Morgunblaðið - 16.04.2011, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2011
Guðbjartur Hannesson velferðar-
ráðherra og Gissur Pétursson, for-
stjóri Vinnumálastofnunar, kynntu í
gær átaksverkefni til að fjölga störf-
um á vegum stofnana ríkisins og
sveitarfélaga fyrir námsmenn og at-
vinnuleitendur í júní og júlí. Um 900
störf verða auglýst í sérstöku aug-
lýsingablaði sem dreift verður nú um
helgina. Upplýsingar um störfin
verða á heimasíðum sveitarfélaga
sem taka þátt í verkefninu og á síðu
Vinnumálastofnunar, vmst.is.
Efnt var til sambærilegs átaks síð-
astliðið sumar sem þótti takast afar
vel, um 900 námsmenn og atvinnu-
leitendur fengu þá sumarstörf, að
því er segir í fréttatilkynningu.
Sem dæmi um störf núna má
nefna aðstoð við uppbyggingu náms í
blaða- og fréttamennsku við Fé-
lagsvísindasvið Háskóla Íslands og
rannsóknarvinnu til að kanna áhrif
sjóstangaveiðiferðamennsku á Vest-
fjörðum á vegum verkfræði- og nátt-
úruvísindasviðs HÍ.
Rannsóknir á exemi
Einnig vinnu við átaksverkefni í
uppbyggingu gæðahandbókar og
skönnun á heilbrigðisupplýsingum
hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis-
ins, vinnu við viðhorfskönnun á
Hornafirði um nýsköpunarsetur á
vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Ís-
lands, vinnu við rannsóknir á sum-
arexemi í hestum á vegum Tilrauna-
stöðvarinnar á Keldum, aðstoð við
átak í eflingu og markaðssetningu á
náms- og starfstengdum úrræðum
fyrir atvinnuleitendur á vegum
Vinnumálastofnunar og aðstoð við
skipulag friðlýstra fornleifa í Hús-
hólma á vegum Fornleifaverndar
ríkisins.
Á vegum stofnana ríkisins verða
um 500 störf í boði en um 400 á veg-
um sveitarfélaga. Skilyrði fyrir ráðn-
ingu námsmanna er að þeir séu á
milli anna í námi en atvinnuleitendur
þurfa að vera á skrá Vinnumála-
stofnunar með staðfestan bótarétt.
Opnað verður fyrir umsóknir í dag
og umsóknarfrestur er til 8. maí.
Til verkefnisins renna 250 millj-
ónir kr. frá Atvinnuleysistrygginga-
sjóði auk 106 milljóna úr ríkissjóði.
Mótframlagi ríkisins er ætlað að
mæta viðbótarkostnaði stofnana
þess svo unnt sé að greiða laun sam-
kvæmt kjarasamningum en sveitar-
félögin munu sjálf standa straum af
þessum viðbótarkostnaði.
kjon@mbl.is
Um 900 sumarstörf á
vegum opinberra aðila
Störf Guðbjartur Hannesson og Gissur Pétursson kynna átakið í gær.
Sams konar
átaksverkefni þótti
takast vel í fyrra
Liður í aðgerðum
» Störfin sem boðin verða eru
liður í vinnumarkaðsaðgerðum
á vegum Vinnumálastofnunar
samkvæmt lögum um atvinnu-
leysistryggingar og vinnumark-
aðsaðgerðir.
» Þau henta bæði konum og
körlum og öllum umsóknum
verður svarað. Launakjör fara
eftir kjarasamningum viðkom-
andi stéttarfélaga.
Lónið við Árbæjarstíflu er nú tómt
en starfsmenn Orkuveitu Reykja-
víkur byrjuðu að hleypa niður úr
lóninu á fimmtudag. Nú munu
grasbalar, tré og runnar sem hafa
verið í kafi í allan vetur taka við sér
og grænka, að því gefnu að vet-
urinn losi um sitt kalda krumlutak.
Fuglar virtust þegar byrjaðir að
leita sér að hentugum varpstað í
gær.
Vatnið í lóninu hefur knúið Raf-
stöðina í Elliðaárdal í um 90 ár en á
því varð reyndar hlé í vetur. Að-
fallsrör stöðvarinnar reyndist
skemmt og ákveðið var að skrúfa
fyrir það. Fyrir nokkrum árum
brast rörið með tilheyrandi flóði og
landsskemmdum og vildi Orkuveit-
an fyrir alla muni koma í veg fyrir
að slíkt endurtæki sig.
Orri Vigfússon, formaður NASF,
Verndarráðs villtra laxastofna, vill
að úr því að raforkuframleiðslu
hefur verið hætt verði stíflan opn-
uð á tveimur stöðum þannig að
vatnið flæði óhindrað niður dalinn.
Þannig muni færast nýr kraftur í
lífríki ánna og laxastofn hennar.
Samkvæmt upplýsingum frá Orku-
veitu Reykjavíkur hefur ekkert
verið ákveðið í þessum efnum, eina
ákvörðunin sem hafi verið tekin
hafi verið að loka fyrir aðfallsrörið
í haust. Enn er eftir að taka
ákvörðun um hvort gert verður við
það og hvort raforkuframleiðsla
hefst á nýjan leik.
Meðal þeirra sem munu sýta lok-
un Rafstöðvarinnar eru
straumkajakræðrar sem hafa notað
strauminn sem kemur undan Raf-
stöðinni til að leika ýmsar kúnstir.
Þeir efna á hverju vori til Elliða-
árródeós á ánum en það fellur nið-
ur að þessu sinni þar sem engin
framleiðsla fer nú fram í stöðinni.
runarp@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Stífla Ingi Þór Ingason, vélfræðingur hjá OR, opnar fyrir Jenslokann á Ár-
bæjarstíflu. Fleiri loka þarf að opna svo lónið geti tæmst.
Gróðurinn gægist
upp við stífluna
Að greinast aftur
og aftur og aftur...
Að lifa með krabbameini
Örráðstefna mánudaginn 18. apríl 2011
kl. 16:30-18:00 í Ráðgjafarþjónustu
Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.
Sími 540 1900
www.krabb.is
krabb@krabb.is
16:30-16:35 Ráðstefnan sett.
Ragnheiður Haraldsdóttir
forstjóri Krabbameinsfélags Íslands.
16:35-16:45 Af hverju er krabbamein sjúkdómur en
ekki dauðadómur?
Laufey Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri
Krabbameinsskrár.
16:45-17:00 Að reikna með lífinu
Gunnhildur Óskarsdóttir lýsir sinni
reynslu.
17:00-17:10 Ótuktin
Valgeir Skagfjörð og Katla Margrét
Þorgeirsdóttir kynna Ótuktina, einleik
byggðan á bók Önnu Pálínu Árnadóttur
sem fer á svið í Iðnó í lok apríl.
17:10–17:50 Ekki bara að þrauka heldur lifa með
krabbameini.
Mary Schnack sem greinst hefur 7
sinnum með krabbamein segir frá því
hvernig hún hefur sigrað hverja orustuna
á fætur annarri.
17:50-18:00 Ráðgjöf, spurningar og svör.
Ragnheiður Alfreðsdóttir hjúkrunar-
fræðingur segir frá starfi Ráðgjafar-
þjónustu Krabbameinsfélagsins, stuðning-
shópum félagsins og svæðafélögum.
18:00-18:30 Kaffi og spjall.
Sókn í sextíu ár • 1951-2011
Allir velkomnir - Aðgangur ókeypis
Laugardagur til lista
Í dag milli kl. 12.00 – 17.00 eru verk eftir Hörð Ágústsson,
listmálara og fræðimann til sýnis í höfuðstöðvum Arion
banka, Borgartúni 19. Upptökur af fyrirlestrum Péturs
Ármannssonar og Ólafs Gíslasonar um listamanninn
verða sýndar í ráðstefnusal bankans.
Sýningin er einnig opin alla virka daga í apríl
milli kl. 11.00 – 15.30.
Verið velkomin.