Morgunblaðið - 16.04.2011, Qupperneq 25
FRÉTTIR 25Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2011
Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
Verðbólga á evrusvæðinu í mars
mældist 2,7% á ársgrundvelli. Verð-
bólga á evrusvæðinu hefur nú ekki
mælst meiri í 29 mánuði og bendir
mælingin til þess að frekari vaxta-
hækkanir séu í burðarliðnum hjá
Evrópska seðlabankanum.
Verðbólgan í mars fór í 2,7% frá því
að mælast 2,4% í febrúar. Hefur hún
ekki mælst meiri frá því í október árið
2008 þegar hún fór í 3,2%. Hækkun á
bensíni og olíu til kyndingar í mars-
mánuði er að stórum hluta á bak við
hækkun verðlags á evrusvæðinu.
Hinsvegar eru vísbendingar um að
kjarnaverðbólga – sem tekur ekki til
verðþróunar á orku og matvöru – sé
einnig að aukast. Kjarnaverðbólga í
mars mældist 1,3% á ársgrundvelli í
mars en mælingin í febrúar sýndi
kjarnaverðbólgu í einu prósenti á árs-
grundvelli.
Evrópski seðlabankinn brást við
vaxandi verðbólguþrýstingi á dögun-
um með fyrstu hækkun stýrivaxta í
þrjú ár: Stýrivextir eru nú 1,25%.
Fjármálamarkaðir reikna fastlega
með að bankinn muni þurfa að grípa
til frekari stýrivaxtahækkunar á
næstunni. Hinn nafntogaði hagfræð-
ingur Nouriel Roubini spáir til að
mynda að stýrivextir á evrusvæðinu
fari hugsanlega yfir 3% á næsta ári.
Verðbólguþrýstingurinn
stigmagnast á evrusvæðinu
Mældist 2,7% í
mars Vaxta-
hækkanir líklegar
Reuters
Seðlabankastjóri Jean-Claude Trichet þarf líklega að hækka stýrivexti
frekar á næstunni vegna vaxandi verðbólguþrýstings.
Átta mánuðir eru liðnir frá því
Straumur fjárfestingarbanki sótti
um fjárfestingarbankaleyfi til
Fjármálaeftirlitsins, en umsóknin
hefur ekki enn verið afgreidd. Í
raun er lengra síðan umsókn-
arferlið hófst, því bankinn sótti í
ágúst 2009 um að fá að halda
hinu gamla leyfi Straums-
Burðaráss, sem þá hafði verið
tekinn yfir af FME. Að sögn
Benedikts Gíslasonar, forstjóra
Straums, sendi bankinn, á tíma-
bilinu frá ágúst 2009 til júlí 2010,
bróðurpartinn af þeim gögnum
sem nauðsynleg eru í umsókn-
arferli sem þessu.
„Sumarið 2010 greiddu almenn-
ir kröfuhafar Straums-Burðaráss
síðan atkvæði um nauðasamning
félagsins. Þar var Straumi-
Burðarási skipt upp í eignaum-
sýslufélagið ALMC annars vegar
og Straum fjárfestingarbanka
hins vegar. Þar með staðfestu
kröfuhafar þann vilja sinn að
endurreisa hófstillta fjárfesting-
arbankastarfsemi á Íslandi og í
framhaldinu var nýtt hlutafé
greitt inn. Skipting félagsins
gerði það hins vegar að verkum
að ekki nægði að endurnýja leyf-
ið heldur þurftum við að sækja
um nýtt fjárfestingarbankaleyfi.“
Benedikt segir að biðin eftir leyf-
inu hafi vissulega verið löng en
samskiptin við FME hafi verið
góð og hann búist við því að um-
sóknin verði afgreidd innan tíðar.
bjarni@mbl.is
Straumur ekki enn
kominn með leyfið
Hefur sótt um fjárfestingarbankaleyfi
Breyttar aðstæður á heimsmarkaði hafa leitt til nýrra viðskiptatækifæra í orkugeiranum. Á Íslandi
eru markaðstækifærin fjölbreyttari en áður. Landsvirkjun hefur unnið að greiningu tækifæra
í ljósi breyttra aðstæðna á heimsmörkuðum og leggur nú áherslu á að vera markaðs- og
rekstrardrifið fyrirtæki. Hver eru tækifærin og hvað þýða þau fyrir viðskiptaumhverfið á Íslandi?
Á fundinum mun Dr. Hörður Arnarsson forstjóri og Magnús Bjarnason framkvæmdastjóri
markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs kynna og ræða framtíðarsýn félagsins með sérstaka áherslu á
breytt vinnubrögð í markaðsmálum.
Dagskrá:
• Framtíðarsýn Landsvirkjunar.
Dr. Hörður Arnarsson, forstjóri Landsvirkjunar.
• Hvaðan kemur eftirspurnin? Hvað hefur breyst og hvaða áhrif hefur það á
rekstur Landsvirkjunar?
Magnús Bjarnason, framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs
Landsvirkjunar.
• Í framhaldi af framsöguerindum verða umræður.
Fundarstjóri:
Dr. Þórhallur Örn Guðlaugsson, dósent við Viðskiptafræðideild og formaður
Viðskiptafræðistofnunar.
Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis
Orkan, Landsvirkjun
og framtíðin
- fjölbreytt markaðstækifæri í orkuiðnaði
Þriðjudaginn 19. apríl kl. 12:00 -13:15. Háskólatorgi 105
VIÐSKIPTAFRÆÐIDEILD