spil- aði ♠G um hæl. 16. apríl 1899 Franska spítalaskipið St. Paul strandaði á Meðallandsfjöru við ós Kúðafljóts. Öll skips- höfnin, 20 manns, komst í land. 16. apríl 1915 Gullfoss, fyrsta skip Eimskipa- félags Íslands, kom til Reykja- víkur og var því vel fagnað. Gullfoss var fyrsta vélknúna millilandaskip sem smíðað var fyrir Íslendinga og hafði frá byrjun íslenskan skipstjóra og íslenska áhöfn. Skipið var í siglingum milli landa til 1940. 16. apríl 1954 AA-samtökin voru stofnuð á föstudaginn langa. Þetta eru landssamtök alkóhólista og þau starfa í nær tvö hundruð deildum. 16. apríl 1959 Bandarísk herþota af gerðinni Scorpion hrapaði skammt frá Garðskagavita. Flugmenn- irnir tveir skutu sér út og svifu til jarðar í fallhlíf. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Ari Kristinsson kvikmyndagerðarmaður ætlar að bjóða sínum nánustu vinum og ættingum, 40-50 manns, upp á léttar veitingar í tilefni þess að hann verður sextugur í dag. Meira segist hann ekki ætla að gera til að halda upp á þessi tímamót. Og þó. Kannski má segja að fleirum sé boðið að fagna með honum því um helgina verður sýndur síðasti þátturinn í sjónvarpssþáttaröðinni Tíma norn- arinnar en Ari var tökumaður þeirra þátta. Raun- ar var hann nýlokinn við að myndgreina þáttinn þegar rætt var við hann í gær. Þá verður stutt- mynd eftir Ara frumsýnd í Ríkissjónvarpinu á annan í páskum. „Sá stóri heitir hún, lítil stuttmynd,“ segir Ari og bætir við að hún fjalli um stelpu og strák sem halda til hafs til að veiða þann stóra. Gerð myndarinnar var liður í samstarfsverkefni með Sambandi evrópskra sjónvarps- og útvarpsstöðva, EBU. Ari er formaður Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda og hann bindur miklar vonir við að brátt verði ritað undir nýjan samning við menntamálaráðuneytið um fjármögnun kvikmyndagerðar til 2015. Uppkast liggi fyrir og fundað verði með ráðherra fljótlega. „Það finnst mér vera stærstu tímamótin núna,“ segir Ari. Ari Kristinsson kvikmyndagerðarmaður 60 ára Sá stóri sýndur um páska Flóðogfjara 16. apríl Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 4.43 3,8 11.04 0,2 17.13 3,9 23.27 0,1 5.53 21.03 Ísafjörður 0.46 0,1 6.39 2,1 13.09 -0,1 19.15 2,1 5.49 21.17 Siglufjörður 2.40 0,1 8.54 1,2 15.13 0,0 21.26 1,3 5.31 21.01 Djúpivogur 1.59 2,0 8.08 0,4 14.22 2,2 20.35 0,2 5.20 20.35 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Sumir halda að loforð séu bara til þess að brjóta þau. Ef þú heldur áfram á sömu braut kemstu í mark fyrr en þig grunar. (20. apríl - 20. maí)  Naut Einbeittu þér að heimili og fjölskyldu í dag. Með góðri skipulagningu tekst þér það. Mundu að ekkert er dýrmætara en heilsan. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú ert að velta fyrir þér hugsan- legum breytingum í vinnunni eða á heimilinu. Notaðu tímann til þess að kaupa inn, sinna viðskiptum og/eða jafnvel að skreppa í stutt- ar ferðir. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú hefur mikla ánægju af skemmtun og leik með ungviðinu í dag. Taktu eftir að sá sem biður þig um álit er í raun að falast eftir samþykki þínu. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Eigir þú ekki gilt vegabréf skaltu fá þér það. Varaðu þig á því að láta ofurkraftinn í þér ekki eyðileggja fyrir þér samband sem þér líst vel á. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú færð leiðbeiningar frá einhverjum sem veit hvað er að gerast í þínu lífi. Þú finn- ur til þreytu. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Hjarta þitt er fullt auðmýktar. Reyndu að skynja þetta augnablik og nýta þér vitneskj- una sem þú býrð yfir. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það er engin ástæða til þess að láta stundarerfiðleika draga úr sér allan mátt. Vertu örugg/ur með þig. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Stundum verður þú að leggja mikið á þig til þess að ryðja veginn. Einhver gerir eitthvað í dag, sem færir viðkomandi úr ytri hring í hinn innri. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Dagurinn í dag er mjög illa til þess fallinn að ræða um þýðingarmikil mál. Brjóttu odd af oflæti þínu og leitaðu þér aðstoðar. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Einhver virðist staðráðinn í því að koma óorði á þig, ekki láta stöðu viðkomandi villa um fyrir þér. Rifjaðu upp hvernig það er að fara í göngutúr. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Löngun til að kíkja til útlanda og sjá eitthvað nýtt vaknar hjá þér í dag. Reyndu að ná samkomulagi um afnot af sameiginlegum eignum. Stjörnuspá Gunnar Sveinn Krist- insson, Eyja- bakka 13, Reykjavík verð- ur sextugur á morgun, 17. apríl. Hann verður með opið hús á heimili sínu milli kl. 15 og 17 á afmælisdaginn. Vinir og vanda- menn eru velkomnir. 60 ára Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.