Morgunblaðið - 30.05.2011, Blaðsíða 24
24 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HVAÐ ERTU AÐ
BORÐA NÚNA?
HVÍT-
LAUK
ÞÚ SAGÐIR MÉR ALDREI AÐ
ÞÚ VÆRIR HÁLF VAMPÍRA
SVO ER MAÐUR NEYDDUR TIL
AÐ FÁ LÁNAÐAR BÆKUR Á
BÓKASAFNINU SVO MAÐUR
GETI LESIÐ ÞÆR
EN EF MAÐUR TÝNIR EINNI
AF ÞESSUM BÓKUM ÞÁ
VERÐUR MAÐUR TEKINN AF
LÍFI
ÉG VAR NEYDDUR
TIL AÐ LÆRA
AÐ LESA!!
*ANDVARP* ÉG VEIT EKKI AF
HVERJU EN ÉG ER MEÐ SAMVISKUBIT OG
FINNST EINS OG ÉG EIGI EITTHVAÐ
HRÆÐILEGT Í VÆNDUM
VIÐ
HVERJU
BJÓSTU!?
ÞÚ ÁST KÖKUNA SEM ÉG
ÆTLAÐI AÐ SELJA Á BASARNUM
TIL STYRKTAR FÁTÆKUM!!
HVAR
ERUM
VIÐ?
EINHVERS-
STAÐAR
NIÐRI Í BÆ
VIÐ ERUM
TÝNDIR! VIÐ
VERÐUM ALDREI
KOMNIR HEIM
FYRIR JÓL!
ÓLÍKT
KÖTTUM ÞÁ
ERUM VIÐ
HUNDAR
MJÖG
RATVÍSIR
ER
ÞAÐ!?
AUÐVITAÐ,
HVAR ER NÚ
GPS-STAÐ-
SETNINGAR-
TÆKIÐ MITT?
VERTU
TILBÚINN,
ÞARNA KOMA
ÞEIR!
HVERNIG
STÖÐVUM
VIÐ ÞÁ?
SANDMAN ER BÚINN AÐ BREYTA SÉR Í STEYPUVEGG!
HEFURÐU
ÁHYGGJUR AF
ÞVÍ AÐ KAFNA Í
SVEFNI?
ÉG ER FARINN AÐ
HRJÓTA SVO MIKIÐ
ALLT LÍTUR ÚT FYRIR
AÐ VERA EINS OG ÞAÐ Á AÐ
VERA, EN MIG LANGAR AÐ ÞÚ
SOFIR HÉR Í NÓTT SVO VIÐ
GETUM FYLGST MEÐ ÞÉR
HVAÐ
FELUR ÞAÐ
Í SÉR?
*ANDVARP* LÁTTU BARA FARA
VEL UM ÞIG
ÞAU
SEGJA AÐ
MAÐUR VERÐI
AÐ LÆRA AÐ
LESA
Hjálpartæki
Á skrifborði mínu eru
meðal annars þrír
hlutir, sem hjálpa mér
til að sjá betur: gler-
augu, stækkunargler
og lampi. Þar að auki
eru tveir gluggar á
herberginu, sem
hleypa inn góðri og
þægilegri birtu úr
austri og suðri.
Augu okkar mann-
anna verða þó til á allt
öðru sviði lífsins. Þau
mótast og þróast í
móðurlífi, þar sem
fóstrið, hin ófædda
manneskja, hefur enga þörf fyrir þau
og sér heldur ekki þá framtíðarver-
öld sem framundan er. Í móðurlífi
verða einnig talfærin til, við kring-
umstæður málleysisins. Lungun
myndast þar einnig fullbúin í vatna-
veröld móðurkviðarins, þó þar sé
engin þörf á því að draga andann.
Það er ekki fyrr en komið er í heim-
inn utan við móðurlífið, sem áð-
urnefnd líffæri fá notið sín og koma
að gagni. Heimur fóstursins og hins
ófædda barns kann að virðast því allt
sem er. Að yfirgefa þann stað kann
að vera því skelfileg tilhugsun og ógn
við lífið sjálft. En við sem fæddumst
fyrir löngu vitum betur. Fæðing er
ekki dauði, heldur innganga inn í
nýja tilveru, þar sem menn anda og
fylla lungun af yndislegri og lífg-
efandi blöndu súrefnis og kolefnis.
Dauðinn er einnig
fæðing inn á nýtt svið.
En hver skyldi vera
undirbúningur okkar
hérna megin fyrir
hina komandi tilveru
eftir dauðann og þau
hjálpartæki, sem að-
stoða okkur við að sjá
betur tilganginn með
tilveru okkar hér í
heimi? Fyrir hvað
undirbýr fólk sig með
háskólagráðum?
Hvers vegna sækir
það í hraðskreiðari
bíla? Til að komast
hraðar á hvaða
áfangastað; stærri
sjónvarpskjái til að sjá betur, en sjá
hvað, heyra hvað, læra hvað? Önnur
tilvera bíður okkar allra því hér er-
um við líkt og fóstur í móðurkviði
heimsins. Hvernig við undirbúum
okkur hér ræður því hvernig okkur
reiðir af þegar við fæðumst inn í
hina nýju framtíðarveröld. Megi
þau hjálpartæki, sem þetta líf hefur
upp á að bjóða aðstoða okkur við að
sjá betur og skilja betur þau lög-
mál, sem Guð gaf okkur mönnunum
og læra um hið góða og fallega, þó
svo það virðist ekki lofa miklum
frama og ríkidæmi hér í heimi.
Einar Ingvi Magnússon.
Ást er…
… huggun á erfiðum
tímum
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Handverkssýning í
dag kl. 9-16. Kaffihlaðborð á góðu
verði.
Árskógar 4 | Handavinna/smíði/
útskurður kl. 9. Félagsvist kl. 13.30.
Myndlist kl. 16.
Dalbraut 18-20 | Myndlist og postu-
lín kl. 9, leikfimi kl. 10, brids kl. 13.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8,
bænastund kl. 9.30, söngur kl. 10.30,
leikfimi kl. 11, upplestur kl. 14. Lista-
maður mánaðarins.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids kl. 13. Kaffi/spjall kl. 13.30.
Félagsheimilið Boðinn | Þann 1. júní
skemmtun í Boðanum, Ásta og vin-
konur spila á hljóðfæri og stjórna
söng.
Félagsheimilið Gjábakki | Leiðbein-
andi í handavinnu kl. 9, botsía kl.
9.30, lomber kl. 13, canasta kl. 13.15.
Félagsheimilið Gullsmára 13 |
Postulínshópur kl. 9, ganga kl. 10.
Handavinna kl. 13. jóga kl. 18.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ
| Spila- og vinnustofur opnar, þátt-
tökuskráning stendur yfir í vor-
ferðalag kirkjunnar með eldri borg-
urum á uppstigningardag 2. júní.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustof-
ur opnar frá kl. 9. Vatnsleikfimi í
Breiðholtslaug kl. 9.50. Spilasalur op-
inn frá hádegi. Í dag er Kvennahlaup
ÍSÍ, upphitun hefst kl. 12.30, Þorvald-
ur Jónsson með harmonikkuna. For-
seti borgarstjórnar Elsa Hrafnhildur
Yeoman ræsir kl. 13 . Uppl. á staðnum
og s. 575-7720.
Háteigskirkja - starf eldri borgara |
Félagsvist kl. 13 í Setrinu, kaffi og
samfélag.
Hraunbær 105 | Opin handavinna kl.
9 til 16, bænastund kl. 10-10.30.
Helga fótafræðingur er á staðnum,
tímapantanir í síma 698-4938. Hár-
greiðslustofa Fjólu er opin kl. 9 til 14
alla daga en föstudaga er opið kl. 9-
18 tímapantanir í síma 894-6856.
Hraunsel | Vorsýning á handverki fé-
lagsmanna opnuð í dag kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30,
9.30 og 10.30. Vinnustofa kl. 9. Brids
kl. 13.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Smár-
anum kl. 11.30.
Korpúlfar Grafarvogi | Ganga í dag
frá Grafarvogskirkju kl. 10. Sjúkra-
leikfimi í Eirborgum, Fróðengi kl.
14.30 í dag. Á morgun er sundleikfimi
í Grafarvogssundlaug kl. 9.30.
Vesturgata 7 | Handavinna, botsía,
leikfimi kl. 9.15. Tölvukennsla kl. 12.
Kóræfing kl. 13.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja,
bókband og postulín kl. 9. Morg-
unstund kl. 9.30. Botsía kl. 10. Fram-
h.saga kl. 12.30. Handavinnustofa kl.
13. Spil kl. 13. Stóladans kl. 13.
Öldungakórinn í Skagafirði komsuður síðastliðinn laugardag
og hélt ljómandi góða tónleika í
Hveragerði með söngstjóra sínum
Jóhönnu Marín af Sölvaætt á Sauð-
árkróki. Síðan óku þau austur í
Rangárþing til gistingar. Þá hófst
gosið. Inga Heiðmari Jónssyni varð
að orði:
Grímsvötn höfðu góðan frið
en gossins kveiktist hrina
er Skagfirðinga skrautlegt lið
skrapp í Fljótshlíðina.
Bergur Torfason orti:
Fréttnæmt er þá ferðalangar
fara um þjóðveginn,
skært ef syngja Skagfirðingar
skelfur jökullinn.
Þá Jói í Stapa:
Vatnajökuls undiryl
ísabreiður þvinga.
Hann er að lyfta hatti til
að heiðra Skagfirðinga.
Ágætur var okkar túr,
öllum vonum stærri,
við erum komin ösku úr
en eldurinn hvergi nærri.
Ingólfur Ómar Ármannsson
horfði á hamfarirnar í sjónvarpinu
á sunnudagskvöld og orti:
Svæðið þakið ösku er,
afar þykkt er rykið,
varla út úr augum sér
því öskufjúk er mikið.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af öldungakór og eldgosi