Morgunblaðið - 17.05.2011, Síða 16

Morgunblaðið - 17.05.2011, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 2011 Örn Arnarson ornarnar@mbl.is Samkvæmt nýju frumvarpi efnahags- og viðskiptaráðherra um breytingar á lögum um gjaldeyrismál mun ríkið setja hámark á heimildir til kaups á gjaldeyri vegna fasteignakaupa er- lendis og kaupa á bifreið. Samkvæmt frumvarpinu eru fjármagnshreyfing- ar vegna fasteignaviðskipta erlendis óheimilar, en hinsvegar má kaupa gjaldeyri fyrir 100 milljónir, sé sýnt fram á að fasteignakaupin séu í tengslum við búferlaflutninga. Einnig eru sett talmörk á hversu dýran bíl fólk sem flytur utan getur keypt sér ef það þarf að kaupa gjaldeyri. Sam- kvæmt frumvarpinu má ekki kaupa gjaldeyri fyrir meira en 10 milljónir króna vegna bílakaupa í tengslum við búferlaflutninga erlendis. Tekið er sérstaklega fram í frumvarpinu að slík kaup séu einungis heimil einu sinni. Í athugasemdum við frumvarpið kemur fram að það þyki „eðlilegt að afmarka heimildina við tiltekna há- marksfjárhæð með hliðsjón af þeim fordæmum sem afgreiðslur mála hjá Seðlabankanum hafa skapað.“ Í raun og veru þýðir þetta að hámarksfjár- hæðin er eingöngu ákvörðuð út frá þeim ákvörðunum sem embættis- menn Seðlabankans hafa tekið frá því að gjaldeyrishöftin tóku gildi. Annar rökstuðningur liggur ekki að baki þessari hámarksfjárhæð í skýringum frumvarpsins. Vert er að geta í þessu samhengi að íslenska ríkið hefur verið virkt í fasteignakaupum erlendis á undanförnum árum. Fyrir tveim ár- um var keyptur sendiráðsbústaður í Danmörku fyrir ríflega 250 milljónir króna og í fyrra voru fest kaup á sendiráðsbústað í London fyrir hátt í 900 milljónir króna. Augljóslega hefði ríkissjóður þurft að fá undanþágu hefði frumvarp efnahags- og við- skiptaráðherra verið orðið að lögum þegar viðskiptin áttu sér stað. Bílakaup nýmæli Í frumvarpinu er það nýmæli að Ís- lendingar sem flytja búferlum til út- landa er nú heimilt að kaupa bifreið í tengslum við flutningana, en sem fyrr segir verður ekki hægt að kaupa gjaldeyri fyrir meira en 10 milljónir í tengslum við slík viðskipti. Takmarkanir á húsa- og bílakaupum  Gjaldeyrisfrumvarp takmarkar gjaldeyriskaup vegna búferlaflutninga  Hámarksheimild vegna fasteignakaupa 100 milljónir  Ríkið keypti sendiherrabústað í London á tæpar 900 milljónir í fyrra Reuters Heimild Gjaldeyriseftirlit Seðlabankans ætti að gefa grænt ljós á kaup á Mini, verði frumvarpið að lögum, rétt eins og strákarnir í Kiss gera. Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Ríflega 1.900 fyrirtæki, sem hin svo- kallaða Beina braut nær til, hafa fengið úrlausn sinna mála hjá lána- fyrirtækjum, að því er segir í tilkynn- ingu frá efnahags- og viðskiptaráðu- neyti. Þar af hefur skuldavandi 973 fyrirtækja verið leystur með Beinu brautinni, þ.e. með niðurfærslu skulda. Vandi 672 fyrirtækja hefur verið leystur án afskrifta, en þá hefur til dæmis verið lengt í lánum og að lokum hefur vandi 280 fyrirtækja verið leystur þannig að eftirstöðvar erlendra og gengistryggðra lána hafa verið lækkaðar um 25 prósent. Enn eru 526 fyrirtæki í skoðun hjá bönkunum, en samkvæmt efnahags- og viðskiptaráðuneytinu er stefnt að því að þau muni öll fá tilboð um end- urskipulagningu skulda sinna fyrir mánaðarlok. Jákvætt en gengur hægt Um sex þúsund fyrirtæki falla undir skilyrði Beinu brautarinnar, sem er aðallega að skuldir þeirra séu á bilinu 10-1.000 milljónir króna. Þar af eru 2.000 fyrirtæki ekki í greiðslu- vanda og ríflega 1.550 fyrirtæki standa svo illa að þau fara að líkind- um í þrot. Almar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Félags atvinnurek- enda segir verkefnið sem slíkt hafa verið jákvætt, en markmiðin hafi verið háleit. „Gangurinn hefur verið hægari en gert var ráð fyrir. Tilboð frá bönk- unum eiga að koma fyrir júníbyrjun, en svo eiga viðskiptavinirnir eftir að svara þeim og svo verður gengið frá samkomulagi. Ég hef af því áhyggjur að þetta muni því dragast fram á sumarið. Málið er gott, en þetta gengur of hægt,“ segir hann. Þá vekur Almar athygli á því að nokkur fjöldi fyrirtækja sé ekki inni á beinu brautinni, annað hvort af því að þau skulda meira eða minna en verkefnið gerir ráð fyrir. Hvað varði þau fyrirtæki sem skuldi meira en einn milljarð króna hafi orðið vart við töluverða tregðu, en hún hafi verið bæði hjá fyrirtækjunum sjálfum og bönkunum. „Fjölmörg fyrirtæki, sem ekki eru í eiginlegum skuldavanda hafa kvart- að yfir því að fá ekki leiðréttingar vegna ólögmætra gengistryggðra lána. Bankarnir hafa vissulega sýnt samstarfsvilja í Beinu brautinni, en hann hefur kannski skort þegar kem- ur að gengistryggðum lánum fyrir- tækja sem ekki falla undir Beinu brautina. Í vikunni mun væntanlega falla annar dómur um slík lán þannig að málin eru farin að skýrast mjög varðandi þessi ólögmætu lán. Bankarnir hafa, hingað til að minnsta kosti, verið mjög harðir í horn að taka og viljað láta reyna á alla skapaða hluti þótt okkur þyki komin sæmilega skýr mynd á lands- lagið hvað varðar þessi lán.“ Brátt mun sjá fyrir end- ann á Beinu brautinni  Framkvæmda- stjóri FA gagn- rýnir seinagang Morgunblaðið/Ernir Undirritun Skrifað var undir samkomulag um úrræði fyrir smá og meðal- stór fyrirtæki í skuldavanda þann 15. desember í fyrra. Exeter Holdings ehf. hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta, að því er kom fram í Lögbirtingablaðinu í gær. Félagið er miðpunktur dóms- máls sem nú stendur yfir, en sér- stakur saksóknari ákærði þrjá ein- staklinga vegna lána sem Byr veitti félaginu í október og desember 2008, eftir að stóru bankarnir þrír höfðu farið í þrot. Keypti Exeter Holdings 1,8% stofnfjárhlut í Byr á yfirverði eftir að hafa fengið lánin. Meðal þeirra sem seldu voru MP banki og tveir stjórnarmenn í Byr. MP banki hafði eignast bréfin í Byr eftir veðkall í bréf sparisjóðsstjóra Byrs og tveggja annarra stjórn- armanna. Talið er að um umboðs- svik hafi verið að ræða. Byr hefur að sama skapi höfðað skaðabótamál á hendur þeim sem sæta ákæru sér- staks saksóknara. thg@mbl.is Exeter Holdings komið í þrot  Dómsmál stendur nú yfir í héraði Skuldabréfavísitala GAMMA hækk- aði um 0,54 prósent í viðskiptum gærdagsins og endaði í 209,07 stig- um. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,63 prósent og sá óverðtryggði um 0,29 prósent. Velta á skuldabréfamarkaði í gær nam 11,6 milljörðum króna og var stærstur hluti veltunnar vegna við- skipta með verðtryggð bréf. Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,3 prósent í afar litlum viðskiptum í gær. BankNordik lækkaði um 1,63 prósent og Ice- landair Group um 0,62 prósent. bjarni@mbl.is Morgunblaðið/Golli Skuldabréf hækka                                        !"# $% " &'( )* '$* ++,-./ +/0-,/ ++/-+1 .+-/., .2-0/, +/-211 +.3-4+ +-1.0/ +/.-/5 +0.-45 ++,-,0 +/4-25 ++/-13 .+-//3 .2-410 +/-234 +52-24 +-15+ +/5-54 +05-+3 .+/-5/4. ++,-/1 +/4-1/ ++/-/1 .+-3,5 .2-/24 +/-+, +52-15 +-15,. +/5-3+ +05-0, Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.