Morgunblaðið - 30.05.2011, Qupperneq 4
hefði hagnast vel þrátt fyrir mikla
skerðingu aflaheimilda á síðustu ár-
um – sem nú fengist að talsverðu
leyti til baka enda væri búist við
verulegri aukningu aflaheimilda.
Jóhanna sagði að Samfylkingin
væri, einn flokka, samstiga og skýr í
afstöðu sinni til Evrópumála sem og
auðlindamála. Þá hefðu ríkisstjórn-
arflokkarnir á næstliðnum misser-
um náð miklum árangri við endur-
reisn efnahagslífsins. Verðbólga
hefði lækkað úr 18% í 3,4%, vextir
væru komnir í 4,25%, skuldastaða
þjóðarbúsins væri betri en áður og
jafnvægi að nást í ríkisfjármálum.
Þá væri að rofa til í atvinnumálum
og nokkur stór verkefni á sviði orku-
freks iðnaðar að komast fyrir vind.
Skapa sátt
„Ofurlaunaliðið, fjárglæframenn-
irnir og stóreignaelítan, fær ekki að
soga til sín hagvöxtinn sem fram-
undan er ef við fáum að
ráða. Það er nóg að þjóðin
hafi þurft að greiða fyrir
síðasta gleðskap,“ sagði
forsætisráðherra og
bætti við að nú væri
mikilvægt að tryggja
jöfnuð – enda mætti með
slíku skapa samfélagslega
sátt.
Á flokksstjórnarfundi Samfylk-
ingar voru lagðar fram niður-
stöður fjölda umbótafunda,
sem haldnir hafa verið í öllum
aðildarfélögum flokksins á síð-
ustu mánuðum. Hefur verið
fundað á vegum umbótanefndar
sem hafði það verkefni að leiða
skoðun og umræðu um störf,
stefnu og ábyrgð Samfylkingar í
aðdraganda hrunsins. Málin
verða rædd frekar á næstunni
og afgreidd á landsfundi í
haust. Meðal þess sem fram
kemur í tillögum umbótanefnd-
ar er að flokksmenn gaumgæfi
hví þeir voru svo blindir á
veruleika stjórnarsam-
starfs við Sjálfstæðis-
flokkinn án þess að
tryggja áhrif sín á
stjórn fjár- og efna-
hagsmála í ríkisstjórn-
inni.
Ofurlaunaliðið fái
ekki hagvöxtinn
Nýjar auðlindareglur mikilvægar sagði forsætisráðherra
Morgunblaðið/Kristinn
Formaður og varaformaður Jóhanna Sigurðardóttir og Dagur B. Eggertsson á floksstjórnarfundinum.
Siguður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Með mótun nýrra leikreglna um
auðlindir þjóðarinnar, svo sem vatn-
ið, þjóðlendur og fiskinn í sjónum,
gætu Íslendingar á komandi tíð
eignast eigin olíusjóð. Sá sjóður gæti
með vaxandi styrk staðið undir hluta
velferðarkerfisins og staðið undir
aukinni velferð í samfélaginu.
Þetta kom fram í máli Jóhönnu
Sigurðardóttur, forsætisráðherra og
formanns Samfylkingar, á flokks-
stjórnarfundi í gær. Þar greindi Jó-
hanna frá því að auðlindamál væru
nú í heildstæðri endurskoðun. Væru
rammaáætlun um verndun og nýt-
ingu, fiskiveiðistjórnun, vatnalög og
orkustefna greinar af þeim meiði.
Tryggja forræði auðlindar
„Allt lýtur þetta að þeirri grund-
vallarsannfæringu okkar að betur
þurfi að tryggja forræði þjóðarinnar
á auðlindum hennar og arðurinn af
henni renni í ríkari mæli til þjóð-
arinnar sjálfrar,“ útskýrði Jóhanna,
sem sagði breytingar í sjávarútvegs-
málum eitt stóru viðfangsefnanna
framundan. Ekki væri trúverðugt
þegar LÍÚ segði að tvöföldun veiði-
leyfagjalds myndi setja útgerðina í
þrot, með tilliti til þess að greinin
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2011
SÉRHÆFING Í VIÐHALDI GÓLFA
Við sérhæfum okkur í slípun og olíuburði á
sólpöllum, gerum gamla pallinn flottari en nýjan.
Fjalirnar verða rennisléttar og timbrið nær aftur
sínum náttúrulega lit.
GERUM SÓLPALLINN
EINS OG NÝJAN
info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is
S: 897 2225
Sigurður Bogi Sævarssson
sbs@mbl.is
Samkvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofu Íslands hefur engra hreyf-
inga orðið vart í Grímsvötnum síð-
an snemma á laugardagsmorgun.
„Gosinu virðist vera lokið,“ sagði
Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi. Unnið var hörðum höndum
við hreinsun á Kirkjubæjarklaustri
og í nærliggjandi sveitum alla
helgina.
Grímsvatnagosinu fylgdi mikið
öskufall í byggðunum austan
Klausturs, það er á Síðu og í Fljóts-
hverfi, og hefur áherslan í hreins-
unarstarfi talsvert beint að því
starfi. Slökkvibílar hafa verið not-
aðir til þess að spúla veggi, þök og
bæjarhlöð auk þess sem björgunar-
sveitarmenn hafa aðstoðað fólk
heima á bæjum við að koma hlutum
í samt lag aftur.
Fjölmennt hjálparlið
„Í dag voru nær fjörutíu slökkvi-
liðs- og björgunarsveitarmenn við
störf en síðan vitum við að margir
hafa fengið vini og ættingja í heim-
sókn sem hafa tekið til hendi við til-
tekt og annað. Íslenska samhjálpin
stendur alltaf fyrir sínu,“ segir
Sveinbjörn Jónsson sem starfar í
þjónustumiðstöð Almannavarna á
svæðinu. Miðstöðin, sem er á
Kirkjubæjarklaustri, tók til starfa
sl. föstudag og hefur með höndum
skipulag björgunarstarfs í Skaftár-
hreppi öllum, það er frá Álftaveri
og austur á Núpsstað. Starfsmenn
miðstöðvarinnar fara á alla bæi á
þessu svæði, taka stöðuna og leggja
á ráðin út frá því.
„Verkefnin eru mjög sambærileg
því sem ég hef áður kynnst; það er
að halda utan um hreinsunarstarf
og aðstoða fólk þannig að hlutirnir
komist í samt lag að nýju,“ segir
Sveinbjörn Jónsson. Hann starfaði í
þjónustumiðstöð undir Eyjafjöllum
í gosinu þar á síðasta ári og var í
ljósi reynslunnar fenginn til starfa
á Klaustri. Þrír vinna í þjónustu-
miðstöðinni auk þess sem tveir
starfsmenn Rauða krossins veita
aðstoð og ráðgjöf svo sem sálrænan
stuðning.
Jákvæðir möguleikar
„Auðvitað reyna svona náttúru-
hamfarir mjög á fólk eins og þegar
myrkur grúfði hér yfir á miðjum
degi. Hins vegar gekk Grímsvatna-
gosið yfir á fáeinum dögum og von-
andi verður það fólki því ekki jafn-
þungt í skauti og ella hefði getað
orðið,“ segir Sveinbjörn.
Grímsvatnagosið hófst um kvöld-
matarleytið um næstliðna helgi, 21.
maí. Kraftur gossins var mikill í
byrjun og náði gosmökkurinn á
fyrstu klukkutímunum í 15 til 20
km hæð. Á sunnudag og fram eftir
vikunni var mikið öskufall í byggð í
Skaftárhreppi svo sá varla til sólar
á tímabili. Þegar kom fram í miðja
viku fór kraftur gossins að dvína.
Formlegt dánarvottorð um goslok
er þó ekki gefið út enda hafa jarð-
vísindamenn ekki gert slíkt síðan á
tímum Kröfluelda.
Hreinsað til
eftir grettur
Grímsvatna
Íslensk samhjálp stendur fyrir sínu
Morgunblaðið/Sigurgeir
Hreinsun Gosið er búið en mikið
verk framundan við hreinsun.
Í hnotskurn
» Fjörutíu slökkviliðs- og
björgunarsveitarmenn. Margir
fengu vini og ættingja í heim-
sókn sem sinntu hreinsun og
tiltekt.
» Reynir á sálina. Gosið von-
andi ekki yfirþyrmandi enda
gekk það yfir á fáum dögum.
„Framkvæmdin eykur öryggi byggð-
arinnar til muna. Þorpið hér hefur
orðið fyrir þungum búsifjum vegna
sjávarflóða en nú ætti sú hætta að
verða úr sögunni,“ segir Siggeir Ing-
ólfsson, íbúi á Eyrarbakka og yfir-
verkstjóri garðyrkjudeildar Árborg-
ar. Ræktunarsamband Flóa og
Skeiða var lægsbjóðandi í gerð 170
metra langs sjóvarnagarðs á Eyrar-
bakka en tilboð í framkvæmdina voru
opnuð fyrir nokkrum dögum.
Reistur verður garður austast á
Eyrarbakka, það er sunnan við Há-
eyrarvelli en verulegt tjón varð í hús-
um þar í sjávarflóðum snemma árs
1990. Síðan þá hafa varnargarðar
verið reistir á Eyrarbakka og Stokks-
eyri og með framkvæmdum nú er
stoppað í síðustu göt.
Kostnaðaráætlun Siglingastofn-
unar vegna framkvæmdarinnar var
8,8 millj. kr. en Ræktunarsamband
Flóa og Skeiða er tilbúið að taka
verkið að sér fyrir 7,9 milljónir. Alls
verður 1.400 rúmmetrum ekið í sjáv-
argarðana, sem eiga að verða tilbúnir
um miðjan ágúst næstkomandi.
Unnið er að fleiri verkefnum á sviði
hafnarmála um þessar mundir. M.a.
hefur hafnarsjóður Skagastrandar
hefur óskað eftir tilboðum í endur-
byggingu hafnargarðs þar sem taka
skal upp og endurraða 400 rúmmetr-
um af grjóti og sprengja um 800 rúm-
metra. Verkinu á að ljúka um miðjan
september nk. sbs@mbl.is
Reisa sjóvarnagarða við
byggðina á Eyrarbakka
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Eyrarbakki Byggðin verður vel var-
in með nýjum sjóvarnagörðum.
Eykur öryggi byggðarinnar til mikilla muna, segir íbúi
Blindir á
veruleika
UMBÓTATILLÖGUR