Morgunblaðið - 30.05.2011, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 30. MAÍ 150. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Fyrir og eftir: Madonna
2. Skar netið úr markinu á Wembley
3. Tileinkaði markið dætrum Reina
4. Kom flatt upp á okkur
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Á Listahátíð verður sýnt sviðsverk
um karlaklúbba sem þeir Björn Krist-
jánsson, Björn Thors, Gunnlaugur Eg-
ilsson, Huginn Þór Arason, Ingvar E.
Sigurðsson og Ólafur Egill Egilsson
vinna saman. »26
Morgunblaðið/Ernir
Afhjúpa æðsta leynd-
armál listarinnar
„Laugavegur –
lifandi gata“ er
heiti á opnum
fundi með hags-
munaaðilum og
öðrum borgar-
búum í Tjarnarsal
Ráðhúss Reykja-
víkur í dag kl.
18.10. Fundurinn
fjallar um tillögu Reykjavíkurborgar
um að breyta Laugavegi frá Vatnsstíg
að Skólavörðustíg í göngugötu hluta
sumarsins 2011.
Opinn fundur um lok-
un hluta Laugavegar
Föstudagskvöldið næstkomandi,
hinn 3. júní, halda dansflokkurinn Afr-
ika-Lole og Afró-Kúba Band
tónleika saman í annað
sinn á Café Haiti. Sér-
stakur heiðursgestur á
þessum vortónleikum
er Mamady Sano frá
Gíneu en hann er
búsettur í New
York. Tónleikarnir
hefjast klukkan
20.30 og aðgangs-
eyrir er
1.500 kr.
Afrika-Lole og Afró-
Kúba Band saman
Á þriðjudag Austanátt, 8-13 m/s og fer að rigna sunnantil á land-
inu, annars hægari og skýjað með köflum. Hiti 3 til 12 stig.
Á miðvikudag Austan og norðaustan 8-13 m/s og víða rigning.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg norðlæg átt. Léttskýjað á SV- og V-
landi, smáskúrir SA-lands og stöku él á NA-verðu landinu. Hiti 2 til
13 stig, hlýjast SV-til. Víða næturfrost fyrir norðan og austan.
VEÐUR
KR-ingar eru áfram efstir í
Pepsi-deild karla í fótbolta
eftir sigur á Frömurum á
Laugardalsvelli í gærkvöld,
2:1. Framarar sitja áfram á
botninum með aðeins eitt
stig. ÍBV vann sannfærandi
sigur á Víkingum, 2:0, og
Valsmenn lögðu Íslands-
meistara Breiðabliks á Hlíð-
arenda, 2:0. Eyjamenn og
Valsmenn eru á hælum KR-
inga. »2, 4, 5
KR-ingar tróna
áfram á toppnum
Er Barcelona besta fótboltalið allra
tíma? Margir hallast að því eftir frá-
bæra frammistöðu Katalóníumann-
anna í úrslitaleik Meistaradeildar
Evrópu þar sem þeir sýndu allar sínar
bestu hliðar og sigruðu Manchester
United á afar sannfærandi hátt, 3:1.
Pep Guardiola hefur verið ótrúlega
farsæll eftir að hann tók við þjálfun
liðsins. »7
Barcelona besta fót-
boltalið allra tíma?
Ungir kylfingar úr Golfklúbbnum
Keili, Axel Bóasson og Guðrún Brá
Björgvinsdóttir, sigruðu á fyrsta
mótinu í Eimskipsmótaröðinni sem
lauk á Akranesi í gær. Axel hafði tals-
verða yfirburði og lék á sjö höggum
undir pari. Hann og Guðrún voru
bæði mjög ánægð með frammistöðu
sína en þau eru 21 árs og 17 ára göm-
ul. »8
Ungt Keilisfólk sigraði
á fyrsta mótinu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Kristel Finnbogadóttir
kristel@mbl.is
Sigrún Tómasdóttir brautskráðist
sem dúx frá Menntaskólanum við
Sund síðasta laugardag. Aðal-
einkunn hennar var 9,8 en það er
sama einkunn og bróðir hennar, Eg-
ill Tómasson, fékk á stúdentsprófi
frá sama skóla árið 2006. Sigrún
jafnar þar með met bróður síns sem
á sínum tíma sló fyrra met skólans.
„Þetta var aldrei ætlunin en kom
skemmtilega á óvart. Það var gaman
að við vorum með nákvæmlega sömu
einkunn upp á kommu,“ segir Sigrún
aðspurð um velgengni þeirra systk-
ina á stúdentsprófi.
Fór sem skiptinemi til Mexíkó
Systkinin voru bæði á sömu náms-
braut í skólanum, náttúrufræði-
braut, eðlisfræðikjörsviði. Sigrún
telur þó að við val á námsbraut í
hennar tilviki hafi skólafélagarnir
jafnvel ráðið meiru heldur en áhug-
inn á eðlisfræði.
„Ég var í ótrúlega góðum bekk,
4-X. Við vorum tvær stelpur og sex-
tán strákar. Þetta er búið að vera
mjög skemmtilegur tími,“ segir Sig-
rún. Eftir tvö ár í skólanum fór Sig-
rún sem skiptinemi til Mexíkó á veg-
um AFS og seinkaði því útskrift um
eitt ár. „Það var frábær lífsreynsla
að fara til Mexíkó. Ég sé ekkert eftir
því þótt ég hafi útskrifast seinna. Ég
kynntist fleirum fyrir vikið,“ segir
Sigrún.
Ekki áhersla á einkunnir
„Til að ná góðum árangri þarf
maður auðvitað að leggja eitthvað á
sig en ég var þó ekki alltaf ofan í
bókunum. Við systkinin höfum ekki
lagt mikla áherslu á einkunnir, þetta
hefur bara orðið svona. Ég lærði
mikið eftir miðnætti,“ segir Sig-
rún og hlær.
Meðfram náminu tók Sigrún
virkan þátt í félagslífinu í MS og
gegndi m.a. stöðu gjaldkera nem-
endafélagsins. „Ég reyndi að hafa
nóg annað að gera enda eru mennta-
skólaárin ár þar sem ekki á að ein-
blína á lærdóm, það mun örugglega
reyna á það síðar meir,“ segir Sig-
rún.
Aðspurð um önnur áhugamál seg-
ist Sigrún hafa gaman af ferðalögum
og útiveru, til dæmis fjallgöngum og
sjósundi. Ferðaáhugann ætlar hún
að rækta nú eftir útskrift með því að
fara í Asíureisu með vinkonu sinni í
byrjun næsta árs. Hún er óákveðin
hvað varðar framtíðarnám en gæti
hugsað sér að læra jarðfræði. „Ég
ætla að freista gæfunnar og reyna
að finna út hvað mig langar til að
gera næst,“ segir Sigrún um sum-
arið og ferðalagið sem framundan
er.
Systkini eiga skólametið saman
Nýstúdent
jafnaði met
bróður síns í MS
Morgunblaðið/Kristinn
Nýstúdent Sigrún Tómasdóttir er dúx frá Menntaskólanum við Sund og tók virkan þátt í félagslífi skólans. „Ég
reyndi að hafa nóg annað að gera enda eru menntaskólaárin ár þar sem ekki á að einblína á lærdóm,“ segir Sigrún.
Við brautskráningu stúdenta frá
Menntaskólanum við Sund síð-
asta laugardag voru 127 nem-
endur brautskráðir. Í þeim hópi
var 6000. stúdent skólans. „Við
höldum talningu á þessu til
haga og reynum að halda upp á
þetta. Við gerðum
það sama þeg-
ar 5000. nem-
andinn út-
skrifaðist,“
segir Már Vil-
hjálmsson, rektor Mennta-
skólans við Sund, um þessi
tímamót. Talning miðast við
upphaf Menntaskólans við Tjörn-
ina, en svo hét Menntaskólinn
við Sund fram til ársins 1977 en
þá hafði skólinn verið fluttur úr
Miðbæjarskóla í núverandi hús-
næði í Gnoðarvogi. „Ég er ótrú-
lega stoltur af þessum krökkum.
Mér finnst það alltaf stórsigur
þegar þau klára,“ segir Már um
útskriftarhópinn í ár.
6000 brautskráðir stúdentar
MENNTASKÓLINN VIÐ SUND