Morgunblaðið - 30.05.2011, Síða 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2011
Þjóðlagasveitin Korka Frá vinstri: Ingibjörg Birgisdóttir, Helga Sighvatsdóttir, Magnús Einarsson, Elva Dögg
Valsdóttir, Guðmundur Pálsson og Birgit Myschi. Magnea Gunnarsdóttir var í barnsburðarleyfi.
arar við Tónlistarskóla Árnesinga
eða núverandi og fyrrverandi nem-
endur. Þetta er breytilegur hópur að
einhverju leyti líka, því ef einhver
forfallast þá köllum við aðra til,“
segir Helga.
Angurværð og fjör
Meðlimir Korku hófust handa
við að afla upplýsinga til að end-
urvekja horfinn tíma og skapa tón-
list sem gæti líkst þeirri tónlist sem
hljómaði hér fyrir 1000 árum. Hóp-
urinn flytur íslensk þjóðlög í bland
við þjóðlög frá Noregi, Írlandi og
Mið-Evrópu. Lögin eru flest útsett
af meðlimum Korku, en önnur eru
flutt eins og hefðin býður.
„Þetta er allt frá angurværum
tregafullum íslenskum þjóðlögum og
upp í fjöruga trommudansa, tónlist-
in er mjög fjölbreytilegt. Við reyn-
um að taka ekki þau þjóðlög sem eru
mest í gangi en þau fá þó stundum
að hljóma inni á milli,“ segir Helga.
Litlar sem engar heimildir eru
til um tónlistariðkun Íslendinga frá
árdögum Íslandsbyggðar. Helsta
heimild um tónlistararf Íslendinga
er bók séra Bjarna Þorsteinssonar,
Íslensk þjóðlög og segir Helga hóp-
inn styðjast mikið við þá bók.
Víkingaklæði og dans
„Það sem er sérstakt við Korku
er að við komum alltaf fram í vík-
ingaklæðum. Við sækjum í okkar
gömlu menningu sem landnemarnir
tóku með sér, líka klæðnaðinn og
handverkið,“ segir Helga.
Korka hefur komið nokkuð oft
fram að sögn Helgu miðað við að
hópurinn hefur ekki auglýst sig sér-
staklega. „Við stóðum ekki fyrir
neinum tónleikum sjálf fyrr en í
fyrra, en þá héldum við tónleika í
Oddakirkju á Rangárvöllum. Við
höfum aðallega komið fram á Suður-
landi en höfum þó líka brugðið okk-
ur í Borgarfjörðinn og til Reykjavík-
ur.“
Spurð hvort áheyrendur dansi
við tónlist þeirra segir Helga það
vera lítið. „Það hefur lítið verið
dansað en við höfum einu sinni feng-
ið fólk til að dansa við einn sagna-
dansinn sem var mjög gaman. Það
hefur samt ekki verið á dagskránni
hingað til sem fastapunktur.“
Helga segist finna fyrir miklum
áhuga á gömlum þjóðlögum. „Það
eru allir ósköp jákvæðir gagnvart
þessu og það er almennt séð end-
urvakning á þjóðlegum gildum.“
Landnámsbær Þjóðlagasveitin Korka kom fyrst fram í Þjóðveldisbænum í
Þjórsárdal vorið 2008 á Landnámsdegi sem þar var haldinn.
Upplýsingar um Þjóðlagasveit-
ina Korku má finna á Facebook.
Ef óveðurský liggur yfir manni þá er
tilvalið að reyna að létta lundina með
söng. Það er alveg undarlegt hvað
smá raul getur bætt geð og aukið
gleðina.
Það þarf ekkert að fara með heilu
aríurnar, það nægir að rifja upp stutt
kvæði sem leikskólabörn kunna flest.
Til dæmis er „Vorvindar glaðir“ af-
skaplega gleðjandi og flestir kunna
lagið við þennan texta Helga Valtýs-
sonar.
Vorvindar glaðir,
glettnir og hraðir,
geysast um lundinn rétt
eins og börn.
Lækirnir skoppa,
hjala og hoppa,
hvíld er þeim nóg
í sæ eða tjörn.
Hjartað mitt litla
hlustaðu á;
hóar nú smalinn
brúninni frá.
Fossbúinn kveður,
kætir og gleður,
frjálst er í fjallasal.
Endilega …
… syngið og
verið sæl
Morgunblaðið/Ernir
Börn Lífsglöð og syngjandi.
LÁGMÚLI
Þóroddur S. Skaptason lögg. fasteignasali
GARÐATORGI 7 • 210 GARÐABÆ
Sími 545 0800
gardatorg@gardatorg.is
www.gardatorg.is
Til leigu eða sölu mjög glæsilegt
og vel útbúið samtals 397,7 fm
skrifstofuhúsnæði á frábærum
stað við Lágmúla 7, Reykjavík.
Húsnæðið er vel búið húsgögnum
sem geta fylgt með hvort sem um
að ræða leigu eða sölu.
Um er að ræða alla 5. hæðina auk
40 fm geymslu í kjallara, hæðin
var hönnuð af Go Form
arkitektum. Húsið er í toppstandi
að utan sem innan. Næg
bílastæði.
Mjög hagstæð leiga eða kaup!
Sölumaður: Arnar Sölvason
GSM 896-3601