Morgunblaðið - 16.04.2011, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 16.04.2011, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2011 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Vorkoma nefnast síðustu Tíbrár- tónleikar vetrarins í Salnum, í dag laugardag klukkan 17. Þá koma fram á ljóðasöngstónleikum þær Sigríður Ósk Kristjánsdóttir messó- sópran, Anna Guðný Guðmunds- dóttir píanóleikari og Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari. Ljóðin sem flutt eru á tónleik- unum fjalla mörg hver um ástir og drauma. Á efnisskránni eru meðal annars söngflokkurinn Frauenliebe und Leben eftir Robert Schumann, tvö sönglög eftir Johannes Brahms fyrir selló, messósópran og píanó, ásamt útsetningum á íslenskum þjóðlögum fyrir selló, rödd og píanó eftir Margréti Sigurðardóttur. „Mig langaði til að flytja þessi lög Brahms fyrir söng, selló og píanó og leitaði því til Bryndísar Höllu, auk Önnu Guðnýjar,“ segir Sigríður Ósk og bætir við að hún sé afskaplega hrifin af sellóinu, en oft er sagt að tónninn í því liggi nærri mannsrödd- inni. „Sellóið er einnig með í íslensku þjóðlagaútsetningunum,“ segir hún. „Ég varð mjög glöð þegar ég upp- götvaði þessar fallegu útsetningar á þjóðlögunum.“ Sigríður Ósk stundaði framhalds- nám við óperudeildina í Royal Col- lege of Music í London. Þaðan út- skrifaðist hún með meistaragráðu í tónlist árið 2009. Söngflokk Schu- manns flutti hún síðast þar í borg, fyrir þremur árum, í St. Martin-in- the-Fields. „Það verk hefur fylgt mér í nokkur ár og mig langaði að flytja það hér heima. Þetta er laga- flokkur um unga konu sem endar á dramatískan hátt.“ Sigríður Ósk flutti heim í haust og hafði þá verið í Englandi í sjö ár. „Ég er þar ennþá með annan fót- inn, er með umboðsmann úti og ýmis verkefni,“ segir hún. Söngkonan er nýkomin frá Lond- on þar sem hún söng með Dame Emma Kirby og South Bank Sin- fony í uppfærslu óratoríu eftir Moz- art og Vivaldi. „Það gekk frábærlega vel,“ segir hún. efi@mbl.is Ástir og drama á tón- leikum sem boða vor  Sigríður Ósk Kristjánsdóttir á Tíbrártónleikum Flytjendurnir Bryndís Halla Gylfadóttir, Anna Guðný Guðmundsdóttir og Sigríður Ósk Kristjánsdóttir messósópransöngkona. Bókaforlagið Uppheimar sendir frá sér fjórar nýjar ljóðabækur um helgina. Það eru Kafbátakórinn eftir Steinunni G. Helgadóttur, sem fyrir skömmu hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör; Blindir fiskar, sem er önnur ljóða- bók Magnúsar Sigurðssonar sem hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir sína fyrstu ljóðabók; Höfuð drekans á vatninu eftir Guðbrand Sigurlaugsson, en það er hans ellefta ljóðabók; og Mar- lene og ég eftir Gunnar M.G. en það er hans þriðja ljóðabók. „Það er ekkert vit í öðru en að gefa út ljóðabækur,“ segir Kristján Kristjánsson útgefandi. „Það getur verið vafasamur bissness en þokka- lega stöndug forlög eiga vitaskuld að gefa út ljóðabækur. Þetta er svo mikilvægur þáttur í bókmenntaflór- unni; sérstaklega þar sem við erum staðin upp úr tímum þar sem auð- urinn var mælikvarði alls, þá finnst okkur við hæfi að andæfa gegn því. Eins er mikilvægt að gefa nýjum höfundum tækifæri.“ Fimmta ljóðabókin sem Upp- heimar gefa út í þessum mánuði eru ljóðaþýðingar Gyrðis Elíassonar, Tunglið braust inn í húsið, en Einar Kárason gaf henni fimm stjörnur í umfjöllun hét í blaðinu. Gyrðir verður á kiljulagernum við hlið Uppheima á Stórhöfða í dag, milli 14 og 16, og áritar Milli trjánna, bókina sem hann hlýtur Bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs fyrir. Gefa út fjórar ljóðabækur  Gyrðir Elíasson áritar bækur í dag Guðbrandur Sigurlaugsson Gyrðir Elíasson Magnús Sigurðsson Steinunn G. Helgadóttir Myndlistarmað- urinn Helgi Þor- gils Friðjónsson og Hanna Styrm- isdóttir sýn- ingastjóri ræða á morgun, sunnu- dag, klukkan 15 á Kjarvalsstöðum, um aðkomu sína að Feneyjatvíær- ingnum. Þau veita þar nánari innsýn í verk og verkefni sín í Feneyjum á sýning- unni Sýning sýninganna – Ísland í Feneyjum í 50 ár. Helgi Þorgils var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 1990 og sýndi málverk í finnska skálanum en Hanna var sýningastjóri hjá Stein- grími Eyfjörð, sem sýndi árið 2007 í gömlum flóðakjallara miðsvæðis í borginni. Fjalla um Feneyja- tvíæringinn Helgi Þorgils Friðjónsson Sýningin Endur- fundir verður opnuð í Minja- safni Austur- lands í dag, laug- ardag, klukkan 13.00. Sýningin stóð í Myndasal Þjóð- minjasafns Ís- lands á árunum 2009 til 2010 og fjallaði um fornleifarannsóknir sem styrktar voru af Kristnihátíðarsjóði árin 2001-2005. Er þetta sá hluti sýningarinnar sem fjallaði um rannsóknir á Skriðuklaustri. Kaþólski presturinn Pétur Ková- cik syngur tíðabænir og flytur Steinunn Kristjánsdóttir, fornleifa- fræðingur og verkefnisstjóri rann- sóknarinnar, erindið „Skriðu- klaustur og náðarverkin sjö“. Að þessu loknu verður gestum boðið upp á þjóðlegar veitingar. Endurfundir á Egilsstöðum Af sýningunni Endurfundum Þorri Hringsson myndlistar- maður verður með leiðsögn um sýningu þeirra Sigtryggs Bjarna Sigtryggssonar, Varanleg augna- blik, í menning- armiðstöðinni Hafnarborg í Hafnarfirði á sunnudag kl. 15. Báðir nota myndlistarmennirnir náttúruna og landslagið sem upp- sprettu hugmynda í verkum sínum og eru þekktir fyrir málverk sem endurspegla persónulega nálgun við áþekk viðfangsefni. Þeir fara þó hvor sína leið í nálgun sinni við mál- verkið og eiginleika þess; Sig- tryggur beinir sjónum að eðli fyr- irbæra í náttúrunni en Þorri snýr sér beint að myndefninu. Málverk hans sýna umhverfi Haga í Aðaldal. Þorri fjallar um Varanleg augnablik Þorri Hringsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.