Morgunblaðið - 31.05.2011, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2011
Risi Skemmtiferðaskipið MSC Poesia lagðist í morgun að bryggju í Reykjavík og munu vera um 2.500 farþegar um borð, flestir Þjóðverjar en einnig Hollendingar og Bretar.
Árni Sæberg
Norðurslóðir eru nú skil-
greindar sem áherslusvið í ut-
anríkismálum Íslendinga. Al-
þingi samþykkti nýlega tillögu
mína um ítarlega stefnu, og á
hrós skilið fyrir vandaða af-
greiðslu. Henni hefur þegar
verið komið vel á framfæri við
samstarfsþjóðir okkar á norð-
urhvelinu, og hlotið góðar und-
irtektir. Stefnan miðar að því
að verja og sækja hagsmuni
Íslands á norðurslóðum. Hún treystir tæki-
færi sem kunna að opnast, jafnt um fisk-
veiðar, þjónustustarfsemi við nýtingu norð-
lægra auðlinda og einnig siglingar yfir
pólinn. Burðarás hennar snýst þó ekki síst
um öflugar varnir gegn hugsanlegum stór-
slysum í tengslum við olíuvinnslu og umferð
á hafsvæðum norðan Íslands. Í því efni
þurfum við að vera viðbúin ef svo færi að
pólsiglingar hefjist jafnfljótt og nýjar spár
gefa vísbendingar um.
Frumkvæði Íslands
Ísland hefur gjarnan nýtt alþjóðlega sam-
vinnu til að hafa áhrif langt umfram stærð
með því að velja rétt málefnasvið til að taka
frumkvæði. Í núverandi umhverfi eigum við
ýmsa möguleika til að taka forystu.
Í fyrsta lagi með því að vera í framlínu
um loftslagsvernd, leiða málflutning um
bindandi samninga um varnir gegn olíu-
slysum og leggja þunga áherslu á að koma
upp alþjóðlegum viðbúnaði fyrir björgun í
norðurhöfum. Fyrir þessa þætti er bæði
þörf og eftirspurn sem Íslendingar eiga að
svara.
Í öðru lagi eiga Íslendingar mikla mögu-
leika á að hafa mótandi áhrif á
stefnu Evrópusambandsins um
norðurslóðir gegnum umsókn
okkar um aðild. Tímasetning
umsóknarinnar er einkar hent-
ug þar sem stefna sambandsins
er á mótunarstigi. Ísland yrði
eina strandríkið á norðurslóðum
og við getum leikið lykilhlutverk
í þróun stefnunnar.
Í þriðja lagi getum við sótt
mikinn styrk við málstað okkar
með því að efla og þétta tvíhliða
samvinnu okkar við þjóðirnar á
norðurhveli, ekki síst með
áherslu á rannsóknir. Fundur minn í Wash-
ington með bandaríska utanríkisráðherr-
anum, Hillary Clinton, í maí var liður í
þeirri vinnu. Norðurslóðir verða líka á dag-
skrá funda minna með utanríkisráðherrum
Rússlands og Kanada síðar á árinu, for-
sætisráðherra Grænlands, auk þess sem
svæðið er reglulega undir í tíðum sam-
skiptum við norræna utanríkisráðherra.
Þríhyrningur um orku
Heimavöllurinn er sterkastur og á norð-
urslóðum liggja gagnkvæmir hagsmunir í
því að styrkja stöðugt samstarfið við næstu
grannþjóðir okkar, Færeyjar og Grænland.
Það hefur góðu heilli styrkst á mörgum
sviðum undanfarin misseri. Mikilvægi Höy-
víkur-samningsins við Færeyjar, sem er
umfangsmesti fríverslunarsamningur Ís-
lands, eykst stöðugt og á síðasta ári var líka
gerður sögulegur samningur um þjónustu
við Færeyinga á heilbrigðissviði. Vaxandi
samvinna um heilbrigðismál er líka við
Grænlendinga. Íslendingar hafa einnig
gegnt mikilvægu hlutverki í mannvirkjagerð
í báðum löndunum.
Við austurströnd Grænlands er nú olíu-
og gasvinnsla á döfinni og gagnkvæmir
hagsmunir beggja þjóðanna felast í að koma
upp þjónustu við þá starfsemi hér á landi.
Spánnýir möguleikar blasa nú einnig við á
öðru sviði orkuvinnslu, sem Íslendingar
þekkja til hlítar. Á austurströnd Grænlands,
eru miklir möguleikar á að framleiða raf-
orku úr vatnsafli. Þar er hins vegar ekki
byggð til að nýta orkuna. Með því að flytja
hana um sæstreng til Íslands og áfram til
Evrópu, gætu Grænlendingar fengið stór-
auknar tekjur til að styrkja innviði sam-
félagsins, hagkvæmara yrði fyrir Íslendinga
að flytja eigin umframorku til evrópskra
landa, og um leið ættu Færeyingar kost á
allri þeirri endurnýjanlegu orku sem þeir
þurfa.
Ég hef þegar rætt þessi mál við Kai Leo
Johannessen og Kuupik Kleist, forystumenn
grannþjóðanna, við áhugaverðar undirtektir.
Samvinna um orku gæti í framtíðinni orðið
öflugasti burðarásinn í samstarfi Græn-
lands, Íslands og Færeyja.
Samstarf um rannsóknir
Lykilatriði í stefnu Íslands er að efla þá
kjarna sem vinna að rannsóknum á norð-
urslóðum, ekki síst á Akureyri, en líka ann-
ars staðar. Sú hlið sem snýr að mér sem ut-
anríkisráðherra er að hafa frumkvæði að
samningum við aðrar þjóðir sem þjóna
þessu markmiði. Spennandi vinna um það er
þegar komin í gang.
Ég hef lagt sérstaka áherslu á að stofna
til samvinnu við Norðmenn, nána frænd-
þjóð, sem jafnframt er einna fremst í heimi
um rannsóknir á norðurslóðum. Við Jónas
Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, höf-
um þegar bundist fastmælum um að und-
irrita samkomulag um samstarf á sviði norð-
urslóða sem mun styrkja akademíska kjarna
hér á landi. Norski utanríkisráðherrann
heimsækir Ísland síðar á árinu.
Á fundinum með Hillary Clinton fyrr í
maí urðum við sammála um að embætt-
ismenn landanna tækju til óspilltra málanna
við að undirbúa formlega viljayfirlýsingu Ís-
lands og Bandaríkjanna um samvinnu í
tengslum við norðurslóðir, þar á meðal
rannsóknir. Bandaríski utanríkisráðherrann
lýsti stuðningi við að koma á fót alþjóð-
legum samningi um varnir gegn olíumengun
í norðurhöfum, og þó ekkert væri í gadda
slegið lýsti hún ríkum skilningi á vilja Ís-
lendinga til að koma upp alþjóðlegri björg-
unarmiðstöð hér á landi.
Rússar hafa einnig lýst jákvæðum vilja til
að eiga samvinnu við Íslendinga um afmark-
aða þætti sem tengjast rannsóknum á norð-
urhveli. Fyrr á árinu kom hingað Smatko,
orkumálaráðherra Rússlands, að undirlagi
Pútíns forsætisráðherra Rússlands, og bauð
til samvinnu um landgrunnsrannsóknir.
Að öllum þessum málum er nú unnið af
krafti. Skýr stefna um norðurslóðir liggur
nú fyrir með einróma samþykki Alþingis.
Næstu skrefin felast m.a. í íslensku frum-
kvæði að tvíhliða samvinnu við aðrar þjóðir
norðursins, þar sem áherslan liggur á samn-
inga um sameiginlegar rannsóknir, baráttu
fyrir bindandi samningum um varnir gegn
olíuslysum, og uppbyggingu björg-
unarmiðstöðvar á Íslandi.
Eftir Össur
Skarphéðinsson » Samvinna um orku gæti í
framtíðinni orðið öflugasti
burðarásinn í samstarfi Græn-
lands, Íslands og Færeyja.
Össur Skarphéðinsson
Höfundur er utanríkisráðherra.
Norðurslóðir og næstu skref Íslands