Morgunblaðið - 17.05.2011, Page 36

Morgunblaðið - 17.05.2011, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 137. DAGUR ÁRSINS 2011 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Ólympíumeistarinn féll af … 2. Fleiri ásakanir á hendur … 3. Lést eftir hættulegt athæfi 4. Beckham kann þetta enn »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Í vor útskrifast níu nemendur sem dansarar af samtímadansbraut Listaháskólans. Síðastliðinn föstu- dag frumsýndu þeir dansverkin How do you know Frankie? og The Genius of the Crowd. »30 Dansarar frumsýna tvö ný verk  Sýningin Víðátta og rjóður verður opnuð á laugardaginn næstkomandi í Norræna húsinu. Sýningin er unnin upp úr syrpu listbúða sem haldnar voru þrjú sumur í þremur norrænum löndum fyrir ungmenni úr þremur norrænum lista- og byggingarlistar- skólum. Víðátta og rjóður norrænna ungmenna  Um komandi helgi verður sjóðheit og seiðandi tangóstemn- ing í Salnum þegar Krist- jana Arngríms- dóttir flytur þar lög af ný- útgefnum diski sínum, Tangó fyrir lífið. Á tónleikunum munu hljóma tangólög úr ýmsum áttum en undir söng Kristjönu leik- ur hópur valinkunnra tónlistar- manna. Sjóðheit og seiðandi tangóstemning Á miðvikudag NA 8-13 m/s og rigning á N-landi, hiti 2 til 6 stig. Heldur hægari vindur á S- og SV-landi, stöku skúrir, hiti 5 til 11 stig. Á fimmtudag Snjókoma á N- og A-landi, úrkomulítið suðvestantil. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt, víða 8-13 m/s og þurrt að kalla, en 10-15 með suðurströndinni síðdegis og rigning. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast vestanlands. VEÐUR Úrvalsdeildarlið Fjölnis í körfuknattleik karla hefur orðið fyrir gífurlegri blóð- töku en bakverðirnir efni- legu Ægir Þór Steinarsson og Tómas Tómasson hafa ákveðið að fara í háskóla- nám í Bandaríkjunum. Ægir og Tómas hafa samið við Newburry-skólann í Suður- Karólínuríki um að leika með honum í 2. deild bandaríska háskólaboltans. »1 Mikil blóðtaka fyrir Fjölnismenn Handboltaþjálfarinn Einar Jónsson mun hafa í nógu að snúast í sumar og á næstu leiktíð en hann mun þjálfa bæði karla- og kvennalið Fram í hand- boltanum á næsta tímabili. Einar hef- ur stýrt kvennaliðinu undanfarin fjögur ár en hann tekur við karla- liðinu af Reyni Þór Reyn- issyni. »1 Einar þjálfar kvenna- og karlalið Framara KR-ingar eru með tveggja stiga for- skot á toppi Pepsi-deildar karla í knattspyrnu þegar fjórum umferð- um er lokið. KR hafði betur gegn Þór í gærkvöld, 3:1. FH varð að sætta sig við 1:1-jafntefli á heima- velli gegn nýliðum Víkings og Keflavík gerði góða ferð til Grinda- víkur og hafði betur gegn grönnum sínum, 2:0. »2-4 KR-ingar með tveggja stiga forskot á toppnum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Sigurður Hallvarðsson málara- meistari er öryrki eftir að hafa greinst með illkynja æxli við heila fyrir um fimm árum. Hann leggur þó ekki árar í bát heldur er næsta markmið að bæta sig um tvær sek- úndur í 100 metra hlaupi með það að langtímamarkmiði að keppa í grein- inni á Ólympíuleikum fatlaðra. „Svo er ég farinn að gæla við það að ganga upp í Hallgrímskirkjuturn og niður aftur,“ segir hann. „Fótboltinn kemur mér núna að gagni,“ segir Sigurður eða Siggi eins og hann er kallaður og vísar til þess að í uppbyggingunni þurfi ákveðinn aga, vilja og eljusemi. „Ég var svo heppinn að vera í endalausri baráttu með Þrótti, annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um að kom- ast upp um deild. Þessi barátta hef- ur hjálpað mér mikið í veikind- unum.“ Siggi er annálaður grínisti og segir að létta lundin hafi auðveldað sér mikið að takast á við mótlætið. „Mér finnst ofboðslega gaman að gera grín að sjálfum mér en eftir að ég greindist með æxlið hefur svart- ur húmor átt upp á pallborðið hjá mér. Til dæmis þessi hérna,“ segir hann, stendur upp og gengur með ákveðnum tilburðum. Þegar hann hafi spurt í hvaða bíómynd hann hafi verið hafi flestir sagt Forest Gump. „Nei, þetta var óskarsverðlauna- myndin Dead Man Walking.“ Hann gefur upp boltann og býst við að menn skjóti á móti. Það kom honum því ekki á óvart þegar hann var uppnefndur fatlaða fitu- bollan. „Mér varð á að segja frá þessu í hádegisklúbbnum hérna í Þrótti og síðan kalla félagarnir mig bara FF.“ »14 Morgunblaðið/Sigurgeir S Persónulegt met Siggi hleypur 100 metrana á 28,1 sekúndu í Egilshöll eftir að hafa farið vegalengdina á tæpri mínútu um áramótin. Uppgjöf ekki til í orðabók fótboltamannsins sem lék lengst af með Þrótti í Reykjavík Lætur löm- unina ekki slá sig út af laginu Sigurður Hallvarðsson hefur upplifað mikið mótlæti en reynir að hugsa ekki um það heldur einbeitir sér að því sem hann getur gert. Hann segir að hann sé oft á réttum stað á réttum tíma og rifjar upp keppnis- tímabilið 1999. „Ég fór í sumarfrí með fjölskyldunni til Spánar þegar tvær umferðir voru eftir í 1. deild og Þróttur þurfti eitt stig til að halda sæti sínu. Leikurinn á móti FH tapaðist og eftir hann hringdi Willum Þór Þórsson þjálfari í mig og sagði að ég kæmi heim á þriðjudag því ég ætti að vera með í loka- leiknum. Ég hélt nú ekki og sagði konunni frá símtalinu. Daginn eftir sagði hún að við værum búin að fá nóg af sólinni og við fórum heim. Margir urðu hlessa þegar Willum valdi mig patt- aralegan í hópinn fyrir leikinn á móti Dalvík og ekki síður þegar hann setti mig inná, en eftir að ég jafnaði og tryggði þar með sætið í deildinni var mér hampað.“ Úr sumarfríi og tryggði sætið SIGURÐUR HALLVARÐSSON MÁLARAMEISTARI VEÐUR » 8 www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.