Morgunblaðið - 17.05.2011, Page 27

Morgunblaðið - 17.05.2011, Page 27
DAGBÓK 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 2011 Sudoku Frumstig 7 9 8 7 6 9 1 2 8 3 1 5 1 8 7 2 6 9 8 2 9 7 6 3 1 5 6 8 7 4 8 6 3 7 8 5 3 4 2 9 6 3 4 7 5 6 7 3 2 5 9 8 1 2 9 4 3 6 2 3 7 4 8 1 2 2 6 8 3 7 4 9 1 6 2 4 6 1 8 3 7 9 5 2 4 4 3 9 5 6 2 8 7 1 5 7 2 1 8 4 6 9 3 2 6 7 4 5 1 9 3 8 8 9 1 6 3 7 4 5 2 3 5 4 9 2 8 7 1 6 7 2 5 8 4 3 1 6 9 9 8 6 2 1 5 3 4 7 1 4 3 7 9 6 2 8 5 7 5 6 9 4 2 1 8 3 9 2 3 8 1 7 6 5 4 4 1 8 6 3 5 2 7 9 2 7 9 1 5 4 3 6 8 6 4 1 3 7 8 9 2 5 8 3 5 2 6 9 4 1 7 3 9 7 5 2 6 8 4 1 5 8 2 4 9 1 7 3 6 1 6 4 7 8 3 5 9 2 6 8 7 4 3 1 5 2 9 5 4 2 6 8 9 1 3 7 9 1 3 2 5 7 8 6 4 1 7 9 8 4 2 6 5 3 4 5 6 9 1 3 2 7 8 3 2 8 5 7 6 9 4 1 7 3 5 1 2 8 4 9 6 8 9 4 7 6 5 3 1 2 2 6 1 3 9 4 7 8 5 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er þriðjudagur 17. maí, 137. dag- ur ársins 2011 Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönn- um misgjörðir þeirra, þá mun og fað- ir yðar himneskur fyrirgefa yður. (Matt. 6, 14.) Víkverji fagnar þeim fréttum aðkanadíska Irving Oil sé aftur farið að sýna Íslandi áhuga. Ekki veitir af aukinni samkeppni í elds- neytissölu hér á landi og með miklum ólíkindum að samkeppnisyfirvöld láti það ganga átölulaust að félögin bjóði upp á nánast sama verðið alls staðar og breyti verðinu á sömu mínútunni. Páll Gunnar Pálsson og félagar í Samkeppniseftirlitinu ættu kannski að fara að fá sér göngutúr í Öskju- hlíðinni og sjá hvað þeir rekast á. x x x Ígær var það þannig að 80 aurummunaði á ódýrasta og dýrasta bensínlítranum í sjálfsafgreiðslu, en áður var lengi vel meiri munur á milli sjálfsafgreiðslufélaganna ÓB, Ork- unnar og Atlantsolíu annars vegar og stóru félaganna; N1, Shell og Olís, hins vegar. Nú háttar svo til að Ork- an er í eigu Shell og ÓB í eigu Olís og þessum félögum í lófa lagið að haga verðlagningu að vild sín í milli. Vík- verji er ekki með svo miklar vænt- ingar til þessara félaga og grunar að sjálfstæði Orkunnar og ÓB sé ekki svo mikið til að hreyfa sig á mark- aðnum. x x x Hins vegar hefur Atlantsolía ekkistaðið undir væntingum Vík- verja í verðsamkeppninni, því eins og félagið sjálft er að minna á þessa dagana í auglýsingum er það ein- göngu bensínstöð og ekkert annað, sjálfstæð og óháð. Í einni auglýsing- unni segir: „Við seljum ekki gos, ekki leikföng og ekki nýjasta Séð og heyrt. Við erum bensínstöð.“ Hvað á Atlantsolía við með þessu? Ætti fé- lagið ekki einmitt af þessum völdum að geta boðið upp á ódýrara eldsneyti en hinir? Yfirbyggingin er engin, þetta eru bara dælurnar, og bíleig- endur ættu að njóta þess. Eða er Atlantsolía að segja „Við erum góðu gæjarnir og höldum þeim vondu við efnið“? Bindur Víkverji að minnsta kosti vonir við að þessar auglýsingar Atl- antsolíu séu vísbending um betri tíma og lægra verð. Þetta er nú bara bensínstöð og ekkert annað. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 vörugeymslan, 8 naut, 9 illa, 10 knæpa, 11 þátt, 13 búa til, 15 fjár- rétt, 18 kalviður, 21 bók- stafur, 22 erfiðar, 23 bjórstofa, 24 ræpu. Lóðrétt | 2 andróður, 3 fatta, 4 afrennsli, 5 líkamshlutann, 6 ein sér, 7 týna, 12 nár, 14 ungviði, 15 drekka, 16 sjúk- dómur, 17 kerlingu, 18 skjót, 19 fjáðan, 20 hestur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 hroll, 4 hægur, 7 Júðar, 8 játum, 9 tjá, 11 form, 13 grun, 14 aular, 15 þjöl, 17 álft, 20 ónn, 22 fólks, 23 arðan, 24 rotta, 25 tunga. Lóðrétt: 1 hrjúf, 2 orðar, 3 lært, 4 hrjá, 5 gítar, 6 ríman, 10 jólin, 12 mal, 13 grá, 15 þófar, 16 örlát, 18 liðin, 19 tunna, 20 óska, 21 naut. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Kreppumót. Norður ♠D9 ♥D6532 ♦Á ♣ÁK763 Vestur Austur ♠G1065 ♠K7432 ♥G104 ♥K87 ♦643 ♦G8 ♣1082 ♣DG9 Suður ♠Á8 ♥Á9 ♦KD109752 ♣54 Suður spilar 6♦. Kit Woolsey og Fred Stewart unnu Cavendish-tvímenninginn í Las Vegas í byrjun mánaðarins. Cavendish- uppboðsmótið hefur farið fram árlega frá 1975 og er stærsta peningamót í bridsheiminum. Áður en keppni hefst eru pörin boðin upp og seld hæstbjóð- enda og renna peningarnir í verðlauna- pott. Verðlaunaféð hefur farið upp í 1,5 milljónir dala, en nú er kreppa og pott- urinn mun minni. Marty Fleisher fékk út ♠G gegn tíg- ulslemmu í spilinu að ofan. Hann dúkk- aði, drap á ♠Á, tók ♦Á, síðan ♣Á-K og trompaði lauf með tíu. Tók trompin í botn og setti þunga pressu á Hollend- inginn Huub Bertens í austur. Í þriggja spila lokastöðu spilaði Fleisher spaða og vænti þess að fá íferð í hjart- að. Nei – Bertens hafði þá farið niður á ♥K blankan og ♠K-7! Einn niður. 17. maí 1724 Mývatnseldar hófust. Þeir stóðu með hléum í fimm ár. Við upphaf gossins varð mikil sprenging og gígurinn Víti í Kröflu varð til. 17. maí 1841 Tómas Sæmundsson prestur á Breiðabólstað í Fljótshlíð lést, 33 ára. Hann var einn Fjöln- ismanna. Jónas Hallgrímsson orti eftir hann ljóð sem hefst á þessum þekktu hendingum: „„Dáinn, horfinn!“ – Harma- fregn!“ 17. maí 1944 Helgafell gaf út ljóðasafnið Friheten eftir Nordahl Grieg. Þetta mun vera fyrsta frum- útgáfa ljóða erlends skálds hér á landi. Grieg var í norska hernum á Íslandi í rúmt ár. „Heimssögulegur viðburður,“ sagði í auglýs- ingu. 17. maí 1970 Tvær konur og karlmaður urðu úti í gönguferð ellefu manna hóps frá Skógum í Þórsmörk. „Harmleikur á Fimmvörðuhálsi,“ sagði Vísir. „Mildi að fleiri fórust ekki.“ 17. maí 1997 Alþingi samþykkti ný lögræð- islög sem fólu meðal annars í sér að sjálfræðisaldur var hækkaður úr 16 árum í 18 ár. 17. maí 2005 Ólafur Ragnar Grímsson for- seti Íslands átti fund með Hu Jintao forseta Kína í Höll al- þýðunnar í Peking. „Þetta var mjög árangursríkur fundur,“ sagði forsetinn í samtali við Morgunblaðið. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … „Ég var að borða hádegismat með konunni minni í gær þegar ég eiginlega fattaði að ég ætti afmæli í dag. Ég sagði við hana að mér fyndist ekkert eins og ég ætti afmæli,“ segir Birgir Örn Steinarsson, tónlistarmaður, sem er 35 ára í dag. Hann segir að það eina sem sé búið að ákveða að gera í tilefni dagsins sé að skreppa til Stokkseyrar þegar börn- in eru búin í leikskóla og grunnskóla. „Þar ætlum við að borða saman humar og síðan kannski labba um á Stokkseyri. Það er fallegt þar.“ Birgir hefur verið sjálfstætt starfandi und- anfarin tvö ár og kann því vel. Hann segir að und- anfarið hafi hann haft nóg að gera en að honum sýnist að í dag komist hann upp með það að vinna ekki neitt og taka því rólega í þeim efnum án þess að nokkur hafi eitthvað við það að athuga. „Það bara hittir akkúrat þannig á í dag. Það er orðið ansi langt síðan ég hef bara get- að sest niður í rólegheitunum, hlustað á góða tónlist, lesið bók og drukkið grænt te. Eða farið í göngutúr. Það eru svona litlir hlutir sem gefa mér ótrúlega mikla fyllingum,“ segir Birgir. Þá sé hugsanlegt að hann skjótist í ræktina og hlaupi sér til heilsubótar. Hann hafi farið að hlaupa um áramótin og stundað hlaup síðan. hjorturjg@mbl.is Birgir Örn Steinarsson er 35 ára í dag Slappar af á afmælisdaginn Nýirborgarar Reykjavík Ólafur Flóki fæddist 11. mars kl. 6.58. Hann vó 3.940 g og var 52 cm langur. For- eldrar hans eru Auðbjörg Ólafsdóttir og Óli Örn Eiríks- son. Flóðogfjara 17. maí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 5.53 3,9 12.05 0,1 18.20 4,2 4.07 22.42 Ísafjörður 1.59 0,0 7.47 2,1 14.09 0,0 20.18 2,4 3.45 23.14 Siglufjörður 3.54 -0,1 10.19 1,2 16.18 0,1 22.30 1,3 3.27 22.58 Djúpivogur 3.01 2,1 9.05 0,3 15.27 2,5 21.47 0,3 3.30 22.18 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Sýndu sérstaka varúð í umferðinni, hvort sem þú ekur, gengur eða hjólar. Reyndu þitt besta, og lærðu af því fyrir næsta skipti. Fáir eru jafn leiðir og sá sem engu skilar. (20. apríl - 20. maí)  Naut Finndu leið til að koma hugmyndum þínum á framfæri þannig að enginn misskiln- ingur verði. Vinnufélagar stinga saman nefj- um, það tengist þér ekki á nokkurn hátt. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Vertu óhrædd/ur við að prófa eitt- hvað nýtt. Stappaðu stálinu í þann sem þarf á því að halda. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Vinur eða maki heillar þig upp úr skónum í dag. Reyndu að sýna þolinmæði og hafa hægt um þig seinni part mánaðarins. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Margir búast við svari frá þér í dag. Sjálfstraust þitt eykst með hverjum deginum. Ef þú veitir svör, verður þér launað með svör- unum sem þú leitar eftir. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú ert bæði skrýtnari og skemmtilegri en flestir álíta þig vera við fyrstu kynni. Farðu að öllu með gát því ekkert liggur á í umferð- inni. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Sýndu varfærni á öllum sviðum ekki síst í peningamálunum því það tekur oft skamma stund að gera afdrifarík mistök. Flýttu þér hægt. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það kemur í þinn hlut að sjá um að allt gangi upp svo stattu þig vel. Einhver á greiða inni hjá þér. Gefðu þér tíma til að lifa lífinu, það gerir það enginn fyrir þig. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú lætur líklega freistast til þess að fara yfir strikið í eyðslu í dag. Einhver slær þig út af laginu. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Truflun á vinnu vegna tölvu- eða tæknivandræða er líkleg í dag. Gríptu gæsina meðan hún gefst. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Takist þér að bæta andann innan fjölskyldunnar eða heimilisins í dag þá er það dágott dagsverk. Betur sjá augu en auga. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Margur verður af aurum api. Ekki hafa áhyggjur af því hvort það er viðeigandi eða ekki að leggja orð í belg. Hugsaðu fyrst og fremst um sjálfa/n þig. Stjörnuspá 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Rf6 4. d3 h6 5. c3 d6 6. Bb3 Be7 7. Rbd2 0-0 8. h3 He8 9. Rf1 d5 10. De2 dxe4 11. dxe4 Bf8 12. g4 Ra5 13. Bc2 Be6 14. Re3 Rc6 15. Rf5 Kh7 16. g5 Bxf5 17. gxf6 Bg6 18. h4 Bh5 Staðan kom upp í síðari hluta fyrstu deildar Íslandsmóts skákfélaga sem lauk fyrir nokkru í Rimaskóla. Al- þjóðlegi meistarinn Stefán Krist- jánsson (2.477) hafði hvítt gegn Ivan Nieves (2.186) frá Perú. 19. Rg5+! Kg6 20. fxg7 Bxg7 21. Rxf7! Bxe2 22. Rxd8 Bf3 23. Hh3 Haxd8 24. Hxf3 Hf8 25. Hg3+ Kf7 26. Bb3+ Kf6 27. h5! og svartur gafst upp enda liðstap óumflýj- anlegt. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik. Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.