Morgunblaðið - 17.05.2011, Page 29

Morgunblaðið - 17.05.2011, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 2011 Getur verið að nýja hjartaðsem slær í brjósti hinnarungu Eddu hafi ekki að-eins bjargað lífi hennar heldur líka breytt henni? Að „kona, tuttugu og átta ára“, sú sem átti hjartað, hafi gefið henni meira en reglulegan hjartsláttinn? Edda, aðalpersónan í Slætti, fyrstu bók hins unga höfundar Hildar Knúts- dóttur, telur töl- fræðina lífslíkum sínum ekki hlið- holla þrátt fyrir að hafa um tví- tugt fengið nýtt hjarta í stað þess sem skorið var úr henni „áður en það gafst upp á lífinu og sló sitt síðasta.“ (bls. 14). Unga konan sem lét lífið svo Edda mætti lifa af, er henni ávallt ofarlega í huga. Fyrir hjartaskiptin hafði hún í raun sætt sig við dauð- ann og höndlar ekki alveg tilhugs- unina um framtíðina þegar nýja hjartað fer að slá. Edda fer varlega í lífinu eftir erf- ið veikindi bernskunnar, svo var- lega að hún hleypir engum að hjarta sínu. Hún heldur meira að segja ofverndandi móður sinni í hæfilegri fjarlægð og hvæsir á sál- fræðinginn sem hún gengur til. Það breytist hins vegar allt þeg- ar hún verður ástfangin, í fyrsta sinn á ævinni. Það er þó ekki sá karlmaður sem hefur mest áhrif á hana, heldur sonur hans, Eysteinn, sem hún tengist innilegum böndum. Þetta samband Eddu og Ey- steins litla er sérstaklega fallegt og hjartnæmt og vakti notalegar til- finningar í brjósti mínu við lest- urinn. Aðrar persónur í lífi Eddu eru einnig áhugaverðar og mátu- lega margar og djúpar í ekki lengri bók. Öll saga hjartaþegans Eddu byggist svo taktfast upp allt til enda. Þegar ég lauk við lesturinn leið ekki langur tími þar til ég stóð mig að því að velta fyrir mér hvernig skáldsagnapersónunni Eddu liði, hún á sér orðið stað í mínu hjarta. Skrif Hildar eru áreynslulaus en alls ekki án tilþrifa. Lýsingin á því þegar Edda verður ástfangin er t.d. mjög myndræn og Hildi tekst að koma barnslegri einlægni hugsana og orða Eysteins litla í orð á sann- færandi hátt. Sláttur er frambærilegt fyrsta verk höfundar. Sagan um Eddu hitti mig beint í hjartastað. Það er því ástæða til að fylgjast vel með Hildi Knútsdóttur í framtíðinni. Morgunblaðið/Kristinn Fyrsta verk Sláttur er frambærilegt fyrsta verk höfundar, Hildar Knúts- dóttur, og ástæða til að fylgjast með henni, segir m.a. í dómnum. Hittir beint í hjartastað Sláttur bbbnn Eftir Hildi Knútsdóttur. JPV gefur út. 256 bls. SUNNA ÓSK LOGADÓTTIR BÆKUR Nú stendur yfir í Safnahúsinu í Vestmannaeyjum sýning á mál- verkum Hrafnhildar Ingu Sigurð- ardóttur sem hún nefnir Ágjöf. Sýn- ingin er í Einarsstofu og stendur til 21. maí. Á sýningunni eru einkum sjávar- myndir af brimi, úfnum sjó og öldu- gangi. Aðspurð hvers vegna hún máli sjó og það úfinn sjó segist Hrafnhildur ekki geta svarað; „ég hef eiginlega ekkert svar við því, ég er bara sveitarstelpa, fædd og upp- alin í sveit og bý mikið til í sveit og er reyndar hálfhrædd við sjóinn,“ segir hún. „Ég horfi reyndar beina leið til Eyja út sveitinni, Fljótshlíð- inni, og það hefur verið fjarlægur draumur að komast þangað yfir.“ Hrafnhildur segist hafa tekið við að mála myndir af veðurham haustið 2007, en þá gekk hver óveðurslægðin af annarri yfir landið fram að jólum. „Það var brjálað veður alla daga og þá datt það inn hjá mér að mála óveður, fyrst bara himin, en síðan pínulítið land neðst og breyttist svo í óveður á sjó.“ Hún er nú í óðaönn að undirbúa stóra sýningu í Ketilhúsinu á Akureyri sem opnuð verður í haust, og er enn að mála veðurham, en segist þó verða vör við breytingu. „Ég finn það að ég er pínulítið að breytast, en veit ekki alveg í hvaða átt ég fer. Mér finnst þó að það verði heldur villtara ef eitthvað er.“ Úfinn sjór og öldugangurÖll erum við einskonar trúð-ar“ segir í yfirskrift sýn-ingar á verkum ElínarPjet. Bjarnason (1924- 2009) sem nú stendur yfir í öllum söl- um Listasafns ASÍ við Freyjugötu. Elín fæddist á Íslandi en bjó megnið af starfsævi sinni í Danmörku þar sem hún tók reglulega þátt í samsýn- ingum. Ekki hefur borið mikið á verk- um hennar hér á landi fyrr en nú, en nýlega færðu systursynir Elínar Listasafni ASÍ um 500 verk hennar að gjöf. Á sýningunni eru aðallega ol- íumálverk og grafíkverk. Viðfangs- efnin eru portrett- og mannamyndir, húsamyndir sem leika á mörkum hins óhlutbundna, landslagsmyndir og á gangi safnsins bregður fyrir fáeinum kyrralífsverkum. Í Ásmundarsal má gera samanburð á máluðum andlitsmyndum og „stein- þrykktum“ en þær voru unnar 1960- 1968. Áherslan er á myndbyggingu og beinabyggingu andlitanna. And- litsdrættir eru skýrt dregnir með ákveðnum línum, form eru einfölduð. Litir málverkanna eru fremur dökkir og muskulegir, skærari tónum er sparlega beitt. Þessi jarðbundnu og eilítið þunglamalegu andlit leiða hug- ann formrænt að sjálfsmyndum Paulu Modersohn-Becker, myndum sem þó einkennast óneitanlega af meiri nautn og áhyggjuleysi. Annars staðar í salnum eru verk þar sem myndefnið er húsaþyrp- ingar. Húsveggir og þök mynda sam- spil litríkra forma þar sem talsvert ber á fjólubláum tónum. Pensil- meðferð Elínar er fínleg og blæ- brigðarík, hún gæðir myndirnar einn- ig lífi með andstæðum litatónum (gulum á móti fjólubláum, grænum á móti rauðum) í smáum, einlitum flöt- um er dreifast um myndflötinn. Í vel- heppnuðu verki efst til hægri í syrp- unni Hús og ferningar er leikurinn orðinn alveg afstrakt. Vel fer á því að afmarka verkin í annarri syrpu, Hús séð úr lofti, á grámáluðum vegg þar sem myndefnið nýtur sín. Landslags- myndir í syrpunni Eldgos og sólir einkennast af sömu fjólubláu áhersl- unum og í þeim birtast draumkennd og björt eldgos. Í heild eru þetta líf- leg verk sem búa yfir tilraunakenndri leikgleði. Í Arinstofu á neðri hæð safnsins má svo sjá massífar konur – naktar fyrirsætur – í mannhæðarháum mál- verkum frá árunum 1955-59. Áhersl- an er hér á formmótun, andlitin eru „lokuð“ og raunar er fornlegur blær yfir þessum kraftalegu líkömum. Yfirskrift sýningarinnar vísar til verkanna í Gryfjunni sem gert er sér- staklega hátt undir höfði með leik- rænni innsetningu er nefnist Leikhús fáránleikans. Þar er dimmt og köst- urum beint að tjáningarríkum andlit- um en aðrir líkamshlutar, háls, axlir og hár, hverfa í óræðan bakgrunn, eða fjólubláa skugga. Áhersla Elínar á andlitsform, oft rauðmáluð (ekki síst nef), magnast upp við lýsinguna og stemmningin er myrk og óhugn- anleg, jafnvel demónísk. Rökkrið og kastljósið undirstrikar áhrif yfirveg- aðrar formmótunar og litameðferðar. Hér má segja að Elín kallist á við Emil Nolde. Verkin í Gryfjunni end- urspegla brothættan andlegan veru- leika og næma skynjun. Elín mun af heilsufarsástæðum hafa haldið sig mjög til hlés, ekki síst hvað snertir sýningarumstang – sýningin varpar ljósi á að kraftar hennar hafa hverfst um þá dýrmætu og nærandi iðkun sem fólgin er í sjálfri sköpun verk- anna. Morgunblaðið/Einar Falur Verk Elínar Pjet. Bjarnason Yfirlitssýning á verkum Elínar Pjat. Bjarnason er í Listasafni ASÍ. Fjólubláir skuggar Listasafn ASÍ Elín Pjet. Bjarnason – Öll erum við einskonar trúðar bbbbn Sýningunni er lokið. ANNA JÓA MYNDLIST 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið) Fim 19/5 kl. 20:00 Sun 29/5 kl. 20:00 Fös 10/6 kl. 20:00 Fös 20/5 kl. 19:00 Fös 3/6 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00 Lau 28/5 kl. 19:00 Lau 4/6 kl. 20:00 Tveggja tíma hláturskast...með hléi Strýhærði Pétur (Litla sviðið) Mið 18/5 kl. 20:00 Fim 19/5 kl. 20:00 lokasýn Áhorfendur standa á sýningunni. Ekki við hæfi ungra barna. Sýningum lýkur í maí Húsmóðirin (Nýja sviðið) Þri 17/5 kl. 20:00 11.k Mið 25/5 kl. 20:00 16.k Fös 3/6 kl. 20:00 21.k Mið 18/5 kl. 20:00 12.k Lau 28/5 kl. 20:00 aukasýn Lau 4/6 kl. 20:00 22.k Fim 19/5 kl. 20:00 aukasýn Sun 29/5 kl. 20:00 17.k Þri 7/6 kl. 20:00 Fös 20/5 kl. 20:00 13.k Þri 31/5 kl. 20:00 18.k Mið 8/6 kl. 20:00 Sun 22/5 kl. 20:00 14.k Mið 1/6 kl. 20:00 19.k Fös 10/6 kl. 20:00 Þri 24/5 kl. 20:00 15.k Fim 2/6 kl. 20:00 20.k Mið 15/6 kl. 20:00 Nýr íslenskur gleðileikur eftir Vesturport. Ósóttar pantanir seldar daglega Faust (Stóra svið) Lau 21/5 kl. 20:00 Sun 5/6 kl. 20:00 Fös 27/5 kl. 20:00 Fim 9/6 kl. 20:00 Örfár aukasýningar í maí og júní Opening Night - Les Slovaks (Stóra sviðið) Sun 22/5 kl. 20:00 Á Listahátíð - Harðjaxlar sem dansa eins og englar Ferðalag Fönixins (Stóra sviðið) Mán 23/5 kl. 20:00 forsýn Mið 25/5 kl. 20:00 Þri 24/5 kl. 20:00 frumsýn Mið 25/5 kl. 22:00 Á Listahátíð - Um listina að deyja og fæðast á ný Klúbburinn (Litla sviðið) Fös 3/6 kl. 20:00 frumsýn Sun 5/6 kl. 20:00 2.k Lau 4/6 kl. 20:00 Þri 7/6 kl. 20:00 3.k Á Listahátíð - Samstarfsverkefni Borgarleikhússins og Klúbbsins Eldfærin (Stóra sviðið) Lau 21/5 kl. 13:00 Lau 28/5 kl. 13:00 Sun 29/5 kl. 13:00 Sögustund með öllum töfrum leikhússins Strýhærði Pétur – síðustu sýningar! ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ 551 1200 / leikhusid.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.