Morgunblaðið - 30.05.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.05.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2011 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Bodrum Tyrklandi 11. júní í 10 nætur Frá aðeins 126.900 með „öllu inniföldu“ Kr. 126.900 – 10 nætur með „öllu inniföldu“ Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2- 11 ára, á Hotel Bellacasa ***+ í 10 nætur með öllu inniföldu.Verð m.v. gistingu í tvíbýli kr. 144.900. Aukagjald fyrir einbýli kr. 22.200. Góð gisting - Hotel Bellacasa ***+ Heimsferðir bjóða frábært tilboð á allra síðustu sætunum í 10 nátta ferð til Bodrum í Tyrklandi 11. júní. Í boði er frábært sértilboð á Hotel Bellacasa ***+ með “öllu inniföldu” á ótrúlegum kjörum. Bellacasa er gott og vel staðsett hótel í Gumbet sem býður fjölbreytta þjónustu og góðan aðbúnað. Gríptu þetta einstæða tækifæri og skelltu þér í frábæra ferð til Bodrum og njóttu lífsins á hreint ótrúlegum kjörum. Aðeins örfá herbergi í boði - bókaðu strax! Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. „Nú skulum við bara bíða og sjá hvað einkabankarnir gera,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í samtali við Morgunblaðið. Lands- bankinn kynnti fyrir helgi aðgerða- pakka, en inntak hans er í stuttu máli að viðskiptavinir sem voru í skilum með lán um síðustu mánaðamót fá endurgreidd 20% af vöxtum sem voru greiddir frá árslokum 2008. Þá lækk- ar bankinn húsnæðislán aukheldur sem aðrar skuldir verða lækkaðar, svo sem yfirdráttur. Í Morgunblaðinu á laugardag sagði Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arionbanka, að skattgreiðendur myndu á endanum bera kostnað af vaxtaendurgreiðslu Landsbankans. „Ég trúi því að Landsbankinn fari í þessar aðgerðir aðeins þannig að þeir hafi metið hver kostnaðurinn er og metið afskriftaþörf og hverjar heimt- ur af útistandandi lánum verði,“ sagði forsætisráðherra. sbs@mbl.is Landsbanki hafi metið kostnaðinn Ágúst I. Jónsson aij@mbl.is Huginn VE byrjaði á makrílveiðum sunnudag fyrir viku og er það óvenju snemmt miðað við síðustu ár. Guðmundur Huginn Guðmundsson skipstjóri segir að veiðarnar hafi farið rólega af stað og á þessum tíma hafi þeir fengið um 400 tonn af makríl upp úr sjó og verði um 300 tonn af þessum afla fryst. Þá hefur fengist lítilræði af norsk-íslenskri síld og hafa um 10 tonn af síld farið í vinnslu. Huginn byrjaði að leita makríls á Kötlugrunni og víðar fyrir Suður- landi en síðustu daga hefur skipið verið að veiðum við miðlínu milli Ís- lands og Færeyja. Vilhelm Þor- steinsson EA kom á miðin þar á laugardag og búast má við að fleiri skip haldi til veiða í dag og á morg- un. Kraftur færist síðan trúlega í veiðarnar eftir sjómannadag, sem er næsta sunnudag. Færeysk skip hafa verið á makrílveiðum í færeyskri lögsögu við miðlínuna síðustu daga. Heimilað verður að veiða allt að 154.825 tonnum af makríl í íslenskri lögsögu í sumar. Markmiðið er að sem mest af aflanum fari til vinnslu og manneldis. Veiðiskipum er skipt í nokkra flokka, en 112 þúsund lest- um er ráðstafað til uppsjávarskipa sem veiddu makríl í flottroll og nót á árunum 2007-2009. Þá fara 34.825 lestir eða liðlega fimmtungur afla- heimilda til vinnsluskipa og er tekið mið af afkastagetu þeirra við fryst- ingu. Enginn samningur Ekki hefur náðst samkomulag við önnur strandríki um fyrirkomulag eða leyfilegt heildarmagn makríl- veiða og leyfi til veiða á makríl eru einungis gefin út fyrir yfirstandandi ár. Í frétt frá sjávarútvegsráðuneyti í marsmánuði segir að „ekki megi reikna með að veiðarnar í ár skapi grunn að veiðirétti í framtíðinni eða að framtíðarfyrirkomulagi veiða að öðru leyti“. Mjakast af stað í makrílnum  Veiðar byrja óvenju snemma og heimilað er að veiða meira af makríl en áður  Huginn með um 400 tonn fyrstu vikuna  Búist við að skipum fjölgi á næstunni Ljósmynd/Ólafur Óskar Stefánsson Ný vertíð Huginn frá Vestmannaeyjum á loðnuveiðum á liðnum vetri. Útlit er fyrir að hámarksafli maí- mánaðar náist á svæði C á Norð- austur- og Austurlandi. Þar er að- eins eftir að veiða um 20 tonn af 231 tonni, sem heimilt var að veiða í mánuðinum. Á svæði A frá Arnar- stapa til Súðavíkur náðist afli mán- aðarins á aðeins fimm veiðidögum og á svæði D, frá Hornafirði til Borgar- byggðar, voru veiðar stöðvaðar 17. maí. Á svæði B, frá Ströndum til Greni- víkur, er enn eftir að veiða um 100 tonn og ólíklegt að sá afli náist fyrir mánaðamót. Það sem út af stendur flyst yfir á næsta mánuð og sömu- leiðis skerðist afli næsta mánaðar fari bátarnir fram yfir hámarksafla hvers mánaðar. 455 bátar hafa landað Alls hafa 455 bátar landað afla í strandveiðikerfinu í maímánuði, en fjöldi strandveiðileyfa er kominn yf- ir 500. Flestum leyfanna hefur verið úthlutað á svæði A 196 sem sker sig úr fjölda á öðrum svæðum. Heimilt er að stunda veiðarnar fjóra daga í viku, frá mánudegi til fimmtudags. Ekki má veiða næsta fimmtudag, sem er uppstigningardagur. Útlit er fyrir að grásleppuvertíð verði í meðallagi, en um 340 bátar hafa leyfi til veiðanna. Búast má við að um ellefu þúsund tunnur fáist af hrognum. Sala á þeim fór hægt af stað og verð var lægra en í fyrra. Veiði annarra þjóða hefur hins vegar verið undir meðallagi og eftirspurn aukist í kjölfarið hér á landi. Stunda má grásleppuveiðar í 50 daga og hafa margir lokið veiðum. Aðrir eru rétt byrjaðir eins og á inn- anverðum Breiðafirði. aij@mbl.is Morgunblaðið/RAX Líflegt Strandveiðar eru stundaðar af kappi frá Arnarstapa. Maí-hámarkið næst tæpast á norðursvæði „Við höfum fengið afskaplega góðar viðtökur og þetta rúllar vel af stað,“ segir Eiríkur Sigurðsson, kaup- maður í Víði. Hann opnaði á laugar- dag matvöruverslun í Skeifunni 11 í Reykjavík sem opin verður alla daga vikunnar frá tíu á morgnana til ellefu á kvöldin. „Við staðsetjum okkur þannig í neyslumynstrinu að við bjóðum gott verð, ferska gæðavöru og mikið úr- val, höfum langan afgreiðslutíma og reynt starfsfólk,“ segir Eiríkur, sem á verslunina með Helgu Gísladótt- ur, eiginkonu sinni. Eiríkur útilokar ekki að hann muni opna nýjar versl- anir í næstu framtíð; slíkt ráðist einfaldlega af viðtökum við- skiptavina. Foreldrar Eiríks, þau Sigurður Matthíasson og Vigdís Eiríksdóttir, settu fyrstu Víðisverslunina, sem var við Fjölnisveg í Reykjavík, á laggirnar árið 1951. Seinna færðu þau út kvíarnar með verslunum í Starmýri og við Austurstræti. Enn síðar var opnuð Víðisverslun í Mjódd. Eftir það byggði Eiríkur upp keðjuna 10-11 sem fram á síð- ustu misseri hefur verið í eigu Haga. Sjálfsagt að nota Víðisnafnið „Þegar við fórum út í þetta verk- efni fannst mér sjálfsagt að nota nafn Víðis, enda stendur það okkur næst. Svo er líka alltaf virkilega gaman að setja nýja verslun á fót. Auðvitað er vinnudagurinn oft langur og strangur og þetta getur verið talsverð barátta en alltaf skemmtileg – enda hefur verið gaman að sjá fólk koma hingað í búðina um helgina, bæði gamla viðskiptavini sem við þekkjum vel og eins ný andlit; allt fólk sem okkur er mjög í mun að geta veitt góða þjónustu,“ segir Eiríkur Sigurðsson, kaup- maður í Víði. sbs@mbl.is Góðar viðtökur við Víðisverslun í Skeifunni  Opnun fleiri verslana er í skoðun segir eigandinn „Við höfum alltaf haft nóg af verslunum. Mikilvægast er að viðskiptavinurinn hafi val enda á hann alltaf síðasta orðið og ræður ferðinni,“ seg- ir Eiríkur Sigurðsson. Hann segist telja verslun eins og Víði eiga fullt erindi; alhliða verslun sem geti þjónað breiðum hópi. Það sé heldur engin hindrun í sínum huga þótt fjölsóttar verslanir séu í ná- grenninu í Skeifunni. Samkeppni í verslun sé alltaf til bóta og hreyfiafl á markaði. Fólkið hafi val VÍÐIR Á FULLT ERINDI Morgunblaðið/Kristinn Víðir Verslunin er í Skeifunni 11 í Reykjavík, sem er miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu sama hvert viðmiðið er.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.