Morgunblaðið - 30.05.2011, Page 23
DAGBÓK 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2011
Sudoku
Frumstig
4 9
1 7 8 4
1 8 6
8 4 7
6 3 2
6 3 2
8 9 4
3 4 1 9
9
6 4
7 3
6 9 8
1 3 7 9
5 6 8 7 4
3 7
9 6 8
3 1 5
7
6 8 3
8 9
9 6 8 5
4 8 2
3 9
6 9 4 7
3 6 4
7 5 3
8 1 5 9 3 4 7 2 6
4 2 7 8 1 6 3 9 5
3 9 6 7 5 2 8 4 1
9 6 2 3 8 5 1 7 4
1 4 8 2 7 9 6 5 3
7 5 3 6 4 1 2 8 9
2 3 9 4 6 8 5 1 7
5 7 4 1 2 3 9 6 8
6 8 1 5 9 7 4 3 2
7 5 3 1 4 6 8 9 2
9 1 6 8 2 5 3 7 4
4 8 2 3 7 9 6 1 5
8 6 4 5 3 7 1 2 9
5 2 9 4 6 1 7 8 3
1 3 7 2 9 8 5 4 6
6 4 5 7 1 2 9 3 8
3 7 8 9 5 4 2 6 1
2 9 1 6 8 3 4 5 7
7 5 1 6 4 8 3 9 2
4 3 9 7 5 2 6 1 8
8 2 6 3 9 1 5 7 4
3 8 7 1 6 9 2 4 5
6 9 4 8 2 5 1 3 7
2 1 5 4 7 3 8 6 9
1 7 3 2 8 4 9 5 6
5 4 2 9 3 6 7 8 1
9 6 8 5 1 7 4 2 3
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 30. maí, 150. dag-
ur ársins 2011
Orð dagsins: Daníel tók til máls og
sagði: „Lofað verði nafn Guðs frá eilífð
til eilífðar, því hans er viskan og mátt-
urinn.“ (Daníel 2, 20.)
Víkverji tilheyrir þeim sívaxandihópi fólks á Íslandi sem leggur
stund á golf. Skemmst er að minnast
þess að tíðarfar síðastliðinna vikna
hefur ekki verið sérlega hentugt til
golfiðkunar. Ekki virðist sem veðrið
ætli að batna mjög mikið á næstu
dögum. Þrátt fyrir að nú ætli hann að
hlýna lítið eitt virðist rigning ætla að
vera ríkjandi næstu vikuna um mest-
allt landið.
Það er einmitt í maí sem golfvellir
á Íslandi byrja yfirleitt að taka við
sér, grænka og þurrka sig eftir snjó-
þekju vetrarins. Því hefur vorhret
síðustu vikna skilið margan kylfing-
inn eftir ákaflega skúffaðan.
x x x
Hins vegar er Víkverji almenntséð jákvæður einstaklingur,
sem reynir stöku sinnum að líta til
hins stærra samhengis hlutanna þeg-
ar illa árar. Þrátt fyrir að golfvellir á
Íslandi séu lokaðir í eina fimm mán-
uði á ári, er hægt að færa sterk rök
fyrir því að Íslendingar búi við eitt
lengsta golftímabil á norðurhveli
jarðar. Í júní og júlí er nefnilega hægt
að spila golf á hvaða tíma sólarhrings
sem er, eða allt að því. Þetta eru lífs-
gæði sem fæstir heimsins kylfingar
búa við. Vorin og haustin er síðan
hægt að spila golf vel fram á kvöld.
x x x
Þrátt fyrir að Víkverji muni hrein-lega ekki hvort hann hafi nokkru
sinni tekið afstöðu til hugmynda um
að breyta klukkunni á Íslandi, vega
golfrökin þungt gegn því að flýta tím-
anum á Íslandi til samræmis við stað-
setningu landsins. Verði tímanum
flýtt um eina eða tvær klukkustundir,
til að koma til móts við svefnpurrkur
sem finnst erfitt að vakna í myrkri á
haustin og vorin, munu kylfingar tapa
heilli klukkustund af birtu á kvöldin.
Á vorin og á haustin er með sæmilegu
móti hægt að spila golf til klukkan tíu
eða jafnvel ellefu á kvöldin. Verði
klukkunni flýtt, styttist sá tími. Minni
tími verður eftir vinnu til að spila golf.
Í raun styttist sólarhringurinn fyrir
íslenska kylfinga með því að flýta
klukkunni. Sem er hið alvarlegasta
mál. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 dufl, 4 þræla-
vinna, 7 goð, 8 óskum, 9
beita, 11 lykta, 13 veik-
burða, 14 tekur, 15 kerra, 17
tryllta, 20 lamdi, 22 áfang-
inn, 23 nægir, 24 gyðju, 25
þreyttar.
Lóðrétt | 1 lamdi, 2 af-
kvæmum, 3 hófdýrs, 4
himna, 5 ruplar, 6 stundum,
10 aldin, 12 elska, 13 skar,
15 kjökrar, 16 þrautin, 18
form, 19 ræktuð lönd, 20
fljótur, 21 baldin.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 leyfilegt, 8 koddi, 9 iðjan, 10 tíð, 11 murta, 13 aftra, 15
forks, 18 sigur, 21 kát, 22 rúlla, 23 aðild, 24 Lagarfoss.
Lóðrétt: 2 eldur, 3 feita, 4 leiða, 5 grjót, 6 skúm, 7 unna, 12 tík,
14 fúi, 15 forn, 16 rella, 17 skata, 18 starf, 19 geirs, 20 rödd.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
S.O.S.
Norður
♠G108
♥DG53
♦D8764
♣5
Vestur Austur
♠KD9 ♠Á6543
♥764 ♥K109
♦ÁK109 ♦G532
♣KD8 ♣Á
Suður
♠72
♥Á82
♦--
♣G10976432
Suður spilar 2♣ redobluð.
Fred Gitelman var í tilraunaskapi.
Hann var í suður og átti að segja við
opnun austurs á 1♠. Á hættu gegn ut-
an.
Spilið kom upp í síðustu lotunni í leik
Diamonds og Bathrusts um réttinn til
að keppa á HM, og í sannleika sagt
hafði Bathrust þegar unnið – munurinn
var næstum 100 impar. En Gitelman
vildi klóra í bakkann og hér reyndi
hann pókersögnina 1G.
„DOBL!“ Vestur sleikti út um. Gi-
telman breytti í 2♣ og aftur doblaði
vestur. En svo tóku málin óvænta
stefnu: Brad Moss í norður redoblaði í
flóttaskyni – svonefnt „SOS-redobl“,
sem biður makker lengstra orða að
breyta í annan lit. En nei, Gitelman sat
sem fastast. Hann trompaði ♦Á sem út
kom, spilaði ♣G og … vestur lét
drottninguna: átta slagir og 760.
30. maí 1768
Eggert Ólafsson varalögmaður
og skáld drukknaði í Breiða-
firði við áttunda mann. Hann
var 42 ára. Eggert ferðaðist
um Ísland 1752-1757 ásamt
Bjarna Pálssyni, síðar land-
lækni, og hefur ferðabók
þeirra verið gefin út. Meðal
ljóða Eggerts er Föðurlands-
minni (Ísland ögrum skorið).
30. maí 1836
Vísindaleiðangur franska
læknisins Paul Gaimard kom
til Reykjavíkur. Leiðangurs-
menn ferðuðust um landið og
einn þeirra, August Mayer,
teiknaði margar myndir af
stöðum hér á landi og íslensku
þjóðlífi. Þær birtust í yfirgrips-
miklu riti um Ísland og Græn-
land.
30. maí 1894
Eldey var klifin, í fyrsta sinn
svo vitað sé. Þar voru á ferð
þrír Vestmannaeyingar, þeirra
á meðal Hjalti Jónsson (Eld-
eyjar-Hjalti). Þetta var talin
mikil hættuför.
30. maí 1966
Ólöf Geirsdóttir sló holu í
höggi, fyrst íslenskra kvenna.
Það gerðist á elleftu braut á
Grafarholtsvelli.
30. maí 1984
Staðfest voru stjórnskipunar-
lög sem kváðu á um fjölgun al-
þingismanna úr 60 í 63 og um
lækkun kosningaréttar til Al-
þingis úr 20 árum í 18 ár.
30. maí 1998
Jón Arnar Magnússon setti Ís-
landsmet í tugþraut á móti í
Götzis í Austurríki, hlaut 8.573
stig. Metið stendur enn.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
„Það er nú líklegast að ég fari austur á
Kirkjubæjarklaustur og taki til í sumarbústað sem
börnin mín eiga. Það þarf að ryksuga eftir eld-
gosið í Grímsvötnum,“ segir Örn Friðriksson, fv.
verkalýðsleiðtogi, um dagskrána á sjötugsafmæl-
inu í dag. Örn hélt upp á afmælið sl. laugardag en
hann fór þá í óvissuferð með fjölskyldu og nánustu
vinum. Hefur Örn alltaf verið mikið fyrir ferðalög.
Örn lifir konu sína Ólöfu Helgadóttur en þau
áttu tvær dætur saman, Guðrúnu Valdísi og
Tinnu. Átti Ólöf son úr fyrra sambandi, Róbert
Þór Gunnarsson. Barnabörnin eru orðin átta.
En hvað stendur upp úr á langri ævi?
„Hversu gaman það er að lifa. Heilsan er góð og ég hef fengist við
skemmtileg verkefni. Ég hef verið lánsamur í lífinu og farsæll í
starfi,“ segir Örn sem var formaður Félags járniðnaðarmanna í 19 ár
og jafn lengi aðaltrúnaðarmaður starfsmanna í álverinu í Straumsvík.
Örn fagnar því að íslenskt samfélag sé orðið opnara og að fleiri taki
þátt í þjóðmálaumræðunni en áður fyrr. Þá bendir Örn á umræðuna
um eignarhald á náttúruauðlindum sem hann telur að sé frjálsari nú
en nokkru sinni fyrr. baldura@mbl.is
Örn Friðriksson er sjötugur í dag
Gaman að lifa
Flóðogfjara
30. maí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.50 3,2 10.58 0,8 17.12 3,5 23.27 0,8 3.28 23.23
Ísafjörður 1.01 0,6 6.53 1,7 13.04 0,5 19.17 1,9 2.51 24.11
Siglufjörður 2.51 0,3 9.09 1,0 15.01 0,3 21.19 1,1 2.32 23.56
Djúpivogur 2.01 1,7 8.02 0,7 14.26 2,0 20.43 0,7 2.48 23.02
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Forðastu allar skyndiákvarðanir í
fjármálum og gættu þess að hafa þá með í
ráðum sem máli skipta. Mundu bara að
gjalda líku líkt þegar þar að kemur.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú færð tækifæri til þess að hnýta
ýmsa lausa enda í málefnum sem varða
erfðamál. Leitaðu aðstoðar sérfræðinga í
fjármálum.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Innsæi þitt hjálpar við að skilja
leynda töfra skugganna. Byrjaðu að pakka
niður í töskur og vertu viðbúin/n.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú hefur tækifæri til að læra margt
um sjálfa/n þig. Farðu þér hægt í fjár-
málum, kannaðu alla möguleika vandlega
og mundu umfram allt að hafa öryggið í fyr-
irrúmi.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er sálfræðilegt hyldýpi milli þín og
einhvers sem þér þykir vænt um. Reyndu
ekki að stjórna öllum í kringum þig.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þótt full ástæða sé til að gera sér
glaðan dag þurfið þið líka að muna að hóf er
best á hverjum hlut. Sinntu tafarlaust máli
sem leitar sterkt á þig nú um stundir.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Settu þér alltaf raunhæf takmörk og
stefndu að þeim hvað sem tautar og raular.
Vinir hafa sambönd sem geta sparað þér
peninga eða útvegað þér vinnu.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Ástvinir eru hinum megin við
vandamálið og vilja þagga það niður. Þú ert
sjálfstæð/ur og vilt ekki biðja um hjálp.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Rómantíkin blómstrar. Kannaðu
hvaða leiðir standa þér opnar. Ekki grípa
fram í fyrir öðrum ræðumönnum.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Láttu það ekki koma þér á óvart
þótt nágranni eða ættingi geri eitthvað
ófyrirsjáanlegt í dag. Nánir ástvinir eru að
bralla eitthvað.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú þarft ekki að hafa minnimátt-
arkennd gagnvart samstarfsmönnum þín-
um. Haltu bara þínu striki og þá hefst þetta
allt saman.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú hefur persónutöfrana þér til full-
tingis, sem bæði getur verið gott og slæmt.
Hafðu ekki áhyggjur af neinu.
Stjörnuspá
1. e4 c6 2. d4 d5 3. e5 Bf5 4. Rf3 e6 5. Be2
Rd7 6. 0-0 Re7 7. Rbd2 a6 8. Rb3 b6 9.
Be3 Dc7 10. Hc1 c5 11. c4 dxc4 12. Bxc4
b5 13. d5 exd5 14. Bxd5 Rxd5 15. Dxd5
Rb6 16. Dd2 Rc4 17. Dc3 Be7 18. Bxc5
Bxc5 19. Rxc5 Dxc5 20. b3 0-0 21. Rd4
Bg4 22. bxc4 Hac8 23. h3 Be6 24. De3
Bxc4 25. Hfd1 Hfe8 26. f4 Hcd8 27. Df2
Da3 28. Rf5 Hxd1+ 29. Hxd1 Dxa2 30.
Dg3 g6 31. Dg5 Bd5 32. Re3 De2 33. f5 f6
34. exf6 Bf7
Staðan kom upp á Evrópumeistara-
móti öldunga í liðakeppni sem lauk fyrir
skömmu í Þessalóníku í Grikklandi. Jan
Rooze (2.333) frá Belgíu hafði hvítt gegn
Arnþóri Einarssyni (2.227). 35. Hd8!
Hxd8? svartur hefði getað haldið taflinu
gangandi með því að leika 35. … Db2! 36.
Dh6 Dxe3+ 37. Dxe3 Hd7 38. De4 Kf8
39. Da8+ Be8 40. fxg6 hxg6 41. Dxa6 og
hvítur innbyrti vinninginn skömmu síðar.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is