Morgunblaðið - 17.05.2011, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 7. M A Í 2 0 1 1
Stofnað 1913 114. tölublað 99. árgangur
SIGLDI UM Á
KAJAK VÍÐA Í
SUÐUR-AMERÍKU
FRUM-
SÝNDU TVÖ
DANSVERK
GAMAN AÐ
VERA LETINGI
Í CANNES
GAFLARALEIKHÚSIÐ 31 BÍÓ Á MORGNANA 32FÓR Á 5 MÁNAÐA FLAKK 10
Önundur Páll Ragnarsson
Kristján Jónsson
„Fyrirvarar mínir eru varðandi úthlutanir ráð-
herra og sveitarfélaga,“ segir Björgvin G. Sig-
urðsson, þingmaður Samfylkingarinnar á Suð-
urlandi, um frumvörp til breytinga á lögum um
stjórn fiskveiða. Þingflokkar stjórnarflokkanna
afgreiddu frumvörpin í gær og verða þau lögð
fram á Alþingi von bráðar. Þingmenn Samfylk-
ingarinnar settu þó fjölmarga fyrirvara.
,,Ég tel að öll verðmyndun úr pottum eigi að
verða á markaði,“ segir Björgvin, sem geldur
varhug við pólitískri tengingu við úthlutun afla-
heimilda frá ári til árs. „Það verður að teljast
ákveðin málamiðlun en veigamikið skref engu
að síður.
Samfylkingarmaðurinn Sigmundur Ernir
Rúnarsson er fulltrúi Norðausturkjördæmis en
þar eru mörg afar öflug sjávarútvegsfyrirtæki.
„Ég vil að úthlutað sé á markaðsforsendum,
ekki pólitískum,“ segir Sigmundur. „Ég er
einnig á því að leyfa þurfi í einhverjum mæli
framsal kvóta, með takmörkunum þó. Tryggja
þarf hagkvæmni og öflug fyrirtæki þurfa að
vera til. Best væri að það væri metið af sér-
fræðinganefnd hvaða fyrirtæki séu svo vel rek-
in að þau verði að fá að vera áfram til.“
MÓttast pólitíska úthlutun »6
Setja marga fyrirvara
Samfylkingarþingmenn samþykkja kvótafrumvörp en vilja margvíslegar breyt-
ingar og gagnrýna að stjórnmálamenn verði látnir úthluta veiðiheimildum
afar óheppilegt að láta stjórnmálamenn úthluta
veiðiheimildum,“ bætir hann við. Best sé að
markaðstengingin sé sem mest. Björgvin styð-
ur þó meginatriði frumvarpanna, svo sem inn-
köllun veiðiheimilda í einu lagi og ,,raunveru-
legt“ veiðigjald, eins og hann orðar það.
Innköllun á einu bretti sé skynsamlegri en ár-
leg fyrning hluta aflaheimildanna. Þetta sé
Ég er einnig á því að leyfa
þurfi í einhverjum mæli
framsal kvóta, með tak-
mörkunum þó.
Sigmundur Ernir Rúnarsson
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Rat-
ings breytti í gær horfum fyrir láns-
hæfiseinkunn Íslands úr neikvæðum í
stöðugar. Einkunnin er hins vegar
óbreytt, BB+, sem þýðir að íslensk
ríkisskuldabréf eru flokkuð í svo-
nefndum ruslflokki.
Paul Rawkins, sem fer með málefni
Íslands hjá Fitch, sagði í febrúar að
lausn Icesave-deilunnar við Breta og
Hollendinga væri lykilatriði til þess
að Fitch myndi breyta horfum úr nei-
kvæðum í stöðugar. Núna segir hann
hins vegar að mun minni hætta sé á
því að óleyst Icesave-deila leiði til
þess að fjármögnun í tengslum við
efnahagsáætlun stjórnvalda og Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins verði dregin
til baka. Einnig er bent á í greinar-
gerð með ákvörðun Fitch að stjórn-
völd séu fullviss um að endurheimtur
úr þrotabúi Landsbankans muni skila
á bilinu 90-100% af kröfum vegna Ice-
save-reikninga.
Sem áður segir er lánshæfisein-
kunn Íslands ennþá í svokölluðum
ruslflokki hjá Fitch, en ákvörðun fyr-
irtækisins í gær skiptir engu að síður
miklu máli, því hún er í raun sú fyrsta
frá árinu 2006 þar sem Fitch bætir
lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins
með einhverjum hætti.
Sérfræðingar Fitch segja að nauð-
synlegt sé að ráðast í víðtækar að-
gerðir vegna skuldsetningar einka-
geirans. Einnig sé nauðsynlegt að
viðhalda hagstæðum viðskiptajöfnuði
sem og auka gjaldeyrisforðann til að
hægt sé að afnema gjaldeyrishöft og
þar með fá skilaboð markaðarins um
raunverulegt verðgildi krónunnar.
Fitch skiptir
um skoðun
Fitch breytir horfum fyrir lánshæfi
Íslands úr neikvæðum í stöðugar
Matsfyrirtæki Merki Fitch á höfuð-
stöðvum fyrirtækisins í London.
„Ég hugsa að
það séu ekki
mörg tungumál
sem væri hægt
að fara svona
með, að nota
forrit sem er
lagað að einu
málstigi og
beita því svona
auðveldlega á
700 til 800 árum eldri texta,“ segir
Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í
íslenskri málfræði við Háskóla Ís-
lands.
Forrit sem þróað var innan Árna-
stofnunar til málfræðigreiningar á
nútímatexta reyndist einnig geta
greint texta Íslendingasagnanna og
Sturlungu með viðunandi hætti. Sú
fullyrðing að Íslendingar geti lesið
fornrit sín með auðveldari hætti en
aðrar þjóðir virðist því hreint ekki
svo fjarri lagi. »14
Tæknin les fornritin
líkt og nútímamál
Yfir fimm þúsund óvátryggð öku-
tæki eru í umferð hér á landi. Nýtt
úrræði í frumvarpi efnahags- og
viðskiptaráðherra um ökutækja-
tryggingar á að tryggja fækkun
slíkra ökutækja, öllum greiðendum
iðgjalda til bóta.
Verði frumvarpið óbreytt að lög-
um hefur Umferðarstofa heimild til
að krefjast nauðungarsölu ökutæk-
is eða að það verði selt til niðurrifs
ef eigandi eða umráðamaður hefur
ekki greitt iðgjald vátrygginga í
vanskilum einum mánuði eftir að
ökutækið er kyrrsett. »18
Yfir fimm þúsund
óvátryggð ökutæki
Hann var vel búinn, hjólreiðamaðurinn á Sæbrautinni í gær enda svalt í
veðri. Að sögn Haralds Eiríkssonar, veðurfræðings á Veðurstofu Íslands,
má búast við aðgerðalitlu veðri í dag. En um helgina verður norðaustanátt,
búast má við næturfrosti víða um landið og sums staðar slyddu yfir daginn.
Spáð vorhreti um helgina
Morgunblaðið/Eggert
Hátt í tvö þús-
und umsóknir um
heimild til
greiðsluaðlög-
unar eru óaf-
greiddar hjá um-
boðsmanni
skuldara. Fleiri
umsóknir hafa
borist í hverjum
mánuði en hægt
hefur verið að afgreiða, þar til nú
að nokkurt jafnvægi hefur náðst.
Frá því að nýjar reglur um heim-
ild til greiðsluaðlögunar tóku gildi
á síðasta ári hefur embætti umboðs-
manns skuldara afgreitt um 700
umsóknir. Þar af voru samtals á
annað hundrað afturkallaðar eða
synjað. Enn fleiri umsóknir eru óaf-
greiddar, því hinn 1. maí biðu 1963
umsóknir afgreiðslu, samkvæmt
upplýsingum embættisins. »2
1963 umsóknir um
greiðsluaðlögun bíða
Lögmaður Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóra
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, fór í gær fram á að hann yrði
látinn laus gegn allt að milljón dala tryggingu en dómari
í New York hafnaði því. Ekki mun vera framsalssamn-
ingur milli Bandaríkjanna og Frakklands. Næst verður
réttað í málinu á föstudag.
Lögmaðurinn spurði hvort ákærði fengi að ganga laus
ef hann bæri rafrænt ökklaband sem gerir kleift að
fylgjast með ferðum fanga og ef saksóknarinn sætti sig
við þá tilhögun. Dómarinn hafnaði þessari ósk líka.
Strauss-Kahn er gefið að sök að hafa beitt hótelþernu
í New York grófu kynferðisofbeldi. »17
Strauss-Kahn áfram í varðhaldi
Strauss-Kahn í
réttarsal í gær.