Morgunblaðið - 31.05.2011, Page 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2011
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Edda Borg Ólafsdóttir, tónlistar-
kona og skólastýra Tónlistarskóla
Eddu Borg, heldur tónleika á Rosen-
berg í kvöld ásamt góðu teymi.
Geisladiskur kemur út með haustinu
og fá viðstaddir því að heyra hvað
koma skal. Tónlistin er öll samin af
Eddu Borg sem lýsir henni sem
„smooth jazz/fusion“ og er aðeins
hljóðfæraleikin. Edda Borg er virk í
tónlistarheiminum og hefur hún leik-
ið með ýmsum hljómsveitum og tón-
listarmönnum.
„Þetta áttu bara að vera einir tón-
leikar en þróaðist svo út í það að við
ákváðum að taka þetta allt upp í síð-
ustu viku, okkur leist svo vel á þetta.
Það eru því komnir grunnar að ellefu
lögum. Síðan fer ég með þessa músík
út og maður sem ég þekki í Los Ang-
eles ætlar að taka þetta lengra með
mér, vinna þetta betur og klára upp-
tökurnar. Hann hefur verið að vinna
með mönnum á borð við George
Benson og Al Jarreau,“ segir Edda
Borg.
Þurfti að tappa af
Aðspurð hvers vegna Edda Borg
hafi ákveðið að gefa út sólóplötu akk-
úrat núna segir hún að líklega hafi
það verið til þess að losa um og hafa
pláss fyrir nýtt. „Ég er að reyna að
hasla mér völl sem lagahöfundur og
koma mér á framfæri sem slíkur.“
Edda vinnur einnig að alls konar
annarri tónlist og þá líka með söngv-
urum, allt frá rokki og út í klassík en
hún lærði klassískan píanóleik.
– Fékkstu einhverja hvatningu til
þess að kýla á þetta?
„Það má eiginlega segja að þegar
Bjarni, eiginmaður minn, var að
fylgja sinni plötu eftir voru þeir fé-
lagar á tónleikum og tóku tvö lög eft-
ir mig. Þetta varð til þess að þá lang-
aði til að gera plötu með mér.“
Djassaður krakki
Edda Borg ólst upp við mikinn
djass. „Í gegnum tíðina hef ég verið
að syngja mikið bakraddir og spila
mikið popp. Djassinn hefur þó alltaf
verið þarna undir og það má eigin-
lega segja að ég sé að koma út úr
skápnum að þessu leytinu til. Þetta
er allt músík eftir mig og allt svona
djassskot,“ segir Edda Borg. „Það
eru rosalega margir hissa að ég skuli
vera að gera þessa tegund af tónlist
og ekkert af þessu sungið.“ Það
verður gaman að sjá hvað Edda
Borg og co. hafa upp á að bjóða.
Ásamt Eddu Borg á píanó spila á
tónleikunum Agnar Már Magnússon
á hljómborð, Ásgeir Ásgeirsson á
gítar, Bjarni Sveinbjörnsson, eigin-
maður Eddu, á bassa, Erik Qvick á
trommur og Sigurður Flosason á
saxófón. Tónleikarnir á Café Rosen-
berg hefjast klukkan 21:00.
Djassinn hefur alltaf iðað í skinninu
Morgunblaðið/Sigurgeir S
Á æfingu Edda Borg segist hafa þurft að tappa af til að skapa pláss fyrir nýtt. Einvala lið verður með henni í kvöld.
Ljúfir djasstónar óma á Café Rosenberg í kvöld þar sem Edda Borg spilar ásamt fríðu föruneyti
Virk í tónlistarheiminum og samið tónlist alla tíð en ekki gefið neitt út fyrr en nú
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Trommusnillingarnir Einar Valur
Scheving og Halldór Lárusson
standa að Beat-Camp-trommu-
námskeiði 17.-19. júní. Námskeiðið
er ætlað öllum trommuleikurum
sem hafa grunnþekkingu á hljóð-
færinu, en einnig lengra komnum.
Það verður haldið í Skálholtsskóla í
Biskupstungum og um er að ræða
þriggja daga námskeið í trommu-
leik þar sem kennsla, markvissar
æfingar, fróðleikur og fleira er
fléttað saman, frá morgni til
kvölds. Einnig verður farið í tækni-
æfingar, líkamsbeitingu og fleira.
Allir geta grætt á þessu
„Það er þarna nægur tími fyrir
alls konar nördaskap. Við horfum á
vídeó og erum með alls kyns pæl-
ingar,“ segir Einar Valur. „Aðstað-
an í Skálholtsskóla er algjörlega til
fyrirmyndar.“ Námskeiðið var
haldið í fyrsta sinn í fyrra og vakti
það mikla lukku. Reyndar hét það
þá Trommu-Boot-Camp en þeim fé-
lögum fannst tilvalið að breyta því í
Beat-Camp enda mun flottara nafn.
Umsagnir sem Einar og Halldór
fengu eftir námskeiðið síðasta sum-
ar voru mjög jákvæðar.
„Það er 16 ára aldurstakmark.
En það voru þarna menn í brans-
anum í fyrra sem fengu helling út
úr þessu. Það geta allir grætt á
þessu.“ Á síðunni trommari.is má
nálgast frekari upplýsingar um
námskeiðið.
Leiðbeinendurnir
Einar Scheving útskrifaðist frá
Tónlistarskóla FÍH og stundaði
framhaldsnám við University of
Miami og lauk þaðan MA-prófi árið
2002. Einar hefur komið víða við og
verið eftirsóttur trommuleikari í
djass- og popptónlist frá unglings-
árum. Hann hefur einnig spilað inn
á yfir hundrað geisladiska.
Halldór Lárusson lærði trommu-
og slagverksleik við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík og síðar píanóleik
við Tónlistarskóla FÍH. Hann hef-
ur starfað sem trommuleikari frá
því að hann var 15 ára með mörg-
um af þekktustu tónlistarmönnum
Íslands.
„Fjöldi þátttakenda er takmark-
aður, við hleypum kannski svona
um tuttugu manns að,“ segir Einar
Valur. „Hvað er betra en að nörd-
ast með öðrum trommurum yfir
heila helgi!“
Í fyrra Trommunámskeiðið frá því í fyrra. Dagskráin var stíf og kennsla strembin en nemendur lærðu helling.
Tromma stanslaust yfir helgi
Einar og Halldór verða með Beat-Camp-námskeið í júní
Fátt betra en að nördast með öðrum trommurum
Sódóma Reykjavík stendur fyrir
stórtónleikum miðvikudaginn 1.
júní. Hljómsveitirnar Agent Fresco,
Benny Crespo’s Gang, Valdimar og
Andvari munu þar stíga á pall og
trylla lýðinn. Miðaverð á tónleikana
er 1.000 krónur og verður húsið
opnað kl. 22:00. Tónleikarnir hefj-
ast síðan kl. 23:00 en það er 18 ára
aldurstakmark.
Hljómsveitirnar í hnotskurn
Agent Fresco gaf út sína fyrstu
breiðskífu nú í nóvember í fyrra, A
long time listening. Þeir halda í
Evróputúr í sumar og munu þar að
auki spila á Hróarskeldu.
Benny Crespo’s Gang stefnir á að
gefa út sína aðra breiðskífu í sumar
og hefur fyrsta smáskífa þeirra af
plötunni, „Night Time“, heyrst óma
í útvarpinu undanfarið.
Hljómsveitin Valdimar er frá
Keflavík og hefur fengið góðar
undirtektir vegna plötu sinnar
Undraland, og lög á borð við Yf-
irgefinn og Brotlentur verið vinsæl.
Platan, sem kom út nýlega, var í 5.
sæti á lista Rásar 2 yfir bestu plötur
ársins 2010.
Síðast en ekki síst er það hljóm-
sveitin Andvari en hún var stofnuð
rétt eftir Airwaves árið 2009. Von
er á plötu frá þeim síðar á árinu.
gunnthorunn@mbl.is
Sýður upp úr á Sódómu
Morgunblaðið/Eggert
Rokk Frá tónleikum Agent Fresco
Munntóbak veldur
fíkn - jafnvel meiri
en við reykingar
Fáðu aðstoð við að hætta að nota tóbak
í 800 60 30 eða á reyklaus.is
RÉTT